Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 7
RÚMLEGA tvítug kona var í gær
dæmd í átta mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að veita þrítugri konu 5
sentimetra langan skurð á vinstri
kinn. Fyrir dómi sagðist konan bera á
sér dúkahníf vegna starfs síns, en hún
er nektardansmær, og hún hefði lagt
til konunnar í neyðarvörn. Á það féllst
dómurinn ekki.
Árásin átti sér stað í febrúar í fyrra
í Hafnarstræti. Sú sem varð fyrir
hnífslaginu lýsti atburðum svo að hún
hefði séð nokkra menn deila við tvær
stúlkur. Hún hefði bent þeim á að það
væri óþarfi að koma fram við stúlk-
urnar með þessum hætti en þær ekki
skilið að hún væri að mæla þeim til
varnar. Loks hefði önnur þeirra skor-
ið hana í andlitið með hnífi. Nektar-
dansmærin játaði að hafa lagt til hinn-
ar konunnar með hnífi en sagði að hún
hefði, ásamt mönnunum, ráðist að sér
og vinkonu sinni með fúkyrðum,
hrindingum og pústrum. Einhver
hefði ýtt við sér og hún verið nærri
dottinn og í því slæmt hnífnum í átt að
konunni. Í dómnum segir að á grund-
velli framburðar vitna sé ekki hægt að
fallast á refsileysi, enda hafi henni
ekki staðið slík ógn af konunni að
nauðsynlegt hafi verið að beita hnífi
sér til varnar. Hún hefði auk þess
hæglega getað komist af vettvangi án
þess að valda konunni tjóni. Þá þótti
ótrúverðug sú frásögn hennar um að
hún hefði runnið til og við það slengt
hnífnum í konuna. Við ákvörðun refs-
ingar var þó litið til þess að hún dró
upp hnífinn vegna áreitis sem hún
varð fyrir, án þess að það réttlætti að
hún hefði gripið til vopnsins. Hún var
því dæmd fyrir árásina á konuna og til
að greiða henni 276.000 krónur í bæt-
ur. Refsingin er skilorðsbundin til
þriggja ára.
Dómurinn sýknaði hana á hinn
bóginn af ákæru um líkamsárás með
því að aka á mann sem hugðist stöðva
för hennar þegar hún forðaði sér af
vettvangi. Allt þótti benda til þess að
maðurinn hefði stokkið fyrir bílinn og
ekki hefði verið sýnt fram á að hann
hefði ekki getað vikið sér til hliðar.
Valtýr Sigurðsson kvað upp dóm-
inn. Kolbrún Sævarsdóttir flutti mál-
ið f.h. ríkissaksóknara.
Dæmd fyrir að skera konu í andlit
Árásin ekki
neyðarvörn
HARÐUR árekstur varð á gatna-
mótum Fellsmúla og Grensásvegar
í gærmorgun. Að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík urðu þó ekki slys
á mönnum. Bifreiðirnar skemmdust
talsvert eins og sjá má á myndinni
og er ljóst að a.m.k. önnur þeirra er
óökufær.
Frá kl. 8 í gærmorgun til kl. 18
var lögreglunni í Reykjavík til-
kynnt um 20 árekstra sem er nokk-
uð meira en á venjulegum degi.
Morgunblaðið/Ingó
Tilkynnt um
20 árekstra í
Reykjavík
SAMKVÆMT skoðanakönnun
Fréttablaðsins dalar fylgi Sam-
fylkingarinnar og Frjálslynda
flokksins en stuðningur eykst við
aðra flokka vegna komandi þing-
kosninga.
Fylgi Samfylkingarinnar mæld-
ist 32,4%, var 36,6% í síðustu könn-
un blaðsins, þegar það var svipað
og hjá Sjálfstæðisflokknum. Nú
mælist Sjálfstæðisflokkurinn með
36,8% fylgi, 0,8 prósentustigum
meira en fyrir viku.
Fylgi Framsóknarflokksins
mældist 15,9%, var 14,7% í síðustu
könnun Fréttablaðsins. Rúm 10%
þeirra sem afstöðu tók sögðust
ætla að kjósa Vinstri græna, hlut-
fallið var 9,5% í vikunni áður.
Frjálslyndi flokkurinn mældist nú
með 3,9% fylgi.
Könnunin var gerð sl. laugardag
og sem fyrr var hringt í 600 manns
um land allt. Þar af voru um 35,7%,
eða um 214 manns, óákveðnir, neit-
uðu að svara eða sögðust ekki ætla
að kjósa. Ekki er getið um
skekkjumörk í könnuninni.
Samfylkingin dalar