Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Af ávaxtaverðinu skuluð þér þekkja þá. Ráðstefnan UT2003 Fjölbreytt ráð- stefna fyrir öll skólastigin Ráðstefnan UT2003verður haldin íVerkmenntaskól- anum á Akureyri dagana 28. febrúar til 1. mars og er þetta í fyrsta skipti sem UT-ráðstefna er haldin utan höfuðborgar- svæðisins. Guðbjörg Sig- urðardóttir, aðstoðarmað- ur menntamálaráðherra, er í forsvari fyrir ráð- stefnuna og svaraði hún nokkrum spurningum í tilefni þessa. – Hver heldur þessa ráðstefnu og fyrir hverja er hún? „Menntamálaráðuneyt- ið stendur fyrir þessari ráðstefnu en UT-ráð- stefnurnar hafa verið ár- legur viðburður frá árinu 1999. Fjölmargir aðilar hafa komið að undirbúningi hennar og hefur þáttur skólamanna á Akureyri verið mikill. Ráðstefn- an er fyrst og fremst ætluð skólafólki á öllum skólastigum, allt frá leikskóla til háskóla og hún á erindi til allra sem láta sig varða notkun upplýsingatækni- nnar í skólastarfi. Rétt er að benda á, að ráðstefnan á erindi til alls skólafólks og verður ekki á tæknilegum nótum.“ – Fyrir hvað stendur UT2003? „Það stendur fyrir Upplýs- ingatækni í skólastarfi 2003.“ – Hverjar verða helstu áherslur ráðstefnunnar? „Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að miðla reynslu und- anfarinna ára með skírskotun til framtíðarinnar. Fjallað verður um jafnrétti til náms og framtíð- arsýn í skólastarfi sem byggist á þeirri dýrmætu reynslu og þekk- ingu sem skólafólk hefur safnað á síðustu árum. Leitað verður svara við spurningunni: Hvernig verður upplýsingatæknin eðli- legur og órjúfanlegur þáttur í skólastarfinu á öllum skólastig- um?“ – Hver er tilgangur og tilurð ráðstefnunnar? „Á síðustu árum hefur upplýs- ingatæknin verið innleidd í skólastarf á Íslandi og hefur það tekist vel. Þróunarstarf af þessu tagi útheimtir mikla vinnu kenn- ara, skólastjórnenda og mennta- yfirvalda við skipulag, upplýs- ingamiðlun og umræðu. UT-ráðstefnurnar hafa verið mikilvægur vettvangur fyrir miðlun reynslu og sem umræðu- vettvangur. Á þessum ráð- stefnum hittist skólafólk og nær að ræða, bæði með formlegum og óformlegum hætti, þau við- fangsefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Mörg árangursrík þróunar- og tilraunaverkefni hafa verið unnin á síðustu árum og má sú þekking sem aflað hef- ur verið ekki lokast af í ein- stökum skólum eða kennarahópum. Henni verður að miðla.“ – Hvernig byggið þið ráðstefnuna upp? „Þetta hafa verið fjölmennar ráðstefnur og fjöldi þátttakenda hefur farið stigvaxandi. Það sama er uppi á teningnum núna, mikill fjöldi og fjölmargir fyr- irlesarar á ýmsum sviðum. Það er því rík þörf á því að flokka og skipuleggja ráðstefnuna eins og best verður á kosið. Við miðum við þrjú þemu. Fyrst má nefna framtíðarþema, þá jafnréttis- þema og loks reynsluþema. Við erum með aðalfyrirlesara fyrir hvert þema – Hverjir verða helstir á mæl- endaskrá, þ.e.a.s. aðalfyrirlesar- ar fyrir hvert þema? „Á ráðstefnunni verða 57 fyr- irlesarar og mikil áhersla verður lögð á skoðanaskipti og umræð- ur. Aðalfyrirlesari framtíðar- þemans verður Johan Strid, en hann starfaði sem ráðgjafi fyrir Ingvar Carlson og fleiri sænska ráðherra á sviði upplýsingatækni og æskulýðsmála og verður mjög áhugavert að heyra af reynslu Svía í hans erindi. Aðal- fyrirlesari jafnréttisþemans verður Jóhann Guðni Reynisson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Hann er með fjölbreyttan menntunarlegan bakgrunn, í ís- lensku, fjölmiðlafræði, uppeldis- og kennslufræði og opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Aðalfyr- irlesari reynsluþemans verður Guðrún Þengilsdóttir, nemandi í Menntaskólanum á Akureyri. Í fyrra var hún þátttakandi í til- raun með fartölvubekk í Menntaskólanum á Akureyri.“ – Það er talað um vel heppn- aða 1300 manna ráð- stefnu í fyrra, segðu okkur aðeins frá þessu árlega dæmi, hver eru tengslin? „Menntamálaráðu- neytið hefur staðið fyrir ráð- stefnum um upplýsingatækni í skólastarfi árlega, allt frá árinu 1999. Þátttakan hefur aukist ár frá ári og sýnir það glögglega að þörfin fyrir slíkar ráðstefnur er mikil. Nú er hún í fyrsta skipti haldin utan höfuðborgarsvæðis- ins og nú þegar eru um 700 manns skráðir sem eru mun fleiri en búist var við.“ Guðbjörg Sigurðardóttir  Guðbjörg Sigurðardóttir er fædd á Akureyri árið 1956. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1976 og hefur lokið kennaraprófi frá Kennarahá- skóla Íslands og BS-prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Ís- lands. Guðbjörg starfaði við tölvudeild Ríkisspítala 1983– 1997 og var deildarstjóri kerf- isfræðideildar Ríkisspítala frá 1985–1997, var starfsmaður í forsætisráðuneyti og formaður Verkefnisstjórnar um upplýs- ingasamfélagið 1997–2002. Hún er núna aðstoðarmaður mennta- málaráðherra. Eiginmaður er Skúli O. Kristjánsson tannlæknir og eiga þau tvö börn, Andra sem fæddur er 1975 og Teit sem er fæddur 1985. Áhersla á skoð- anaskipti og umræður - þessa dagana Nú er verk að vinna! Komdu í næstu verslun Húsasmiðjunnar og sjáðu hvað þú getur gert til þess að gera bílskúrinn að betri geymslu og snyrtilegri vinnustað. Þið eigið það inni, þú og bíllinn þinn. Gúmmímottur þrjár stærðir, gott verð. Verð frá 990 kr. Jotaproff 20, 10 lítrar, verð áður 8.795 kr Verð nú 5.950 kr. Hilluvinklar af ýmsum gerðum. Hilluefni, 16 mm, plastlagt, 30/40/50/60 x 250 sm Verð frá 1.075 kr. Vifta, 3ja spaða, hvít. vnr. 1800196 Verð áður 3.990 kr Verð nú 1.990 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 20 35 3 0 2/ 20 03 Bílskúrsdagar í fullum gangi. Einst akt tilbo ð Hvít veggfesting með hraðastillingum fylgir. í Skútuvoginum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.