Morgunblaðið - 24.12.2002, Síða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 11.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Rapparinn Lil Bow Wow finnur galdraskó sem Jordan
átti og kemst í NBA! Margur er knár þó hann
sé smár - frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 12, 2 og 4.
Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og 11.30.
kl. 3, 7 og 11.
YFIR 45.000 GESTIR
DV
RadíóX
Sýnd kl. 2, 5, 6.30, 8, 10 og 11.30. B.i.12 ára
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Kvimyndir.com
1/2HK DV
“Mögnuð upplifun”
FBL
Sýningatímar gilda
26-27 desember
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
RadíóXDV
YFIR 45.000 GESTIR.
Sýnd kl. 5.15 og 7.40. B.i. 12 ára
Sýnd kl. 12 KRAFTSÝNING, 2, 4, 8, 10 og KRAFTSÝNING kl. 12.
KRAFTsýningar
kl. 12 og 12
Kvimyndir.com1/2HK DV
Mögnuð upplifun
FBL
JOE Strummer, fyrrum söngvari
bresku pönkhljómsveitarinnar The
Clash er látinn, fimmtugur að aldri.
Hann lést á heimili sínu á sunnu-
daginn.
Strummer hafði verið á tónleika-
ferðalagi ásamt hljómsveit sinni
The Mescaleros þar til í síðasta
mánuði. Talsmaður fjölskyldu
Strummers segir hann hafa látist á
heimili sínu í Broomfield, Somerset
í gær. Dánarorsök er ókunn en lík-
lega var um hjartaáfall að ræða.
The Clash er óumdeilanlega ein
frægasta sveit sem pönkið gat af
sér, ásamt Sex Pistols. Á meðan sú
síðarnefnda bar með sér áru upp-
þota og æsings voru Clash hugs-
uðirnir og fóru
snemma að þróa
sig áfram tónlist-
arlega.
Hljómplata
þeirra London
Calling var þann-
ig sögð besta
hljómplata ní-
unda áratugarins
af bandaríska
tímaritinu Rolling Stone, þrátt fyrir
að hún væri gefin út árið 1979 (hún
kom út 1980 þar í landi). Á meðal
þekktari laga Clash eru t.d. „Lond-
on Calling“, „Should I Stay Or Sho-
uld I Go“, „Rock The Casbah“ og
„Tommy Gun“.
Eftir að Clash hættu árið 1986
gaf Strummer út sólóplötur og söng
m.a. með Pouges og áðurnefndum
Mescaleros.
Sagði Bono, leiðtogi U2, er hann
frétti af andláti Strummer:
„Clash var besta rokkbandið –
þeir mörkuðu stefnuna fyrir U2.“
Söngvari
The Clash
látinn
Joe Strummer:
1952–2002.
ÞAÐ var fyrir tæpum tveimur ár-
um sem Birkir Fjalar Viðarsson
lagði upp með þá hugmynd að
stofna „alvöru“ harðkjarnasveit –
sem ákveðið mótvægi við annað sem
var að gerast í hérlendum harð-
kjarna. Einkenni íslenska harð-
kjarnans hefur verið mikill þungi og
mikið bárujárn og melódískt pönk-
skotið harðkjarnarokk I Adapt,
sveitarinnar sem
Birkir og félagar
hans skipa, því
kærkomið mótvægi
við það sem fyrir er
– þó ekki sé nema
til að auka á fjöl-
breytnina. I Adapt hafa líka verið
duglegir við að spila, allt frá stofn-
un, og hafa innblásnir tónleikar, þar
sem allir meðlimir gefa sig 100%,
vakið athygli.
Áhrif I Adapt eru dregin frá
hreinum harðkjarnaböndum eins og
Black Flag, Sick Of It All og Strike
Anywhere til tilfinningapönks að
hætti Hot Water Music, Gray Area
og Reach The Sky. Það væri seint
hægt að segja I Adapt frumlega en
það er heldur ekki það sem mark-
miðið var með stofnun hennar. Ætl-
unin var að leika „alvöru“ harð-
kjarna og það gerir hún líka með
miklum sóma.
Textarnir eru rammpólitískir,
veri þeir um tilfinningatengsl, mark-
aðinn, umhverfið, eiturlyf eða tón-
list. Það er áðurnefndur Birkir sem
syngur (og trommar reyndar líka á
þessari plötu) og það er ekki hægt
annað en að hrífast af ástríðunni
sem pilturinn leggur í þetta og sama
má reyndar segja um plötuna í
heild. Krafturinn, sem skiptir öllu
fyrir sveitir af þessu tagi, kemst
fyllilega til skila; hljóðritun góð og
jafnhrá og sveitin sjálf.
Það er dálítið merkilegt að enn
sem komið er þá eru I Adapt einir á
báti hvað svona tónlist varðar hér á
landi – vonandi fara því fleiri að taka
upp þessa nálgun, nú þegar brautin
hefur verið rudd svona snyrtilega.
I Adapt býr til tónlist sem hreyfir
við fólki og framreiðir af aðdáun-
arverðri einlægni. Heilbrigðar hug-
sjónir ráða ferðinni hér og á þessum
kaldranalegu og stundum óþolandi
merkingarsnauðu tímum skipta
hljómsveitir eins I Adapt sannar-
lega máli.
Tónlist
Það skiptir
máli
I Adapt
Why not make today legendary
Eigin útgáfa
Why not … er frumburður harð-
kjarnapönksveitarinnar I Adapt.
Arnar Eggert Thoroddsen