Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 33. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 mbl.is
20 hæða
stórhýsi
Mikil skrifstofubygging við
Smáratorg Fasteignir B26
Algjör
óskabyrjun
Dagur Kári kominn heim eftir
skrautlega viku Fólk 42
Guðmundur
og gullið
Landsliðsþjálfarinn í handknattleik
lætur sig dreyma Íþróttir 36
GERHARD Schröder, kanzlari Þýzka-
lands, lýsti því yfir í gær að hann og rík-
isstjórn hans bæru „meginábyrgðina“ á
miklum ósigrum Jafnaðarmannaflokksins,
SPD, í kosningum í tveimur sambandslönd-
um á sunnudag.
„Þetta er einn bitrasti ósigur sem ég hef
upplifað... Meginábyrgðin hvílir á ríkis-
stjórn minni og sjálfum mér,“ sagði Schröd-
er í fyrstu opinberu ummælum sínum um
úrslit kosninganna í Hessen og heimahéraði
hans, Neðra-Saxlandi. Hann tók skýrt fram
að þetta þýddi ekki að hann væri á þeim
buxunum að segja af sér og að í flokki hans
væri heldur enginn sem legði það til.
Oskar Lafontaine, fyrirrennari Schröd-
ers á flokksleiðtogastóli SPD, sendi honum
þó tóninn í grein í dagblaðinu Bild í gær og
skrifar ófarirnar á sunnudaginn á „nýfrjáls-
hyggjulega“ stefnu stjórnarinnar. Hvetur
Lafontaine, sem sagði sig skyndilega úr rík-
isstjórn Schröders þegar hálft ár var liðið af
fyrra kjörtímabili hennar, til róttækrar
stefnubreytingar í vinstriátt.
Kanzlarinn hét því að slá hvergi slöku við
því að hrinda í framkvæmd efnahagsum-
bótaáætlun stjórnarinnar, aðallega að því er
varðar velferðarkerfið og reglur á vinnu-
markaði. Sagði hann stjórnina reiðubúna til
samráðs og samstarfs við stjórnarandstöðu
kristilegra demókrata til að vinna að frekari
umbótaáformum.
Hann vísaði hins vegar á bug vangavelt-
um um að hann kynni að skoða þann kost að
taka upp stjórnarsamstarf með kristilegum
demókrötum.
Reuters
Gerhard Schröder kanzlari brúnaþungur
á blaðamannafundi í Berlín í gær.
Schröder
axlar ábyrgð
á ósigrum
Berlín. AFP.
Þýzkir jafnaðarmenn/13
INDVERSK börn á bæn á götu í
Kalkútta fyrir framan mynd af
geimfaranum Kalpana Chawla
sem lét lífið þegar geimferjan
Kólumbía fórst. Chawla, sem var
41 árs, fæddist á Indlandi og varð
þjóðhetja í landinu í nóvember
1997 er hún varð fyrst indverskra
kvenna til að fara í geimferð. Hún
fluttist til Bandaríkjanna á níunda
áratugnum og bjó í Texas eftir að
hafa numið geimferðaverkfræði.
Hún var álitin reyndust geimfar-
anna sjö sem fórust í Kólumbíu.
Reuters
Indverski
geimfarinn
syrgður
Náttúran finnur/14
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
Samson eignarhaldsfélag ehf. sé
hæft til að fara með virkan eign-
arhlut í Landsbanka Íslands hf. og
veitt samþykki sitt fyrir því að fé-
lagið eignist 45,8% hlutafjár í
bankanum.
Í umfjöllun Fjármálaeftirlitsins
kemur m.a. fram að Samson hefur
lýst yfir að félagið sé tilbúið að
vinna að breytingum á innri
reglum og umgjörð bankans í sam-
ræmi við tillögur Fjármálaeftirlits-
ins. Fór Fjármálaeftirlitið yfir
starfsreglur bankaráðsins og segir
í umfjöllun þess að þó þær teljist
fullnægjandi miðað við núverandi
aðstæður hafi Fjármálaeftirlitið
sett fram hugmyndir um tilteknar
breytingar sem miða að auknum
skýrleika ásamt því að styrkja um-
gjörð um viðskipti bankaráðs-
manna og félaga þeim tengdum við
bankann og takmarka aðgang
bankaráðsmanna að upplýsingum
um viðskiptamenn.
„Meðal atriða sem Fjármálaeft-
irlitið lagði til er að reglum banka-
ráðs verði breytt á þann hátt að
tryggt verði að upplýsingagjöf til
bankaráðsmanna fari aðeins fram í
gegnum bankaráð, að starfsmönn-
um verði óheimilt að veita banka-
ráðsmönnum upplýsingar um við-
skiptamenn bankans, að vanhæfis-
reglur í bankaráði verði styrktar
og að upplýsingagjöf til bankaráðs
um fyrirgreiðslu til venslaðra aðila
verði víðtækari og taki ótvírætt til
einstaklinga og fyrirtækja í nánum
tengslum við bankaráðsmenn,“
segir m.a. í umfjöllun Fjármálaeft-
irlitsins.
Þá hefur Samson skuldbundið
sig til að viðhalda tilteknu eigin-
fjárhlutfalli og lýst yfir að félagið
muni beita sér fyrir að fagaðilar,
sem ekki eru eigendur að Samson,
taki sæti í bankaráði. Í fyrstu muni
einungis einn eigenda Samsonar
sækjast eftir kjöri í bankaráð.
Samson fær samþykki
Fjármálaeftirlitsins
Ekki/24
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti sendi í gær þinginu nýtt fjár-
lagafrumvarp þar sem gert er ráð
fyrir auknum útgjöldum til varnar-
mála, skattalækkunum og metfjár-
lagahalla.
Í frumvarpinu er því spáð að fjár-
lagahallinn verði 304 milljarðar
dollara á fjárhagsárinu 2003, sem
hófst 1. október sl., og 307 milljarð-
ar á fjárhagsárinu 2004. Yrði það
mesti fjárlagahalli í sögu Bandaríkj-
anna í dollurum en þó ekki sem
hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu.
Samkvæmt frumvarpinu verður
hallinn 2,8% og 2,7% af vergri þjóð-
arframleiðslu á árunum 2003 og
2004 en hæst var þetta hlutfall um
6% árið 1992, í forsetatíð George
Bush eldri, en þá var hallinn 290
milljarðar dollara.
Herútgjöld aukin um 4,2%
Bush vill auka útgjöldin til varn-
armála um 15 milljarða dollara í 380
milljarða á árinu 2004, eða um 4,2%,
en í frumvarpinu er ekki gert ráð
fyrir kostnaðinum af hugsanlegu
stríði í Írak. Herútgjöldin voru auk-
in um 11% á yfirstandandi fjárhags-
ári og Bush vill að þau verði aukin í
nær 500 milljarða dollara fyrir lok
áratugarins.
Gert er ráð fyrir því að efnahags-
ráðstafanir, sem miðast að því að
hleypa nýjum þrótti í efnahagslíf
Bandaríkjanna, einkum með afnámi
skatta á arð af hlutabréfum, kosti
114 milljarða dollara árið 2004.
Bush gerir ráð fyr-
ir metfjárlagahalla
Washington. AFP, AP.
„VIÐ erum mjög ánægðir. Þetta
er staðfesting á hæfni okkar og
getu. Fjármálaeftirlitið hefur far-
ið í gegnum ítarlega úttekt og við
höfum hitt þá nokkrum sinnum.
Þetta er góð niðurstaða fyrir okk-
ur og við fögnum henni,“ segir
Björgólfur Thor Björgólfsson,
einn eigenda Samsonar. Hann
segir eigendur Samsonar mjög
sátta við þær aðgerðir sem lýst er
í umfjöllun Fjármálaeftirlitsins.
Þeir hafi verið virkir í að koma til
móts við þessar hugmyndir og
það sé af hinu góða í hlutafélagi
að hafa skýrar innri reglur.
Góð niðurstaða
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í Berg-
en í Noregi hafa samið við tólf veit-
ingahús um að starfsmenn sjúkrahúsa
og heilsugæslustöðva borgarinnar fái
30% afslátt af bjór, að sögn Bergens-
avisen í gær.
Áfengis- og vímuvarnaráð borgar-
innar er þó lítt hrifið af samningnum
og ætlar að láta lögfræðinga sína
kanna hvort hægt sé að ógilda hann.
Bandalag norskra hjúkrunarfræðinga
hefur einnig mótmælt samningnum og
segir að þótt markmiðið sé að bæta
starfsandann á vinnustöðunum sé ekki
rétt að hvetja starfsfólkið til að drekka
meira áfengi.
Umdeildur
bjórafsláttur