Morgunblaðið - 04.02.2003, Side 14
ERLENT
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Smiðjuvegi 14 • Kópavogi • www.veislusmidjan.is • Pantanir og uppl. í síma 587 3800 og 899 2959
Þorramaturinn
eins og þú vilt hafa hann
Meira af þessu og minna af hinu
Hafðu samband eins oft og þú vilt!
Þorrablótið í sal Ferðafélagsins í Mörkinni
SÉRFRÆÐINGAR NASA, banda-
rísku geimvísindastofnunarinnar,
segja að vísbendingar séu um að
vandamál í sambandi við keramik-
hlífðarflísar utan á geimferjunni Kól-
umbíu hafi valdið slysinu á laugar-
dagsmorgun. Geysimikill hiti, allt að
1400 gráður á Celsíus, myndast
vegna núnings við andrúmsloftið neð-
an á geimferju þegar hún kemur inn í
gufuhvolfið og eiga flísarnar að koma
í veg fyrir skemmdir á henni. Tals-
menn NASA segja hins vegar að ekki
sé enn hægt að fullyrða neitt um or-
sökina. Stofnunin mun gera eigin
rannsókn á slysinu og orsökum þess
en einnig hefur verið skipuð óháð, op-
inber nefnd til að rannsaka málið.
Sjö geimfarar, þar af einn Ísraeli,
fórust er ferjan sundraðist í rúmlega
60 kílómetra hæð yfir Texas. Hundr-
uð leitarmanna leituðu í gær með að-
stoð liðsmanna Alríkislögreglunnar,
FBI, að braki úr ferjunni sem dreifð-
ist um stórt svæði í sambandsríkjun-
um Texas og Louisiana. Líkamsleifar
hafa fundist á nokkrum stöðum og
einn af hlífðarhjálmum hinna látnu
geimfara.
Kafarar könnuðu Toledo Bend-
lónið á landamærum ríkjanna
tveggja en stórt stykki úr ferjunni
sást falla í vatnið. Sums staðar voru
leitarmenn á jeppum og jafnvel hest-
baki vegna þess að um torfærur, fjall-
lendi og skóga er að ræða. Þar sem
brak fannst var gerð nákvæm stað-
arákvörðun með GPS-tæki en ekki
hreyft við hlutnum fyrst um sinn.
Öllum fyrirhuguðum skotum
þeirra þriggja geimferja sem enn eru
til verður frestað um óákveðinn tíma
og er talið að biðin geti orðið löng,
jafnvel nokkur ár. Rússar skutu að
sögn The New York Times í gær upp
Progress-eldflaug sem flytja mun
nauðsynlegar birgðir til þriggja
geimfara, tveggja Bandaríkjamanna
og Rússa, sem nú eru í alþjóðlegu
geimstöðinni á braut umhverfis
jörðu. Rússar óttast hins vegar að
slysið á laugardag geti stöðvað geim-
ferðaáætlun þeirra vegna þess að
ekki er hægt að flytja neinn umtals-
verðan búnað til geimstöðvarinnar
með eldflaugum. Til þess þarf stærri
flutningatæki eins og geimferju.
Öflug vörn
Vitað var að um 50 sentímetra
langur bútur úr einangrunarefni við
eldsneytisgeyma ferjunnar, hörð
kvoða eða jafnvel ísköggull, lenti á
vinstri vængnum rúmlega mínútu
eftir flugtak Kólumbíu fyrir rúmum
tveim vikum. Fulltrúar NASA segja
að slík atvik hafi gerst oft áður en
aldrei valdið neinum vanda. Þeir
segja að geimförunum hafi ekki verið
sagt frá málinu enda hefðu þeir ekki
getað lagfært skemmdir á flísunum.
Um 24.000 keramikflísar verja
geimferjuna og því gerir lítið til þótt
nokkrar skemmist eða losni af. Á
myndum eftir geimferð sést oft að
hlífðarflísarnar hafa orðið fyrir miklu
hnjaski. Hins vegar er hætta á ferð-
um ef margar losna á sama svæði.
Kólumbía hóf sig á loft 16. janúar.
Er sérfræðingar NASA skoðuðu
myndir af geimskotinu daginn eftir
tóku þeir eftir því að umrædd ein-
angrunarkvoða hafði lent á vængn-
um. Að sögn Ron Dittemore, yfir-
manns geimferjudeildar NASA, var
kannað ákaft meðan ferjan var enn í
ferð sinni hvort kvoðan hefði haft ein-
hver áhrif á flísarnar. En niðurstaðan
varð sú að áhrifin væru svo lítil að
þau skiptu engu máli. Aðspurður
sagði hann einnig að ekki hefði verið
hægt að gera við flísar úti í geimnum
og brautin sem mörkuð væri fyrir
ferjurnar inn í gufuhvolfið væri hönn-
uð með það í huga að hitamyndun
neðan á þeim yrði sem minnst. Ekki
væri hægt að minnka hana enn frek-
ar.
The New York Times segir á vef-
síðu sinni að Dittemore hafi síðar við-
urkennt að sérfræðingar NASA hafi
komist að því að „veruleg vandamál“
hefðu komið upp í sambandi við
vinstri hluta ferjunnar og kvoðubút-
urinn gæti verið frumorsökin. En
sjálfur gæti hann ekki fallist á þá
skýringu enn sem komið væri.
Gögn sýna að hiti hækkaði í hjóla-
búnaði ferjunnar og vinstri hluta
ferjubúksins nokkrum mínútum áður
en hún sundraðist. Dittemore sagði í
gær að starfsmenn hans myndu fara
á ný vandlega yfir 32 sekúndna lang-
ar upptökur í tölvubúnaði sem áður
höfðu verið taldar gagnslausar.
Gögnin bárust rétt áður en ferjan
sprakk.
Dittemore sagði að menn hefðu
velt fyrir sér að reyna að taka myndir
af ferjunni með stjörnusjónauka eða
úr gervihnetti en hætt við vegna þess
að ljóst þætti að slíkar myndir myndu
ekki geta sýnt hvort flísarnar væru
alvarlega skemmdar. Á sínum tíma
hefði verið hætt við að þjálfa menn til
að gera við flísarnar utan frá með því
að fara í geimgöngu. Slík aðgerð væri
þó mjög flókin og hefði niðurstaðan
orðið að hún gæti fremur aukið
skemmdir en dregið úr þeim.
Á fréttavef CNN-sjónvarpsstöðv-
arinnar er haft eftir ónefndum, fyrr-
verandi liðsmanni NASA að dyr á
búnaði utan um lendingarhjólin séu
viðkvæmasti hluti geimferjunnar.
„Náttúran finnur alltaf Akkilesar-
hælinn og Akkilesarhæll geimferj-
unnar er þar,“ sagði maðurinn.
Kvoðubúturinn gæti hafa lent á sam-
skeytum dyranna, höggið hafa valdið
sprungu í einangrun sem ver lend-
ingarhjólið og viðkvæman tengibún-
að sem er í sama hluta ferjunnar.
NASA mun einnig vera að kanna
hvað hafi valdið því að kvoðan datt af
eldsneytisgeyminum. Umræddur
geymir er sagður hafa verið nokkru
þyngri en þeir sem yfirleitt eru nú
notaðir á geimferjunum. Er rannsak-
að hvort mistök hafi verið gerð þegar
sett var einangrunarkvoða á tankinn.
Myndir blaðsins Maariv
Herskáir múslímar hafa sums
staðar fagnað því að Ísraelinn Ilan
Ramon, sem var orrustuflugmaður,
skyldi farast en talsmenn Palestínu-
stjórnar Yassers Arafats sendu á
hinn bóginn jafnt ísraelskum sem
bandarískum aðstandendum samúð-
arkveðjur vegna slyssins. Ráðamenn
í Írak sögðu Guð hafa verið að refsa
„Náttúran
finnur allt-
af Akkiles-
arhælinn“
AP
Mac Powell skoðar brak úr geimferjunni Kólumbíu. Brakið lenti rétt við heimili hans nálægt Nacodoches í Texas.
Talið að bútur af harðri kvoðu hafi
valdið tjóni á Kólumbíu í flugtakinu
Canaveral-höfða í Flórída, Houston, Jerúsalem. AP, AFP.
ALLT fjarskiptasamband rofnaði
við Kólumbíu u.þ.b. eina mínútu fyr-
ir níu að staðartíma á laugardags-
morgun, að sögn vefsíðu BBC. Að-
stæður fyrir lendingu voru mjög
góðar, ekkert að veðri og því fátt
sem virtist geta komið í veg fyrir að
geimferjan lenti á tilsettum tíma,
sextán mínútur yfir níu (sextán mín-
utur yfir tvö, að ísl. tíma), við
Kennedy-geimferðamiðstöðina í
Flórída. En um stundarfjórðungi
fyrir lendingu fór eitthvað úrskeiðis,
geimferjan sundraðist og allir geim-
fararnir sjö fórust.
Sextán daga langri ferð Kólumb-
íu var að ljúka, tugir verkefna höfðu
verið leyst af hendi, m.a. höfðu verið
gerðar tilraunir með vöxt kristalla
og áhrif þyngdarleysis á kóngulær.
Fimmtán mínútur yfir átta var byrj-
að að snúa ferjunni af braut um-
hverfis jörðu með það í huga að fara
inn í gufuhvolfið og lenda.
Fyrstu merkin um að eitthvað sé
að birtast sjö mínútur fyrir níu.
Hitanemar í vökvadælubúnaði á
vinstrivæng hætta að senda merki.
Nemar í vinstra lendingarhjóli sýna
að hitastig hækkar um 20–30 gráður
á fimm mínútum. Ferjan er nú yfir
Kaliforníu. Fjórum mínútum fyrir
níu sýna hitanemar á álbúk ferjunn-
ar yfir vinstri væng að hiti hækkar
um 60 gráður. Tveim mínútum síðar
sýna nemar við aðallendingarhjólið
vinstra megin hækkandi hita.
Leitaði til vinstri
Tveim mínútum fyrir níu er geim-
ferjan yfir Nýju-Mexíkó í rösklega
60 km hæð yfir sjávarmáli. Hraðinn
er um 20.000 km. Þrír hitanemar á
vinstri síðu ferjunnar virka ekki.
Geimferjan hallar til vinstri, hallinn
er um 57 gráður. En hún leitar einn-
ig til vinstri. Stýribúnaðurinn í
geimferjunni reynir stöðugt að rétta
af stefnuna og halda ferjunni í jafn-
vægi.
Eina mínútu fyrir níu, þegar ferj-
an er yfir vestanverðu Texas, gefa
sjálfvirkir nemar um borð til kynna
að ferjan leiti æ meira til vinstri.
Aðrir nemar sem eiga að gefa upp-
lýsingar um hita og þrýsting í hjól-
börðum lendingarbúnaðarins senda
ekkert frá sér. Starfsmenn Johnson-
geimferðamiðstöðvarinnar í Hou-
ston í Texas: „Kólumbía, Houston.
Síðustu mínúturnar