Morgunblaðið - 24.12.2002, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 29
Kærleiksheimilið
eftir Gest Páls-
son er komin út
á hljómdiski og
er það Jón Júl-
íusson leikari
sem les. 120 ár
er síðan sagan var rituð en hún á
sér enn hliðstæður í samfélaginu.
Einnig er komin út á hljómdiski
20 kunn ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar í upplestri Jóns Júlíssonar,
m.a. Gunnarshólmi, Ég bið að
heilsa, Óhræðsið, Móðurást og
Ferðalok.
Útgefandi er Hljóðbókin. Hljóm-
diskarnir fást í bókabúðum Máls og
menningar, Pennanum-Eymundsson
og á skristofu Blindrafélagsins við
Hamrahlíð. Verð: 1.250 (Jónas Hall-
grímsson) og 1.350 kr. (Kærleiks-
heimilið).
Hljóðbók
Tvær orðabækur
fyrir yngstu börn-
in eru komnar út
í bókaflokknum
Fyrstu orðin mín:
Heima og Í búð-
inni. Bækurnar
eru litríkar með
ljósmyndum af
algengum hlutum
sem til eru á
hverju heimili og
keyptir eru í búð-
inni.
Útgefandi er
Skjaldborg. Bæk-
urnar eru 24 bls.
Verð: 998 kr.
hvor bók.
Guðspjöllin og
Postulasögurnar
eru komnar á
geisladisk í upp-
lestri fyrrverandi
og núverandi
biskupa: Karl Sig-
urbjörnsson les
Jóhannesarguð-
spjall, Ólafur
Skúlason les Matteusarguðspjall,
Pétur Sigurgeirsson les Mark-
úsarguðspjall og Sigurbjörn Ein-
arsson les Lúkasarguðspjall. Post-
ulasöguna les Helga Þ. Stephensen
leikari.
Útgefandi er Hið íslenska biblíu-
félag.
Hljóðdiskur
Bert og bakt-
eríurnar og Bert
babyface eru
tvær nýjar bækur
eftir Sören Ols-
son og Anders
Jacobsson. Þýð-
ingu annaðist
Jón Daníelsson.
Bert hefur
hræðilegar áhyggjur af að verða
veikur um jólin. „Jólin nálgast... og
það er hryllingur, dagbók!!! Í gær
þurfti ég að snýta mér enn einu
sinni. Skyldi ég vera að fá inflú-
ensubakteríur? Ég verð að leggjast
undir súrefnistjald og drekka úr
hálfs lítra lyfjaflösku. Það er alveg
100% bannað að vera veikur á að-
fangadagskvöld...“
Bert babyface segir frá Bert í
þrumustuði! Hann er nýbúinn með
skólann og þá býður ríki Janni
frændi honum í heimsókn til sín í
New York. Þar bíður hans sann-
kallað lúxuslíf! Límúsína, skemmti-
legir krakkar, músík og fleira. Bert
líður eins og hann sé heimsfræg
rokkstjarna. Svo kynnist hann syk-
ursætustu stelpu sem hann hefur
séð. Og hún er auðvitað kölluð
„Sugar“.
Útgefandi er Skjaldborg. Bæk-
urnar eru 173 bls. og 183 bls.
Verð: 2.780 kr. hvor bók.
Börn
GEORGE Best var knattspyrnu-
snillingur, sem vakti fyrst athygli
með enska félagsliðinu Manchester
United á sjöunda áratug nýliðinnar
aldar. Hann var fyrsti poppstjörnu-
fótboltamaðurinn, kallaður fimmti
Bítillinn og naut ótrúlegra vin-
sælda, bæði á meðal knattspyrnu-
unnenda og ekki síst í röðum
kvenna. Hann átti erfitt með að
fóta sig á hinum breiða vegi, áfeng-
ið tók sinn toll og ofdrykkja varð
honum nær að falli, en hann vonar
að hann hafi haft betur í þeirri
glímu og horfir björtum augum til
framtíðar.
Lánsamur heitir ævisaga þessa
norður-írska snillings, sem hann
skráir með aðstoð íþróttablaða-
mannsins Roy Collins, og þar leyfir
hann lesandanum að skyggnast inn
í veröld, sem hann hefur ekki sjálf-
ur greint frá áður. Hinni hliðinni,
lífinu utan vallar, svallinu og því
sem því fylgir. Fjölmargar myndir
prýða bókina, sérkafli er um helstu
atburði í lífi kappans í tímaröð,
greint er frá knattspyrnuferlinum í
tölum og bókinni lýkur með nafna-
skrá. Þýðingin er góð
nema hvað rétt er að
segja United (þ.e. liðið)
virtist en ekki, „United
virtust …“, hann gerði
Manchester United
(liðið) að Evrópumeist-
ara en ekki Evrópu-
meisturum, West
Brom á sér annars
sérstakan sess í huga
mér því það var fyrir
leik gegn því (liðinu)
en ekki þeim eins og
stendur í bókinni, og
svo framvegis.
Lífssaga þessa snill-
ings er ótrúleg. Hann var Evrópu-
meistari með liði sínu 1968 og kjör-
inn Knattspyrnumaður Evrópu
sama ár, aðeins 22 ára. Glæst fram-
tíð virtist blasa við þessum
skemmtilega framherja, en frægðin
er fallvölt og hann fékk að finna
fyrir því. Hann segir að sjöundi
áratugurinn hafi verið sá besti fyrir
atvinnumann í fótbolta en sá hættu-
legasti fyrir verðandi alkóhólista.
„Allt var í gangi á sjöunda áratugn-
um og ekkert virtist ómögulegt. Við
vorum fyrsta kynslóðin sem ekki
átti í stríði og þurftum ekki einu
sinni að gegna herþjónustu. Við
sáum því ekkert sem mælti á móti
stanslausum gleðskap, hvað sem
það kynni að hafa í för með sér.
Hjá mörgum var það
eiturlyfjaneysla og
þótt ég sé fíkinn hafði
ég til allrar hamingju
engan áhuga á slíku.
Ég var aftur á móti
mikið fyrir konur og
vín.“
George Best segir
frá hinu ljúfa lífi og
dregur ekkert undan.
Við lestur bókarinnar
rifjast margt upp í lífi
hetjunnar og það er
með ólíkindum hvað
hann stóð sig vel inn-
an vallar miðað við líf-
ernið utan vallar.
Lánsamur er skemmtileg bók,
fræðandi og innileg. Höfundurinn
er í hópi bestu knattspyrnumanna
sögunnar, en hann hefur líka verið
einn mesti gleðipinninn og tog-
streitan leynir sér ekki. Hann lýsir
vel hvernig hann ánetjaðist áfeng-
inu. „Bakkus er eini andstæðing-
urinn, sem mér hefur ekki tekist að
sigra,“ segir hann en lítur á björtu
hliðarnar og það er það sem situr
eftir. „Slæmu minningarnar munu
aldrei geta þurrkað út þær góðu.
Og þrátt fyrir skin og skúrir finnst
mér ég vera lánsamur þegar ég lít
til baka.“
Leikur George Best
að eldinum
BÆKUR
Sjálfsævisaga
eftir George Best og Roy Collins
Íslensk þýðing: Orri Harðarson. 320 bls.
Ormstunga – Reykjavík 2002
LÁNSAMUR
Steinþór Guðbjartsson
ÞAÐ FYRSTA sem gleður mann
við að fá eintak Molly Moon bókinni í
hendurnar, er að horfa á hana. Hún
er silfurlituð með köflum sem hver
og ein hefur hringlaga munstur sem
maður tengir strax dáleiðslu. Síðan
er að opna bókina.
Á fyrstu síðu sögunnar – í fyrstu
setningunum – kemst maður að því
að hér er á ferð skemmtileg aðalper-
sóna með húmor fyrir sjálfri sér og
sínum ófullkomleika. Þannig er hún
Molly Moon.
Þessari bók hefur verið líkt við
Harry Potter, sem er skiljanlegt að
vissu leyti, þar sem margir höfundar
óska sér sömu farsældar og J.K
Rowling. Molly er munaðarlaus eins-
og Harry, og öðlast einnig ofurkrafta
þegar hún rekst á dáleiðslubókina.
Hún lærir list dávaldsins, verður
flestum betri í henni og getur látið
alla drauma sína um betra líf rætast.
En Molly er öðruvísi. Þótt að
vissulega þurfi hún að berjast við
ytri ill öfl í formi fólks á munaðar-
leysingjahælinu og glæpamanns, þá
er fókusinn jafnmikið á baráttuna
sem hefst innra með henni, og
stúlkukindin lærir sína lexíu af því að
geta öðlast allt sem hugann girnist.
Hún fer að spyrja sig hvað sé mest
virði í lífinu, hvað gefi því gildi. Hún
kemst að því að frægð og frami eru
innantómt ástand og efnishyggju-
draumurinn holur í gegn. Það er ekki
svo slæmur boðskapur til íslenskra
unglesenda, þegar nýleg könnun
leiddi í ljós að æðsti draumur lang-
flestra íslenskra ungmenna er að
verða rík, fræg og falleg.
Stíll Georgiu Byng er engan veg-
inn einstakur. En hann er látlaus,
þjónar sögunni vel, fullur af húmor
og þýðing Ástu S. Guðbjartsdóttur
er bæði lipur og skemmtileg. Byng
tekst að skapa spennu sem helst
bókina á enda. Persónur eru líka
dýpri en oft er að finna í ævintýra-
legum sögum. Byng kafar að innvið-
um persónanna (og líka hundsins
Petúlu!), leyfir þeim að þróast, en
engin persónanna er að lokum sú
sama og í upphafi bókar.
Molly og lesendur hennar læra að
fólk er ekki alltaf það sem það sýnist
eða gefur sig út fyrir að vera. Oft
getur líka verið ósköp raunaleg
ástæða fyrir því að fólk hagar sér illa
og er jafnvel meinfýsið. Sjálf er
Molly ósköp eitthvað ófullkomin,
breysk stúlka, veikgeðja á köflum en
klár og skemmtileg þó. Það er ekki
spurning að lesendur eiga auðvelt að
samsvara sig Molly, því vissulega
eru fá okkar fullkomin.
Ekki skilja svo að hér sé á ferð ein-
hver sálfræði- eða persónustúdía.
Molly Moon er spennandi ævintýri
um snjalla stelpu, sem ferðast langt
yfir skammt í leit að hamingju með
óprúttinn glæpamann á hælunum.
Bókin hefur verið flokkuð fyrir börn
8-12 ára, en það er ekki spurning að
eldri börn og fullorðnir geti haft
gaman af henni. Það verður spenn-
andi að sjá hvað gerist í næstu Molly
Moon bók. Hvort sem dáleiðslan
verður einn af meginþáttunum eða
ekki, þá verða spenna og húmor
örugglega í fararbroddi og einnig
líklegt - og vonandi - að Molly læri
eitthvað fleira skemmtilegt og nyt-
samlegt um hina flóknu inniviði
mannverunnar.
Hildur Loftsdóttir
Í gegnum augun
BÆKUR
Börn og unglingar
eftir Georgiu Byng. Kápugerð: David Ro-
berts. Þýðandi: Ásta S. Guðbjartsdóttir.
296 bls. Bjartur 2002
MOLLY MOON OG DÁLEIÐSLUBÓKIN
Þorsteinn Thorarensen í Fjölva
lætur ekki deigan síga í útgáfunni
og ein þeirra bóka sem koma frá
honum þessi jólin er sérlega falleg
útgáfa á völdum ævintýrum
Grimmsbræðra. Hér eru blessunar-
lega ekki á boðstólum styttar eða
mildaðar Disneyútgáfur Grimms-
ævintýra heldur er upprunalega
texta bræðranna fylgt. Og sam-
kvæmt honum er grimmdin ljót og
hryllingurinn blóðugur. Hér er
máninn stundum illgjarn og sólin
getur átt það til að éta smábörn.
Lungu og lifur Mjallhvítar eru soð-
in og étin og dúfur kroppa augun úr
vondum stjúpsystrum. Vissulega er
það vel að Þorsteinn hefur kosið að
vera frumtextanum trúr því börn
eru sólgin í lestur sem sendir hrísl-
andi hroll eftir hryggjarsúlunni. En
auðvitað er fjölmargt annað en hroll
að finna í þessari bók. Fegurð, ást
og hlátur eru á sínum stað eins og
vera ber í alvöru ævintýrum.
Þorsteinn Thorarensen hefur
löngum þótt sérstakur í þýðingum
sínum og þessi bók er engin und-
antekning þar á. Hann er frum-
legur í orðavali og eins er vel við
hæfi í sígildum ævintýrum frá forn-
um tíma að nota sjaldgæf og gömul
orð þegar þess er kostur. Eins
smíðar hann stundum sjálfur ný
samsett orð og fer oftast vel á því.
En stílbrot þótti mér aftur á móti
þar sem hann notar orðið „pæjur“
og „gaur“ og eins var með talmáls-
rithátt eins og „hvaldiði“ (hvað
haldið þið), „solleiðis“ (svo leiðis) og
fleira í þeim dúr. Einnig hefði mátt
lesa handritið betur yfir því ein-
staka villa hefur slæðst í textann.
En allt eru þetta þó smáatriði sem
ekki breyta því að hér er á ferðinni
frábær bók, bæði fögur og
skemmtileg. Hún er í stóru broti og
nánast hver síða skartar stórum og
einstaklega fallegum litmyndum
Anastasíu Arkípóvu sem styðja
mjög vel við sögurnar og eru
ánægjulegt augnayndi fyrir yngstu
aðdáendurna sem þurfa að láta lesa
fyrir sig.
Þetta er tilvalin bók til gjafa og
gott innlegg í viðleitni til að halda
sagnaarfinum lifandi.
Fagur hrollur
BÆKUR
Ævintýri
Í íslenskri þýðingu Þorsteins Thor-
arensen. Myndskreyting: Anastasía Arkí-
póva. Fjölvaútgáfan 2002, bls. 198.
FEGURSTU GRIMMSÆVINTÝRI
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Tónaveisla nefn-
ist nýtt myndband
sem tekið var
upp á tónleikum
á vordögum árið
2002 í Íþrótta-
höllinni á Ak-
ureyri. Þar komu
fram Sigrún
Hjálmtýsdóttir,
Óskar Pétursson, Karlakórinn Heim-
ir, Álftagerðisbræður og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar. Tón-
leikarnir voru endurteknir í Há-
skólabíói. Viðtal er við þau Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur og Óskar Pétursson,
skreytt myndum úr náttúru Norður-
lands. Þá er brugðið upp mynd af
söngskemmtun Álftagerðisbræðra á
Broadway.
Útgefandi er Listalíf á Akureyri.
Verð: 2.241 kr.
Tónlistar-
myndband
Honk! Ljóti and-
arunginn nefnist
nýr geisladiskur
úr samnefndu
leikriti sem nú er
sýnt er í Borg-
arleikhúsinu.
Leikritið er eftir George Stiles og
Anthony Drewe. Hljómsveitarstjóri er
Jón Ólafsson, en ásamt honum
spila á disknum þeir Sigurður Flosa-
son, Ólafur Hólm og Friðrik Sturlu-
son. Gísli Rúnar Jónsson þýddi bæði
söngtextana og leikritið.
Það eru leikarar og söngvarar í
sem flytja lögin en með aðalhlutverk
fara þau Felix Bergsson, Edda Heið-
rún Bachman og Jóhann G. Jóhanns-
son.
Útgefandi er Leikfélag Reykjavíkur.
Geisladiskurinn er til sölu í Borg-
arleikhúsinu. Verð: 500 kr.
Barnalög