Morgunblaðið - 12.01.2003, Side 12

Morgunblaðið - 12.01.2003, Side 12
12 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ EKKI vantaði dramatíkina og stóryrðin þegar þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu við atkvæðagreiðsluna um EES-samninginn. Margir urðu til að spá landi og þjóð hræði- legum örlögum, yrði samningurinn samþykktur. Alls gerðu 37 þingmenn grein fyrir atkvæði sínu en hér verður aðeins vitnað í nokkrar ræður. Páll Pétursson (Framsóknarflokki): „Þetta er vondur samningur, óhagstæður og hættulegur okkur Íslendingum. Við afsölum okkur frumburðarrétti okkar Íslendinga til landsins og auð- linda þess til lands og sjávar. Þessi samningur kemur til með að færa okkur ósjálfstæði, atvinnuleysi, fátækt og auðnu- leysi.“ Steingrímur J. Sigfússon (Alþýðubandalagi): „Ég tel samninginn um Evrópskt efnahagssvæði og allt sem honum fylgir ekki til hagsbóta fyrir Íslendinga. Ég tel galla samningsins vega miklu þyngra en kostina. Ég tel það dapurlegt ef það eiga að verða örlög okkar Íslendinga að afsala hluta af okkar fullveldi úr landi áður en lýðveldið fagnar hálfrar aldar afmæli sínu. Ég get ekki og hef aldrei getað skilið þau rök að vænlegsta aðferðin til að varðveita sjálfstæði sitt sé að fórna hluta þess.“ Eggert Haukdal (Sjálfstæðisflokki): „Hér eru að verða mikil tíma- mót. Í umræðum um þetta mál hafa verið flutt mörg varn- aðarorð. En mestu varnaðarorðin voru landvættirnir [svo] e.t.v. að flytja okkur í gær þegar himinn og jörð skulfu í þann mund er Alþingi ætlaði að samþykkja EES ... Það blasir við að EB fái aðgang að landhelginni. Spyrja má: Til hvers var þá barist fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu ef EB á að móta fisk- veiðistefnu Íslendinga hér eftir? Og til hvers var barist við Dani fyrir sjálfstæði og lýðveldi um aldaraðir? Virðulegi for- seti. Nú fer danskur maður með æðstu völd í ESB svo við er- um óbeint komin undir þeirra yfirráð á ný.“ Guðni Ágústsson (Framsóknarflokki): „Það nýtilega í þessum samningi kaupum við dýru verði. Við gefum 400 millj. Evr- ópubúa jafnan rétt á við okkur sjálf í eigin landi. Auðlindirnar til lands og sjávar, jafnt numdar sem ónumdar, eru settar á annes óvissunnar hvað eignarrétt og nýtingu varðar. Hver hefði trúað því að ríkisstjórn Íslands skrifaði undir nauðung- arsamning gagnvart fiskveiðilögsögunni þar sem Evrópu- bandalagið fær allt fyrir ekkert? Hver hefði trúað því í lok landhelgisbaráttunnar að örfáum árum síðar ætti það fyrir þessari þjóð að liggja að opna fyrir fiskveiðiheimildir til rán- yrkjuþjóðanna á ný? Bretar, Portúgalar, Spánverjar, Belgar og Þjóðverjar taka nú við fiskveiðilykli úr hendi ríkisstjórn- arinnar ... Við þurfum nýja menn sem hafa kjark og þor til að standa á rétti Íslands gagnvart Evrópuríkinu og leiða þennan samning í annan og betri farveg í fyllingu tímans.“ Kristín Ástgeirsdóttir (Kvennalista): „Síðast en ekki síst skerðast möguleikar okkar til að þróa það samfélag jafnvægis manns og náttúru, jöfnuðar, réttlætis og kvenfrelsis sem við kvenna- listakonur viljum stefna að þar sem við verðum bundin af óteljandi samþykktum sem ganga í þveröfugar áttir og búast má við margvíslegum kröfum um aðlögun og samræmingu.“ Kristín Einarsdóttir (Kvennalista): „Það er dimmt yfir þessum degi í sögu þjóðarinnar.“ „Ósjálfstæði, atvinnuleysi, fátækt og auðnuleysi“ T ÍU ár eru liðin í dag frá því að samningurinn um Evr- ópskt efnahagssvæði var samþykktur á Alþingi. Fáum blandast hugur um að það voru merkileg tíma- mót, því að um fá mál önnur hafa staðið jafnharðar deil- ur frá því Ísland varð full- valda. Atkvæðagreiðslan á Alþingi 12. janúar 1993 var endapunkturinn á lengstu umræðu þingsögunnar. Með aðild Íslands að EES voru mikilvægir hagsmunir tryggðir og landið gerð- ist þátttakandi í afar nánu og víðtæku alþjóð- legu samstarfi. Flokkar skiptu um skoðun Flestir eru nú sammála um gagnsemi EES- samningsins, en miklar deilur voru um málið á hinum pólitíska vettvangi allt frá því að EES- viðræðurnar hófust vorið 1989 og þar til samn- ingurinn var samþykktur í ársbyrjun 1993. Stjórnmálaflokkarnir höfðu ekki áður þurft að mynda sér skoðun á jafnviðamiklu og flóknu máli. Sumir þeirra skiptu um skoðun á samn- ingnum á tímabilinu; þannig stóðu bæði Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið að rík- isstjórn Steingríms Hermannssonar, sem hóf samningaviðræðurnar um EES og stefndi að „fyllstu mögulegri framkvæmd“ fjórfrelsisins, en snerust gegn samningnum eftir að flokk- arnir lentu í stjórnarandstöðu. Með sama hætti snerist Sjálfstæðisflokknum hugur þegar hann komst í stjórn með Alþýðuflokknum 1991; í stjórnarandstöðu var hann andvígur EES-við- ræðunum og vildi tvíhliða viðræður við ESB og var auk þess á móti samningum við bandalagið um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum. Í báð- um málum skiptu sjálfstæðismenn um skoðun þegar þeir voru komnir með stjórnarforystuna. Alþýðuflokkurinn var hins vegar í stjórn all- an tímann sem um ræddi og með Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í broddi fylk- ingar var hann sá flokkur sem ötulast barðist fyrir samþykkt EES-samningsins. Kvennalist- inn var allan tímann í stjórnarandstöðu og ætíð neikvæðastur flokka í garð samningsins. Halldór og Ingibjörg sátu hjá Málalokin urðu þau að 12. janúar 1993 greiddu allir þingmenn Alþýðuflokksins at- kvæði með samningnum og allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins nema þrír, þeir Eyjólfur Konráð Jónsson, Eggert Haukdal og Ingi Björn Albertsson. Alþýðubandalagið, undir forystu Ólafs Ragnars Grímssonar, var á móti eins og það lagði sig. Framsóknarflokkurinn tók neikvæða afstöðu til samningsins og greiddu sjö þing- menn hans, þar á meðal Steingrímur Her- mannsson, þáverandi formaður, atkvæði á móti samningnum. Sex þingmenn, með Halldór Ás- grímsson varaformann í broddi fylkingar, sátu hjá. Á flokksþingi Framsóknarflokksins, sem haldið var í nóvember 1992, sagði Halldór að EES-samningurinn væri eina leiðin til að fá betri aðgang að mörkuðum Evrópu fyrir út- flutningsafurðir Íslendinga. „Við getum ekki tryggt fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar nema við séum tilbúin að ganga til samninga um okk- ar mikilvægustu hagsmunamál,“ sagði Halldór á þinginu. Í umræðum á Alþingi 15. desember sama ár sagði Halldór: „Ég hef verið samþykk- ur því frá upphafi að ganga þessa götu og tel að lítið annað hafi veri að gera en að ganga hana til enda. Ég tel mig hins vegar ekki geta tekið pólitíska ábyrgð á þessu máli og vil því lýsa því yfir að ég mun sitja hjá við atkvæðagreiðslu um það. Ég vil hins vegar ítreka að ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að við ættum að taka þátt í myndun hins Evrópska efnahagssvæðis.“ Þingflokkur Kvennalistans greiddi atkvæði gegn samningnum með einni undantekningu; Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sat hjá. Hún hafði þá m.a. lýst því yfir að samþykktu Íslendingar ekki EES-samninginn blasti við þeim einangr- un á alþjóðavettvangi. „Það eru margir gallar á EES-samningnum en þeir vega ekki eins þungt og að standa utan við samrunaþróunina í Evrópu,“ sagði Ingibjörg Sólrún í blaðaviðtali. Í framhaldi af þessum yfirlýsingum Ingi- bjargar Sólrúnar var rætt í þingflokki Kvenna- listans hvort víkja ætti henni úr sæti fulltrúa flokksins í utanríkismálanefnd Alþingis. Krist- ín Ástgeirsdóttir þingflokksformaður sagði fyrir landsfund Kvennalistans haustið 1992: „Það er augljóst að það gengur ekki upp að talsmaður okkar í utanríkismálanefnd túlki ekki viðhorf meirihlutans.“ Ingibjörg Sólrún benti á móti á að Alþingi hefði kosið sig í nefnd- ina og hún færi ekki þaðan nema samþykkja það sjálf. Niðurstaðan varð sú að hún sat áfram í utanríkismálanefnd og túlkaði sjónarmið meirihluta Kvennalistans í nefndaráliti sínu, auk þess sem hún lýsti eigin sjónarmiðum á Al- þingi. Stuðningsmennirnir lífseigari á þingi Athyglisvert er, að af þeim 33 þingmönnum sem guldu jáyrði við EES-samningnum, sitja 19 enn á þingi, en af þeim 23 sem voru á móti eru aðeins sex eftir. Það eru ráðherrar Fram- sóknarflokksins, þeir Guðni Ágústsson og Páll Pétursson, og fjórir þingmenn, sem þá voru all- ir í Alþýðubandalaginu en eru nú í þremur flokkum, þ.e. Kristinn H. Gunnarsson (Fram- sóknarflokki), Margrét Frímannsdóttir og Jó- hann Ársælsson (Samfylkingu) og Steingrímur J. Sigfússon (Vinstri grænum). Sumir þessara þingmanna hafa skipt um skoðun; þannig hefur Margrét Frímannsdóttir lýst yfir áhyggjum sínum á þingi yfir því að EES-samningurinn sé að veikjast. Guðni Ágústsson lýsti sömuleiðis yfir í viðtali hér í blaðinu að styrkja bæri EES- samninginn. Steingrímur J. Sigfússon og flokkur hans, Vinstri grænir, hafa hins vegar tekið gamla stefnu Alþýðubandalagsins í arf, þ.e. að þróa skuli tengslin við ESB í átt til tví- hliða samninga. Lengsta umræða þingsögunnar Umræðan um EES-samninginn var sú lengsta í sögu Alþingis, tók samtals 102 klukkustundir og 18 mínútur og stóð með hléum frá 20. ágúst 1992 og fram til 12. janúar 1993. Þetta á eingöngu við um umræðuna um staðfestingarfrumvarpið sjálft, en auk þess voru ýmis hliðarfrumvörp rædd í tugi klukku- stunda. Hin langa umræða varpar annars vegar ljósi á það hversu umdeilt málið var og hins vegar vinnubrögðin á Alþingi Íslendinga. Þannig var samningurinn ræddur í alls átta klukkustundir á austurríska þinginu og fjórtán og hálfan klukkutíma á því sænska. Umræður stóðu í tvo daga á norska þinginu og svissneska þingið af- greiddi samninginn á þremur vikum. Í finnska þinginu tók afgreiðsla málsins alls þrjá daga. Höfundur þessarar greinar lagði það einu sinni á sig að lesa alla umræðuna í Alþingistíðindum og mun sízt ofmælt, að þar hefði mátt komast af með færri orð til að tjá sama boðskap. Fiskur og formælingar Við lestur þessa orðaflaums vekur hins veg- ar tvennt athygli. Í fyrsta lagi hrollvekjandi dómsdagsspár ýmissa andstæðinga samnings- ins um afleiðingar þess að veita útlendingum sambærilegan rétt á Íslandi og Íslendingum sjálfum, en flestir geta víst verið sammála um að þær hafi ekki gengið eftir. Í öðru lagi ofur- áherzla margra stuðningsmanna samningsins (og margra sem sátu hjá) á þýðingu hans fyrir viðskiptakjör sjávarafurða. Þegar horft er á þróunina á þeim níu árum, sem liðin eru frá því EES-samningurinn tók gildi 1. janúar 1994, má hins vegar fullyrða að mestu breytingarnar hafi ekki orðið í viðskipt- um með sjávarafurðir eða í samskiptum Íslend- inga við útlendinga, heldur í ýmsum innan- landsmálum, þar sem EES-samningurinn og sú löggjöf Evrópusambandsins, sem honum fylgir, hefur flýtt þróuninni um mörg ár. Nefna má löggjöf um fjármálamarkað, neytendamál, samkeppnismál, fjarskiptamál, samgöngur, umhverfismál, hollustuvernd og vinnumarkað. Bæði efnahagslíf og stjórnsýsla á Íslandi eru gerbreytt vegna áhrifa EES, áhrifa sem fæstir sáu fyrir til fulls hinn 12. janúar 1993. Afmæli sögulegrar atkvæðagreiðslu Í dag eru tíu ár liðin frá því Al- þingi samþykkti samninginn um Evrópskt efnahagssvæði. Ólafur Þ. Stephensen var á þingpöllum 12. janúar 1993 og rifjar upp þennan enda- punkt lengstu umræðu þing- sögunnar. Þannig fóru leikar: 33 sögðu já, 23 nei, 7 sátu hjá. Morgunblaðið/Sverrir Salóme Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, gerir grein fyrir úrslitum atkvæðagreiðslunnar um EES-samninginn á Alþingi 12. janúar 1993. olafur@mbl.is  Heimildir: 1) Alþingistíðindi. 2) Ólafur Þ. Stephensen: Áfangi á Evrópuför: Evrópskt efnahagssvæði og ís- lenzk stjórnmál. Alþjóðamálastofnun HÍ 1996.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.