Morgunblaðið - 12.01.2003, Side 36

Morgunblaðið - 12.01.2003, Side 36
MINNINGAR 36 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR FRIÐRIK JÓNSSON fyrrverandi lögregluþjónn, Hringbraut 50, Reykjavík, sem lést föstudaginn 3. janúar, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 13. janúar kl. 13.30. Júlíus Sigurðsson, Jóhanna Ellý Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson, Guðríður Einarsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Sigurður K. Eggertsson, Sigrún Sigurðardóttir, Gísli Már Gíslason, Jón Sigurðsson, Jónína Arnardóttir, Hilmar Steinar Sigurðsson, Þórdís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR BÁRU ÓLAFSDÓTTUR sjúkraliða, Frostafold 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar, starfsfólki kvennadeildar Landspítalans við Hringbraut og sam- starfsfólki hjúkrunarheimilisins Eirar. Guð blessi ykkur öll. Sigurmundur Guðmundsson, Guðfinna Elsa Haraldsdóttir, Sigríður Svansdóttir, Gunnlaugur Ragnarsson og barnabörn. Bróðir okkar, mágur og frændi, EIRÍKUR PÉTURSSON, Kvíabólsstíg 4, Neskaupstað, andaðist á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup- stað þriðjudaginn 7. janúar. Jarðarförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 14.janúar kl. 14.00. Nanna Hlín Pétursdóttir, Álfhildur Sigurðardóttir, Ragnar Pétursson, Hanna Valdimarsdóttir, Sveinþór Pétursson, Hallgrímur Pétursson, Helga Steingrímsdóttir, Pétur R. Pétursson, Sigfríð Björgúlfsdóttir, Pjetur Sævar Hallgrímsson og aðrir vandamenn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR hjúkrunarkonu, frá Múla við Suðurlandsbraut, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki dvalarheimilisins Höfða. Bergþóra Bergmundsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Þórir Bergmundsson, Guðríður Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR ÞÓRODDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- heimilisins Eirar fyrir frábæra umönnun. Hólmfríður Davíðsdóttir, Fritz Bjarnason, Ófeigur Sigurðsson, Jónína M. Þórðardóttir, Þórey Sigurðardóttir, Hafliði Sævaldsson, Sigríður Sigurðardóttir, Grétar Óskarsson, Svanhildur Sigurðardóttir, Borgþór Yngvason, Auður M. Sigurðardóttir, Magnús Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur, BERGÞÓRU SIGURÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar með hlýhug og virðingu. Róbert Róbertsson, Hulda M. Róbertsdóttir, Michael A. Otero, Sigurður A. Róbertsson, Erna B. Róbertsdóttir, Jórunn H. Sigurðardóttir og barnabörn. Elsku Steinunn mín, ég skrifa þetta bréf til þín með sorg í hjarta. Mér finnst svo stutt síðan við kynntumst, fyrir 36 árum, ég var á því tímabili með þér og Gunnu systur þinni enda vorum við Gunna í sama bekk, en þið minntuð mig á tvíbura, þið voruð það líkar. En svo skildu leiðir okkar í nokkur ár en við hittumst alltaf af og til, t.d. STEINUNN NÓRA ARNÓRSDÓTTIR ✝ Steinunn NóraArnórsdóttir fæddist í Reykjavík 12. október 1958. Hún lést 30. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogs- kirkju 11. desember. heima hjá Gunnu, en þegar veikindi þín fóru að gera vart við sig þá hitti ég þig aft- ur. Þá fórum við að rifja upp gömlu dag- ana. Svo þegar ég heimsótti þig þá bjó dóttir þín í bílskúrn- um hjá þér og það fannst þér notalegt að hafa hana. Þú áttir góðan mann og tvo drengi. Þú varst stolt af fjölskyldunni þinni og þú sýndir mér postulínsdúkkurnar sem þú varst að safna og litla sæta dúkkuvagninn sem var af eldri gerðinni. Þú varst svo ánægð að geta haft matarboð. Þá hittist fjöl- skyldan sem var þér dýrmæt, en heilsan leyfði það ekki stundum. Það fannst þér erfitt. Þú sagðir mér að þú og Gunna systir þín væruð mjög nánar. Þegar er stutt á milli í aldri þá vill það oft það verða að yngstu systkinin verða nánari þótt eldri systkinin séu dýrmæt. Þú varst hlý í viðmóti og lýstir alltaf umhverfið með ákefð, alltaf einlæg í tali. En ég var alltaf á leið- inni til þín. Þegar ég hitti þig síðast þá varstu orðin mjög veik en sagðir samt að núna yrði ég að koma í heimsókn, þegar þú kæmir heim af geðdeildinni. Takk fyrir fyrir það sem við náðum saman. Ég sendi fjölskyldu Steinunnar innilega samúðarkveðju. Megi Guð styrkja þau í þessari miklu sorg, en minningin um góða konu og móður mun ætíð lifa. Hver fögur dyggð í fari manns er fyrst af rótum kærleikans, af kærleik sprottin auðmýkt er við aðra vægð og góðvild hver og friðsemd hrein og hógvært geð og hjartaprýði og stilling með. (H. Hálfd.) Ólöf Jónsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Heiðarbæ, andaðist á Heilbrigðistofnuninni á Selfossi, föstudaginn 10. janúar sl. Sigríður, Hrólfur, Halldóra, Ágúst og Guðrún Guðjónsbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabörn. Jötunninn stendur með járnstaf í hendi jafnan við Lómagnúp. Kallar hann mig og kallar hann þig, kuldaleg rödd og djúp. Þessar hendingar úr Áföngum Jóns Helgasonar komu mér í hug eftir að ég heyrði lát Birgis Vig- fússonar frá Hólum. Hér vitnar Jón til Njálssögu, draums Flosa Þórðarsonar á Svínafelli, en Ket- ill úr Mörk réð drauminn svo að allir mundu þeir feigir sem jöt- unninn kallaði. Og gekk svo eftir. Þannig fer um hvern og einn. Dauðinn kallar alla, suma seint, aðra snemma og enginn kemst hjá að gegna því kalli þótt á stundum megi svo virðast að sumir hafi getað daufheyrst um HÖRÐUR BIRGIR VIGFÚSSON ✝ Hörður BirgirVigfússon fædd- ist 9. maí 1940 á Hól- um í Hjaltadal. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut 20. des- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Háteigs- kirkju 3. janúar. sinn. En það er þá einungis stundarfrið- ur. Horfinn er enn einn úr vinahópi fjöl- skyldu minnar og þannig er gangur til- verunnar. Við því er ekkert að segja. Gamlar myndir koma í hugann. Sum- arið 1961 var verið að byggja við íbúðar- húsið heima á Hofi. Biggi Vigfúsar, eins og við kölluðum hann, kom frameftir og vann við að grafa frárennslisskurð að rotþrónni niður í brekkunni. Mér er enn í minni hvað mér fannst hann hraustlegur og myndarlegur, æskan og hreystin geisluðu af honum, sólbrúnn, freknóttur og dálítið rauðbirkinn, fullur að vöngum og kraftalegur með snöggklippt hár sem hann lét liggja eins og náttúran bauð þeg- ar allir voru að streða við að venja hár sitt aftur um höfuðið. Í skurðinum kom upp stór steinn sem ekki virtist meðfæri venju- legra manna. Biggi kom sér ekki hjá að taka á steininum og brosið leyndi sér ekki þegar hann hafði náð takinu og vó hann upp á lær- in og síðan upp á skurðbarminn. Önnur minning frá síðhausti 1962. Birgir var í brúarvinnu þetta sumar og Siggi bróðir fór með hann á sunnudagskvöldi fram að Hofi í Vesturdal þar sem verið var að byggja brúna yfir Hofsána. Ég fékk að fara með en man eiginlega ekkert nema endalausa keyrslu í myrkri um ókunnar slóðir og vissi ekkert hvað ég fór. Loks birtust brúarvinnuskúrarnir einhvers staðar í myrkrinu og Birgir kvaddi okkur brosandi. Einhvern tímann komum við bræður heim aftur að áliðinni nóttu. Eftirleit haustið 1963 fyrir Hólabúið. Við Birgir fórum tveir ríðandi fram á Hofsdal, kominn talsverður snjór og umbrotafæri í öllum giljum. Ég hafði með mér myndavélina og á enn ljósmynd af Birgi þar sem hann er að bjástra við hestana okkar sem liggja á síð- um í skafli í gilbarmi frammi á Hofsdal. Engar kindur fundum við á dalnum nema hrútinn Dofra sem snöltraði einn við Hofsána niður undan Hyrningagilinu og var svo gamall og vambsíður að ekki var viðlit að koma honum heim. Mátt- um því skilja hann eftir. Einhverj- ar kindur fengum við í Þjófadöl- unum og þar fyrir neðan og stefndum þeim á Hagakotið. Þess- ar göngur eru mér sérstaklega minnisstæðar vegna þess að ég held mér hafi aldrei orðið eins kalt á fótum og í þetta sinn þegar snjórinn fór að bráðna ofan í stíg- vélunum. Svo eru ferðirnar frá Reykjavík á árunum 1971–1974 norður í Laugarbakka þar sem Birgir kenndi nokkra vetur og við þrír gamlir sveitungar hans fórum einu sinni á vetri í heimsókn til að spila bridge í svo sem einn sólarhring. Svona mætti lengi leggja fram gamlar myndir en þær eru per- sónubundnar og eiga e.t.v. lítið er- indi til annarra. Og þótt örlögin hafi hagað því svo að við höfum lít- ið samband haft síðustu tvo ára- tugina eða svo, þá lifir í huga mér minningin um góðan dreng. Dætr- um Birgis tveimur, eftirlifandi systkinum og vinum hans öllum votta ég samúð mína og sendi þeim hugheilar kveðjur. Hjalti Pálsson frá Hofi. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hef- ur borist. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálk- sentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Grein- arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.