Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Gaumur ehf. jók hlut sinn í
Baugi Group hf. fyrir helgi með
því að kaupa bréf fyrir 150 millj-
ónir króna að nafnvirði af Kaup-
þingi banka hf. á genginu 10,85.
Kaupverð nam því 1.627,5 millj-
ónum króna.
Í gær keypti svo Fasteigna-
félagið Stoðir, sem Baugur
Group á 44,25% hlut í og kaup-
rétt á 21,4% hlut að auki, 3,6% í
Baugi Group. Hlutur Stoða í
Baugi Group nemur nú 7 pró-
sentum.
Gaumur og Gaumur Hold-
ing með 37,23% í Baugi
Eftir kaupin er samanlagður
eignarhlutur Fjárfestingafé-
lagsins Gaums ehf. og Gaums
Holding S.A. í Baugi 37,23%, en
áður var samanlagður eignar-
hlutur þessara tveggja félaga
30,97%.
Samkvæmt hluthafaskrá í
byrjun vikunnar var Kaupþing
alls skráð fyrir 21,11% í Baugi
Group. Miðað við það er Kaup-
þing nú með 14,85% í fyrirtækinu.
Verð hlutabréfa í Baugi
Group í lok gærdagsins var
10,90 krónur.
Gaumur
og Stoðir
kaupa í
Baugi
HORFUR eru á að hagnaður
Frjálsa fjárfestingabankans á þessu
ári verði 485 milljónir króna. Guð-
mundur Hauksson, sparisjóðsstjóri
SPRON, segir að kaup SPRON á
bankanum hafi verið sannkallaður
happafengur. Samanburður á kenni-
tölum bankans við kennitölur ann-
arra banka sýni einnig að SPRON
hafi gert góð kaup þegar sparisjóð-
urinn keypti Frjálsa fjárfestinga-
bankann af Kaupþingi.
Í Morgunblaðinu sl. sunnudag
segir Jón Steinar Gunnlaugsson,
lögmaður fimmmenninganna sem
sem gerðu tilboð í stofnfé SPRON,
að vísbendingar séu um að SPRON
hafi keypt Frjálsa fjárfestingabank-
ann á of háu verði. Fimmmenning-
arnir eru að láta vinna sjáfstætt mat
á verðmæti bankans.
22% ávöxtun á eigin fé
„Frjálsi fjárfestingabankinn er
sannkallaður happafengur fyrir
SPRON,“ sagði Guðmundur Hauks-
son um þessa gagnrýni.
„Hagnaður bankans eftir skatta
og afskriftir er áætlaður 485 millj-
ónir á árinu sem er að líða. Það sam-
svarar 22% ávöxtun eiginfjár. Þessi
árangur sýnir hversu gott og vel rek-
ið fyrirtæki er um að ræða.
Miðað við þennan hagnað er end-
urgreiðsluverð bankans, eða svokall-
að V/H-hlutfall, innan við 8, sem þýð-
ir að kaupverð hans greiðist upp á
átta árum. Það er mjög gott miðað
við aðra banka.
Verðlagning Frjálsa fjárfestinga-
bankans er hagstæð borið saman við
helstu kennitölur íslenskra banka
miðað við níu mánaða uppgjörið
2002. Þegar t.d er litið á markaðsviði
hlutafjár á móti innra virði bankans
eða svokallað Q-hlutfall kemur í ljós
að Frjálsi fjárfestingabankinn er
metinn á 70% yfir innra virði sínu
sem er svipað og hjá Búnaðarbanka,
Landsbanka og Kaupþingi, en mun
lægra en hjá Íslandsbanka. Verðið
fyrir Frjálsa fjárfestingabankann er
því alveg í takt við markaðsverð
banka sem skráðir eru á hlutabréfa-
markaði. Það má minna á að yfirleitt
þegar banki er keyptur í einu lagi er
yfirleitt greitt hærra verð en sem
nemur síðasta markaðsgengi.
Tilraunir Jóns Steinars Gunn-
laugssonar og fimm stofnfjáreigenda
til að gera verðið á Frjálsa fjárfest-
ingabankanum tortryggilegt með því
að boða í Morgunblaðinu sl. sunnu-
dag nýtt mat eru óþarfar því að það
liggja allar tölur fyrir. Greininga-
deild Búnaðarbankans kynnti í nóv-
ember niðurstöðu útreikninga þar
sem sagt var að Frjálsi fjárfestinga-
bankinn hefði verið of hátt metinn.
Með þeirri aðferðarfræði sem Bún-
aðarbankinn notar má finna út að all-
ir íslenskir bankar séu ofmetnir þar
á meðal Búnaðarbankinn sjálfur.“
Nauðsynlegt var að styrkja
samkeppnisstöðu SPRON
Guðmundur bendir á að í sumar
hefði lokast sú leið sem SPRON ætl-
aði að fara til hlutafjárvæðingar. Það
hefði því verið nauðsynlegt að leita
annarra leiða til að efla og styrkja
sparisjóðinn svo að hann yrði ekki
undir í harðnandi samkeppni.
„Kaupin á Frjálsa fjárfestingabank-
anum styrkja samkeppnisstöðu
SPRON og gefur honum margvísleg
sóknarfæri í einstaklingsþjónustu.
Kostnaður við rekstur Frjálsa fjár-
festingabankans er helmingi minni
en annarra banka og við flutning
hans í húsnæði SPRON í Ármúla
skapast margs konar hagræðingar
og sóknarmöguleikar. Ég er því
sannfærður um að Frjálsi fjárfest-
ingabankinn sé sannkallaður happa-
fengur fyrir SPRON og fjárfestingin
muni skila sér hratt,“ sagði Guð-
mundur.
Guðmundur Hauksson efast ekki um að SPRON hafi gert góð kaup
Frjálsi fjárfestingabankinn
happafengur fyrir SPRON
!"#
$% & '
(
)*
(
+,
(
- *
(
$ . (
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
ÖLL ÉL styttir upp um síðir og það
átti sannarlega við í miðborg
Reykjavíkur um kvöldmatarleytið í
gær, ekkert nema stilla og hlýindi
og sást raunar til örfárra hraustra
karlmanna á stuttermabol. Fjöldi
manns kom saman á horni Ingólfs-
og Bankastrætis til þess að hlusta á
tenórana þrjá sem sungu á svöl-
unum á Húsi málarans. Fólk sem
Morgunblaðið ræddi við var flest
komið í hátíðarskap og ekki virtist
mikilli streitu fyrir að fara.
Inga og Sigurjón, sem stödd voru
í íþróttavöruverslun, sögðust alltaf
fara í bæinn á Þorláksmessukvöld.
Sigurjón var með jólasveinahúfu
með blikkandi ljósum sem mamma
og pabbi keyptu í Búdapest nýlega.
„Nei, við keyptum engar gjafir þar
heldur vorum við bara að skemmta
okkur. Það er ekkert stress á okkur
núna, við eigum bara eftir að kaupa
tvær gjafir.“
Elmar og Erna segjast alltaf fara
í bæinn á Þorláksmessu. „Við eig-
um heima uppi í Árbæ en okkur
finnst betra að koma hingað en að
fara í verslunarmiðstöðvarnar. Það
er alltaf gaman að ganga hérna um
Laugaveginn á Þorláksmessu og
svo fáum við okkur heita súpu í
brauði hérna ofar í götunni. Við
reyndum að klára gjafakaupin að
mestu leyti í gær og ætlum að taka
það rólega núna og kippa með síð-
ustu gjöfunum.“
Kristín, Fríða Rún og Frosti voru
að hlusta á söng tenóranna þriggja.
Þau segjast yfirleitt reyna að fara í
miðbæinn á Þorláksmessukvöld.
„Það er alltaf stemning hérna og
við erum bara að koma okkur í jóla-
skapið enda erum við búin að kaupa
allar gjafirnar. Við erum bara að
rölta og skoða fólkið.“
Blóð og rjómakökur
Á meðan flestir voru á þönum á
milli verslana lá Kristinn Hörður
Guðmundsson hinn rólegasti á bekk
í Blóðbankanum. Við hlið hans stóð
jólasveinninn Þorsteinn Hanning
Kristinsson og ofan á honum Jas-
mín Kamilla Liljudóttir. Kippkorn
frá Kristni lá bróðir hans Högni
sem einnig var að gefa blóð en
María Titia hjá Blóðbankanum
minnti á að opið verður til hádegis
á aðfangadag og svo aftur til há-
degis á föstudag.
Jólasveinarnir ungu sögðust hafa
klætt sig upp strax um morguninn.
Þeir tóku jafnframt fram að blóðið
væri ekkert hættulegt. „Það er
bara svona vínrautt á litinn.“ Þeir
höfðu þó veður af rjómaköku og
öðrum kræsingum í kaffistofu Blóð-
bankans og fýsti nokkuð að vita
hvenær pabbi yrði búinn að gefa
nóg af blóði.
„Ég er að gefa blóð í 21. sinn og
síðustu skiptin höfum við bræður
farið saman að gefa blóð. Það stóð
þannig á að ég kom síðast 23. sept-
ember og átti því að koma aftur á
Þorláksmessu,“ segir Kristinn.
„Nei, það er ekkert stress í dag. Ég
á aðeins eftir að kaupa eina en jafn-
framt erfiðustu gjöfina – handa
konunni.“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þorsteinn Hanning, Jasmín Kamilla, Kristinn og María í blóðgjafaherberginu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurjón og Inga sögðust alltaf fara í bæinn á Þorláksmessukvöldi.
Kristín, Fríða Rún og Frosti hlustuðu á tenórana þrjá.
Erna og Elmar segja alltaf gaman á Laugaveginum.
Jólaskapið og gjafirnar