Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 29
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 29 ✝ Hörður Jóhann-esson fæddist í Reykjavík 8. nóvem- ber 1927. Hann and- aðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 22. janúar síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Jóhannesar G. Jóhannessonar, f. 29.9. 1901, d. 17.4. 1988, og Thelmu Ólafsdóttur, f. 4.8. 1906, d. 8.5. 1957. Hörður var næstelst- ur bræðra sinna. Elst- ur er Jóhannes Garð- ar, f. 8.7. 1925, þá Hörður, síðan Ólafur Helgi, f. 21.8. 1929, Þórir, f. 6.9. 1935, d. 8.12. 1994, og yngstur er Gunnar Rafn, f. 25.7. 1945. Tvær systur þeirra bræðra dóu í æsku. Eftirlifandi eiginkona Harðar er Fanney G. Jónsdóttir, f. 23.3. 1927. Börn þeirra eru: 1) Guðmunda Sól- veig, f. 27.10. 1946, maki Björn Á. Þorbjörnsson, f. 17.3. 1941. Börn þeirra eru: a) Jóhanna Þorbjörg, maki Valgeir Ingólfsson. Þau eiga tvo syni. b) Hörður, maki Unnur B. Friðriksdóttir. Þau eiga þrjá syni. c) Jökull Fannar. 2) Eygló, f. 7.11. 1952, maki Þorkell Þ. Valdimars- son, f. 27.9. 1952. Börn þeirra eru: a) Þóra Svanhildur, maki Einar Þór Skarphéðinsson. Þau eiga tvo syni. b) Fanney. 3) Hulda Karitas, f. 21.5. 1955, maki José Antonio Rodriquez Lora, f. 30.4. 1952. Börn þeirra eru: a) Viktor Pétur, b) Sylvía Ósk, og c) Jóhannes Diego. 4) Brynja, f. 9.3. 1960, maki Skúli G. Ingvarsson, f. 24.3. 1953. Börn þeirra eru: a) Ingvar Breiðfjörð, b) Harpa Dröfn, unnusti Ólaf- ur Eggert Jóhannes- son. 5) Jóhannes Gunnar, f. 11.7. 1964, maki Steinunn Bald- ursdóttir, f. 23.3. 1964. Barn þeirra Lára Karitas. Hörður lærði kjötiðn hjá Síld og fiski í Reykjavík og starfaði við það þar til hann flutti í Borgarnes og tók til starfa hjá Kaupfélagi Borgfirðinga við sína iðn. Samfara því byrjaði hann að starfa sem lög- reglumaður. Hann stundaði nám við Lögregluskóla ríkisins og starfaði síðan sem lögreglumaður í Borgarnesi eftir að hann hætti sem kjötiðnaðarmaður. Síðar var hann skipaður lögregluvarðstjóri og starfaði sem slíkur þar til hann varð að hætta vegna veikinda. Þegar hann hafði náð sér eftir veikindin hóf hann störf hjá Ís- lenska járnblendifélaginu á Grundartanga og starfaði hann þar sem vaktmaður og lauk sinni starfsævi þar. Útför Harðar verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Það var sumarið 1994 sem ég kom í fyrsta skipti á heimili tengda- foreldra minna í Borgarnesi, þeirra Harðar og Fanneyjar. Það er ekki ofsögum sagt að þar var einstak- lega vel tekið á móti mér, ég var bara allt í einu orðin ein af fjöl- skyldunni. Þegar ég svo nokkrum mánuðum seinna flutti í Borgarnes og hóf búskap með Jóhannesi syni þeirra átti ég hjá þeim öruggt at- hvarf. Við þrjú spiluðum mikið „kana“ svo að mörgum þótti nóg um. Hörður var nú stundum þreyttur á okkur Fanneyju „spila- fíklunum“ því um tíma fór ég að spila á Böðvarsgötunni á hverjum degi eftir vinnu og stundum líka um helgar. Eitt af því sem ég dáðist hvað mest að hjá Herði var hversu orð- heppinn hann var, það var oft gam- an að hlusta á þá feðga skiptast á glettnum tilsvörum. Svo skemmti- lega vill t.d. til að við Fanney erum fæddar sama dag, með 37 ára milli- bili. Eitt árið sagði Jóhannes við pabba sinn: „Jæja, nú eiga þær af- mæli á morgun, önnur verður sjö- tug og hin sextug.“ Þá svaraði Hörður um hæl: „Mér finnst það skrítið, Jóhannes minn, eins og þú ert nú ungur að þú skyldir endilega þurfa að ná þér í svona gamla konu.“ Já, það var oft glatt á hjalla. Hin seinni ár fór heilsu Harðar hrakandi en alltaf var glettnin til staðar. Eftir að við Jóhannes eign- uðumst svo litlu prinsessuna okkar, hana Láru Karitas, tókst með henni og Herði sérstaklega gott samband og undir það síðasta ljómuðu augun hans afa þegar sú litla söng fyrir hann jólalögin. Núna segir Lára Karitas: „Afi Hörður er hjá Guði og Guð passar hann.“ Við hin þökkum almættinu fyrir að hafa verið svo lánsöm að eiga samleið með jafn góðum og göfugum manni. Guð blessi minningu tengdaföður míns. Steinunn. Elsku langafi. Ég veit að núna líður þér vel, þú ert ekki lengur veikur, en ég sakna þín nú samt. Við sungum alltaf „rokka billí“ saman, en þú verður bara að reyna að kenna hinum englunum það svo þeir geti sungið með þér. Ég ætla að kveðja þig með bæninni minni: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Bless, afi minn, og ég skal passa hana langömmu fyrir þig. Þinn Þorkell Már. Elsku afi. Þinn tími hér með okk- ur er víst liðinn, og mig langar að kveðja þig hér í hinsta sinn, með nokkrum orðum. Hann var erfiður miðvikudagur- inn sem þú kvaddir, ég kom til þín upp á dvalarheimili eftir vinnu og sat hjá þér í nokkurn tíma. Það var gott að finna að þú vissir af okkur og lést okkur vita af þér með því að kreista höndina á okkur. Okkur var þó ljóst, að það styttist í kveðju- stund þína. Um sexleytið kvaddi ég þig með þeim orðum, að við mamma ætluðum að skreppa örlítið heim til að borða og í sturtu og sagði: „Bless afi, við sjáumst á eft- ir.“ Það var varla liðinn klukkutími, þegar hringt var heim. Við mamma þutum út úr dyrunum heima og upp á dvalarheimili en það var of seint, þú varst farinn. Það var erfitt, þegar við löbb- uðum inn í herbergið til þín, en jafnframt gott að sjá hve mikill friður hvíldi nú yfir þér, þrautin var á enda og núna ertu kominn á góð- an stað, stað þar sem þér líður vel. Elsku afi, fjölmörgum minning- um skýtur upp í kollinum á mér þessa stundina, sérstaklega minn- ingum af Böðvarsgötunni, þar sem við bjuggum í sama húsinu. Minn- ingarnar geymi ég á góðum stað í hjarta mér, stað sem tilheyrir þér. Bless, elsku afi, takk fyrir allt sem þú varst. Fanney Þorkelsdóttir. HÖRÐUR JÓHANNESSON Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Útför elskulegrar systur minnar og frænku okkar, SVÖVU ÓLAFSDÓTTUR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánu- daginn 27. janúar, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. febrúar kl. 15.00. Fjóla Ólafsdóttir, Ólöf Björnsdóttir, Ólafur Björn Björnsson, Snorri Björnsson, Guðrún Svava Björnsdóttir, Fjóla Björnsdóttir. Okkar ástkæra, SVANLAUG HANNESDÓTTIR, Birkivöllum 11, Selfossi, lést föstudaginn 31. janúar, Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Stefán G. Jónsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir minn, SNÆBJÖRN GUNNAR GUÐMUNDSSON frá Skjaldvararfossi á Barðaströnd, lést sunnudaginn 2. febrúar sl. Jarðarförin auglýst síðar. Unnur Guðmundsdóttir, Stað. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SÆMUNDUR GÍSLASON, Safamýri 46, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 2. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.30. Gísli Sæmundsson, Anna Día Brynjólfsdóttir, Magnús Sæmundsson, Svandís Egilsdóttir, Sæmundur Andri Magnússon, Daníel Arnar Magnússon, Gísli Aron Magnússon, Jóhanna Gísladóttir, Atli Magnús Gíslason, Brynjólfur Gíslason. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HÖSKULDUR BJARNASON frá Burstafelli, Drangsnesi, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 1. febrúar. Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju fimmtu- daginn 6. febrúar kl. 13.30. Útförin fer fram frá Drangsneskapellu laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hrafnistu í Reykjavík. Anna Guðrún Höskuldsdóttir, Gunnhildur Höskuldsdóttir, Erling Birkir Ottósson, Jóhanna Björk Larsen, Hans John Larsen, Bjarnveig Höskuldsdóttir, Ragnar Sigbjörnsson, Friðgeir Höskuldsson, Sigurbjörg H. Halldórsdóttir, Anna Guðrún Höskuldsdóttir, Guðmundur Ingvarsson, Auður Höskuldsdóttir, Jón Anton Magnússon, Halldór Höskuldsson, Sunna Jakobína Einarsdóttir, afa- og langafabörn. Frænka mín, SIGRÍÐUR SIGFÚSDÓTTIR, Forsæludal, er andaðist fimmtudaginn 30. janúar, verður jarðsungin frá Blönduós- kirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 11.00. Jarðsett verður í heimagrafreit. Sigríður Ragnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.