Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Blöndal, forseti Al- þingis, gerði í upphafi þingfundar á Alþingi í gær grein fyrir forsend- um þeirrar ákvörðunar sem tekin var af meirihluta forsætisnefndar Alþingis í lok janúar sl. að hafna ósk Guðmundar Árna Stefánssonar og annarra þingmanna Samfylking- arinnar um að forsætisnefnd feli Ríkisendurskoðun að taka saman skýrslu um fjárhagslegt uppgjör Landssíma Íslands hf. við fyrrver- andi forstjóra fyrirtækisins, Þór- arin V. Þórarinsson, sem gert var í tengslum við starfslok hans hjá fyrirtækinu. Eftir útskýringu Halldórs kom fram í máli stjórnarandstæðinga að þeir væru ósáttir við þessa ákvörð- un meirihluta forsætisnefndar að hafna beiðninni um skýrslu. Sagði Guðmundur Árni Stefánsson m.a. að forseti Alþingis hefði með því gengið í lið með þeim sem væru í samsæri þagnarinnar. Gunnar Birgisson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði hins vegar að gagn- rýni Guðmundar Árna lyktaði af „pólitísku skítabragði“. Eins og kunnugt er vann Rík- isendurskoðun skýrslu um starfs- lokin fyrir Símann en stjórn fyr- irtækisins hefur neitað að birta hana opinberlega. Guðmundur Árni hefur farið fram á það við Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra að hann láti birta skýrsluna en Sturla lýsti því m.a. yfir á Alþingi á síð- asta ári að ákvörðunin væri stjórn- ar Símans og hann styddi hana. Halldór Blöndal vísaði í upphafi þingfundarins m.a. í bókun sína á fundi forsætisnefndar þingsins hinn 28. janúar sl. Í bókuninni kemur m.a. fram að forsætisráðu- neytið hafi falið Stefáni M. Stef- ánssyni, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, að gera lögfræði- lega úttekt á aðgangi Alþingis að upplýsingum um hlutafélög í eigu ríkisins. Í úttektinni hefði eftirfar- andi m.a. komið fram: „Stjórnir hlutafélaga sem eru að öllu leyti eða að meirihluta í eigu ríkisins eða hluthafafundar þeirra ákveða hvaða málefni það eru sem talist geta viðskiptaleyndarmál og eiga að fara leynt.“ Halldór vitnaði áfram í bókunina og sagði: „Í bréfi Guðmundar Árna Stefánssonar, dagsettu 5. nóvember sl., er farið fram á að Ríkisendurskoðun vinni skýrslu um samskonar efni og þeg- ar hefur verið unnin af Ríkisend- urskoðun fyrir Landssíma Íslands hf. en stjórn Landssímans hefur hafnað því að skýrslan verði gerð opinber með hagsmuni fyrirtækis- ins fyrir augun. Með vísan til álits- gerðar Stefáns Más Stefánssonar prófessors tel ég ekki efni til að verða við beiðni alþingismannsins.“ Eftir að Halldór hafði gert grein fyrir þessari ákvörðun komu þing- menn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs upp í pontu hver á fætur öðrum og gagnrýndu ákvörðun Halldórs harðlega. Guðmundur Árni sagði m.a. að hér væri um af- skaplega óvenjulega afgreiðslu for- sætisnefndar þingsins að ræða. „Hér er einfaldlega verið að gang- ast eftir því að fá sömu upplýsingar og stjórn Landssímans hf. hefur fengið,“ sagði hann. „Hér hefur forseti Alþingis gengið í lið með þeim sem eru í samsæri þagnarinn- ar,“ sagði Guðmundur Árni enn- fremur. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, sagði að hætta væri á því að í skjóli leyndar þrifist spilling og Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, spurði hvað það væri í starfslokasamningi fyrr- verandi forstjóra Símans sem þyldi ekki dagsljósið. Síðar í umræðunni taldi Halldór Blöndal ástæðu til að taka fram að honum væri ekki kunnugt um það hvað stæði í fyrr- greindri skýrslu Ríkisendurskoð- unar. Höfum ekki boðvald yfir öllum fyrirtækjum Einar K. Guðfinnsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, benti á að Síminn væri sjálfstætt fyrirtæki með stjálfstæða stjórn. „Og það liggur fyrir að við erum ekki í þeirri stöðu hér að hafa boðvald yf- ir hverju einasta fyrirtæki í land- inu.“ Sagði hann að umræðan væri því meira og minna útúrsnúningur og tilraun til þess að koma höggi á forseta þingsins. Gunnar Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók í svipaðan streng. Hann sagði ádeilu Guðmundar Árna lykta af pólitísku skítabragði. Auk þess lagði hann áherslu á að þegar væri búið að gera grein fyrir starfsloka- samningi Þórarins V. Þórarinsson- ar í fjölmiðlum hér á landi. Forseti Alþingis hafnar beiðni um skýrslu frá Ríkisendurskoðun Gagnrýni lyktar af pólitísku skítabragði Morgunblaðið/Golli Halldór Blöndal, forseti Alþingis, gerði grein fyrir afstöðu sinni til beiðni Samfylkingarinnar, en flokkurinn vill að skýrsla um starfslok fyrrverandi forstjóra Símans verði gerð opinber. TÖLUVERÐ gagnrýni kom fram á sjávarútvegsráðherra í utandag- skrárumræðu á Alþingi í gær, fyr- ir að hækka leyfilegan heildarafla á ufsa á yfirstandandi fiskveiðiári gegn ráðleggingum Hafrannsókna- stofnunarinnar. Málshefjandi umræðunnar var Árni Steinar Jóhannsson, þing- maður VG, og beindi hann þeirri spurningu til sjávarútvegsráðherra hvaða fiskifræðilegu forsendur lægju að baki ákvörðun hans um hækkun á leyfilegum heildarafla í síðasta mánuði og hvort að hann teldi óhætt byggja slíka ákvörðun á fiskifræði sjómannsins, líkt og gert hafi verið með aukningu á ufsakvóta fiskveiðiársins. Þá spurði Árni Steinar hvort að kvótaaukningin væri til að bæta stöðu útgerðarinnar tímabundið í ljósi óhagstæðrar gengisþróunar íslensku krónunnar að undanförnu. Of lítill kvóti skapar þrýsting á brottkast Árni M. Mathiesen, sjávarút- vegsráðherra, sagði að baki aukn- ingunni væru fiskifræðilegar for- sendur. Aukning á ufsakvótanum væri byggð á því að ufsastofninn hefði stækkað hraðar en Hafrann- sóknastofnunin spáði í ráðgjöf sinni í júní sl. en stofninn væri nú í þeirri stærð sem Hafró spáði að hann yrði eftir tvö ár. Stofnunin hafi þrátt fyrir það lagt til að kvót- inn yrði ekki aukinn. En þar sem ufsaveiðar væru mjög blandaðar öðrum veiðum, til að mynda karfa- veiðum, skapaðist þrýstingur á brottkast ef kvótinn væri ekki í samhengi við hvað ufsinn gefur sig í veiðinni. Í ljósi þess hve stofninn virtist hafa braggast sagðist Árni hafa ákveðið að auka kvótann. Þannig væri hann í raun að taka tillit til bæði fiskifræðinga og fiski- fræði sjómannsins. Árni benti á að hann hækkaði aflaheimildir í nokkrum tegundum, meðal annars ufsa, á miðju síðasta fiskveiðiári og byggði þá einnig ákvörðun sína að hluta á fiskifræði sjómannsins. Hafrannsóknastofnunin hafi síðan lagt til hækkun á aflaheimildum allra tegundanna í ráðleggingum sínum síðastliðið vor. Þannig hafi fiskifræði sjómannsins í raun skapað umtalsverð verðmæti, sem annars hefðu ekki skilað sér í þjóðarbúið. Of snemmt að tala um alvarlegt ástand Árni sagði að með aukningu heildaraflans hafi hann ekki verið að taka sérstaklega tillit til núver- andi stöðu sjávarútvegsins í ljósi óhagstæðrar gengisþróunar. Hann hafi það fyrst og fremst að leið- arljósi að nýta fiskistofnana eins skynsamlega og hægt er á hverj- um tíma. Það sé hinsvegar ljóst að íslenska krónan hafi styrkst veru- lega að undanförnu en það væri þrátt fyrir það of snemmt að tala um alvarlegt ástand í þeim efnum. Slíkar aðstæður gætu hinsvegar skapast en Seðlabanki Íslands vinni að því að hafa áhrif á gengið ef það þjóni markmiðum gegn verðbólgu. Fiskifræði sjómanns- ins bjarg- aði verð- mætum ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag. Að loknum atkvæða- greiðslum verða umræður um samgöngumál. Samgönguráð- herra mun m.a. mæla fyrir samgönguáætlun fyrir árin 2003 til 2014. ALLS fluttu 4.215 einstaklingar til landsins í fyrra og 4.490 frá landinu. Brottfluttir frá landinu voru þannig 275 fleiri en aðfluttir á seinasta ári skv. tölum Hagstofunnar um bú- ferlaflutninga árið 2002. Þar kemur einnig fram að á síðasta ári fluttu talsvert færri til höfuðborgarsvæð- isins en á síðustu árum. Flutningar innanlands í heild hafa haldist stöðugir mörg undanfarin ár ef miðað er við hlutfall búferlaflutn- inga af fólksfjölda. Árið 2002 skiptu 181 af hverjum 1.000 landsmanna um lögheimili, en 10 árum fyrr var þetta hlutfall 171. Í flestum tilvikum var um að ræða flutning innan sveitarfélags. Flestir komu frá Póllandi Dregið hefur nokkuð úr fólks- fjölgun á Íslandi á undanförnum ár- um og nú er svo komið skv. frétt Hagstofunnar að þá fjölgun sem orðið hefur á árinu má einungis rekja til náttúrulegrar fólksfjölgun- ar, þ.e. fæddra umfram dána. Á árinu 2002 voru brottfluttir frá land- inu 275 fleiri en aðfluttir. Þetta jafn- gildir því að 1 íbúi af 1.000 hafi flutt af landi brott. Næstu fimm árin á undan voru aðfluttir aftur á móti umtalsvert fleiri en brottfluttir, munurinn var 1.714 árið 2000 og 968 árið 2001. Þrátt fyrir neikvæðan flutningsjöfnuð 2002 var heildar- fjöldi þeirra sem fluttu til landsins hár miðað við fyrri tímabil. Í fyrra var fjöldi aðfluttra 4.215 samanborið við tæplega 3.000 10 árum áður. Á síðustu árum hefur útlendingum fjölgað sem flytja til landsins, en fjöldi Íslendinga sem komið hefur heim hefur verið fremur stöðugur. Flestir útlendinganna voru frá Póllandi, en þaðan komu 266 ein- staklingar með erlendan ríkisborg- ararétt á síðasta ári, 146 komu frá Þýskalandi og 116 frá Danmörku. Hverfandi fáir Íslendingar fluttu frá öðrum löndum en Norðurlöndum (einkum Danmörku, Noregi og Sví- þjóð), Bretlandi og Bandaríkjunum. Mun fleiri Íslendingar fluttu til allra ofangreindra landa en frá þeim. Fleiri fluttu frá Reykjavík og Seltjarnarnesi Aðfluttir umfram brottflutta af landsbyggð til höfuðborgarsvæðis í fyrra voru 293 samanborið við 1.319 árið 2001. Í frétt Hagstofunnar er vakin athygli á að nú voru brott- fluttir fleiri en aðfluttir í tveimur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu, í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Árið 2001 hafði flutningsjöfnuður einnig verið jákvæður á Suðurnesj- um og Vesturlandi, en frá báðum þessum landsvæðum fluttu nú tals- vert fleiri en til þeirra. Eins og árin á undan var fólksflótti mestur frá Vestfjörðum en þar var flutnings- tíðnin neikvæð um nær 20 af 1.000 íbúum. Brottfluttir frá landinu 275 fleiri en aðfluttir Dregið hefur nokkuð úr flutningi fólks til höfuðborgarsvæðisins 3 4           !   4 -55"6"&&" A A A A A A   C  C &   #    &    ' '    

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.