Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir, GUNNAR HESTNES vélstjóri, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 28. janúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Þorbjörg Bjarnadóttir, Guðlaug Hestnes, Örn Arnarson. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, ERLA KROKNES, Langholtsvegi 4, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 1. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Steinþór G. Halldórsson, börn, tengdabörn, barnabörn og systkini. Móðir okkar, SVANHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, sunnudaginn 2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fjóla Jóhannesdóttir, Sólveig Jóhannesdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og tengdasonur, JÓN OTTI GÍSLASON lögreglumaður, Rauðagerði 22 verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 6. febrúar kl. 13.30. Berglind Eyjólfsdóttir, Katrín Dagmar Jónsdóttir, Jón Eyjólfur Jónsson, Birna Dögg Jónsdóttir, Halldór G. Hauksson, Þorsteinn Otti Jónsson, Einar Gíslason, Halldóra Jóhannsdóttir, Ragnar Gíslason, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Gísli Þór Gíslason, Eyjólfur Jónsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, sambýliskona, stjúp- móðir, dóttir og amma, GUNNÞÓRUNN ÞORSTEINSDÓTTIR, Gauksstöðum, Garði, var jarðsungin frá Útskálakirkju laugardaginn 1. febrúar. Aðstandendur þakka öllum þeim, er auðsýndu samúð og vinarhug við andlát hennar og útför. Guð blessi ykkur öll. Jóhannes Ingi Sigurðsson, Hjaltlína Pálsdóttir, Þórunn Helga Sigurðardóttir,Gunnar Geirsson, Ólafur Sævar Elísson, Sonja Dögg Ólafsd., Eva Rut Ólafsd., Kristín Ingimundardóttir og Kristjana Margrét Jóhannesdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Heiðarvegi 59, Vestmannaeyjum, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugardaginn 1. febrúar, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00. Ásgeir Lýðsson, Sólveig Guðnadóttir, Brynhildur Lýðsdóttir, Skúli Lýðsson, Áslaug Maríasdóttir og fjölskyldur. ✝ Rúrik TheodórHaraldsson fæddist í Vest- mannaeyjum 14. jan- úar 1926. Hann lést í Reykjavík 23. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Guðný Kristjana Einars- dóttir húsmóðir, f. 18. nóv. 1891, d. 9. okt. 1964, dóttir Val- gerðar Oddsdóttur húsmóður frá Heiði, Rangárvöllum, f. 14. maí 1870, d. 15. júlí 1941, og Einars Nikulássonar bónda á Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 29. apr. 1867, d. 4. ág. 1950, og Haraldur Sigurðsson trésmiður á Sandi í Vestmannaeyj- um, f. 18. okt. 1876, d. 18. sep. 1943, sonur Guðbjargar Sigurðar- dóttur, húsmóður frá Barkarstöð- um í Fljótshlíð, f. 1848, d. 1921, og Sigurðar Ólafssonar bónda að Butru í Fljótshlíð, f. 1837, d. 1911. Bræður Rúriks eru: Haraldur Ágúst járnsmiður, f. 27. okt. 1919, d. 16. okt. 1984, eftirlifandi maki Vigdís Hannesdóttir húsmóðir, f. 27. okt. 1919, og Friðrik bakara- meistari, f. 9. ág. 1922, maki Steina Margrét Finnsdóttir, húsmóðir, f. 10. júní 1926. Systir Rúriks er Ása húsmóðir, f. 12. júlí 1928. Maki Þráinn Sigtryggsson vélstjóri, f. 3. júní 1927. Hálfsystkini Rúriks samfeðra eru Fjóla, f. 22. mars 1913, Unnur, f. 19. okt 1904, d. 14. júlí 1991, Kalmann Steinberg, f. 8. mars 1907, d. 24. nóv. 1975, Ragna f. 24. sept. 1905, d. 11. maí 1966, Sigurður Ólafsson (ættarnafn), f. 1945 til 1946 og nám við Central School of Dramatic Art and Speech Training at Albert Hall í Lundúnum árin 1947 til 1950. Rú- rik var einnig tónlistarmaður og lék hann á trompet og fiðlu. Jónas Dagbjartsson fiðluleikari kenndi honum þegar hann byrjaði í lúðra- sveit Vestmannaeyja. Rúrik var síðar í hljómsveit Bjarna Böðvars- sonar á árunum 1945 og 1946. Rú- rik var máttarstólpi í íslensku leik- listarlífi frá 1950 og fram á síðustu ár. Hann var leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1946 til 1947 og 1950 til 1951. Hjá Þjóðleikhúsinu starf- aði hann sem leikari frá árinu 1951 til 1995. Lék hann þar í tæplega 150 hlutverkum, síðast í leikritinu Sannur karlmaður. Síðasta leikrit- ið sem hann lék í á sviði var leik- ritið Fjögur hjörtu sem sýnt var í Loftkastalanum árið 1999 til 2000. Hlutverk Rúriks í útvarpi og sjón- varpi skipta hundruðum. Auk þess lék Rúrik í fjölmörgum kvikmynd- um, bæði innlendum og erlendum, nú seinast í kvikmyndinni Stella í framboði sem gerð var á síðasta ári. Rúrik var í stjórn Félags ís- lenskra leikara 1956–1957 og vann hann ötullega allan sinn feril að kjarabaráttu starfssystkina sinna, ekki síst á árunum 1985–1990. Rú- rik hlaut ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Hann hlaut m.a. menn- ingarverðlaun Þjóðleikhússins ár- in 1960 og 1968, og listamanna- laun Menningarsjóðs 1960. Þá hlaut hann Silfurlampann, verð- laun Félags íslenskra leikdómara, árið 1970, fyrir túlkun sína á aðal- hlutverkinu í leikritinu Gjaldinu eftir Arthur Miller. Hann hefur fengið heiðurslaun listamanna, skv. ákvörðun Alþingis, frá árinu 2001. Rúrik verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. 10. ág. 1911, d. 5. apr. 1992, og Trausti, f. 15. okt. 1909, d. 29. mars 1960. Hálfsystkini Rú- riks sammæðra voru Björgvin Sigurjóns- son, f. 21. okt. 1911, d. 18. júl. 1992; Guð- munda Margrét Sig- urjónsdóttir, f. 13. júní 1913, d. 19. des. 1934; Einar Valgeir Sigur- jónsson, f. 4. júlí 1916, d. 31. maí 1999. Hinn 11. október 1951 kvæntist Rúrik Önnu Sæbjörnsdóttur hönnuði, f. 28. júlí 1928, d. 5. júní 1998. Eignuðust þau sex börn. Þau eru: 1) Björn atvinnurekandi, f. 11. nóv. 1950, kvæntur Guðfinnu Karlsdóttur, f. 4. feb. 1958. Synir þeirra eru Rúrik Karl, f. 19. maí 1987, og Birkir Örn, f. 19. maí 1994. 2) og 3) Stúlkubarn og svein- barn, f. 28. júní 1953, annað dáið 29. júní 1953 og hitt 4. júlí 1953. 4) Stúlkubarn, f. 19. apr. 1956, d. 20. apr. 1956. 5) Haraldur Steinn flug- umferðarstjóri, f. 25. mars 1959, kvæntur Susan Palfreeman, f. 1. feb. 1963. Dætur þeirra eru Helen Ósk, f. 7. sept. 1992, Anna Krista, f. 7. apr. 1996, og Viktoría Sif, f. 17. okt. 1998. 6) Ragnhildur leikkona, f. 12. feb. 1964, gift Jóni Raymond Miller iðnaðarverkfræðingi, f. 30. jan. 1962. Sonur þeirra er Rúrik Rafnar, f. 27. mars 1997, og dóttir Vera Björk, f. 2. júní 2001. Rúrik lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja árið 1943. Hann stundaði nám við leiklistarskóla Lárusar Pálssonar Nú ertu farinn frá okkur … tárin streyma niður vangann við tilhugs- unina. Hjartans elsku pabbi minn og ég sem gat ekki verið þér hjá undir það síðasta. Það særir mig meir en nokkuð annað. Að hafa ekki getað haldið í hönd- ina á þér, faðmað og knúsað. Kallið kom áður en það náðist, ég var rétt ókomin. Mennirnir víst ákveða en Guð einn ræður … Að heyra þig ekki kalla mig framar „elsku krúsaling- inn hans pabba“ nístir hjarta mitt. Það er með erfiðismunum að ég reyni að koma hugsunum á blað. En það er huggun í sorginni að skrifa, eflaust gerir það mér kleift að halda áfram. Minningar og myndbrot þjóta framhjá. Úr mörgu er að velja því samrýnd vorum við feðginin. Ég minnist sérstaklega síðastliðinna fjögurra ára þegar við heimsóttum þig árlega frá Oregon. „Ja þá var nú þröngt um manninn þegar þriggja manna fjölskyldan dvaldi mánuð í senn á Skólabrautinni.“ Ferðatöskur út um allt en aldrei kvartaðir þú! Dásamlegar eru minningar frá dvöl þinni hjá okkur haustið 2000. Mikið var aðhafst þá, leikhúsferðir og dagsferðir út um allt. Einkum eru mér minnisstæðar okkar síðustu samverustundir í haust. Yndislegan tíma áttum við þá saman. Það var og dýrmætur mánuður sem Rúrik Rafnar og Vera Björk áttu með afa sínum. Þó að við dveldum ekki hjá þér í það skiptið eyddum við eins miklum tíma saman og færi gafst. Á kvöldin áður en þú gekkst til náða hringdir þú ávallt í mig til að spjalla eilítið, þakka fyrir daginn og eða til að vita drög að næsta degi. Og ekki breyttum við út af venjunni að fara saman í leikhús meðan ég var heima. Eins og alltaf höfðum við unun af að diskútera leikinn, textann, handritið, túlkunina og stykkið eins og það lagði sig. Þar vorum við í essinu okk- ar. Já þær eru víst orðnar ansi margar sýningarnar sem við sáum saman. Talandi um leiklistina. Þú kenndir mér að meta það listform. Þessa þrá eftir að túlka og skapa erfði ég og frá þér. Mikið þótti okkur báðum vænt um þegar við t.d. lékum saman í leikritinu „Herbergi Verón- iku“ sumarið 1995. Að vinna með listamönnum sem þér var einstakt. Af miklu gast þú miðlað. Aldrei heyrði ég þig hallmæla öðrum eða skipta þér af túlkun annara leikara. Yfir slíkt varstu algjörlega hafinn. Einstakt prúðmenni, tillitssamur, ósérhlífinn, samvinnuþýður og geð- góður. Dáður og elskaður af kolleg- um okkar. Ég er stolt af því að geta sagt að þú hafir verið leikarastéttinni til sóma. Ekki er það þó ætlun mín hér að fara meir út í þá sálma, þeir skipta tugum þeir samstarfsmenn sem bera þér fallega söguna. Mikill er missir leikarastéttarinn- ar og þjóðarinnar að listamanninum Rúrik Haraldssyni. Föðurmissir okkar systkinanna mín, Steina og Bjössa er þó mestur. Einnig er miss- ir afabarnanna, tengdabarnanna og systkina þinna mikill. Með aðstoð hundraða ljósmynda og fjölda myndbanda sem við eigum af þér munum við Jón halda minn- ingu þinni á lofti fyrir Rúrik og Veru okkar um ókomna tíð. Nú eruð þið mamma bæði horf- in … Eflaust eruð þið nú saman á nýjan leik og takið á móti okkur þeg- ar okkar tími kemur. Ég sé hvar þú kemur í svörtum hjúpi seiðandi máttinn úr hjarta míns djúpi. Og fyrr en mig varir þú vefur mig örmum og vanga minn snertir svo tár drjúpa af hvörmum. (Ragnhildur Gísladóttir.) Kvæðið „Sorgin“ eftir hana ömmu Rögnu segir meir en nokkur orð. Drottinn blessi minningu þína pabbi minn. Þín elskandi dóttir, Ragnhildur. Kveðja frá Þjóðleikhúsinu Einn fremsti listamaður þjóðar- innar á sviði leiklistar, Rúrik Har- aldsson, er látinn. Hann var einn þeirra framvarða sem ruddi braut ís- lenskrar atvinnuleiklistar og var meðal þeirra fyrstu sem sóttu sér menntun á erlenda grund í því skyni að gera leiklistina að ævistarfi. Þeim fækkar nú óðum þessum frumherj- um, sem um áratuga skeið lögðu grundvöllinn að atvinnumennsku í leiklist og lífguðu leikbókmenntir heimsins jafnt sem íslensk samtíma- verk á fjölum Þjóðleikhússins allt frá því um miðja síðustu öld og fram á okkar dag. Rúrik hóf feril sinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1946 en hélt fljótlega til Lundúna, þar sem hann nam við hinn virta leiklistarskóla Central School of Speech and Drama, 1947– 50. Hann hóf að leika við Þjóðleik- húsið 1951, varð fastráðinn leikari við húsið 1956 og lék þar allan sinn starfsferil. Hlutverkin urðu alls tæp- lega 150 talsins. Rúrik skapaði á ferli sínum sæg ógleymanlegra persóna. Hann var ákaflega fjölhæfur, jafnvígur á gam- an og alvöru, þótt eftirminnilegustu hlutverk hans í huga undirritaðs séu öll á alvarlegri nótunum. Hann var dramatískur leikari með mikla til- finningalega dýpt en bjó yfir ótrú- legum sveigjanleika og gat spilað á eigin tilfinningar og persónuleika eftir þörfum. Hann gat verið einlæg- ur, hlýr og mildur þegar þess var krafist en allra manna ógnvænleg- astur og ægilegastur þar sem það átti við. Þegar augunum er rennt yfir fer- ilskrá hans í Þjóðleikhúsinu kvikna þær til lífsins, hver persónan á fætur annarri. Hæst rís öldungurinn elli- æri og brjóstumkennanlegi: Lér konungur í leikriti Shakespeares, þar náði hann harmrænni dýpt á ógleymanlegan hátt. Meðal annarra stærstu leikafreka hans vil ég nefna túlkun hans á þrem aðalhlutverkum í leikritum Millers: Jón Proktor í Í deiglunni, Quentin í Eftir syndafallið og Viktor í Gjaldinu – fyrir það hlutverk hlaut hann Silf- urlampann 1970 – allt frábærar kar- akterstúdíur en innbyrðis gjörólík- ar. Hann var skúrkurinn Satín í Náttbóli Gorkís, Sólness byggingar- meistari í samnefndu verki Ibsens og James Tyrone í Dagleiðinni löngu inn í nótt svo fátt eitt sé nefnt. Rúrik naut sín vel í söngleikjum: hann lék fyrstur manna Henry Higgins á íslensku sviði í My Fair Lady með glæsibrag og þótti sýna á sér nýja og óvænta hlið sem popp- stjarnan Billy í söngleiknum Tán- ingaást. Þá lék hann fjölmörg skemmtileg hlutverk í íslensku leik- ritunum: Harald í Skugga-Sveini, Feilan Ó. Feilan í Silfurtúnglinu, Arnas Arnaeus í Íslandsklukkunni, Lamba í Strompleiknum, Sine Mani- RÚRIK HARALDSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.