Morgunblaðið - 24.12.2002, Page 60
DAGBÓK
60 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Trink-
et, Helgafell og Skóg-
arfoss koma í dag. Goða-
foss fer á morgun.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss og Ljósafoss komu í
gær. New Fantasy fór í
gær.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er þriðjudagsins 24. des.
er 77861. Númerin sem
dregin voru út eru: 1.
des. 4336, 2. des. 61698,
3. des. 62921, 4. des.
23624, 5. des. 75816, 6.
des. 57338, 7. des. 90096,
8. des. 74378, 9. des.
99888, 10. des. 6154, 11.
des. 101286, 12. des.
61905, 13. des. 80070, 14.
des. 99087, 15. des.
14950, 16. des. 89946, 17.
des. 44604, 18. des.
47037, 19. des. 91010, 20.
des. 34179, 21. des.
39546, 22. des. 86644, 23.
des. 98673, 24. des.
77861.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 17–18.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataútlutun
og fatamóttaka opin ann-
an og fjórða hvern miðvi-
kud. í mánuði kl. 14–17,
s. 552 5277.
Mannamót
Aflagranda 40. Lokað í
dag. Bingó föstudag 27.
desember kl. 14, fé-
lagsvist mánudag 30.
desember kl. 14. Starfs-
fólk Aflagranda óskar
öllum þátttakendum og
samstarfsaðilum gleði-
legra jóla.
Bólstaðarhlíð 43. Óskum
öllum gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel verður
lokað til mánudagsins 6.
janúar. 2003. Áramóta-
dansleikur verður mánu-
daginn 30. des. kl. 20.30
Happdrætti og Ásadans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Föstudaginn 27. desem-
ber og mánudaginn 30.
desember er opið frá kl.
9–16.30. Föstudaginn 3.
janúar verður áramóta-
guðsþjónusta í Digra-
neskirkju. Á eftir verður
ekið um höfuðborg-
arsvæðið ljósum prýtt.
Skráning á þátttöku haf-
in. Óskum öllum gleði-
legra jóla og farsældar á
nýju ári.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gullsmárabrids – Brids-
deild FEBK Gullsmára
er komin í jóla- og ára-
mótafrí. Árnum öllum
bridsurum og fjöl-
skyldum þeirra gleði-
legrar hátíðar. Hittumst
hress á nýju bridsári
(fimmtudaginn 9. janúar
kl. 12.45 á hádegi).
Norðurbrún 1. Starfs-
fólk Norðurbrúnar óskar
öllum gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
Breiðfirðingafélagið.
Jólatrésskemmtun verð-
ur sunnudaginn 29. des-
ember fyrir börn á öllum
aldri og hefst kl. 14.30.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla 3–5,
og í Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12. Stuðst er
við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið hús
alla laugardaga frá kl.
14.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl 2,
er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Kvenfélag Keðjunnar.
Nýársfagnaður Kven-
félagsins Keðjunnar
verður haldinn laug-
ardaginn 11. janúar 2003
í sal Tannlæknafélags-
ins, Síðumúla 35. Húsið
opnað klukkan 19 með
fordrykk. Konur tilkynni
þátttöku fyrir 3. janúar
til Oddnýjar í síma:
894 6828, Unnar Maríu í
síma: 587 2444, Ingi-
bjargar í síma: 554 4635
eða Ólafar í síma:
565 8565.
Minningarkort
Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555 og
588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort eru
afgreidd á skrifstofu fé-
lagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í síma
861-6880 og 586-1088.
Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl.10–15. Sími
568-8620. Bréfs. 568-
8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda Alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd á
skrifstofutíma í síma
552-4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta á
vefslóðinni: http://
www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna
Tryggvagötu 26, Reykja-
vík. Opið virka daga frá
kl. 9–13, s. 562-5605,
bréfsími 562-5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar ( K.H. ), er
hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630 og á
skrifstofu KH, Suð-
urgötu 44, II. hæð, sími á
skrifstofu 544-5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540-
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er að
senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og í
öllum helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis fást á
skrifstofu endurhæf-
ingadeildar Landspít-
alans, Kópavogi (fyrr-
verandi Kópavogshæli),
síma 560-2700 og skrif-
stofu Styrktarfélags van-
gefinna, s. 551-5941 gegn
heimsendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp. Minningarsjóður
Jóhanns Guðmunds-
sonar læknis. Tekið á
móti minningargjöfum í
síma 588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16. Ut-
an dagvinnutíma er tekið
á móti minningargjöfum
á deild 11-E í síma 560-
1225.
Hranfkelssjóður (stofn-
að 1931) minningarkort
afgreidd í símum 551-
4156 og 864-0427.
Í dag er þriðjudagur 24. desember,
358. dagur ársins 2002, aðfangadag-
ur jóla, jólanótt. Orð dagsins: En ef
einhver elskar Guð, þá er hann
þekktur af honum.
(I. Kor. 8, 3.)
LÁRÉTT:
forspár, 8 gjóla, 9 smá-
aldan, 10 verkfæri, 11
fleina, 13 meiðir, 15 ráð-
rík kona, 18 rengla, 21
nem, 22 aflaga, 23 sáð-
lands, 24 áköf.
LÓÐRÉTT:
2 styrkti, 3 mæla fyrir, 4
einkennis, 5 afkvæmi, 6
afkimi, 7 vendir, 12 tangi,
14 kyn, 15 tegund, 16
hamingja, 17 bikar, 18
sundfugl, 19 duglegur, 20
súg.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gerla, 4 fátæk, 7 gotan, 8 loppa, 9 aum, 11 alin,
13 árna, 14 ærnar, 15 kurr, 17 arða, 20 org, 22 býður, 23
lagin, 24 sorti, 25 pésar.
Lóðrétt: 1 gegna, 2 rætni, 3 Anna, 4 fálm, 5 tapar, 6
klaga, 10 unnur, 12 nær, 13 ára, 15 kubbs, 16 ræður, 18
regns, 19 agnir, 20 orgi, 21 gláp.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
JÓLIN eru að koma. Víkverjihefur yndi af þessari hátíð ljóss
og friðar. Notar þá tækifærið og
gerir vel við sig í mat og drykk og
nýtur samverunnar með fjölskyldu
og vinum. Er hægt að hugsa sér
það betra?
Seint verður Víkverji þó talinn til
helstu áhugamanna um jólaskraut.
Glysgirni er honum ekki í blóð bor-
in og lætur hann sér því fátt um
finnast þegar menn fara að sveifla
sér í trjám og hanga niður af hús-
þökum í desember til að hengja
upp raðhnýttar ljósaperur í metra-
vís. Hvurslags eiginlega er þetta?
Eiginkona Víkverja er á öndverð-
um meiði við hann í þessu efni.
Jólaseríur eru hennar líf og yndi og
reynir hún á hverju ári að sann-
færa hann um að jólaskreytingar
séu göfug íþrótt. Einmitt!
Varla þarf að taka fram hver hef-
ur umsjón með jólaskreytingum á
heimilinu.
Þannig var það líka þetta árið.
Nema hvað nú gekk á ýmsu.
Þannig er að Víkverji kemur
heim úr vinnu eitt kvöldið í byrjun
desember eins og lög gera ráð fyr-
ir. Mætir hann eiginkonu sinni á
ganginum. Hún er eitt bros. Vík-
verji þekkir þennan svip og fer í
geðshræringu að skima í kringum
sig. Nákvæmlega þetta bros þýðir
að einhverju hefur verið breytt í
íbúðinni. Víkverji er álíka eftirtekt-
arsamur og hann er glysgjarn og
kemst því oft í hann krappan þegar
þessi svipur er uppi. „Tekurðu ekki
eftir neinu?“ Ha, jú, jú. Sem þýðir
auðvitað nei. „Ekki hérna inni.
Úti.“ Já, þar. Sem þýðir líka nei.
En hvað er atarna? Ekkert. Eig-
inkonan staðfestir það. „Hvað, ég
var búinn að hengja jólaseríur á
runnana,“ segir hún forviða. Þarna
eru þær líka ef vel er að gáð. Það
er hins vegar steindautt á þeim.
Víkverji furðar sig á þessu og setur
upp rannsóknargleraugun. Og viti
menn. Stendur ekki kanína ná-
grannans þar álengdar – með hana-
kamb! Hún hafði sum sé nagað raf-
magnssnúruna í sundur. Svei bara!
Víkverji hellir sér auðvitað yfir
skepnuna. Gerir sig breiðan. En
allt kemur fyrir ekki. Konan var
óhuggandi.
Þar með er ekki öll sagan sögð.
Það tókst nefnilega að tjasla snúr-
unni saman. Eiginkonan var þar að
verki. Nema hvað? Adam var aftur
á móti ekki lengi í Paradís. Næsta
dag gerði fárviðri og draslið – af-
sakið orðbragðið – tókst á loft með
látum og dreifðist um allan garð.
Það var sjón að sjá. Víkverji elskar
konuna sína og fór auðvitað sem
leið lá að kaupa nýjar seríur, eins
og sönnum eiginmanni sæmir. Jafn-
vel þó útsölunni væri lokið. Og þær
hanga enn uppi, þrátt fyrir fleiri
heimsóknir Kára og kanínunnar.
Auðvitað má færa fyrir því skyn-
samleg rök að íslenskir vetrarvind-
ar og amerískar jólaseríur eigi ekki
samleið. Allt blessast þetta samt á
endanum. Því til staðfestingar
þurfa menn ekki annað en líta í
kringum sig. Hér logar ljós á
hverju strái fyrir jólin. Kannski
menn þurfi að hafa fyrir hlutunum
til að læra að meta þá. Í það
minnsta gægist Víkverji nú stund-
um út um gluggann á síðkvöldum –
án þess að nokkur sjái til – og
gaumgæfir hvort seríurnar séu
ekki örugglega á sínum stað. Hver
veit nema hann taki þær upp á sína
arma að ári? Sjáum til.
Víkverji óskar landsmönnum
gleðilegra jóla.
LEIKFIMIHÓPUR eldri
borgara fór í árvissa jóla-
ljósaferð sína 10. desem-
ber sl. undir leiðsögn
Dagbjartar Theódórsdótt-
ur. Heimsóttum við heið-
urshjónin Ástu Beggu
Ólafsdóttur og Gísla
Sveinsson, sem bæði eru
Skagfirðingar.
Hestheimar eru í um 20
mín. fjarlægð frá Selfossi
og tekur klukkustund að
aka þangað frá Reykjavík.
Þessi ferð mun verða okk-
ur ógleymanleg. Móttökur
í Hestheimum voru stór-
kostlegar. Við ókum upp
að vel upplýstu húsinu
sem sveipað var dulúð í
skammdeginu. Birtu var
tekið að bregða en þeim
mun meiri birta var inn-
andyra. Húsráðendur
stóðu í dyrunum og heils-
uðu öllum með handa-
bandi og buðu gesti vel-
komna. Húsið var skreytt
hátt og lágt óteljandi
smáu jólaskrauti og borð
svignuðu undan kræsing-
um. Þar mátti sjá tert-
urnar, randalín, nýsteikt-
ar kleinur, heimagert
flatbrauð með gæðahangi-
kjöti, fíngerðar smákökur,
heita brauðrétti, smurt
brauð og dýrindis sælgæt-
istertur. Til að fullkomna
þetta sungu svo hjónin
jólalög fyrir okkur. Þau
voru dásamleg, heillandi
og eðlileg og maður fann
að þessi söngur kom beint
frá hjartanu og hitti okk-
ur beint í hjartað.
Kæru hjón í Hestheim-
um. Hafið heila þökk fyrir
og gleðileg jól.
Jóhanna S.
Sigurðardóttir.
Frábær ferð
ÉG brá mér í gönguferð
með Göngu-Hrólfi til
Krítar í september 2002.
Ferðin var frábær, vel
skipulögð svo hvergi var
hnökri á og auðvitað ynd-
islegir ferðafélagar. Far-
arstjórar og starfsfólk
Úrvals-Útsýnar unnu líka
sitt starf af alúð og leystu
úr öllum vanda af kunn-
áttu og samviskusemi.
Ein úr hópnum.
Hver á jólakortið?
BÆÐI í ár og í fyrra hef-
ur mér borist jólakort
undirritað „þinn Guðjón
frá Mörk“ – og er greini-
legt að kortið telur mað-
urinn sig vera að senda
einhverjum sem hann
þekkir vel. En ég hef bara
ekki minnstu hugmynd
um hver þessi Guðjón frá
Mörk er og rekur ekki
minni til að hafa heyrt
manninn nokkurn tímann
nefndan. Rithöndin bend-
ir til að maðurinn sé gam-
all.
Ég heiti mjög algengu
nafni þannig að ég þykist
vita að þessi Guðjón sé að
senda kortið til einhverr-
ar nöfnu minnar – en á
kolrangt heimilisfang.
Hlýjar jólakveðjur þurfa
að komast til þeirra sem
kveðjurnar eiga að fá en
lenda bara ekki „einhvers
staðar úti í bæ“.
Ef einhver nafna mín
kannast við þennan „Guð-
jón frá Mörk“ bið ég hana
að hafa samband við mig
svo ég geti komið þessari
jólakveðju í réttar hend-
ur.
Gleðileg jól !
Guðrún Jóhannsdóttir,
sími 565-1831.
Pitsukveðjur
ÉG hrópa bara húrra fyr-
ir Hróa hattar-pitsustaðn-
um við Hringbraut.
Börnin mín voru að
halda stórt barnaafmæli
og fengu 5 pitsur á mjög
góðu verði á þessum síð-
ustu og verstu tímum.
Þær voru góðar og ódýr-
ar. Frábær þjónusta.
K.A.
Tapað/fundið
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA fannst í
Pósthússtræti 23. desem-
ber. Upplýsingar í síma
562 2436.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Aðventuhátíð
í Hestheimum
Velvakandi óskar lesendum sínum gleðilegra jóla.
K r o s s g á t a