Morgunblaðið - 24.12.2002, Page 18
Reuters
NOKKUR snjór hefur legið yfir
Pekingborg síðustu fimm daga og
valdið verulegum erfiðleikum í
samgöngum og á ýmsum öðrum
sviðum. Er þetta lengsti snjóakafl-
inn í borginni í 161 ár eða síðan
mælingar hófust árið 1841. Fyrra
metið var fjórir dagar 1990. Eru
borgaryfirvöld illa búin undir tíð-
arfar af þessu tagi og ekki hefur
bætt úr skák, að frostið hefur verið
um 10 gráður. Hér eru tveir menn
á gangi í snjónum fyrir framan
Forboðnu borgina Í Peking.
Óvenju snjóa-
samt í Peking
ERLENT
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KLAUS Naumann, fyrrverandi
yfirmaður vestur-þýzka hersins
sem á ferli sínum var m.a. for-
maður hermálanefndar Atlants-
hafsbandalagsins, lét í gær hafa
eftir sér að Bretar hefðu áformað
„útrýmingu óbreyttra borgara
Þýzkalands“ með skipulögðum
sprengjuárásum á þýzkar borgir
undir lok síðari heimsstyrjaldar.
Í viðtali við Berlínarblaðið Tag-
esspiegel lagði Naumann orð í
belg í umræðu sem ný bók þýzks
sagnfræðings um sprengjustríðið
hefur vakið. Sagði hann hinar
skipulögðu árásir brezka
sprengjuflugflotans á þýzkar
borgir á síðustu mánuðum stríðs-
ins hafi ekki þjónað neinum skýr-
um hernaðarlegum tilgangi.
„Það sem ekki er hægt annað
en að harma er að Bretar gerðu
útrýmingu óbreyttra íbúa Þýzka-
lands að þungamiðju stríðs-
rekstrarstefnu sinnar,“ sagði
Naumann. „Ég hef mínar efa-
semdir um að slíkt sé réttlæt-
anlegt.“
Tagesspiegel birti í gær viðtal
sem blaðið tók við þá Naumann
og sagnfræðinginn Jörg
Friedrich, höfund bókarinnar
„Bruninn: Þýzkaland í sprengju-
regni 1940–1945,“ en bókin hefur
kveikt umræður bæði í Þýzka-
landi og Bretlandi um réttmæti
þeirrar stefnu brezku herstjórn-
arinnar – með Winston Churchill
í broddi fylkingar – að gera
skipulagðar „teppasprengjuárás-
ir“ á þýzkar borgir síðustu miss-
erin fyrir uppgjöf Þjóðverja í maí
1945. Í bókinni er látið að því
liggja að stefnan að baki árás-
unum, sem kostuðu allt að
650.000 óbreytta borgara lífið,
þar á meðal um 75.000 börn, jafn-
aðist á við stríðsglæpi.
Friedrich segist í viðtalinu
hissa á sumum þeim viðbrögðum
sem bók hans hefði fengið í Bret-
landi, en þar í landi væri sprengj-
ustríðið almennt enn álitið hafa
verið „hernaðarleg nauðsyn“ til
að vinna fullnaðarsigur á „Þriðja
ríkinu“.
Vildu „útrým-
ingu þýzkra
borgara“
Berlín. AFP.
Deilt um stríðsrekstrarstefnu
Breta undir lok seinna stríðs
HART er nú deilt á fjölmiðla í Nor-
egi vegna sjálfsvígs Tore Tønne,
jafnaðarmanns og fyrrverandi heil-
brigðismálaráðherra í tíð stjórnar
Jens Stoltenbergs, að sögn Aften-
posten. Er einkum Dagbladet sakað
um að hafa farið offari í umfjöllun
sinni um meint fjármálahneyksli en
Tønne þáði greiðslur frá stórfyrir-
tæki fyrir ráðgjöf þótt hann væri enn
á biðlaunum ráðherra. Tönne fannst
látinn við bíl sinn í Drammen,
skammt frá Ósló, á laugardag. Per
Edgar Kokkevold, framkvæmda-
stjóri Fjölmiðlasambands Noregs,
vill að óháðir fjölmiðlafræðingar fari
yfir umfjöllun norskra fjölmiðla
varðandi mál Tønne með tilliti til sið-
fræðilegra álitamála.
„Við verðum að fara yfir hlutverk
fjölmiðlanna: það finnst mér að sé
sjálfsagt mál í máli sem þessu. Hver
á að gæta varðanna? Það er allavega
mikilvægt að við lítum með gagnrýn-
um augum á okkar eigið hlutverk,“
sagði Kokkevold í samtali við Aften-
posten í gær. Hann segir þó út í hött
að kveða upp dóma í þessum efnum.
Biðlaun og ráðgjöf
Tønne var frá Norður-Þrændalög-
um, hann var fæddur 1948, kvæntur
og tveggja barna faðir. Hann var for-
stjóri ríkisolíufélagsins Statoil á ní-
unda áratugnum en síðar Norway
Seafood í hálft annað ár áður en
Stoltenberg bað hann að taka að sér
ráðherraembættið sem hann gegndi
í tæp tvö ár. Er stjórn Stoltenbergs
varð að víkja sótti Tønne um biðlaun
í þrjá mánuði eins og hann átti rétt á.
Var fjárhæðin um 195 þúsund n. kr.
eða rúmar tvær millj. ísl. kr. En jafn-
framt tók hann að sér
ráðgjafarstörf fyrir
stórfyrirtæki auðkýf-
ingsins Kjell Inge
Røkke, Aker Kværner
og var kveðið á um að
ef starf Tønne bæri ár-
angur fengi hann
ákveðna bónus-
greiðslu. Mun hún hafa
numið liðlega 1,6 millj-
ónum norskra kr. eða
um 18 milljónum ísl. kr.
Skrifstofa Kjell
Magne Bondevik fór
þess á leit við Tønne að
hann endurgreiddi
hluta biðlaunanna og
staðfesti hann fyrir dauða sinn að
það hygðist hann gera. Á föstudag
afhenti efnahagsbrotadeild norsku
lögreglunnar lögfræðingi Tønne
kæru og mun hann þar vera sagður
hafa gerst sekur um „gróf fjársvik af
vangá“. Viðurlög eru sekt eða fang-
elsi allt að tvö ár.
„Æsifréttablöðin drápu Tønne,“
segir Jens Ulltveit-Moe, útgerðar-
maður og formaður Samtaka at-
vinnulífsins í Noregi (NHO), í sam-
tali við blaðið Dagens Næringsliv.
Hann var náinn vinur Tønne síðustu
tvo áratugina. „At-
vinnurekendur eru
ekki öðruvísi en annað
fólk,“ segir formað-
urinn. „Þeir hafa meiri
völd en aðrir en verða
einnig að sætta sig við
harðari gagnrýni. En
hún má ekki verða að
ofsóknum eins og
Dagbladet stóð fyrir.“
Hann segir að Tønne,
sem var talinn mikill
dugnaðarforkur og
með háskólapróf í bæði
lögfræði og hagfræði,
hafi verið skólabókar-
dæmi um mann sem
tókst að bæta tengslin milli æðstu
embættismanna, stjórnmálamanna
og atvinnulífsins. Einstaklingar í
hverri grein lifi nú hver í sínum
heimi en Tønne hafi verið mikilvæg
undantekning frá þeirri reglu.
„Þetta var helsti kostur Tønne –
og jafnframt ástæða þess að æsi-
fréttablöðin drápu hann,“ segir Ullt-
veit-Moe um örlög vinar síns. Hann
segir Dagbladet hafa lagt sig sér-
staklega fram í árásunum á ráð-
herrann fyrrverandi en fleiri blöð
hafi lagt sitt lóð á vogarskálarnar.
„Umfjöllun Dagbladet hefur verið
sérstaklega ámælisverð og nú hefur
hún kostað mannslíf.“ Hann segist
viss um að sumir fjölmiðlamenn telji
að Tønne hafi fengið þá meðferð sem
hann hafi átt skilið. Og ef þeim finn-
ist það ekki muni þeir samt réttlæta
gerðir sínar með einhverjum hætti,
þeir séu vanir því.
Líkt við mestu þrjóta?
Yngve Hågensen, formaður
norska Alþýðusambandsins (LO),
sat í stjórn Aker Kværner ásamt
Tønne sem sagði af sér varafor-
mannsstöðu í stjórninni er mál hans
kom upp. Hågensen er afar ósáttur
við hegðun fjölmiðlanna. Þeir hafi
tætt Tønne í sig í tvær vikur og með-
höndlað hann eins og hvern annan
afbrotamann, áður en nokkur ákæra
hafði verið lögð fram. „Myndir voru
teknar af honum á heimilinu og í
sumarbústaðnum og það var eins og
hann væri einn af mestu þrjótum í
heiminum,“ sagði Hågensen sem
efast um að hæfir menn gefi kost á
sér til starfa fyrir samfélagið ef þeir
geti átt á hættu að vera teknir fyrir
með þessum hætti.
Aðalritstjóri Dagbladet, John
Olav Egeland, segist ekki furða sig á
því að lesendur velti fyrir sér hvort
blöðin eigi sök á dauða Tønne. „En
það er mjög ábyrgðarlaust að kveða
upp dóma að svo stöddu,“ segir hann.
Fjölmiðlar sakaðir um dráp
Tore Tønne
Fyrrverandi ráðherra í Noregi
fyrirfór sér í kjölfar fjársvikabrigsla
TORE Tønne var um hríð forstjóri
norska stórfyrirtækisins Norway
Seafood en lét af því starfi er hann
tók við embætti heilbrigð-
ismálaráðherra. Friðrik Pálsson,
stjórnarformaður SÍF, kynntist
Tønne og segir hann hafa verið
mjög snjallan stjórnanda sem hafi
verið eldfljótur að setja sig inn í
málin. Friðrik hafði eftir norskum
kunningjum sínum að almenn-
ingur í Noregi væri sleginn og
reiður yfir hörmulegum örlögum
Tønnes vegna þess að hann hefði
haft afar gott orð á sér.
„Við hittumst nokkuð oft og átt-
um mjög góð samskipti. Hann var
mikill áhugamaður um meiri sam-
vinnu milli íslensku sölufyrirtækj-
anna og þeirra norsku. Tønne
hafði ekki verið í þessu starfi nema
nokkrar vikur þegar ég hitti hann
fyrst en var þegar búinn að setja
sig inn í hlutina og ákveða hvaða
leiðir skyldu valdar. Það sama
virðist hafa orðið þegar hann var
ráðherra, hann setti mark sitt á
þau mál þótt hann væri ekki lengi í
embættinu.
Hann minnti mig helst á bráð-
greindan og heiðvirðan íslenskan
bónda. Hann var jarðbundinn,
kíminn, afskaplega hlýr og
skemmtilegur persónuleiki og
mikill vinnuþjarkur. Hann var ein-
hver ólíklegasti maður af þeim sem
ég hef kynnst um dagana til að
lenda í einhverju misjöfnu eins og
gefið var í skyn að gerst hefði.
Enda kemur í ljós þegar málið er
skoðað að þetta liggur sennilega á
einhverju gráu svæði.
Hann var sjálfur heill og heið-
arlegur karakter og gat að því er
virðist ekki hugsað sér að lenda í
því að fá á sig ákæru, einfaldlega
höndlaði það ekki. Mér skilst að
óheimilt sé að ráðherra á biðlaun-
um þiggi þau ef hann tekur við öðr-
um launum samtímis,“ segir Frið-
rik Pálsson.
„Hlýr og skemmtilegur persónuleiki“
KANADÍSKUR jólasveinn á
seglbretti var handtekinn af
bandarísku landamæralögregl-
unni eftir að vindar báru hann
yfir Niagarafljót og til Banda-
ríkjanna.
John Fulton, frá Fort Erie í
Ontario-fylki í Kanada, fer um
hver jól í jólasveinabúning og
brunar á seglbretti á fljótinu,
sem skilur að Kanada og
Bandaríkin. En að þessu sinni
var heldur hvassara en Fulton
hafði reiknað með og barst
hann alla leið yfir fljótið.
Jólasveinn
handtekinn
Toronto. AP.
Scandinavian
Star-bruninn
Trygg-
ingasvik?
HUGO Larsen, fyrrverandi skipstjóri
á ferjunni Scandinavian Star, segir að
sumir skipverjar hafi blekkt slökkvi-
liðsmenn sem sendir voru á vettvang
frá Gautaborg þegar eldur varð laus
um borð í apríl árið 1990. Þeir hafi
sagt slökkviliðsmönnum að ekki væri
hægt að dæla samtímis vatni úr skip-
inu til að koma í veg fyrir að það sykki
og um leið beina vatni að eldinum sem
varð alls 159 manns að bana. Ferjan
sigldi milli Noregs og Danmerkur og
var á Skagerrak er eldurinn kom upp.
Öðru hverju hafa blossað upp um-
ræður í fjölmiðlum þar sem leitt hefur
verið getum að því að eigendur skips-
ins, sem virðast hafa verið fyrirtækið
Sea-Escape í Bandaríkjunum, hafi
látið kveikja í skipinu til að klófesta
tryggingarféð. Danska lögreglan er
nú að kanna málið á ný vegna upplýs-
inga Larsen sem segir að hans eigin
menn hafi ekki tekið þátt í þessu at-
hæfi. Hafi einhverjir skipverjar gert
það hljóti það að hafa verið einhverjir
af þeim átta mönnum sem fylgdu með
skipinu frá Bandaríkjunum.
Aftenposten hefur áður rætt við
Yngvar Brynfors, sem var um þetta
leyti slökkviliðsstjóri í Gautaborg og
hefur hann sakað skipverja um að
hafa vísvitandi tafið fyrir slökkvi-
starfinu.