Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÆTTI VIÐ FRAMBOÐ
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins kom fram skýr krafa á
fundi oddvita R-listaflokkanna með
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra í gær um að hún félli
frá þingframboði fyrir Samfylk-
inguna, ella léti hún af störfum sem
borgarstjóri fyrir 1. febrúar. Ingi-
björg kveðst hafa boðist til að fara í
leyfi fram að þingkosningum en
heimildir Morgunblaðsins herma að
vinstri grænir og framsóknarmenn
ljái ekki máls á slíkri málamiðl-
unarlausn.
Framleiðslumet hjá ÍSAL
Ljóst er að álverið í Straumsvík
setur framleiðslumet á árinu, að
sögn forstjóra ÍSAL.
N-Kóreudeilan magnast
Stjórnvöld í Bandaríkjunum telja
að N-Kóreumenn geti framleitt fjór-
ar til fimm kjarnorkusprengjur á
næstu mánuðum eftir að þeir fjar-
lægðu eftirlitsbúnað til að taka gam-
alt kjarnorkuver aftur í notkun.
Garðyrkjustöðvar til sölu
Óvenjumargar garðyrkjustöðvar
eru nú til sölu og ein af skýringunum
er að blómaframleiðendur hafa átt í
erfiðleikum vegna offramleiðslu og
lágs verðs.
Deilt á norska fjölmiðla
Norskir fjölmiðlar eru sakaðir um
að hafa farið offari í umfjöllun sinni
um meint fjármálahneyksli Tore
Tønne, fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra Noregs, sem fyrirfór sér
um helgina eftir að hann var sakaður
um fjársvik.
2002 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER BLAÐ C
Róbert Julian Duranona nýtti heldur beturtækifærið sem Wetzlar gaf honum til að fóta
sig á nýjan leik í þýska handknattleiknum. Wetzl-
ar samdi við Duranona um að hann myndi leika
jólaleikina tvo með liðinu í þýsku 1. deildinni og
framhaldið færi eftir frammistöðu hans þar. Ekki
urðu þeir hjá Wetzlar sviknir af kúbanska Íslend-
ingnum á sunnudaginn því hann var með sýningu
og skoraði 7 mörk þegar liðið veitti Lemgo harða
keppni og beið nauman ósigur á heimavelli, 27:29.
Íslendingar sáu um meira en helming marka
Wetzlar í leiknum því Róbert Sighvatsson bætti
við 5 mörkum og Sigurður Bjarnason tveimur.
Lemgo lauk með sigrinum í fyrri umferð deild-
arinnar með fullu húsi stiga, er með 34 stig eftir
17 leiki, og það er afrek sem ekki hefur áður verið
unnið í þessari sterkustu deild í heimi.
Magdeburg náði sér á strik á ný og vann
Grosswallstadt, 29:24. Alfreð Gíslason, þjálfari
Magdeburg, sagði að sínir menn væru á leið upp
úr öldudalnum. Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk
en Sigfús Sigurðsson náði ekki að skora. Stefan
Kretzschmar, hornamaðurinn líflegi, gerði 13
mörk fyrir Magdeburg í leiknum.
Patrekur Jóhannesson skoraði eitt mark fyrir
Essen sem tapaði fyrir Flensburg, 26:18, og
missti af tækifæri til að nálgast efstu þrjú liðin.
Guðjón Valur Sigurðsson náði ekki að skora fyrir
Essen.
Gústaf Bjarnason lék með Minden þrátt fyrir
meiðsl og skoraði eitt mark í nágrannaslag gegn
N-Lübbecke sem Minden vann, 24:20.
Einar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir
Wallau-Massenheim og Gylfi Gylfason eitt fyrir
Wilhelmshavener þegar lið þeirra skildu jöfn,
31:31.
Duranona með sýningu
Vassell til
Hamars
HAMARSMENN hafa gengið frá
samningi við Keath Vassell um að
hann leiki með körfuknattleiksliði
félagsins í úrvalsdeildinni eftir
áramótin. Robert O’Kelley, sem
leikið hefur með Hamri í vetur
hverfur því til síns heima.
Vassell er ekki alveg ókunnur
úrvalsdeildinni því hann lék í þrjú
tímabil með KR, frá 1997, og
gerði á þessum tíma 1.526 stig,
22,8 að meðaltali í leik og tók 10,4
fráköst að meðaltali.
„Við vorum ekkert að hugsa um
að skipta um erlendan leikmann,
en þegar Vassell kom inn í mynd-
ina slógum við til. Við vitum hvað
við fáum og hann þekkir vel til
hér á landi. Við vonumst til að
hann komi okkur úr öðrum gír í
þann þriðja,“ sagði Pétur Ingvars-
son, þjálfari og leikmaður Hamars
í samtali við Morgunblaðið.
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir,
skíðakona frá Akureyri, keppti á
laugardaginn fyrst íslenskra kvenna
í bruni í heimsbikarmóti. Dagný
Linda fór brautina í Sviss á einni
mínútu 48,35 sekúndum og endaði í
44. sæti, 4,82 sekúndum á eftir aust-
urrísku stúlkunni Michaelu Dor-
meister, en 65 stúlkur tóku þátt í
mótinu.
Dagný Linda var með rásnúmer
62 og vann sig því talsvert upp frá
því sem búast hefði mátt við af
henni.
Keppni var stöðvuð um tíma á
laugardaginn vegna snjókomu efst í
brautinni en þá höfðu þrjátíu stúlkur
rennt sér. Fyrirhugað var að hætta
við keppnina en þegar aðstæður lög-
uðust aðeins var henni haldið áfram.
Dagný Linda stóð sig vel og var
meðal annars með 26. besta tímann á
síðasta tímatökusvæðinu.
Dagný Linda
í 44. sæti
Morgunblaðið/Kristinn
Kristín Blöndal og Anna María Sveinsdóttir hafa lengi leikið aðalhlutverk í sigursælu kvennaliði
Keflavíkur í körfuknattleik, sem tryggði sér sigur á KR í úrslitaleik Kjörísbikarkeppninnar, 80:54.
BÍLDSHÖFÐI - SMÁRALIND - SELFOSS
510 8020 WWW.INTERSPORT.IS
G
LEÐ
ILEG
JÓ
L!
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
EIÐUR SMÁRI LÉK VEL HJÁ CHELSEA SEM ER Í 2. SÆTI / C4
T
rúir þú á álfa og huldufólk?
Kannski – kannski ekki, en hér
kemur ein falleg en samt líka sorg-
leg þjóðsaga, þar sem sjá má að það
eru fleiri en við mannfólkið sem
höldum gleðileg jól.
Silkislæða í sjó
Jón nokkur bjó á Nesi við Borgarfjörð.
Kona hans hét Snotra og vissi enginn hverrar
ættar hún var. Hún var fríð og vitur kona, ró-
leg og hljóðlát. Þau Jón áttu eina dóttur. Eitt
þótti þó mönnum undarlegt við Snotru. Hvert
aðfangadagskvöld hvarf hún og kom aftur á
jóladagskvöld. Enginn hnýstist um hana fyrr
en smali bónda elti hana aðfangadag einn.
Þegar skyggja tók gekk Snotra út og niður
til sjávar og smalinn fór í humátt á eftir
henni. Hann sér hana taka upp tvær silki-
slæður í fjörunni, kasta annarri niður, en
breiða hina yfir höfuð sér og steypa sér í sjó-
inn.
Smalinn gerir slíkt hið sama, tekur silki-
slæðuna sem eftir lá og steypir sér á eftir
henni. Þau synda lengi en koma loks að græn-
um grundum, smalinn sér skrautlega borg,
en þaðan heyrist gleði og glaumur. Þangað
gengur Snotra og er höllin full af fólki og hell-
ings matur á borðum.
Maðurinn í hásætinu
Mjög svo tígulegur og prúðbúinn maður
situr í hásæti og er ósköp dapur, því á hans
hægri hönd er auður stóll. Þegar Snotra kem-
ur inn fagna henni allir, en þó mest maðurinn
í hásætinu. Hann faðmar hana og setur í auða
stólinn. Á meðan stendur smalinn í skugga
úti í horni. Nú fer fólkið að borða og er kinda-
kjötið svo feitt og girnilegt að smalinn hefur
aldrei séð slíkt. Hann læðist að borðinu, nær
einu rifi og geymir. Svo nær hann meiri mat
og étur. Eftir að menn höfðu matast var vín
drukkið og dansað af mikilli gleði.
Daginn eftir gengur allt fólk í kirkju. Þar
skildi smalinn ekki eitt orð, en fagur þótti
honum söngurinn. Þennan dag var einnig
mikil gleði, en undir kvöldið urðu allir hljóðir
því þá bjóst Snotra til brottfarar. Hún og
maðurinn í hásætinu kvöddust og voru mjög
svo raunamædd.
Sauðarif til sönnunar
Snotra og smalinn fóru sömu leið og fyrr,
gegnum sjóinn, upp á móti, og enduðu við
Nes.
Þá sér Snotra smalamanninn og spyr hvert
hann sé að fara. Hann kveðst hafa farið á eftir
henni alla leið, en hún trúir því ekki. Hann
sýnir henni þá sauðarifið sem hann stal.
„Hafðu mikla þökk fyrir, maður, þú hefur
leyst mig úr ánauð,“ segir hún, yfir sig glöð.
„Það var lagt á mig að ég skyldi fara í mann-
heima og vera þar alla ævi nema hverja jóla-
nótt mætti ég vera í álfheimum. Maðurinn í
hásætinu er konungur og maðurinn minn. Til
að leysa mig úr ánauðinni þurfti mennskur
maður að þora að fara á eftir mér til álfheima
og sjá þar bústaði mína. Og nú hefur þú hjálp-
að mér svo ég má fara heim til konungs míns,
en þú munt verða hinn mesti gæfumaður.
Hins vegar mun Jón bóndi minn verða
skammlífur því hann mun harma mig. Ég bið
þig því að taka dóttur okkar og ganga henni í
föðurstað.“
Smalinn lofar því og Snotra steypir sér aft-
ur í sjóinn. Hann gengur heim og segir eng-
um frá ferðum sínum. Svo fór sem Snotra gat
til, að Jón bóndi varð skammlífur. Smalinn
tók dótturina að sér og varð hinn mesti
auðnumaður.
Snotra
álfkona
Álfar á jólum
Hress jólasveinn að hætti
Ingu Bjarneyjar 3 ára,
Ásvöllum 7 Grindavík.
Það mætti halda að þetta
þýddi gleðilega páska. En
nei, svona segir maður gleðileg jól á Filipps-
eyjum. Komdu útlenskum vinum þínum á
óvart og óskaðu þeim gleðilegra jóla á þeirra
upprunalega tungumáli!
Danmörk Glædelig Jul!
Eskimóar Jutdlime pivdluarit ukiortame
pivdluaritlo!
Finnland Hyvaa joulua!
Frakkland Bon Noël!
Hawaii Mele Kalikimaka!
Hebreska Mo’adim Lesimkha!
Holland Zalig Kerstfeest!
Kína Kung His Hsin Nien bing Chu Shen Tan!
Króatía Sretan Bozic!
Indland Shub Naya Baras!
Spánn og Suður-Ameríka Feliz Navidad!
Svíþjóð God Jul!
Thaíland Sawadee Pee Mai!
Þýskaland Froehliche Weihnachten!
Maligayan
Pasko!
Jæja, hversu
klár ert þú í að
næla þér í jóla-
pakka? Hér
reynir á það!
Þrautin felst í
því að finna leið-
ina frá toppi
trésins og alla
leiðina út undir
trénu, þar sem
jólapakkarnir
bíða. Gangi þér
vel!
Nælt í pakka!
Hæ krakkar!
Jæja, nú er loksins upp runninn dagurinn sem
við erum öll búin að bíða svo spennt eftir.
Skemmtilegasti dagur ársins... þangað til við er-
um búin að opna alla pakkana okkar, en þá þurf-
um við að bíða í heilt ár fram að næstu jólum!
Nei, það er ekki alveg satt. Það er líka gaman
að borða góðan mat. Það er gaman að vera
spenntur og í góðu skapi. Það er gaman að vera í
fínn. Það er gaman að hitta jólasveina. Það er
gaman að eiga frí í skólanum. Það er gaman að
leika sér með nýja dótið sitt, og lesa nýju bæk-
urnar sínar. Það er gaman þegar svona margt er
gaman og öllum finnst gaman. Ekki satt?
Vonandi eigið þið tryllt og tjúlluð jól, og haldið
áfram á nýju ári að senda snilldarefni til okkar í
barnablað Moggans.
Takk fyrir árið og gleðileg jól!
Gleðileg jól!
Þegar við
óskuðum eft-
ir jólaefni í
barnablaðinu
1. desember
nefndum við
nokkur gömul
jólasvein-
anöfn. Svala
Kristfríður
greip eitt á
lofti og spyr
nú: Hvað
heitir þessi
jólasveinn?
Lausn í
Jólaþrautir.
Hvað heitir sveinki?
Hér er sveinki
að fara í reiðtúr
á jólagrísnum.
En eitthvað eru
þeir ruglaðir,
greyin. Getur
þú sett ræm-
urnar í rétta
röð svo myndin
verði fín?
Lausn: D-F-C-E-B-A
Jólagrís
Hér kemur einn skemmtilegur jólaleikur.
Keppendur útbúa helling af litlum miðum
og fá einhvern, sem ætlar ekki að spila með,
til að skrifa stafi á miðana. Hver keppandi
fær svo nokkra stafamiða sem saman mynda
eitt jólaorð, t.d. jólapakki, mand-
arína, stjarna o.s.frv.
Allir keppendur fá miðana sína
um leið og sá vinnur sem fyrstur
finnur út hvaða jólaorð miðarnir
hans mynda. Ofsa gaman!
Við viljum benda á að ef einhver
lumar enn á Jólablaði Moggans, er þar
að finna nokkra skemmtilega jólaleiki
fyrir spennta krakka.
Jólaleikur að stöfum
„Í jólahellinum er ekki allt með felldu!“ nefnir Sunna Mjöll Bjarnadóttir, 9
ára, Mánárbakka II, Tjörnesi, þessa fínu jólamynd sína, þar sem margt
skemmtilegt má sjá. Sunna Mjöll fær bókina Harry og hrukkudýrin.
Jólahellir
Gleðileg jól
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 49/51
Viðskipti 12 Minningar 40/42
Erlent 14/18 Staksteinar 56
Höfuðborgin 20 Bréf 58/59
Akureyri 22 Kirkjustarf 46/47
Suðurnes 24 Dagbók 60
Landið 26/28 Fólk 64/69
Listir 29/35 Bíó 66/69
Forystugrein 36 Ljósvakamiðlar
62/63/70
Viðhorf 40 Veður 71
* * *
Kynningar –
Blaðinu í dag
fylgir auglýs-
ingablað, Lord of
the rings-blaðið.
Blaðinu er dreift
um allt land.
Kynningar –
Blaðinu í dag
fylgir jólakort frá
Símanum. Kort-
inu verður dreift
um land allt.
AFGREIÐSLA Orkuveitu Reykja-
víkur var opnuð í nýjum höf-
uðstöðvum fyrirtækisins á Bæj-
arhálsi 1 í gær. Verið er að leggja
lokahönd á frágang hússins og er
stefnt að því að verktaki afhendi það
formlega í byrjun janúar.
Húsið er alls 14 þúsund fermetrar
að stærð og þar starfa rétt um 300
manns. Kostnaður við byggingu þess
er orðinn 2,5 milljarðar króna.
Einkennandi þáttur í nýju hús-
byggingunni eru opin skrif-
stofurými.
Morgunblaðið/Golli
Húsið er allt hið glæsilegasta, gengið er inn í holrými úr gleri sem tengir
saman austur- og vesturbyggingu hússins.
Afgreiðsla OR
opnuð á Bæjarhálsi
Opin skrifstofurými/20
LÍKUR hafa aukist á að bensínverð
muni hækka um áramótin en olíufé-
lögin hafa þó enn sem komið er eng-
ar ákvarðanir tekið um hvort breyt-
ingar verða gerðar á eldsneytisverði.
Olíuverð á heimsmarkaði hefur
hækkað stöðugt að undanförnu og
hafði í gær hækkað um 10% frá sein-
ustu mánaðamótum.
Hefur verðið eins og það var á há-
degi í gær ekki verið hærra í þrjá
mánuði samkvæmt upplýsingum
Hjörleifs Jakobssonar, forstjóra Ol-
íufélagsins. Hann bendir þó á að
Bandaríkjadalur hefur verið að
veikjast gagnvart krónunni, sem
vegi eitthvað á móti.
Miklar sveiflur á
bensínverði á árinu 2002
Útsöluverð á bensíni hefur sveifl-
ast mikið á árinu sem er að líða. Í
byrjun ársins var verð á 95 oktana
bensíni með fullri þjónustu 92,20 kr.
lítrinn hjá Olíufélaginu, Olís og
Skeljungi. Verðið lækkaði í 91,20 kr.
í mánuðunum mars og apríl en fór
síðan stighækkandi fram á haust-
mánuði.
Útsöluverðið með fullri þjónustu
fór hæst í október eða í 99,50 kr. lítr-
inn af 95 oktana bensíni en hefur
lækkað síðan og er nú 96,30 frá síð-
ustu verðbreytingu um seinustu
mánaðamót hjá Olíufélaginu, Olís og
Skeljungi.
Líkur aukast á
að bensín hækki
um áramót
SÍMINN hefur gert samning við
GlobeCast sem mun tryggja netsam-
band Símans við útlönd enn frekar,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Símanum. Segir að um sé að
ræða öflugt og sítengt samband í
gegnum gervihnött fyrir Netið sem
muni taka við allri netumferð Símans
samstundis og truflana verði vart á
Cantat3.
Í samningnum felst að sett verður
upp netsamband um gervihnött til
London sem hefur í för með sér að
sambandið mun ekki rofna jafnvel
þótt truflana verði vart á Cantat3-
sæstrengnum. Sæstrengurinn Cant-
at3 tengir að mestu leyti Ísland við
umheiminn, bæði hvað tal- og net-
samband varðar. Síminn hefur und-
anfarin ár verið með stöðugt vara-
símasamband í gegnum jarðstöðina
Skyggni. Segir í tilkynningunni að
þannig hafi Síminn ekki misst að fullu
niður símasamband sitt til útlanda
eins og hin íslensku fjarskiptafyrir-
tækin þegar Cantat3 bilaði 28. ágúst
síðastliðinn. Síminn hafi haft vara-
samband fyrir Netið í gegnum gervi-
hnött en það hafi ekki verið sítengt og
því hafi þurft að færa handvirkt sam-
band á milli er bilun kemur upp í
Cantat. Nú hafi Síminn tryggt net-
samband enn frekar með því að
semja um öflugt og sítengt samband í
gegnum gervihnött sem þannig taki
sjálfkrafa við netumferð um leið og
bilunar eða truflunar verður vart í
Cantat3.
Síminn mun jafnframt vera að
ganga frá samningi sem mun auka
öryggi netumferðar á Cantat3-
strengnum sjálfum, þ.e. nú er búið að
tryggja netsamband bæði við Evrópu
og Ameríku, þannig að ef bilun kem-
ur upp í strengnum öðrum megin er
samband tryggt í gegnum hinn legg-
inn. Áður var Síminn með alla net-
umferð sína til Ameríku. Segir einnig
að áfram verði unnið að lagningu FA-
RICE-strengsins, en vonir standa til
að hann komist í gagnið í lok næsta
árs eða í byrjun ársins 2004.
Tryggir öruggara
netsamband
EKKI tókst að undirrita samninga um sölu á
hlutafé ríkisins í Landsbanka Íslands fyrir jól
eins og að var stefnt. Ólafur Davíðsson, formað-
ur einkavæðingarnefndar, sagði að viðræður um
frágang samningsins hefðu átt sér stað í gær, en
niðurstaða hefði hins vegar ekki fengist. Hann
sagði að menn myndu halda áfram að tala saman
og vonaðist eftir að niðurstaða fengist fljótlega.
Einkavæðingarnefnd gerði 21. október sl.
samkomulag við Samson eignarhaldsfélag ehf.
um kaup á 45,8% hlut í Landsbanka. Áreiðan-
leikamat, sem KPMG gerði vegna sölunnar, var
ekki í samræmi við mat bankans á eigin verð-
mæti, sem lagt var til grundvallar í samninga-
viðræðum einkavæðingarnefndar og Samson
ehf. Þetta hefur tafið undirritun samninga.
Ólafur Davíðsson sagði í gær að engin nið-
urstaða væri fengin og menn ættu eftir að tala
betur saman. Hann sagðist vonast eftir niður-
stöðu sem fyrst, en vildi engu spá um hvenær
það gæti orðið.
Í tilkynningu til Kauphallar 29. nóvember seg-
ir að „nú [sé] miðað við að kaupsamningur verði
undirritaður fyrir áramót“.
Sala Landsbankans
Ekki undir-
ritað fyrir jól
ELDSVOÐAR vegna kertabruna í heima-
húsum verða áberandi algengir síðustu vik-
una í desember og er hættan mest á jóladag,
samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá-
Almennum tryggingum. Um þriðjungur
allra kertabruna í desember verður á jóla-
dag og þá er hættan næstmest á gaml-
ársdag, en 17% kertabruna í desember í
fyrra urðu á gamlársdag, eða sjö tilvik. Í
desember í fyrra fékk Sjóvá tilkynningar um
42 tjón af völdum kertabruna, og nam tjónið
5,6 milljónum króna. Af 42 tilvikum urðu 23
tilvik síðustu viku mánaðarins. Síðastliðin
fjögur ár hefur hættan verið hvað mest á
þessum tíma. Talsmenn Sjóvár telja að mið-
að við 35% markaðshlutdeild fyrirtækisins
megi reikna með allt að 150 kertabrunum í
desember sem kostar allt að 36 milljónir
króna.
Mikilvægt að fara ekki frá kertum
Einar Guðmundsson, forvarnafulltrúi Sjó-
vár, segir mjög mikilvægt að fólk yfirgefi
ekki logandi kerti og setji kertaskreytingar
ekki þar sem hætta er á að fólk rekist í þær.
Ennfremur sé mikilvægt að hafa ekki kerti í
námunda við gluggatjöld og gæta þess að
eldur berist ekki í skreytingar t.d. á aðventu-
krönsum.
Mesti eldhættudagurinn