Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ TANNLÆKNAFÉLAG Íslands hefur fengið fjölda kvartana að undanförnu um að Trygginga- stofnun ríkisins neiti að greiða út reikninga sem gefnir voru út fyrir áramót, en þá tók ný gjaldskrá gildi. Börkur Thoroddsen tannlæknir segir að fjölda aðgerðalykla, þ.e. hvernig aðgerðir eru skráðar í sjúkraskrár og reikninga, hafi verið breytt um áramótin og vandræðin virðist einkum vera að fá þá reikninga greidda. Tryggingastofn- un segir aftur á móti að allir reikningar séu greiddir fjögur ár aftur í tímann og alltaf miðað við þá gjaldskrá sem þá var í gildi. Séu reikningar ekki greiddir liggi skýringin í því að þeir hafi verið rangt fylltir út af tannlæknastofunni. Bolli Valgarðsson, framkvæmdastjóri Tann- læknafélags Íslands, segir að 2–3 tannlæknar hringi á hverjum degi vegna þess að sjúklingar þeirra hafi lent í vandræðum með að fá aðgerðir sem gerðar voru samkvæmt gömlu gjaldskránni greiddar. Hann segir að tannlæknar þurfi að skrá aðgerðir á vissan hátt á reikninga svo sjúkling- arnir geti fengið endurgreiðslu frá Trygginga- stofnun. Um áramótin hafi þessum lyklum verið breytt og vandræðin hafi komið í ljós þegar fólk óskaði eftir endurgreiðslu aðgerða sem gerðar voru samkvæmt gömlu gjaldskránni. Reynir Jónsson, tryggingatannlæknir hjá TR, segir að Tryggingastofnun greiði að sjálfsögðu reikninga aftur í tímann. Það sé alltaf gert sam- kvæmt þeirri gjaldskrá sem var í gildi á þeim tíma sem aðgerðin var gerð. Reikningar fyrnist ekki fyrr en eftir fjögur ár. Þeir reikningar sem TR neiti að greiða séu einfaldlega rangt útfylltir af tannlæknastofunum. Tölvukerfið hafnar reikningunum „Það voru gerðar sömu kröfur [um útfyllingu reikninga] fyrir áramót og í dag, en það var ekki jafnstrangt tekið á því og fólk lét þetta fara í gegn. Nú neitar tölvukerfið að taka við reikningum nema þeir séu rétt útfylltir,“ segir Reynir. Hann segir þetta vera byrjunarörðugleika. „Við höfum ýmsar leiðir til að leiðrétta reikning- inn, ef eldra fólk eða öryrkjar eiga í hlut bjóðum við þeim að senda reikninginn til tannlæknisins til að fá leiðréttingu. Síðan er þetta lagt inn á reikn- ing sjúklingsins,“ segir Reynir. Þegar reikning- arnir séu ekki rétt fylltir út þurfi að fylla þá út aft- ur. „Það skiptir ekki máli eftir hvaða gjaldskrá reikningurinn er, ef hann er ekki rétt út fylltur er ekki hægt að greiða hann hérna,“ segir Reynir. Börkur Thoroddsen tannlæknir segir að að- gerðarlyklarnir sem voru notaðir á síðasta ári hafi verið í gildi frá árinu 1992. „Ef það er sagt að þess- ir aðgerðarlyklar hafi ekki verið í gildi á síðasta ári er það rangt,“ segir hann. Tryggingastofnun ætl- ist til þess að tannlæknarnir leiðrétti reikninga eftir á. Skjalafals að útbúa nýjan reikning „Ég get ekki breytt sjúkraskrá ár aftur í tím- ann. Ég gerði ákveðna aðgerð í fyrra og færði mína sjúkraskrá samkvæmt reglum sem þá voru í gildi. Síðan gefum við út reikninga fyrir öllu sam- an og ég get ekki farið að breyta þessu árið eftir af því að tölvukerfi Tryggingastofnunar er ekki kom- ið í lag,“ segir Börkur. „Ég áliti það skjalafals ef ég færi að útbúa nýjan reikning fyrir aðgerð sem ég gerði fyrir ári. Ég tek ekki þátt í svoleiðis, þá verð ég settur inn fyrir skattsvik og ég vil það ekki,“ segir Börkur. Lilja Kjerúlf, starfsmaður hjá Berki, segir þetta spurningu um hvað sé sanngjarnt. „Það er þeirra mál að ganga frá þessu. Þetta á ekki að þurfa að snerta okkur neitt, þetta er komið frá okkur á síð- asta ári, áður en kerfið breyttist hjá þeim. Ef þeir væru með gamla kerfið væri ekkert vesen,“ segir Lilja. Kvartað yfir því að Tryggingastofnun neiti að endurgreiða tannlæknakostnað Segja sjúklinga ekki fá eldri reikninga greidda TR segir reikningana rangt út fyllta af hálfu tannlækna SAMÞYKKT var í borgarráði í gær að flýta framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar á þessu og næsta ári. Þórólfur Árnason borgarstjóri segir að í ár verði 900 milljónum króna varið til viðbótar í ýmis verk- efni og 1.200 milljónum króna árið 2004. Að auki muni Orkuveita Reykjavíkur flýta framkvæmdum að jafnvirði 1.200–1.700 milljónir króna á sama tímabili. Samkvæmt upplýs- ingum borgarstjóra nema þessar flýtiframkvæmdir því um 3,5 millj- örðum króna næstu tvö árin. Þetta er kynnt jafnhliða því að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál borg- arinnar er samþykkt. Borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá þegar þessar framkvæmdir voru samþykktar í borgarráði og segja fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar alfarið á ábyrgð R-listans. Þórólfur segir að með þessum að- gerðum sé verið að bregðast við vax- andi atvinnuleysi á höfuðborg- arsvæðinu. Sé miðað við að hvert starf kosti um tvær milljónir króna á ári geti þetta þýtt átta til níu hundr- uð ný heilsársstörf. Þá sé einnig tek- ið tillit til kaupa á aðföngum. Stein- unn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi segir fjármununum beint í fjölbreytt verkefni og fjárfest sé í stoðum borgarinnar sem veiti konum jafnt sem körlum atvinnu í framtíðinni. Ekki sé eingöngu ráðist í gatnaframkvæmdir heldur líka byggingu skóla, íþróttamannvirkja, hjúkrunarheimilis fyrir aldraða og Nýsköpunarsjóður námsmanna styrktur. Skuldir greiddar niður Einnig bendir Þórólfur á að slaki sé í efnahagslífi þjóðarinnar og því hagkvæmt að fara út í framkvæmdir strax þegar nóg framboð sé af fólki til að vinna verkin. Það eykur líkur á að hagstæð tilboð berist heldur en ef farið yrði í þessa vinnu þegar virkj- unar- og álversframkvæmdir fyrir austan standa sem hæst. Sé tekið mið af þessu muni verkáætlun Reykjavíkurborgar næstu ár stand- ast þrátt fyrir þenslu. Um leið sé komið til móts við kröfur borgarbúa um að brýnum verkefnum á sviði nærþjónustu sé sinnt. Þórólfur tekur skýrt fram að ekki sé verið að auka skuldir borgarsjóðs með þessum framkvæmdum ef litið er til næstu þriggja ára. Verið sé að koma ákveðnum verkefnum fyrr í verk og um leið að gefa merki til at- vinnulífsins að flýta framkvæmdum hjá sér. Heildarskuldir borgarsjóðs verði hinar sömu í lok árs 2006 og upphaflega var stefnt að. Núverandi framkvæmdir verði fjármagnaðar með lánum en í lok kjörtímabilsins verði lánastaðan hagstæðari um milljarð króna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segjast í bókun vera fylgjandi að gripið sé til ráðstafana í því skyni að auka atvinnu í Reykjavík. Munurinn á þessum tillögum og ríkisstjórn- arinnar sé þó sá, að ríkissjóður fjár- magnar framkvæmdir sínar með eigin tekjuöflun en hjá Reykjavík- urborg sé ekkert eigið fé fyrir hendi heldur einungis um nýjar lántökur að ræða. Samþykkt í borgarráði að flýta framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar Skapar rúmlega 800 störf Morgunblaðið/Jim Smart Þórólfur Árnason, borgarstjóri, kynnir þriggja ára fjárhagsáætlun og flýtiframkvæmdir borgarinnar ásamt borgarfulltrúunum Alfreð Þorsteinssyni, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Árna Þór Sigurðssyni á blaðamannafundi í gær.                                            ! "   # $#      %  & ! #'      !  MIKIL sala hefur verið í þráðlausum nettengingum og er ástæðan fyrst og fremst sú að hægt er að fá búnað sem hentar heimilum á hagstæðara verði en áður, að sögn Andrésar Arnarson- ar, sölufulltrúa hjá EJS hf. Andrés segir að innbyggður eld- veggur sé yfirleitt í þessum búnaði í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að utanaðkomandi noti búnaðinn á kostnað eiganda. Hins vegar sé still- ingin sú sama á öllum eins tækjum frá framleiðanda og því sé mikilvægt að breyta stillingunni í hverju tilviki til að koma í veg fyrir misnotkun og sé mælt með því í upplýsingabæklingum sem fylgja búnaðinum. Gjald fyrir notkunina er misjafnt. Hjá Símanum er t.d. mánaðargjaldið fyrir Internet um ISDN Plús 1.320 kr. og er þá 100 MB gagnamat innifal- ið, en umframnotkun kostar 2,50 kr. fyrir hvert MB. Hafi stillingu á eld- veggnum ekki verið breytt getur ut- anaðkomandi hugsanlega notað teng- inguna, vísvitandi eða óvísvitandi, og náð sér t.d. í bíómynd á kostnað eig- andans, en kostnaður við það getur verið frá um 3.500 kr. til 5.000 kr. Mikil sala í þráðlausum nettengingum Mikilvægt að breyta stillingum á eldvegg LÖGÐ verður til á Alþingi breyting á mörkum Reykjavíkurkjördæmis suður og Suðvesturkjördæmis í kjöl- far breytinga á mörkum Reykjavík- ur og Kópavogs við Blesugróf. Munu 10 manns sem búa á þessu svæði og tilheyrt hafa Kópavogi tilheyra Reykjavíkurkjördæmi suður verði af breytingunni. Kynnt var í gær lagafrumvarp dómsmálaráðherra í ríkisstjórn og fyrir þingflokkum þar sem lagt er til að kjördæmamörkunum verði breytt. Reykjavíkurborg og Kópa- vogsbær sömdu á síðasta ári um breytingu á mörkum sveitarfélag- anna í þá veru að nokkrar lóðir fær- ast frá Kópavogi til Reykjavíkur. Fé- lagsmálaráðuneytið hefur staðfest þá breytingu. Við slíka breytingu á mörkum sveitarfélaga haldast kjördæma- mörk óbreytt. Þarf því lagabreyt- ingu til. Kjördæmamörkum verður ekki breytt nema með samþykki tveggja þriðju hluta atkvæða á Al- þingi og er því ljóst að frumvarpið þarf slíkan meirihluta til að ná fram að ganga. Leggja til breytingar á kjördæma- mörkum EKKI er marktækur munur á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðis- flokksins að því er kemur fram í nið- urstöðum skoðanakönnunar sem gerð var fyrir Stöð 2. 39,1% að- spurðra segist ætla að kjósa Sjálf- stæðisflokk og 38,1% Samfylk- inguna. Þá segjast 12,7% ætla að kjósa Framsóknarflokkinn, 2,2% Frjálslynda og 7,5% Vinstri græna. Langflestir vilja sjá óbreytt stjórnarsamstarf eftir kosningar eða 41,4%. Tæp 8% vilja sjá Samfylk- inguna eina í stjórn og 3,4% Sjálf- stæðisflokkinn einan í ríkisstjórn. Þá sögðust ríflega 15% geta hugsað sér stjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar og liðlega 5% Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. 41% vill óbreytt stjórn- arsamstarf ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.