Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 64

Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 64
FÓLK Í FRÉTTUM 64 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 5TA HERDEILDIN hefur nú sent frá sér samnefndan frumburð, en á bak við nafnið standa Gímaldin (Gísli Magnússon) og Loftur S. Loftsson sem fá síðan til liðs við sig ýmsa hljóðfæraleika og tvær ágætar söngkonur. Þetta er um margt sérstök plata – þjóðlagakynjuð tónlist sem dýft er í rokk og tekur ýmsa hliðarspretti. Text- arnir sækja sumir í rammíslenska vísnahefð, sagðar sögur af einhverri ógæfu eins og í draugavísunum í „Undir Starkaðssteini“ þar sem „beinin gulna við vindsins strok“. Aðrir textar eru á hinn bóginn súr- realískar samsetningar sem erfitt er að botna í, t.d. textinn um hjónalífið í fjórðu vídd í „Polkanum Klezmer“ þar sem kemur m.a. fyrir línan „þú ert svo hlutgerð að ég keyri á þér í vinnuna“(!). Söngkonurnar Sonja Lind og Unnur Andrea setja svip sinn á plötuna og gera mikið fyrir þau lög sem þær syngja með blátt áfram og tilgerðarlausum söng sínum – spilamennskan er á köflum nokkuð losaraleg og hljómurinn ekkert sér- staklega góður – en þær gefa þessu meiri festu og heildarsvip og halda þræðinum saman. Sum lögin eru varla meira en hálfkarað grín og flipp, t.d. „Fiskeldisbragur“ þar sem hljómurinn er frekar falskur og und- arlegur, en inn á milli tekst herdeild- inni ágætlega upp eins og í fyrr- nefndu „Undir Starkaðssteini“, þar sem næst draugalegt andrúmsloft og lagið státar af sérlega annarlegum gítarhljómum í millikaflanum. Í upp- hafslaginu „Guðrúnarvísur“ (þar sem ég held að sé sungið um epli sem vill verða banani) er takturinn þungur og forneskjulegur eins og staf sé barið í gólf enda er jólasveinninn ákallaður í því lagi en í allt aðra átt fer „Hring- dans“ sem er fjörugur ræll þar sem söngkonan fer út í náttúruna og syngur „í víðáttubrjálæði finnst mér gott að vera/þegar ég slepp loksins upp í sveit“. Einnig er ónefnt aukalag í lokin („Skref fyrir skref?“) áhuga- verður tilraunaspuni og „A kiss on the head“ er mjög sérstakt, melód- ískur söngurinn eins og venjuleg poppballaða sé á ferðinni en undir hljómar óskapnaðarforritun og allt annar taktur – fær mann óneitanlega til að sperra eyrun. Þetta er nokkuð ójöfn plata en það áhugaverðasta við hana er hvernig sveitin fer í óvæntar áttir með hljóma og nótur, beygir af leið þar sem mað- ur ætti von á beinni línu og útkoman er undurfurðuleg þjóðlagaframúr- stefna sem er í öfuga átt við alla meg- instrauma. Öfug átt 5ta herdeildin 5ta herdeildin Ógrunduð forsjá 5ta herdeildin er Gímaldin (söngur, gítar, mandólín, forritun), Loftur S. Loftsson (bassi/söngur), Sonja Lind Eyglóardóttir og Unnur Andrea Einarsdóttir söngur, Þórdís Claessen, ásláttur í 2 lögum og Elvar Geir Sævarsson gítar í einu lagi. Upptaka og hljóðblöndun: Gísli Magn- ússon. Ógrunduð forsjá gefur út. Steinunn Haraldsdóttir HLJÓMSVEITIN Sign sendi frá sér prýðilega plötu fyrir síðustu jól sem stakk nokkuð í stúf við það sem annars kom út þá; mun rokkaðri tón- list en aðrir voru að fást við og sú plata sem hér er tekin til kosta geng- ur enn lengra í þá átt; nú eru menn komnir á kaf í glys- rokkið eins og um- slag plötunnar undirstrikar svo eftirminnilega. Fyrir ofan himininn er skemmti- lega gamaldags svo mikið er víst, og byrjunin á henni, „Aldrei aftur“, er hreint framúrskarandi skemmtileg; léttþungt glysrokk af bestu gerð. Í því er allt vaðandi af gíturum, mylj- andi keyrsla og spunakaflar. Fyrir- taks lag sem undirstrikar að Ragnar Zolberg er enn að vaxa sem tónlist- armaður. Það er líka vel sungið því þó röddin eigi enn eftir að taka út þroska syngur hann blátt áfram og af einlægni. Annað lag plötunnar, „Sólin skín / Í síðasta skiptið“, finnst mér ekki eins vel heppnað, keyrslan ekki eins markviss þó það sé vel samsett og lokaspretturinn góður. „Eichvað“ byrjar með groddalegu dauðarokköskri og lagið hefði reynd- ar getað sómt sér vel sem slíkt, mikið af kaflaskiptingum og níðþungri stemmningu; bara auka hraðann ei- lítið og bjaga gítara meira. Rafgítarballaðan er á sínum stað, „Innri skugginn“ byrjar með hug- ljúfu gítarplokki og rólyndislegum söng, en síðan eykst þunginn smám saman þar til allt ætlar um koll að keyra í djöfulgangi, þá skipt aftur í lága gírinn og svo aftur af stað – klassískt þungarokklag með skemmtilegum spunaköflum í lokin, en hefði eins getað staðið fyrir sínu sem poppballaða, fer eftir útsetning- unni. Svo vindur plötunni fram, bestu lögin jafnan þau þar sem mest er í gangi, þ.e. þunginn er mestur, enda fer hamagangur slíkri tónlist best. Víða eru góðir sprettir sem fanga mann við fyrstu hlustun og leiða síð- an inn í lagið. Sjá þannig „Ég leitaði“ sem er með frábæru upphafi, en í því er meira á seyði en virðist við fyrstu hlustun. Frábært lag og næstbesta lag plötunnar á eftir „Aldrei aftur“. Þetta er mikil gítarplata og allur gítarleikur góður, skælifetlar og bjögunartól notuð af íþrótt. Gítar- kaflarnir í öðru lagi skífunnar eru þannig skemmtilegir og slíka spretti er reyndar víðar að finna á plötunni. Gítarhljómur er góður. Vert er einn- ig að geta trommuleiksins sem er hreint frábær út í gegnum plötuna, spilað af krafti og íþrótt (og greini- legt að gamall trommuleikari sat við takkana). Ragnar Zolberg syngur mjög vel, öskrar og raular eftir því sem við á, og raddar skemmtilega með sjálfum sér, sjá til að mynda tit- illag plötunnar og „Augun“, en Sig- urður Ágúst syngur líka bakraddir. Þessi plata Sign er hin besta skemmtun, kraftmikil og grípandi í senn, sannkallað rokk sem gefur fyr- irheit um framtíðina. Tónlist Sign Fyrir ofan himininn R&R-músík Fyrir ofan himininn, breiðskífa hljóm- sveitarinnar Sign sem skipuð er þeim Ragnari Zolberg sem leikur á gítar og syngur, Agli Erni sem leikur á trommur, Baldvin Frey sem leikur á gítar og Sigurði Ágústi sem leikur á bassa og syngur bak- raddir. Einnig leika þeir Ingó og Silli Geir- dal á gítar í einu lagi. Upptöku stýrðu feðgarnir Ragnar Zolberg og Rafn Jóns- son, en Rafn sá einnig um takkastjórn og hljóðblöndun. R&R músík gefur út. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Sverrir Ragnar Zólberg er söngvari og gítarleikari Sign. Sannkallað rokk Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu Þri 17. des. UPPSELT, sun 29. des kl. 20, HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti föst 3. jan, kl 20, laus sæti Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur föst 13. des, nokkursæti LOKASÝNING FYRIR JÓL. Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00 Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti, síðasta sýning fyrir jól Lau 28. 12. kl. 21 Jólasýning Föst 3/1 kl. 21 Uppselt Föst 10/1 kl 21 Sérstakar jólasýningar! 26. des. kl. 14 laus sæti 29. des. kl. 14. laus sæti 5. jan. kl. 14 laus sæti 12. jan. kl. 14. laus sæti 19. jan. kl. 14. laus sæti Stóra svið SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 29/12 kl 14 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Í kvöld kl kl 20 - AUKASÝNING ALLRA SÍÐASTA SÝNING Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Forsalur Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Lau 14/12 kl 20, Má 30/12 kl 20, UPPSELT SÓL & MÁNI Nýr íslenskur söngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA Frumsýning 11. janúar BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG TÓNLIST Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi: Rithöfundar lesa - léttur jazz - KK Í kvöld kl 20 Arnaldur Indriðason, Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn. JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Su 29/12 kl 20 JÓLAGAMAN Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Lau 14/12 kl 15:00 Su 15/12 kl 15:00 - Aðeins kr. 500, ELEGIA - FJÖGUR DANSVERK Pars pro toto - Rússibanar - Benda Fö 13/12 kl 20, Lau 14/12 kl 20 GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF Jólatónleikar Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR Jólatónleikar fjölskyldunnar í Háskólabíói laugardaginn 14. desember kl. 15:00 Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson Kórstjóri: Jón Stefánsson Einleikarar: Nemendur úr Allegro Suzuki skólanum Kór: Graduale nobile Kynnir: Atli Rafn Sigurðarson Á boðstólum verður m.a. tónlist úr kvikmyndinni um töfrastrákinn Harry Potter og heimsþekkt jóla- lög. Að síðustu taka allir lagið saman og aldrei að vita nema jólasveinninn komi í heimsókn. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN ÖRFÁ SÆTI LAUS Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz Leikstjóri: Vladimir Bouchler. Frumsýning fös. 13.12. kl. 20 uppselt 2. sýn lau. 14.12. kl. 19 laus sæti. Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum í leikhúsið yfir jólin. Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM Klundurjól Jólaskemmtun Hugleiks fös. 13. des. kl. 20.00 sun. 15. des. kl. 20.00 Ljúffengur málsverður fyrir alla kvöldviðburði MIÐASALA: 551 9030 kl. 10-16 má.-fö. Símsvari á öðrum tímum. Smurbrauðsverður innifalinn Miðasala Iðnó í síma 562 9700 Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó Sun. 15. des. kl. 15 og 20 Lau. 11. jan. kl. 20 Sun. 12. jan. kl. 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.