Morgunblaðið - 09.02.2003, Blaðsíða 25
þetta eru ekki íslensk
verk, ég veit ekki. Það er
mjög erfitt að átta sig á af
hverju en mikið af þeirri
grundvallarhugsun, sem
við Íslendingar eigum eru
þýðingar. Allt frá fyrstu
málfræðiritgerðinni, sem
er þýðing munks á
latnesku ritunarkerfi.
Hann sá að Íslendingar
kunnu ekki að skrifa á ís-
lensku og ákvað að þýða
kerfið. Góður fræðimaður
í íslenskum fræðum sagði
mér að um 60-70% af
handritum, sem eru til frá
miðöldum, væru þýðingar.
Það er nánast aldrei talað
um það. Þessi íslensku
handrit verða ekki til í
einhverri einsemd snill-
inga. Það voru samteng-
ingar þarna á milli, sem
ekki er hægt að horfa
fram hjá.“
Að þýða formið
„Í allri okkar menningarumræðu er talað um
að eitthvað sé íslenskt,“ segir Gauti. „Mér finnst
það mjög kyndugt. Íslenskt töfraraunsæi, ís-
lenskt rapp og annað. Það sem ég á við er að þeg-
ar XXX Rottweilerhundar fara að rappa á ís-
lensku þá eru þeir ekki að þýða orðin yfir á
íslensku heldur eru þeir að þýða formið og það
tekst. Þeir þýða reyndar ekki eingöngu formið
heldur herma þeir eða þýða ímyndina líka og það
er ekkert neikvætt við það. Við endurtökum
hlutina en mótum þá ekki. Hugmyndin um snill-
inginn sem býr eitthvað til sem enginn hefur séð
sjálfur er blekking. Þetta er hugmyndafræði
sem var til en þetta er sjálfsblekking held ég og
ég er ekki einn um að vera þeirrar skoðunar.“
er blekking
krgu@mbl.is
Hugmyndin
um þjóðar-
bókmenntir
vísar alltaf til
hámenningar
og þá þeirrar
hámenningar
sem fyrir er.
Prófessor Peter Kupfer, deildarforseti við Jó-
hannes Gutenberg-háskólann í Mainz, afhendir
dr. Gauta Kristmannssyni viðurkenningu fyrir
framúrskarandi doktorsritgerð í þýðingafræðum.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2003 25
Ástand og horfur
í efnahagsmálum
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317.
Verð með hádegisverði er 2.800 kr. fyrir félagsmenn og 3.800 kr. fyrir aðra.
Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga verður haldinn
þriðjudaginn 11. febrúar í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík kl. 12-13:30.
Hvaða áhrif hafa stóriðjuframkvæmdir?
Hvaða áhrif hefur veikt erlent efnahagsástand?
Er verðbólgan tamin?
Er hætta á verðhjöðnun?
Er krónan of sterk?
Er atvinnuleysið að verða of mikið?
Er svigrúm til frekari vaxtalækkana?
Hvaða áhrif hefur breytt fyrirkomulag gengismála?
Fyrirlesarar:
Már Guðmundsson,
aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.
Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður greiningadeildar Búnaðarbankans.
Fundarstjóri:
Ari Edwald,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Már
Guðmundsson
Edda Rós
Karlsdóttir
Ari Edwald
OD
DI
H
F
J
37
55
/2
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Nú eru kjarakaupadagar hjá okkur. Gerðu reyfarakaup hvort sem þig
vantar lampa í svefnherbergin eða stofuna, þráðlausan síma eða
farsíma, prentara eða faxtæki, sísogandi ryksugu, kaffivél, brauðrist
eða matvinnsluvél, eldunargræjur, svalan kæliskáp, hljóðláta og lúsiðna
uppþvottavél eða velvirka og vinnusama þvottavél.
• Öll heimilistæki í eldhúsið frá Siemens. Eldunartæki, kæli- og
frystiskápar, uppþvottavélar og smátæki af ýmsu tagi.
• Þvottavélar og þurrkarar frá Siemens sem snúast í þína þágu.
• Öflugar Siemens ryksugur á skotsilfursparandi kostakjörum.
• Ótrúlega, já hreint lygilega ódýr smátæki frá Bomann.
• Þráðlausir símar og farsímar frá Siemens á firnagóðu verði.
• Tölvuprentarar frá Olivetti á hláturtaugakitlandi kostaverði.
• Mikið úrval glæsilegra og vandaðra lampa. Ýmis sértilboð og
útsala á mörgum lampagerðum. Gerðu frábær kaup.
Láttu sjá þig. Við tökum vel á móti þér.
Engum flýgur sofanda steikt gæs í munn!
Gerðu reyfarakaup hjá okkur
fram að þorralokum
Kjarakaupadagar