Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10 b.i. 14 ára. / Sýnd kl. 10 b.i. 14 ára. / ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI KRINGLAN KEFLAVÍK / / / ÓHT Rás 2 DV Sýnd kl. 5.50. Ein umdeildasta og djarfasta kvikmynd ársins er komin í bíó. Stranglega bönnuð innan 16 ára Náðu þeim í bíó í dag. í mynd eftir Steven Spielberg. Monica Bellucci Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B. i. 14. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.15. 2 vinsælustu myndir frönsku kvikmyndahátíðarinar DV MBL SV MBL DV MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Enskur texti H.K DV Kvikmyndir.is Misstu ekki af vin- sælustu mynd síðasta árs í bíó Tilboð 2 fyrir 1 H.L MBL Rakarinn (The Barber) Hrollvekja Kanada, 2001. Góðar stundir VHS. (90 mín) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Michael Bafaro. Aðalhlutverk: Malcolm McDowell, Jeremy Ratchford og Garwin Sanford. SKAMMDEGI, snævi þakin jörð og svellkaldir norðanvindar virðast vinsæl til áhrifaauka og sviðsetn- inga í morðingjamyndum. Stutt er síðan við fylgdumst með Al Pacino reyna að góma klækjarefinn og kvennamorðingjann sem Robin Williams lék í Insomnia, en sú mynd átti sér stað í Alaska sem einn- ig myndar sögu- umhverfi Rakar- ans, ágætrar kvikmyndar sem lýsir samskonar eltingaleik FBI lögreglumanns og fjöldamorðingja. Hér er það einn vannýttasti stórleikari samtímans, Malcolm McDowell, sem fer með hlutverk blóðþyrsts rakara sem villir á sér heimildir í fámennu þorpi langt frá því sem almennt kallast siðmenning. Fjöldamorð- inginn, þetta frægasta sjúkdóms- einkenni nútímans, er vinsælt við- fangsefni en nokkrir hlutir gera þessa fjöldamorðingjamynd áhuga- verða og nokkuð sérstaka. Ber þar fyrst að nefna þá staðreynd að myndin er sögð frá sjónarhorni morðingjans, ekki lögreglunnar, sem er nokkuð sjaldgæft. Frá- sagnaraðferðin skapar siðferðis- legar spurningar þar sem skrímsl- ið er staðsett þar sem áhorfendur eru vanir að finna hetjuna, og því vandasamt hvernig bregðast skal við framvindunni: Heldur áhorf- andinn með lögreglumönnunum, sem eru frekar durgslegir allir saman, eða morðingjanum sem er áhugaverðasti og mest sjarmer- andi karakterinn í myndinni, en býr því miður við þann skapgerð- arbrest að vera siðlaus skepna. Þá er handritið ansi haganlega smíð- að, skýrar og áhugaverðar persón- ur eru skapaðar í þessu litla sam- félagi og McDowell stendur sig frábærlega í hlutverki rakarans. Þetta er með öðrum orðum mynd sem kemur á óvart. Heiða Jóhannsdóttir Myndbönd Skæður hárskeri MYND Hals Hartleys, Monster, kemur út á myndbandi í vikunni en um er að ræða hálfíslenska mynd sem þessi virti bandaríski kvikmyndagerðarmaður tók upp að hluta til á Íslandi. Mynd- in skartar þar að auki all- nokkrum íslenskum leikur- um og ber þar fyrstan að nefna Baltasar Kormák sem er í veigamiklu hlut- verki í myndinni. Monster er sjöunda mynd Hartleys í fullri lengd en auk þess að vera kvikmyndagerðarmaður starfar hann sem kennari í kvikmyndafræðum og -gerð við Harvard-há- skóla. Friðrik Þór Friðriks- son er skráður framleiðandi myndarinnar ásamt Francis Ford Coppola en það var Friðrik sem átti upphaflegu hugmyndina að gerð myndarinnar og lagði fram fé til handritsgerðarinnar. Af öðrum athyglisverðum mynd- um sem út koma í vikunni má svo nefna The Importance of Being Ernest sem byggð er á margfrægu leikriti Oscars Wildes. Það eru þrjár nýjar myndir á meðal þeirra vinsælustu á leigun- um þessa dagana. Þrátt fyrir að vera afar ólíkar eiga þær það allar sameiginlegt að slá fremur á létta strengi en þunga. Orange County er gráglettin mynd um ungan mann og síð- ustu augnablikin í ábyrgðarleysi áður en alvara há- skólanámsins tekur við, Eight Legged Freaks er ófreskjumynd af gamla skólanum um gamansama glímu grandalausra manna við risakóngulær og Joe Somebody er ekta Tim Allen-mynd í anda gömlu þáttanna hans um Handlaginn heimilisföður, enda er leikstjóri myndarinnar og samstarfsmaður Allens til margra ára, John Pasq- uin, einn af höfundum þáttanna vinsælu. Vinsælasta myndin á leigunum er þó eftir sem áður The Sum of All Fears þar sem Ben Affleck spreytir sig í fyrsta sinn í hlut- verki leyniþjónustumannsins Jacks Ryans, og fetar þar í fótspor Alecs Baldwins og Harrisons Fords. Íslenskt sam- tímaskrímsli Baltasar Kormákur leikur geggjaðan vísindamann í Monster.                                                              !"!#$ %  !"!#$  & ! !"!#$ !"!#$ %  !"!#$ %  '() "  !"!#$ !"!#$ %  %  !"!#$  & !  & !  & ! * % %  + ' !  ' !  ' !  + + + + ' !  ' !  ' !  ' !  ' !  ' !  ' !  ' !  + + ' !  ' !                    !  "   #    " #%#    &     '  %#(  )***+  %   $#   &      !         Monster kemur út á myndbandi Caminha, Portúgal, 1. febrúar. Við hugsum hananum þegjandi þörfina og viljum helst breyta honum í bollur eða stoppa hann upp. Hann vekur okkur fréttamennina hér í Caminha á litla sveitahótelinu með háværu galinu klukkan fimm á morgnana. Í raun erum við þó þegar löngu vakn- aðir, því hótelið er nánast ókynt og vakna menn reglulega upp, skjálf- andi á beinum, og eru svefnvana þegar fyrsta hanagalið ómar í eyrunum. Dagbók ljósmyndara Morgunblaðið/RAX Við fyrsta hanagal Baran  Þroskasaga frá Íran er harla óvenjulegt efni á myndbandamark- aðnum og vel þegið. Forvitnileg og framandi. tækifæri til að virða fyrir sér framandi mynd.(S.V.) Varðliðar Texasríkis / Texas Rangers  Lítur prýðilega út en atburðarásina skortir kjöt á beinið. Úr verður for- vitnilegur leikhópur og ætti útkom- an að hugnast velflestum vestra- unnendum. (S.V.) Himinn og jörð að farast / Sky is Falling  Ein af þessum litlu myndum sem leyna á sér, byrja e.t.v. ekki of vel, en luma á fínum persónum og óvenjulegri atburðarás. Bráð- skondin mynd á köflum, sem þó skilur mátulega lítið eftir sig. (H.J.) Græni drekinn / Green Dragon  Lágstemmd og vel gerð mynd um hlið á Víetnamstríðinu sem ekki hefur verið ofarlega á baugi í þeim fjölmörgu myndum sem gerðar hafa verið um þennan afdrifaríka viðburð í sögunni. Sjónum er beint að þeim þúsundum Víetnama sem flúðu heimaland sitt og hlutu hæli í Bandaríkjunum. (H.J.) Maðurinn frá Elysian Fields / The Man from Elysian Fields  Tilfinningaflækja miðaldra karl- manns, sem neyðist til að horfast í augu við að hafa ekki upp á annað að bjóða en líkama sinn, er sann- færandi, einkum vegna frábærrar frammistöðu Andy Garcia og Micks Jaggers. (S.G.) GÓÐ MYNDBÖND Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson  Meistaraverk  Ómissandi Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.