Morgunblaðið - 12.01.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 12.01.2003, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ALDREI fyrr hefur landsins lýð verið eins ljóst að ekkert vantaði í Kryddsíld Stöðvar 2 nema sand og litlar skóflur fyrir ráðamenn og þingmenn þjóðarinnar. Aldrei fyrr opinberuðu þeir eins vel hve lítið þeir hafa lært í mannlegum sam- skiptum og því valdameiri, því hrokafyllri og drambsamari. Forsætisráðherra hefur marg- sagt, bæði í ræðu og opinberlega í viðtölum, að ekki sé hægt að treysta fólki lengur í hans stétt og vita allir við hvern hann á, eins og að sjálfsögðu hann ætlast til. Mér varð hugsað til baka um langan veg, hver ástæðan mín hafði verið er ég hætti að kjósa hann sem borgarstjóra og Sjálfstæðisflokkinn til Alþingis. Var það ekki einmitt vegna þess að eftir síbrotin kostn- ingaloforð hætti ég að treysta nokkru sem hann og aðrir í Sjálf- stæðisflokknum sögðu fyrir kosn- ingar en efndu aldrei. Það er af svo mörgu að taka að upptalningin kæmist ekki fyrir í einni blaðagrein og óþörf upptalning er það, því fólk kann þennan lista utanbókar. Ég hef lesið það einhvers staðar að þeir sem tala niður til annarra með vanvirðingu eigi við vanda að etja um eigin sjálfsvirðingu hið innra með sér. Maður einn sagði við mig eftir ræðu forsætisráðherra á gamlárskvöld að Davíð Oddsson teldi sig vita allt betur en aðrir og ekkert væri rétt að hans viti nema hans skoðanir. Vildi þessi maður með þessum orðum skilgreina drambið sem einkenndi ræðu for- sætisráðherra. Ég er ekki viss um að svo blindur sé forsætisráðherra, þetta er vel gefinn maður, en eins og í ævintýrunum sem við lásum sem börn varð konungum stundum fallvalt á valdinu og gerðust drambsamir og gleymdu uppruna sínum. Ræða forseta vors á nýársdag var af öðrum toga og heldur raun- særri mynd af Íslandi í dag. Um leið og hann fór góðum orðum um það sem gott hefur áunnist á árinu hjá þjóðinni minntist hann á að vandi annarra þjóðfélagshópa hefði vaxið. Ég hef dvalið erlendis um tíma og hef þá stundum bent þar- lendum á hvað mér hefur þótt mið- ur fara í því þjóðfélagi. Þá hef ég gjarnan fengið þá spurningu hvort allt sé svona gott hér á Íslandi. Mitt svar er alltaf það sama; að eitt sé það sem ég skammast mín fyrir að skuli viðgangast á Íslandi og það er fátækt. Þjóð sem er eins rík og við og telur aðeins 280.000 manns ætti að geta hugsað vel um hvern einstakan þjóðfélagsþegn. Fátækt leiðir af sér einelti og vímuefna- vandamál og þetta eru hlutir sem við ættum að geta upprætt hér á landi með örlítilli fórnfýsi. Það hljómaði svolítið skondið í fréttum ríkisútvarpsins að heyra ágrip úr ræðu forsætisráðherra, þar sem hann er að tala um að fólk virðist ekki bera upp á viðkomandi ósannindin, og næsta frétt var að Ingibjörg Sólrún var kosin maður ársins með nær öllum atkvæðum. Hvað segir það um orðspor hennar og traust þjóðarinnar á henni? Nú er lag, Össur, og ættir þú að láta flokk þinn og heill þjóðarinnar sitja á oddi og gleyma eigin vænt- ingum og frama en láta Ingibjörgu Sólrúnu sætið þitt eftir. Ég er sannfærð um að það myndi gera þig vinsælli og ef til vill koma Sam- fylkingunni til valda. MARGRÉT S. SÖLVADÓTTIR, Réttarholtsvegi 67. Hverjum er treystandi? Frá Margréti S. Sölvadóttur Á ÞESSU misseri gefst landsmönn- um enn eitt tækifæri að setja sig í spor kjörinna fulltrúa á Alþingi. Þeirrar sveitar bíður að taka stórar ákvarðanir, sem varða land og lýð. Venjulegu fólki er frjálst, þegar miklu varðar, að taka á sig annarra sök. Frelsarinn tók á sig stóra sök. Hann þrætti ekki. Djarfur er hver um deildan verð segir máltækið. Öll þekkjum við góð dæmi um lögmál gestrisninnar úr þjóðsögunum. Hvað sem öðru líður. Þá til lengd- ar lætur eru gangsterar afspyrnu hvimleiðir í umgengni. Þeir þekkj- ast, dansandi á grensunni, af öllum óskundanum, sem af verkum þeirra hlýst og áhættunni, sem þeir eru alltaf til í að deila kumpánlega með sjálfsbirgingslegu þýi sínu, hyski. Litlu framsóknarmönnunum er í mun að bjarga litla flokknum sínum og fórna til þess blygðunarlaust landinu. Þeim nægir ekki að hafa tryggt sér bróðurlegan hlut í kvóta- kerfinu sem þeir verja með kjafti og klóm. Hvar er íslensk borgarastétt, þjökuð af ágirnd í vondu skjóli aum- ustu kotunga og húsgangslýðs, líkt og svínin í sögunni góðu. Hafa al- brjálast við að eignast pening. Þeirra trog er jafnan tómt. Hvað ræður þú Loddfáfnir? Verður vinna í álverum annað en dýrkeypt at- vinnubótavinna á vegum íslenska ríkisins? Og örfáir sökunautar maka duglega krókinn. Vinnulýðurinn fær að sendast með vasapeninginn út um hagann til að auka þensluna, veltuaukann vel- þegna. Flottræflar ríkisins skulu annast innheimtu fyrir Alcoa, seilast til þess í vasa mörlandans, standa í skilum með öll lánin. Af þessum auma félagsskap á bæði land og lýð- ur að mengast til frambúðar. Af áreitunum skulið þið þekkja þá. JÓN BERGSTEINSSON, Snorrabraut 30, Reykjavík. Er hægara um að tala en í að komast? Jón Bergsteinsson verkamaður skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.