Morgunblaðið - 24.12.2002, Síða 32

Morgunblaðið - 24.12.2002, Síða 32
LISTIR 32 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÝNINGAR á kvikmyndum gerðum eftir bókinni Hringadrótt- inssaga hafa aukið vinsældir þessa bókmenntaverks gríðarlega und- anfarin ár. Í kjölfarið hefur vaknað áhugi manna á öllu því sem verkinu tengist og þ.á m. höfundi þess J.R.R. Tolkien. Framlag Tolkiens til hinna svo- kölluðu fantasíubók- mennta verður seint ofmetið og bækurnar Hobbitinn og Hringa- dróttinssaga fyrir löngu komnar á stall innan þess bók- menntageira. Áhrifa þeirra gætir víða en þó sérstaklega í sög- um sem oftar en ekki eru bendlaðar við hinn tímalausa stað Miðgarð eða Mið- heim. Í endursköpun eða endurrit- un sinni á goð- og þjóðsagnam- innum tókst Tolkien að skapa heim sem reynst hefur ótal höfundum sem nánast endalaus uppspretta sagna og minna. Í ævisögu þeirri sem rithöfund- urinn Michael White hefur tekið að sér að rita er að vissu leyti reynt að skyggnast á bakvið þá goðsagnakenndu hulu sem umlukið hefur Tolkien undanfarna áratugi. Sagt er frá uppvaxtar- og mennta- árum Tolkiens, samskiptum hans við aðra rithöfunda og eiginkonu hans Edith en síðast en ekki síst tilurð Hobbitans og Hringadrótt- inssögu. Að undanskilinni róstu- samri æsku og herþjónustu í fyrri heimsstyrjöldinni má segja að líf Tolkiens hafi verið ósköp tilbreyt- ingarsnautt. Þess á milli sem hann kennir við hina ýmsu háskóla, situr hann annaðhvort við skriftir eða á knæpu með félögum sínum úr fé- lagsskapnum Blekbændur sem rit- höfundurinn C.S. Lewis var m.a. meðlimur í. Ævisagan birtir mynd af sérvitringi með fullkomnunaráráttu sem þoldi illa gagn- rýni annarra. En bókin varpar einnig ljósi á uppsprettu sagna Tolkiens sem finna má í hinum mikla áhuga hans á fornnorrænum sög- um og þ.á m. Íslend- ingasögum. Stofnaði Tolkien í þessu skyni áhugahóp um lestur Íslendingasagna und- ir nafninu Kolbítarnir eða Coalbiters. Hin íslenska þýð- ing er að mörgu leyti ágætlega unnin þó gagnrýna megi smávægileg atriði eins og það ósamræmi hvort titlar bóka og verka séu þýdd eða ekki. Enn- fremur mátti finna hvimleið upp- setningarmistök eins og þar sem kaflinn „Veröld ímyndunaraflsins breytist í tilvísunarkafla í „Heimur ímyndunaraflsins. En þessi mistök skyggja ekki á lestur bókarinnar sem er ánægjulegur og veitir ágæta innsýn í hugarheim Tolki- ens. Sannarlega bók fyrir þá sem vilja kynna sér meira um uppruna og sköpunarferli verka Tolkiens. Hulunni svipt af Tolkien BÆKUR Ævisaga Eftir Michael White, Ágúst B. Sverrisson þýddi. 250 bls. PP Forlag TOLKIEN J.R. Tolkien Höskuldur Kári Schram VIKTORÍA Guðnadóttir (1969) er myndlistarmenntuð í Danmörku og Hollandi, á sjö ára nám að baki. Hún hefur tekið þátt í fjölda sam- sýninga en þetta er fjórða einka- sýning hennar, önnur hér á landi. Hún sýnir nú tvö verk í gallerí Hlemmi, myndbandsverk og hand- málaðan texta á vegg. Í innri sal gallerísins er mynd varpað á tvö tjöld andspænis hvort öðru, mynd sem þátttakandi í skrúðgöngu tek- ur af áhorfendum göngunnar. Þeir fylgjast forvitnir með því sem er að sjá, teygja sig og reigja til að sjá betur. Í galleríinu stendur áhorf- andinn þarna mitt á milli, í sporum tökumannsins sem horft er á líkt og viðundur. Í fremra rýminu hef- ur Viktoría handmálað texta, þakið veggina með einfaldri síendurtek- inni sögu um litla stúlku og ömmu hennar, um eilífa hringrás lífs og fjölskyldu. Myndbandið og textinn eru hvort um sig verk sem gætu allt eins verið sýnd ein og sér en saman gefa þau hvort öðru aukna dýpt. Orð og mynd eiga sér langa sögu innan myndlistarinnar. Við eigum frábærlega myndlýst handrit frá fyrri öldum. Og enn í dag segja listamenn sögur og sýna myndir. Eftir að hreinræktunarstefna mód- ernismans leið undir lok hafa alls kyns sögur og textar birst í mynd- listinni. Eiginleikar myndbands- formsins bjóða einnig upp á frá- sögn þó oft sé án orða, myndir sem segja sögu. Myndlistaráhorfendur í dag eru því vonandi í auknum mæli tilbúnir til að gefa sér tíma, nema staðar, horfa á myndband, lesa sögu. Af greinargóðri möppu sem Vikt- oría lætur liggja frammi, má sjá að hún hefur á undanförnum árum unnið nokkuð með myndbönd og ljósmyndir unnar í tölvu, einnig textaverk. List hennar byggist á einfaldri frásögn. Viðfangsefni Viktoríu í mynd- bandinu Pride er áhorf – áhorfand- inn horfir á áhorfendurna, sjónar- spil samfélagsins í hnotskurn. Í bók sinni Les mots et les choses skrifaði Michel Foucault ítarlegan texta um sjónarspil myndlistarinnar út frá málverki Velazquez, las Meninas. Seinni tíma dæmi eru skrif höfunda eins og Guy Debord, Marshall McLuhan, Baudrillard …um sjónar- spil samfélagsins. Hér á landi er skemmst að minnast verka til dæm- is Arnout Mik. Myndband Viktoríu einskorðar sig ekki við myndlistar- heiminn heldur fæst við samfélagið í heild. Það má að vísu ekki líta framhjá því að hún nefnir verkið eftir skrúðgöngunni, Gay Pride, en séð í víðara samhengi hittir það líka í mark, ekki síst hér á landi þar sem unglingar góna enn úr sér augun í Kringlunni sjái þeir svala útlend- inga. Okkar einsleita samfélag veit- ir ekki mikið rými og óttinn við allt sem er öðruvísi er mikill, hvort sem það er myndlist sem fólki þykir ný- stárleg þrátt fyrir að myndlistar- menn hafi unnið á svipaðan hátt áratugum saman, eða það að fólk bregður eitthvað út af vananum á einn eða annan hátt. Viktoría setur verk sín vel fram á skýran hátt, myndbandið er einfalt en áhrifaríkt. Sama er að segja um söguna litlu sem er síendurtekin á veggnum, um hringrásina og fjöl- skylduböndin sem veita öryggi og ást en líka er ómögulegt að losna frá. Línuleg framganga skrúðgöng- unnar og frásögnin í textanum, lífs- hlaupið sem vísað er til mynda fal- legan samhljóm. Verkin sýna hið almenna á yf- irborðinu en undir niðri krauma persónulegar sögur sem áhorfand- inn einn hefur aðgang að. Listakon- an reynir ekki að fylla í eyðurnar. Líkt og segir í greinargóðum skrif- um Debru Solomon í sýningarskrá veit hún að áhorfandinn gerir það sjálfur. Þar þarf enga sérfræði- þekkingu til, ekkert nema hjartað. Sérðu það sem ég sé Sýning Viktoríu Guðnadóttur í Galleríi Hlemmi. MYNDLIST Gallerí Hlemmur Til 5. janúar. Gallerí Hlemmur er opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. MYNDBAND OG TEXTAVERK, VIKTORÍA GUÐNADÓTTIR Ragna Sigurðardóttir MICHEL Houellebecq sló í gegn með skáldsögunni Öreindun- um sem kom út árið 1998 (ísl. þýð. 2000). Bókin þótti klámfengin í meira lagi og fordómafull svo sum- um þótti nóg um en aðrir sáu í henni áhugaverða og beinskeytta greiningu á innihaldsleysi og djúp- stæðri efnishyggju samtímans. Houellebecq var kallaður öllum ill- um nöfnum í fjölmiðlum, fasisti, stalínisti og mannkynbótasinni en bókin fjallaði meðal annars um möguleika líftækninnar. En þrátt fyrir illt umtal seldist bókin í bíl- förmum. Friðrik Rafnsson hefur nú þýtt nýjustu skáldsögu Houellebecqs, Áform, en hún hefur sömuleiðis selst mikið og valdið jafnvel enn meira umtali. Eins og flestir þekkja var höfundurinn kærður fyrir móðgandi orð sem hann lét falla um íslam í viðtali um bókina en Houellebecq var sýknaður fyrir dómi í París í haust. Sömuleiðis brugðust ferðaskrif- stofueigendur í Frakklandi ókvæða við meðferðinni á sér í bókinni en hún fjallar um kynlífs- ferðamennsku. Áform segir frá ári í lífi Michels, nafna höfundar, sem er fertugur piparsveinn og starfsmaður franska menningarmálaráðuneytis- ins. Hann er ókvæntur og sækir nektarstaðina grimmt til að full- nægja sterkri og fremur bjagaðri kynhvöt sinni. Í ferðalagi til Taí- lands, sem hann fer einkum til að reyna ungar asískar vændiskonur, kynnist hann Valerie, 28 ára konu sem starfar á ferðaskrifstofu. Val- erie reynist hinn mesti happafengur fyrir Michel því hún fullnægir dýpstu löngunum hans til kvenna og gerir hann hamingjusaman. Stuttu eftir heimkom- una fær Valerie tæki- færi til að byggja upp fyrirtæki í ferðaþjón- ustu ásamt sam- starfsmanni sínum. Undir áhrifum frá Michel ákveða þau að gera út á kynlífsferða- mennsku en í henni sér Michel gríðarlega gróðamöguleika. Ann- ars vegar séu í heiminum „nokkur hundruð milljónir Vesturlandabúa sem hafa allt til alls, nema að þeir ná ekki að fá kynferðislega full- nægingu“ og eru óhamingjusamir fyrir vikið. „Hins vegar eru nokkr- ir milljarðar einstaklinga sem hafa ekki neitt, eru að drepast úr hungri, deyja ungir, búa við hörmulegar aðstæður og hafa ekk- ert að selja nema líkama sína og kynlíf.“ Þetta telur Michel borð- leggjandi dæmi: „Þetta er kjörin vettvangur viðskipta.“ Valerie og samstarfsmaður hennar eru blind- uð af þessu augljósa gróðatækifæri og hefjast handa við undirbúning að framkvæmdinni. Og allt virðist ætla að ganga upp þar til óvæntur, algerlega ófyrirsjáanlegur atburð- ur setur strik í reikninginn. Áform er einföld saga og svín- virkar. Unnið er með skýrar en augljóslega varhugaverðar siðferð- islegar andstæður. Höfundur gengur eins langt og hann getur í frásögn- inni, hann ögrar við- teknum gildum, hann ögrar viðteknum vel- sæmismörkum, en frá- sögn hans er svo laus við tilgerð og ýkjur að hún verður aldrei óraunsæ eða ótrúverð- ug. Persónur eru mannlegar, allt of mannlegar á stundum, aumkunarverðar en auðskiljanlegar, hrein- ar og beinar en samt ekki einfaldar. Og fyr- ir vikið gengur þessi skáldskapur upp, hann er hreint mögnuð samtímalýsing – afhjúp- andi, mórölsk en langt í frá banöl, eins og siðferðisboðskapur vill verða. Áform býr ekki yfir frumkrafti Öreindanna. Hún er ekki jafnhrá, ekki jafnsláandi, ekki jafnóvænt. En Áform er, að mínu mati, betri bók. Frásögnin er ekki mörkuð óljósu tímaflakki, eins og Öreind- irnar, og hún reynir ekki af veik- um mætti að útskýra flóknar fræðikenningar. Frásögnin er markvissari, agaðri. Þótt bókin fari á köflum alldjúpt ofan í for- sendur og hugmyndafræði ferða- skrifstofurekstrar þá truflar það aldrei framvindu sögunnar. Áform er umfram allt hárbeitt skáldsaga um hinn hnignandi Evr- ópumann, eins og Michel kallar sjálfan sig, hinn spillta, grunna, eigingjarna, neysluþjáða, ráðvillta, stefnulausa, ófullnægða og óham- ingjusama samtímamann á Vest- urlöndunum góðu. Þröstur Helgason Hnignandi Evrópubúi BÆKUR Þýdd skáldsaga eftir Michel Houellebecq. Friðrik Rafns- son þýddi. Mál og menning, 2002. 306 bls. ÁFORM Michel Houellebecq ÁHUGI á íslenskri alþýðumenn- ingu fyrri alda hefur farið mjög vaxandi meðal fræðimanna á síðari árum og birtist það ekki síst í útgáfu á ýmiss konar frum- heimildum, sem varð- veittar eru í söfnum og lítt kunnar öðrum en þeim, sem þar þekkja til. Árið 1997 var hleypt af stokkun- um ritröðinni Sýnis- bók íslenskrar alþýðu- menningar og hefur ein bók verið gefin út á ári síðan, þessi hin sjötta í röðinni eins og fram kemur á titil- blaði. Már Jónsson sagn- fræðingur annast út- gáfu þessa bindis og ritar inngang. Þar gerir hann grein fyrir ævi- hlaupi Markúsar Bergssonar, sýslu hans og embættisskyldum og loks fyrir handriti og texta dóma- bókarinnar. Hún er í tveimur bind- um, varðveitt í Þjóðskjalasafni Ís- lands. Inngangurinn er rækilegur, alls 23 blaðsíður, og er að honum gott gagn. Á undan inngangi Más er að finna formála ritstjórnar rit- raðarinnar og þar á undan ávarp Jóns Páls Halldórssonar, for- manns Sögufélags Ísfirðinga, sem stendur að útgáfunni ásamt rit- stjórninni. Er ánægjulegt til þess að vita, að samstarf hafi komist á með heimamönnum og forvígis- mönnum ritraðarinnar og ætti það að geta orðið öðrum fyrirmynd. Að loknum inngangi Más tekur við texti sjálfrar dómabókarinnar og nær yfir tímabilið 1711-1729, er Markús gegndi emb- ætti sýslumanns í Ísafjarðarsýslu. Dómabókin geymir fjölmargar áhuga- verðar heimildir er varpa ljósi á líf og kjör alþýðu á Vest- fjörðum á fyrri hluta 18. aldar. Fyrirferð- armest eru mál Snæ- bjarnar Pálssonar, Mála-Snæbjarnar, en margir aðrir koma einnig við sögu, enda hikuðu menn ekki við að hefja málarekstur á þessum tíma frem- ur en endranær, oft af næsta litlu tilefni. Texti dómabókarinnar er prent- aður með nútímastafsetningu, en orðmyndir látnar halda sér, og ætti að vera aðgengilegur hverjum sæmilega læsum nútímamanni. Góður fengur er að útgáfum sem þessari og vonandi að framhald verði á. Af nógu er að taka. Gagnleg heim- ildaútgáfa BÆKUR Sagnfræði Dómabækur Markúsar Bergssonar sýslu- manns Ísafjarðarsýslu 1711-1729. Már Jónsson tók saman. 410 bls. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar 6. Háskóla- útgáfan 2002 TIL MERKIS MITT NAFN Már Jónsson Jón Þ. Þór

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.