Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 21
ÞAÐ var þungt hljóð í útgerðar-
mönnum á Snæfellsnesi á fundi sem
Útvegsmannafélag Snæfellsness
boðaði til í Grundarfirði á mánudag.
Þar kynntu starfsmenn Hafrann-
sóknastofnunar tillögur sínar um
netastopp í vetur til verndunar
hrygningarfiski.
Frá Hafrannsóknastofnun komu
Jóhann Sigurjónsson, Björn Ævarr
Steinarsson og Sigfús Schopka og
Kristján Þórarinsson, fiskfræðingur
hjá LÍÚ. Í tillögum Hafrannsókna-
stofnunar er lagt til að netastopp
verði 40 dagar. Netaveiðar verði
bannaðar frá 20. mars til 30. apríl. Er
hér um mikla lengingu að ræða sem
kemur útvegsmönnum á óvart, enda
hefur verið gengið út frá sama stoppi
og í fyrra.
Fram kom hjá fiskifræðingum að
ástand þorskstofnsins væri alvarlegt.
Nú er lögð áhersla á að vernda stór-
þorskinn sem er mikilvægur til að
klak takist vel. Miklar umræður urðu
á fundinum og var hiti í fundarmönn-
um. Það var álit þeirra að það sýndi
tillitsleysi við útgerð og vinnslu á
Snæfellsnesi að koma fram með svo
róttækar breytingar innan við mán-
uði áður en þær eiga að taka gildi.
Mönnum fannst sjálfsögð krafa að
gefa aðlögunartíma. Nú eru útgerð-
armenn búnir að panta net fyrir ver-
tíðina og skipuleggja veiðar til vors.
Þá á allt í einu að fara að stoppa í 40
daga. Bátaflotinn á Snæfellsnesi hef-
ur ekki að öðru að hverfa á meðan.
Útvegsmenn og gestir skiptust á
skoðunum varðandi verndun þorsks-
ins og voru það fróðlegar umræður,
enda búa sjómenn yfir mikilli reynslu
sem mætti taka meira tillit til. Það
kom fram að stærstu netariðlar veiða
stærsta þorskinn og væri fyrsta skref
að banna þá og minnka hæð netanna
sem hefur verið að aukast. Þá kom
fram að netabátum í Breiðafirði hef-
ur fækkað mikið á undanförnum ár-
um og er netafjöldi í Breiðafirði brot
af þeim fjölda sem var fyrir nokkrum
árum.
Telja tillögurnar
koma of seint
Útvegsmenn eru sammála um að
tillögur Hafrannsóknastofnunar
komi of seint til að þær komi til
greina á þessari vertíð. Þeir leggja til
að netastoppið nái yfir sama tímabil
og í fyrra, sem var þá lengt frá fyrri
árum. Til að koma til móts við sjón-
armið Hafrannsóknastofnunar um
verndun stórþorsks er lagt til að
möskvastærðin 9½ tomma og stærri
verði bönnuð og takmörkuð dýpt net-
annna.
Fyrir næstu vertíð eru útvegs-
menn til viðræðna við Hafrannsókna-
stofnun um ráð til að vernda stór-
þorskinn, því þar spila margir þættir
inn í sem vert er að athuga. Fund-
urinn var einn sá fjölmennasti hjá
Útvegsmannafélaginu og sýnir það
hvað félagsmenn hafa miklar áhyggj-
ur af því óöryggi sem þeim er boðið
upp á að vinna við.
Enn aukast erfiðleikar
bátaflotans á Snæfellsnesi
Stykkishólmur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Fundur útvegsmanna á Snæfellsnesi um netastopp var fjölmennur.
Útgerðarmenn
telja tillögur
Hafró um neta-
stopp of seint
fram komnar
Á FIMMTA hundrað gesta troð-
fyllti félagsheimilið Miðgarð í
Skagafirði þegar haldnir voru
tónleikar síðastliðinn sunnudag,
til minningar um Jón Björnsson
tónskáld, bónda og kórstjóra frá
Hafsteinsstöðum. Þann dag voru
liðin eitt hundrað ár frá fæðingu
hans.
Séra Gísli Gunnarsson í
Glaumbæ stjórnaði samkomunni
og kynnti þau atriði í tónum og
töluðu orði sem fram fóru, en
einnig fjallaði hann um æviferil
Jóns og öll þau margháttuðu störf
sem hann vann að tónlistar- og
menningarmálum í Skagafirði.
Kirkjukórar Glaumbæj-
arprestakalls, og Sauðárkróks-
kirkju svo og karlakórinn Heimir
sungu lög eftir Jón, undir stjórn
þeirra Rögnvaldar Valbergssonar
og Stefáns R. Gíslasonar, en þess-
um kórum öllum stjórnaði Jón um
árabil auk organistastarfa við
kirkjurnar. Þorbergur Jósepsson
söng einsöng en dúett þau Þuríður
Þorbergsdóttir og Sigfús Pét-
ursson.
Þá fluttu félagar Jóns úr kór-
unum minningabrot um samvinn-
una við hann og með honum, og
voru það þeir Sigurjón Tobíasson,
Kári Steinsson og Árni Bjarnason
sem brugðu upp skemmtilegum
svipleiftrum af hinum síunga eld-
huga í tónlistinni. Benti Kári
Steinsson á þrjá meginþætti í lífs-
hlaupi Jóns Björnssonar. Það var
að hann var bóndi og sem slíkur í
fremstu röð í Skagafirði. Hann
var tónskáld sem eftir liggur mik-
ill fjöldi laga, fleiri en eftir nokk-
urt skagfirskt tónskáld, og sum
laganna perlur sem halda muni
nafni hans á lofti um ókomin ár.
Síðast en ekki síst var hann org-
anisti og kórstjóri og sagði Kári
að enginn mundi lastaður þótt Jón
Björnsson væri talinn hafa lagt
þar meira fram en flestir aðrir.
Að dagskránni lokinni tók til
máls barnabarn Jóns, Sigríður
Steinbjörnsdóttir, og þakkaði fyr-
ir hönd aðstandenda Jóns og sér-
staklega þeim séra Gísla Gunn-
arssyni og Stefáni R. Gíslasyni og
færði þeim blóm, en því næst sátu
tónleikagestir kaffisamsæti í boði
sveitarstjórnar.
Síungs eldhuga
minnst á tónleikum
Sauðárkrókur
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Kirkjukórar Glaumbæjarsóknar og Sauðárkrókskirkju sungu ásamt
Karlakórnum Heimi.
MÓKOLLÓTTUR nýborinn lamb-
hrútur var óvænt í einni krónni á
bænum Hriflu í Þingeyjarsveit einn
morguninn í byrjun febrúar þegar
komið var í húsin og var þar grá-
kollótt móðir hans að kara hann og
gera hann fínan, en hún hafði borið
honum um nóttina.
Hriflubændur áttu alls ekki von á
þessu enda bar ær þessi tveimur
lömbum 13. júní í fyrra og varla
kominn tími til að bera aftur, þá eru
ærnar í Hriflu alls ekki vanar að
bera á þessum árstíma og langt í
sauðburðinn.
En sá kollótti var kærkominn hjá
ábúendum og ekki síst hjá yngri
kynslóðinni því nú er líf í fjárhús-
unum og Mókollur hoppar um í
krónni og leikur sér.
Kærkom-
inn lamb-
hrútur
Laxamýri
Heimasæturnar í Hriflu, Sigríður
Diljá Vagnsdóttir og Ísey Dísa Háv-
arsdóttir, með Mókoll vin sinn.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon