Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 31 Tölvu- og rekstrarnám Námsbraut fyrir þá sem vilja læra bókhald og fá virkilega góða tölvukunnáttu. Vinsælt nám fyrir þá sem vilja skipta um starf eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Morgun- og kvöldtímar, 280 kennslustundir. Verð kr. 196.000. Tölvunotkun 1, 2 og 3 Stutt og hnitmiðuð námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. 60 kennslustundir, engin heimavinna. Morgun-, kvöld- og dagtímar. Verð aðeins kr. 45.000 hvert námskeið. Tölvur og vinnuumhverfi 1 og 2 Ítarlegt og gagnlegt nám. Bæði fyrir þá sem eru að byrja og þá sem ætla sér að ná mjög góðum tökum á tölvunni. Morgun- og kvöldtímar, 120 kennslustundir. Verð kr. 84.000 hvort námskeið. Einnig kennt í fjarnámi. Tölvur og vinnuumhverfi 50+ Sérstakur hópur fyrir þá sem eru um fimmtugt og eldri. Nú er tækifærið fyrir þá sem finnst þeir hafa misst af lestinni. Farið verður ítarlega í öll grunnatriði tölvunotkunar þannig að þátttakendur verða eftir námskeiðið öruggir í allri almennri tölvunotkun. Morgun- og kvöldtímar, 120 kennslustundir. Verð kr. 84.000. Reyndir kennarar og vingjarnlegt andrúmsloft. Tölvur og kennsluumhverfi, fjarnám Hentar þeim kennurum sem vilja styrkja stöðu sína og verða öruggir tölvunotendur. Þetta nám er ætlað byrjendum á tölvur en er líka heppilegt fyrir þá sem vilja bæta þá grunnþekkingu sem þeir hafa. 160 kennslustundir, verð kr. 112.000. Hagnýt netumsjón fyrir kennara Þetta nám er sérstaklega hannað fyrir þá sem þurfa að sjá um netkerfi í skólum eða hafa umsjón með tölvustofunni. 100 kennslustundir, verð aðeins kr. 120.000. Tölvuþjónusta 1 og 2 Tvö stutt námskeið fyrir þá sem vilja læra hagnýt atriði í uppsetningu og þjónustu við PC tölvur. Námskeiðin eru að miklu leyti verkleg. Hvort námskeið er þrír dagar og kostar kr. 45.000. Athugið að félagsmenn flestra stéttarfélaga eiga rétt á styrk úr fræðslusjóðum. Nánari upplýsingar í síma 568 5010. R a f i ð n a ð a r s k ó l i n n k y n n i r f j ö l b r e y t t t ö l v u n á m á v o r ö n n 2 0 0 3 Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is Fyrir þá sem vilja ná árangri Vorönn Kvennakórs Reykjavíkur Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur hefur starfsemi sína miðvikudaginn 15. janúar 2003. Kennt verður á miðvikudögum í Borgartúni 28, 4. hæð, frá kl. 18.00 til 19.30. Kennari er Sigrún Þorgeirsdóttir. Innritun hefst mánudaginn 13. janúar 2003 í síma 896 6468. Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur. Æfingar hefjast mánudaginn 13. janúar 2003 kl. 16.00 í Sóltúni 20. BÓK þessi er sett fram af nokkrum metnaði, en af meira kappi en forsjá. Kápan er glæsi- leg, vitnað er í nokkra valinkunna sæmdarmenn á baksíðu og ljúka þeir allir miklu lofsorði á bókina. Fyrrum forseti lýðveldisins hefur verið fenginn til að rita formála. Þá er vitnað til þess að þekktur rithöfundur hafi yfirfarið bókina. Allt kemur þetta þó fyrir ekki. Umbúðirnar eru mun betri en innihaldið og mér dettur helzt í hug að ummæli fólks á baksíðu bókarkápunnar hljóti fremur að byggjast á ensku útgáfunni en þeirri íslenzku. Á Netinu fann ég sýnishorn úr bókinni á ensku, ein- ar 19 síður. Fróðlegt var að bera þær saman við íslenzku þýð- inguna. Enski textinn er aðgengi- legur og skiljanlegur, en það er sá íslenzki því miður ekki. Höfundar bókarinnar eru Jean Illsley Clarke, sem sögð er hafa MA-gráðu í Human Development og heiðursdoktorsnafnbót fyrir þjónustu í þágu mannkynsins fyrir utan að vera foreldrakennari og kennsluþjálfari (bls. 307), og Connie Dawson sem hefur dokt- orsgráðu í ráðgjafamenntun með ættleiðingarráðgjöf sem sérgrein (bls. 307). Sú síðarnefnda ritar ein síðasta kaflann sem nefnist Ætt- leiðing og er margt ágætt þar að finna þótt ég sé ekki sátt við setn- ingabrot á borð við „… samskipta- lega næringu, formgerð og van- reiknun“ á bls. 250, „foreldramissi barns“ á bls. 251 og „að syrgja missi“ á bls. 253. Segja má að höfundarnir tveir nálgist uppeldisleg vandamál fólks á fremur einfaldan hátt, ekki of fræðilegan, boðið er upp á einfald- ar uppskriftir og er allt gott um það að segja þar sem bókin er skrifuð fyrir leikmenn, foreldra sem eiga við erfiðleika að etja. Í bókinni eru settar fram ágætlega myndrænar hugmyndir, svo sem það að lýsa uppeldisferlinu sem þjóðvegi með tveimur akreinum sem halda þurfi sig á, ella lendi menn í skakkaföllum, keyri út af veginum. Akreinarnar eru kallað- ar ákveðniumönnun og stuðn- ingsumönnun, sem eru fremur stirð orð að mínu áliti. Mikið er rætt um form og orðið form skýrt sem sú virkni, þær ytri reglur og mörk sem skapi öryggi (bls. 59). Form geti ýmist verið innri eða ytri. Sagt er að sumt fólk kalli innri form sín sjálfsaga en ytri form séu m.a. umönnun, kennsla og reglur. Mér finnst ekki vel til fundið að nota orðin form og formgerð til að þýða enska orðið structure. Hvað þá þegar fyrir- sögn 14. kafla sem á ensku kallast „Structure, Shame and Victim Blame“ er þýdd sem „Rammar, skömmusta og fórnarlambsásak- anir“ – þá finnst mér keyra um þverbak. Á bls. 174 stendur eft- irfarandi setning: „Tvíboð – þessi „bönd“ sem toga í andstæðar áttir – eru sérlega ruglandi og haml- andi vanreiknunartæki.“ Van- reiknunartæki? Tvíboð? Aldrei heyrt þetta áður og orðin verka afar hamlandi og ruglandi á mig sem lesanda. Sumar setningar les maður aftur og aftur og flettir til baka, hjakkar í sama farinu, til að rifja upp hvað orðin eiga að þýða. Þetta er heldur leiðigjarnt til lengdar og að sjálfsögðu á texti að renna svo létt og auðveldlega að innihaldið verði aðalatriðið en ekki að lesandinn hnjóti endalaust um þröskulda. Þá úir og grúir af inn- sláttarvillum og einstaka málvillur hnaut ég einnig um. Allnákvæm atriðisorðaskrá (index) fylgir út- gáfunni á ensku en er algjörlega sleppt hér sem er illskiljanlegt því slík skrá gerir fólki auðveldara að fletta upp í bókinni og átta sig á efninu. Í erilsömu nútímaþjóðfélagi veitir ekki af að geta lesið sér til og vissulega getur ráðgjöf af því tagi sem sett er fram í þessari bók verið kærkomin, enda mun hún hafa verið vinsæl í Bandaríkjunum þegar hún var gefin út þar árið 1989. Síðan var hún endurútgefin sem kilja árið 1998 og er fáanleg ný gegnum Netið á 14.95 dollara en notuð allt niður í 4.50 dollara. Kápa bókarinnar er einkar að- laðandi, hönnuð af 1001 nótt. Nett- ar teikningar er að finna á víð og dreif en ekki kemur fram svo ég sjái eftir hvern þær eru. Mér finnst höfundum bókarinn- ar ekki greiði gerður með þessari íslenzku útgáfu og væri bókin eftir mig myndi ég krefjast þess að hún yrði innkölluð og unnin mun betur. Meira af kappi en forsjá BÆKUR Uppeldi – Annast okkur sjálf, annast börnin okk- ar. Höfundar: Jean Illsley Clarke og Conn- ie Dawson. Þýðandi: Helga Ágústsdóttir. Útgefandi: ÓB Ráðgjöf ehf. 2002. 307 bls. AÐ ALAST UPP AFTUR Katrín Fjeldsted
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.