Morgunblaðið - 04.02.2003, Page 42

Morgunblaðið - 04.02.2003, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Suma vini losnar þú ekki við...hvort sem þér líkar betur eða verr GRÚPPÍURNAR Sýnd kl. 8 og 10. Frábær ævintýra og spennumynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 6. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT kl. 9. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i.16 áraSýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Hrikalega flottur spennutryllir með rapparanum Ja Rule og Steven Seagal Frábær ævintýra og spennumynd fyrir alla fjölskylduna Sýnd kl. 5 og 8. B.i 12 ára YFIR 86.000 GESTIR Sýnd kl. 4 og 8. Bi. 12. DEGI Kára Péturssyni var klapp- að lof í lófa þegar mynd hans Nói albínói hlaut þrenn verðlaun við verðlaunaathöfn Gautaborg- arhátíðarinnar á laugardags- kvöldið. Myndin hlaut alþjóðlegu gagnrýnendaverðlaunin FIPR- ESCI Award; Kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar og stærstu norrænu kvikmyndaverðlaunin, Kvikmyndarefinn. Nói albinói, sem vann tvenn verðlaun í Angers í Frakklandi og ein í Rotterdam á dögunum, er þar með búin að krækja í sex verðlaun á þremur hátíðum og það á tólfta degi eftir forsýninguna í London! Fyrsta sýningin af fjór- um í Gautaborg fór fram í full- setnu kvikmyndahúsinu Drek- anum (sem rúmar yfir 700) við Olavs Palmes Plats á föstudags- kvöld að leikstjóranum fjar- stöddum. En þrír framleiðendur voru mættir og kynntu myndina, þeir Þór S. Sigurjónsson og Skúli Malmquist ásamt dönskum með- framleiðanda. Svartklædd ís- lenskumælandi þrenning vakti for- vitni með nærveru sinni og í ljós kom að þar voru Memphismenn á ferð, en bæði Þorgeir Guðmunds- son (leikstjóri stuttmyndarinnar Memphis) og Óttar Ólafur Proppé fara með lítil hlutverk hjá Degi Kára. Þegar Dagur Kári kom til Gautaborgar seint á laugardag byrjaði að snjóa. Ekki bara verð- launum heldur einnig í bók- staflegri merkingu. Og þegar Dag- ur Kári var kallaður uppá svið í þriðja sinn við verðlaunaafhend- inguna í lokahófi hátíðarinnar byrjaði framkvæmdastjóri Gauta- borgarhátíðarinnar, Jannike Åhlund, að tala íslensku! Sérstakur höfundur Degi Kára hefur verið lýst í sænsku pressunni sem sérstökum höfundi og leikstjóra, m.a. fyrir hans eigin blöndu af djörfum, hár- fínum húmor og melankólíu og myrkri; „þannig að áhorfendur sveiflast milli gjörólíkra tilfinn- inga“ eins og einn blaðamaður Gautaborgs-Posten lýsir því í við- tali við Dag Kára á sunnudag. Blaðamaður hefur það á orði hversu Dagur Kári er léttklæddur í snjónum. „Já, sumir spyrja af hverju fólk sé svona léttklætt í myndinni, en mér finnst það venj- an á Íslandi að fólk sé alltof lítið klætt,“ er haft eftir leikstjóranum og það fylgir sögunni að meðan á upptökum stóð fór frostið stund- um niður í tuttugu stig. Ungur maður í ytra og innra íslandslagi Skömmu fyrir miðnætti á laug- ardag fór fram verðlaunaafhend- ing og samkvæmt hefðinni: Stærstu verðlaunin seinast. Nýj- ung í ár var m.a. stuttmynda- keppni þar sem þrettán norrænar stuttmyndir kepptu til úrslita, þ. á m. íslenska myndin Memphis, sem seinast vann til verðlauna í Míl- anó. Dómnefnd alþjóðlegu gagnrýn- endasamtakanna FIPRESCI (með Léttklæddur í snjónum Það er mál manna að Dagur Kári Pétursson hafi stolið senunni á verðlaunaafhendingu kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg sem fram fór á laugardag. Verðlaunum snjóaði yfir Dag Kára þetta kvöld og Kristín Bjarnadóttir varð vitni að því er hann sagði Mit liv som hund sína uppáhaldsmynd og lofaði svo að mæta í messu. Tomas Lemarquis sem hinn ungi maður í innra og ytra íslandslagi. Harald Paalgaard var verðlaunaður fyrir kvikmyndatöku á Fálkum. Dagur Kári þakkar pent fyrir sig. Hinn íslenskumælandi fram- kvæmdastjóri Gautaborgarhátíðarinnar, Jannike Åhlund, í baksýn. Dagur Kári Pétursson stal senunni á Gautaborgarhátíðinni „ÞETTA er algjör óskabyrjun. Viðtökurnar hafa verið svo góðar bæði hjá áhorfendum og í sambandi við verðlaunin á hátíðunum. Þetta hefur verið skrautleg vika,“ segir Dagur Kári Pétursson, leikstjóri Nóa albínóa, sem segist ekki gera mikið upp á milli hátíðanna þriggja, sem hafa verðlaunað hann að undanförnu. Dagur Kári er kominn aftur til Danmerkur, þar sem hann er búsettur, eftir að hafa farið á kvikmyndahátíðir í Frakklandi, Hollandi og nú síðast Svíþjóð. Ótrúleg vika „Það var mjög skemmtilegt,“ segir Dagur Kári hæversklega, spurður um hvernig hafi verið að taka á móti verðlaununum á Gauta- borgarhátíðinni. „Þetta hefur verið ótrúleg vika.“ Nói albínói hlaut 200 þúsund sænskar krónur, eða um 1,8 milljónir króna, í verð- launafé, sem skiptist jafnt til markaðs- setningar á kvikmyndinni og til leikstjóra. „Myndin fékk styrk til kynningar og svo fékk ég líka einhvern pening, sem kemur sér mjög vel.“ Dagur Kári hefur verið önnum kafinn í kringum kvikmyndahátíðirnar og gefið mörg viðtöl. Nói albínói heldur þvínæst á kvik- myndamarkað í Berlín þar sem unnið verður að frekari sölu myndarinnar. Leikstjórinn hæfileikaríki vonast til þess að fá að sitja heima í það sinnið og halda áfram með núverandi verkefni. „Ég vona að ég fái að vera heima. Það væri kærkomið að ná upp daglegri rútínu aftur og halda áfram að vinna í því sem ég er að vinna í,“ segir Dagur Kári en hann er sem stendur að skrifa handrit fyrir dogma-mynd sem verður gerð á vegum danska fyrirtækisins Nimbus Film. Dagur Kári tekur umstanginu öllu með jafn- aðargeði en játar að viðbrögðin hafi verið önn- ur en hann hafi búist við. „Þetta eru allt öðru vísi viðbrögð en ég átti von á. Það er svo langt um liðið síðan við kláruðum myndina. Ég var ekki alveg með tilfinningu fyrir því hvernig myndi takast til og svo fór þetta svona vel,“ segir hann. Rétt tímasetning „Á einhvern dularfullan hátt virðist tíma- setningin vera rétt núna. Myndin er búin að vera tilbúin í langan tíma en fólk virðist taka við sér akkúrat núna,“ bætir Dagur Kári við. Hann segir ekki síst hafa komið sér á óvart hversu sterkt fólk bregðist við myndinni. „Við- brögðin eru mjög afgerandi, segir hann og er ánægður með að myndinni hafi verið jafn vel tekið í þessum þremur ólíku Evrópulöndum. „Ég hélt kannski að húmorinn myndi ekki skila sér í Frakklandi og eitthvað annað ann- ars staðar. Myndin virðist hafa höfðað mjög sterkt til allra.“ „Algjör óskabyrjun“ Dagur Kári gæðir sér á verðlaunafénu. ingarun@mbl.is KVIKMYND Dags Kára Pét- urssonar, Nói albínói, er bæði alþjóðleg og sértæk allt í senn, að því er segir í dómi Screen International. Í dómnum, sem birtur er á vef blaðsins, er and- anum sem svífur yfir vötnum í myndinni líkt við My Life As A Dog eftir Lasse Hallström og myndir Bill Forsyth. Myndin fær góða dóma og er Dagur Kári sagður bera mikla virðingu fyrir söguper- sónunum og hans eigin skálda- heimi. Tekið er fram að það komi ekki á óvart að leikstjór- inn hafi tilgreint að Simpson- fjölskyldan sé mikill áhrifa- valdur. Að lokum segir að þrátt fyr- ir að myndin sé ekki alveg nógu hnitmiðuð veki hún áhuga á að fylgjast með frek- ari verkum frá Degi Kára. Leikstjórinn er sagður vera hæfileikaríkur á fjölmörgum sviðum og greint er frá því að hljómsveit hans, Slowblow, hafi samið tónlistina í mynd- inni. Segir að leikaraliðið, en þar á meðal er einnig óvant fólk, standi sannarlega undir vænt- ingum. Segir enn fremur að búast megi við miklu frá unga fólkinu, Elínu Hansdóttur og Tómasi Lemarquis. Er Tómas, sem leikur aðalhluverkið, sér- staklega lofaður og er hann sagður búa yfir mikilli orku og húmor. Dómur um Nóa albínóa í Screen International Heimsborg- arinn Nói TENGLAR ............................................ www.screendaily.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.