Morgunblaðið - 24.12.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 24.12.2002, Qupperneq 24
SUÐURNES 24 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Dansandi jólakettir voru meðal þeirra furðuvera sem svifu um sali íþróttahússins í Keflavík á jólasýningunni. Dansandi jólakettir BLÁA lónið hf. afhenti Barnaspít- alasjóði Hringsins um eitt hundr- að þúsund krónur að gjöf á dög- unum. Að sögn Magneu Guðmunds- dóttur, markaðsstjóra Bláa lóns- ins, var ákveðið að gera þetta í stað þess að senda út jólakort. Magnea fór á fund Hringskvenna og afhenti Áslaugu Viggósdóttur, formanni Hringsins, gjöfina. Bláa lónið hefur áður gefið andvirði jólakorta til líknarmála. Styrkja Hringinn Bláa lónið ÞRÍR menn sem kennt hafa við Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru sæmdir tignarmerki skólans við skólaslit haustannar og braut- skráningu nemenda sem fram fór síðastliðinn laugardag. Að þessu sinni voru brautskráðir 46 nemendur frá skólanum, af sjö brautum. Þar af voru 39 stúdentar, fimm nemendur af iðnbraut húsa- smiða og tveir af vélstjórnarbraut annars stigs. Þá var útskrifaður einn meistari í rafvirkjun. María Svavarsdóttir var í hópi þeirra nema sem luku námi í húsasmíði og fékk hún sérstakar viðurkenn- ingar fyrir árangur í tæknigrein- um. Um hálfur annar áratugur er síðan stúlka útskrifaðist síðast úr þessari grein við FSS. Við athöfnina voru veittar við- urkenningar fyrir góðan námsár- angur. Ólafía Sigurjónsdóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi og fékk viðurkenningu fyrir það hjá Sparisjóðnum í Keflavík auk fjölda viðurkenninga frá skólanum fyrir námsárangur í einstökum greinum. Auk þess fékk hún viðurkenningu frá Eddu útgáfu fyrir góðan árang- ur í íslensku. Skólinn og ýmis fyr- irtæki veittu einnig viðurkenning- ar. Þær komu í hlut eftirtaldra nemenda: Sigurður Guðjón Gísla- son, Ellen Ósk Kristjánsdóttir, Júlía Jónsdóttir, Ingibjörg Ragn- arsdóttir, Sigrún Jónatansdóttir, Valdís Ösp Árnadóttir, Arnþór Sigurðsson og María Svavarsdótt- ir. Þá fékk Oddný J. B. Mattadóttir viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda öldungadeildar. Gullmerki afhent Ólafur Jón Arnbjörnsson skóla- meistari afhenti Magnúsi Óskari Ingvarssyni, Sturlaugi Ólafssyni og Ægi Sigurðssyni gullmerki Fjölbrautaskólans en þeir hafa all- ir kennt við skólann í yfir 25 ár. Gat skólameistari þess að kenn- ararnir hefðu mótað skólastarfið í gegn um tíðina, sem kennarar og stjórnendur um lengri eða skemmri tíma og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir skólann. Þannig hefðu þeir unnið skólanum og framhaldsnámi á Suðurnesjum ómetanlegt gagn í meira en ald- arfjórðung. 46 nemendur brautskráðir á haustönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja Þrír kenn- arar sæmd- ir tignar- merki skólans Keflavík Ægir Sigurðsson, Magnús Óskar Ingvarsson og Sturlaugur Ólafsson fengu gullmerki FS en þeir hafa allir kennt við skólann í meira en 25 ár. Ólafía Sigurjónsdóttir var með hæstu einkunn á stúdentsprófi og fékk fjölda viðurkenninga. STJÓRNENDUR Stofnunar Vig- dísar Finnbogadóttur heimsóttu Sparisjóðinn í Keflavík á dögunum og afhentu sparisjóðsstjóranum sér- stakt þakkarskjal fyrir veittan stuðning. Fram kom að Sparisjóður- inn veitti stofnuninni fyrsta styrkinn á fyrsta starfsári hennar. Afhending þakkarskjalsins til Sparisjóðsins í Keflavík og fleiri fyr- irtækja var til þess gerð að minnast eins árs afmælis stofnunarinnar. Geirmundur Kristinsson spari- sjóðsstjóri veitti þakkarskjalinu við- töku úr hendi Auðar Hauksdóttur, forstöðumanns Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Vigdís sjálf var viðstödd afhendinguna. Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson Sparisjóðurinn fyrstur til að styrkja Keflavík Keflavík SANNUR jólabragur var á ár- legri jólasýningu Fimleikadeildar Keflavíkur sem fram fór í íþróttahúsinu í Keflavík sl. laug- ardag. Þar mátti sjá dansandi jólaketti, hreindýr, snjókarla, engla og fleiri jólaverur. Að sögn Sigurbjargar Guð- mundsdóttur, formanns deild- arinnar, hefur sýningin alltaf verið flott, en þessi sú allra besta hingað til. „Það er því að þakka að við erum með mjög hæfi- leikaríka þjálfara og Íris Hall- dórsdóttir sem er sýningarstjóri í ár hefur búið til mjög skemmti- lega umgjörð um sýninguna.“ Í kringum 200 börn æfa fim- leika hjá Fimleikadeild Keflavík- ur og nýtur íþróttin æ meiri vin- sælda hjá börnum í Reykjanesbæ. Iðkendur eru frá 3 ára aldri til 18 ára og í sýningunni fengu allir að taka þátt. Að upphafsatriði loknu fengu yngstu börnin að byrja og það gladdi áhorfendur að sjá lítil jólakríli dilla sér og sýna þau spor sem þau hafa lært í vetur. Síðan tók hver hópurinn við af öðrum og á búningunum mátti sjá að mikill metnaður og vinna er að baki sýningunni. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Óskum viðskiptavinum okkar nær og fjær og landsmönnum öllum gleðilegra jóla BLÁA lónið hf. tekur við rekstri Eldborgar, ráðstefnu- og kynn- ingarhúss Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, um komandi ára- mót. Hitaveita Suðurnesja hefur rekið ráðstefnu- og kynningar- miðstöð í Eldborg undanfarin ár en húsið er við orkuver fyr- irtækisins í Svartsengi. Í ráð- stefnumiðstöðinni er veitinga- þjónusta og jarðfræðisýning í Gjánni í kjallara hússins. Í Fréttaveitunni, fréttabréfi Hita- veitunnar, kemur fram að í Eld- borg hafi verið unnið ákveðið brautryðjendastarf en eftir því sem starfsemin vefji upp á sig sé talið heppilegra að fela rekst- urinn aðila sem hafi fleira starfsfólk og markaðsdeild. Samningurinn er til tveggja ára. Frá 1. janúar næstkomandi mun veitingaþjónusta Bláa lóns- ins hf annast rekstur, bókanir og kynningu á Eldborg, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá fyrirtækinu. Í Eldborg eru þrír tæknivæddir ráðstefnu- salir sem rúma allt að 300 gesti. Salarkynnin má einnig nota til mannfagnaða og veisluhalda af ýmsu tagi. Vonir um aukna starfsemi Í Fréttaveitunni kemur fram að fyrirtækið bindur vonir við að Bláa lóninu muni takast, með sínu öfluga markaðsstarfi, að auka enn ráðstefnu- og funda- hald í Eldborg og um leið er sú von látin í ljósi að slík aukning muni einnig hafa umtalsverð hliðaráhrif fyrir aðra ferðaþjón- ustu á svæðinu. Bláa lónið tekur við rekstri Eldborgar Svartsengi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.