Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 23
DaimlerChrysler og Norsk Hydro og háttsettir embættismenn Evr- ópusambandsins hafa boðað komu sína til að vera viðstaddir opnunina. Í tilefni af því verður haldin alþjóð- leg vetnisráðstefna hér á landi. „Við komum að þessu í gegnum undirbúningsfélagið Íslenska ný- orku og munum reka þessa fyrstu vetnisstöð,“ segir Benedikt. „Þetta vetnisverkefni hefur vakið svo mikla athygli að maður getur varla opnað erlent tímarit án þess að sjá vísun í þessa tilraun. Þetta er ný tegund af orkugjafa sem er verið að gera tilraunir með en slíkt gerist ekki á hverjum degi,“ segir Bene- dikt. „Orkan er sett á markað undir fyrirsögninni eldsneyti framtíðar- innar og það er feikilegur áhugi á þessu innan Shell-samsteypunnar og einnig hjá DaimlerChrysler og Norsk Hydro. Við treystum því að Norðmennirnir muni standa sig vel í þessu verkefni,“ segir Kristinn, „því þeir leggja til búnað í vetnis- stöðina sem Skeljungur reisir og á í félagi við Íslenska nýorku. Síðan verður orkan seld undir nafni Shell.“ Gerð verður tilraun á höf- uðborgarsvæðinu með rekstur á al- menningsvögnum frá Daimler- Chrysler sem knúnir verða vetni. „Þeir eru ekki væntanlegir til landsins fyrr en í lok sumars eða haust. Það koma þrír vagnar, sem er auðvitað ekki mikill fjöldi, þannig að ekki verður arðsemi af vetnis- stöðinni í fyrirsjáanlegri framtíð. En við tökum fyrst og fremst þátt til þess að koma Íslandi á kortið, því að Ísland hefur þótt kjörið fyrir slíka tilraun, þar sem hægt er að yf- irfæra þessa tækni víðar, meðal annars við rekstur skipaflotans.“ „Þetta er meiriháttar verkefni,“ segir Benedikt. „Þó manni finnist það kannski broslegt að reisa heila vetnisstöð fyrir þrjá strætisvagna, sem eru ekki einu sinni komnir til landsins, þá eru menn engu að síður að horfa til þess að árið 2020 til 2030 muni vetni og aðrir orkugjafar vera farnir að setja verulegt mark sitt á íslenskt samfélag. Við höfum valið að reisa vetnisstöðina á besta stað í borginni eða við stærstu stöð Skelj- ungs, sem er uppi á Vesturlands- vegi, og reiknum með að fá síðustu stimpla á öll leyfi næstu daga.“ Besta afkoma í sögu félagsins Afkoma Skeljungs hf. var góð fyrstu níu mánuði ársins og útlit er fyrir bestu afkomu í sögu félagsins á þessu ári. „Það eru ekki komnar neinar endanlegar tölur,“ segir Benedikt. „Hagnaðurinn var tæpur milljarður eftir níu mánuði og búist var við að það yrði þokkaleg afkoma út árið. Við höfum ekki talið neina ástæðu til að breyta þeirri tilkynn- ingu. En það er alveg ljóst að þetta verður besta ár í sögu félagsins. Auðvitað spilar þar margt inn í, þá fyrst og fremst gengisstyrking krónunnar.“ „Markaðshlutdeild okkar hefur líka verið að aukast á undanförnum árum,“ segir Krist- inn. „Við héldum því fram fyrir fimm til sex árum, þegar samstarfið jókst milli hinna olíufélaganna með stofnun Olíudreifingar og eftir að Olíufélagið keypti tæplega 40% hlut í Olís, að Skeljungur þyrfti að auka markaðshlutdeildina úr 30% í 40%, til þess að geta náð viðunandi ár- angri í samkeppni við aðila sem hafa með sér samstarf um allan inn- flutning og alla dreifingu á sínu eldsneyti. Við teljum okkur vera nærri því marki eins og sakir standa. Á árinu 2001 vorum við komin með um það bil 39,9% af heildarmarkaðnum fyrir fljótandi eldsneyti.“ „Ég held þetta hafi tek- ist í og með vegna þess að Skelj- ungur hafi verið leiðandi beggja vegna, þ.e. annars vegar með þess- um fínu stöðvum, eins og Select, þar sem boðið er upp á mikla þjónustu, fínar búðir og glæsilega umgjörð, og hins vegar með þátttöku okkar í Bensínorkunni, þjónustulausum stöðvum sem eru bara tankur og bensín á lægsta verði,“ segir Bene- dikt. „Ég held að almenningur hafi kunnað að meta þessa framtaks- semi okkar á báðum endum. En svo má ekki gleyma því að þótt almenn- ingur horfi mikið á þetta út frá bensínstöðvunum, þá eru um 75% af viðskiptum okkar við fyrirtæki, s.s. útgerðir, verktaka og fyrirtæki í samgöngum.“ Kristinn bætir við: „Það er hluti af okkar styrk að okkur hefur tekist að kaupa þannig inn að við getum boðið stærstu viðskiptavinum okkar gæði og verð, sem stenst allan sam- anburð, og því hefur okkur tekist að ná til okkar nýjum og öflugum við- skiptavinum. Þetta skiptir okkur verulegu máli, sérstaklega þar sem við erum einir í okkar innflutningi, á meðan hinir tveir eru að flytja inn og dreifa saman. Það hefur feiki- lega mikið að segja að fá þetta magn vegna þess að því meira sem sett er í skipið, því ódýrari verður fraktin til landsins,“ segir Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, að lokum. ríkisafskipta Shellstöðin við Birkimel í kringum 1970. Stærsta bensínstöð Skeljungs hf. stendur við Vesturlandsveg, en þar mun fyrsta vetnisstöðin verða opnuð sumardaginn fyrsta, 24. apríl næstkomandi. Olíustöðin í Skerjafirði séð frá bryggjunni á fjórða áratugnum. Fyrsta verk Olíu- sölunnar hf. árið 1927 var að byrja að reisa stöðina og lauk framkvæmdum á einu ári. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 23 Thailand 22. febrúar og 8. mars * Innif.: Flug, flugvallaskattar, gisting í tvíb‡li me› morgunver›i, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. kr. *145.900 á Hotel Woodlands Ver›: Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000 Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n Betri fer›ir – betra frí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 98 77 01 /2 00 3 Kjartan L. Pálsson Örfá sæt i laus 20 daga fer›ir (19 nætur) Höfug angan austurlenskra krydda og litríkra blóma er fla› fyrsta sem mætir fer›alöngum í Thailandi. Thailand kemur sífellt á óvart, enda land fjölskrú›ugrar náttúru og mikilfenglegrar sögu. fiar er hl‡lega teki› á móti fer›amönnum en heimamenn eru einstak- lega gestrisnir og fljónustuliprir. Nánari fer›atilhögun á www.urvalutsyn.is GOLF Uppl‡singar hjá golfdeildinni. mbl.isFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.