Morgunblaðið - 26.02.2003, Side 22

Morgunblaðið - 26.02.2003, Side 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ STELPUR í stuði er þriðja bókin um unglingsstúlkuna Ellie og vin- konur hennar, Mögdu og Nadine, en áður hafa þær vinkonur verið í strákaleit og í stressi. En sem fyrr segir eru þær í stuði nú, því draumagæinn hreinlega gengur beint í fangið á Ellie. En það er þó ekki draumur einn, því þá fyrst byrja vandræðin með foreldrana og afbrýðisamar vinkonur. Jacqueline Wilson er mjög vin- sæll barna- og unglingabókahöfund- ur í heimalandi sínu, Englandi. Hún hittir víst mikið lesendur sína, en ég held þó að vinsældir hennar stafi af því hversu vel hún nær hugarheimi unglinga. Ég hef ekki lesið barna- bók eftir hana, en unglingabækurn- ar eru mjög vel skrifaðar. Ekki spillir fyrir þýðing Þóreyjar Frið- björnsdóttur sem er hin fínasta. Málfarið er létt, hversdagslegt og trúverðugt, án þess að verða fullt af nýjustu unglingaslettunum sem enginn veit hversu lengi lifa. Bókin er sögð í fyrstu persónu sem er algengt í unglingabókum í dag. Það er áhrifarík aðferð þar sem enginn kemur á milli lesanda og sögumanns og lesandi hefur strax eignast vinkonu sem trúir honum fyrir öllu, sem er mjög mik- ilvægt á þessum árum. Og lesand- inn leggur þar með af stað í rússí- banaferð í tilfinningalandi aðalpersónunnar, Elliear. Ellie er klár stelpa en ekki alltof ánægð með útlitið. (Margir kannast við þá tilfinningu!) Hún er engin of- urpæja heldur frekar þybbin og finnst krullað hárið á sér óþolandi. Hún minnir mig svolítið á Möggu Stínu í Peð á plánetunni jörð, það er kannski helst að Magga Stína hafi enn einstakari og beittari húmor en Ellie, sem er þó býsna sterk í kald- hæðninni. Vinkonur hennar eru líka skemmtilegar og skýrar persónur. Og saman lenda þær í öllu því erfiða og átakanlega sem stelpur þurfa að ganga í gegnum á unglingsárunum – þegar á að æfa sig að verða full- orðinn. Ég var mjög hrifin af bók- inni Stelpur í stressi þar sem m.a var fjallað um átröskun, margar or- sakir hennar og afleiðingar með mjög mannlegum og átakanlegum hætti. Nú vakir fyrir Wilson að vara stelpur við að margur er úlfur í sauðargæru, ekki elta hvaða strák sem er, jafnvel þótt hann virki spennandi og mann langi að prófa að eiga kærasta. Það er í sjálfu sér auðvitað fínt og frásögnin öll er vissulega lifandi eins og höfundin- um er lagið. En mér fannst ekki næg átök í bókinni. Hvorki fyrir El- lie við afbrýðisaman pabba og vin- konur né í hættuatriðinu þegar þær stelpur álpast upp í bíl með ókunn- ugum gaurum. Það er ótrúlegt hvað heimurinn er orðinn lítill og hversu líkur heim- ur krakka hvaðanæva er en þessi bók gæti hæglega gerst á Íslandi. Ég efa ekki að þær stelpur sem hafa lesið fyrri bækurnar verði glaðar með þessa nýjustu bók og eigi eftir að lifa sig af öllu hjarta inn í það þegar ástardraumar Elliear rætast. Góðir strákar og vondir BÆKUR Börn Höfundur: Jacqueline Wilson. Teikningar: Nick Sharratt. Þýðing: Þórey Friðbjörns- dóttir. 182 bls. JPV útgáfa, 2002. STELPUR Í STUÐI Hildur Loftsdóttir Listaháskóli Íslands, Laugarnesi Breski gjörningalistamaðurinn Jul- ian Maynard Smith fjallar um eigin verk kl. 12.30. Listaháskóli Íslands, Skipholti Nemendur þriðja árs hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ segja í máli og myndum frá ferð sinni til New York kl. 12.30 þar sem þau heim- sóttu meðal annars vinnustofur hönnuða og hönnunarskóla. Hrafnista Hafnarfirði Menning- ardagskrá til heiðurs Sigurveigu Guðmundsdóttur kennara í Hafn- arfirði verður kl. 13.30–14.30 í samkomusal. Sigurveig hefur búið á heimilinu í tæp níu ár (fædd 1909). Ár- ið 1991 komu út minningar henn- ar, Þegar sálin fer á kreik. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir skráði bókina og les úr henni, ásamt fleirum. Ólafur Ólafsson kennari og tónlistarmaður kemur fram ásamt heimilisfólki og ætt- ingjum. Ingibjörg Har- aldsdóttir er gestur í Bóka- safni Kópavogs kl. 19.30 ásamt Soffíu Auði Birgisdóttur bókmenntafræð- ingi. Tilefnið er að um þessar mundir stendur yfir röð fyr- irlestra í tilefni af fimmtíu ára af- mælis bókasafnsins. Íslandsdeild IBBY stendur fyrir bókakaffi á Súfistanum við Lauga- veg kl. 20. Fjallað verður um fornsögurnar, þjóðararfinn og aðgengi barna að þessu efni. Brynhildur Þórarinsdóttir fjallar um útgáfu Máls og menningar á Njálu fyrir börn og Jóhanna Karls- dóttir heldur erindi sem hún kallar „Fornsögur færðar í búning fyrir börn“. Þar greinir hún frá vinnu sinni við gerð heildstæðs námsefnis um Leif heppna. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Ingibjörg Haraldsdóttir Sigurveig Guðmundsdóttir EITT magnaðasta kammerverk 20. aldar var efst á blaði á að vanda vel sóttum tónleikum Kammermúsík- klúbbsins s.l. sunnudag. Kvintett Sjostakovitsjar fyrir píanó og strengjakvartett frá örlagaárinu 1940 stendur nú þegar upp úr öðrum verk- um aldarinnar fyrir sömu áhöfn og stenzt vel samanburð við hátinda róm- antíska og vínarklassíska skeiðsins. Annað til marks um langt framhaldslíf er hvað kvintettinn virðist opinn fyrir ólíkri túlkun, enda lagskiptur eins og mikil listaverk eru jafnan þar sem tog- ast á ólíkar tilfinningar og sjónarmið, stundum allt í senn. Upphafið lofaði að vísu ekki of góðu í meðferð umræddra hljómlistar- manna, því frekar loppin Prelúdían hlaut fáeina marbletti af völdum hálf- klesstra bogastroka, og inntónunin var ekki alltaf lýtalaus. En lágstemmt upphaf Fúgunnar (II.) var aftur á móti sérlega áhrifamikið í krafti upp- hafinnar íhugunar, á ofurveiku senza vibrato þar sem ekkert mátti út af bera, áður en innri örvinglun tón- skáldsins brauzt fram af fullum þunga í stórbrotinni andstæðu. Inn- lifun flytjenda í Scherzóinu (III.) var sömuleiðis sterk, og var kannski til marks um fyrrgetna lagskiptingu í þessum makalausa þætti að tónleika- skrárritara finnst ríkja „fölskvalaus“ léttleiki þar sem við öðrum blasir glottandi hauskúpa. A.m.k. í aðra rönd. Eins var mikil örlagastemmn- ing yfir markvisst röltandi Inter- mezzoinu. Að meðtöldum frekar hægt túlkuðum lokaþætti, sem lagði fyrir vikið megináherzlu á alvöru málsins, má segja að flutningur hópsins hafi uppfyllt flestar væntingar. Tókst oft að vega hárfínt salt á milli andstæðra tjábrigða eins og vera bar. Kvintett Césars Francks í f-moll frá 1879 eftir hlé kvað enn njóta mikillar virðingar tónkera. Það er óhemjulangt verk (3 kortér) en að viti undirritaðs ekki að sama skapi innblásið. Allra sízt í samanburði við meistaraverk Sjost- akovitsjar. Því furðulegra er að upp- götva, að nær sextugur Klóthildar- kantorinn kvað hafa samið verkið undir ástaráhrifum í garð kvensniptar nokkurrar að nafni Augusta Holmés. Gjörið svo vel – cherzez la femme! Það má svo sem vel vera að finna megi ástþrungna ástríðu í ofhlöðnum hendingum 1. þáttar, og vissulega skortir ekki stefjamagnið til úr- vinnslu. Hitt finnst manni aftur á móti vanta áberandi, nefnilega frumleika, fjölbreytni, andstæður og kammer- músíkalskt gegnsæi. Ekki batnaði það í miðþættinum sem, með fullri virðingu fyrir belgíska meistaranum, sló mann sem ofþroskaður ávöxtur – og langdreginn með ólíkindum. Manni var að auki hulið hvernig org- elsnillingur gat sýnt jafnlítinn áhuga í verki á bæði pólýfóníu og rytma. Eða hvernig höfundur D-dúr sinfóníunnar gat samið jafnmörg „griplaus“ stef og við manni blöstu. Átti það ekki síður við í lokaþættinum, Allegro non troppo ma con fuoco, sem þrátt fyrir alla tilfinningasemi höfundar, hvað þá auðsæja orku og innlifun spilenda, leið þessum hlustanda úr minni um leið og síðasta hendingin dó drottni sínum. Ofþroskaður ávöxtur TÓNLIST Bústaðakirkja Sjostakovitsj: Píanókvintett í g Op. 57. Franck: Píanókvintett í f. Tríó Reykjavík- ur (Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Gunnar Kvaran selló og Peter Máté píanó) ásamt Sun Na fiðla og Unni Sveinbjarnardóttur víóla. Sunnudaginn 23. febrúar kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Í INNGANGI þessa nýja guð- fræðingatals segir, að það sé hið sjötta í röð rita með æviskrám íslenskra guðfræðinga, sem telj- ast „eiginleg stéttartöl þeirra“. Hið fyrsta, sem út kom á árunum 1907 og 1910, tók Hannes Þorsteinsson þjóðskjalavörður sam- an, en frá 1947 hafa guðfræðingatöl byggst á og verið viðbætur við rit sr. Björns Magnús- sonar, Íslenzkir guð- fræðingar 1847–1947, sem út kom í tilefni þess að öld var liðin frá stofnun Prestaskól- ans. Í riti Hannesar voru aðeins taldir þeir guðfræðingar íslenskir, sem braut- skráðst höfðu frá Hafnarháskóla um tveggja alda skeið, 1707–1907, en í riti Björns einnig þeir er luku námi við Prestaskólann og guð- fræðideild Háskóla Íslands. Þetta nýja guðfræðingatal er í tveimur bindum. Það hefst á ávarpi ritnefndar þar sem grein er gerð fyrir tildrögum verksins og saga þess rakin. Þar á eftir fylgir rækilegur inngangur höfundar, sem gerir grein fyrir verkinu í heild, efni þess og innihaldi, upp- setningu æviágripa og þeim reglum sem fylgt var við skrán- ingu þeirra. Því næst tekur við Ágrip af sögu Prestafélags Ís- lands 1918–1988, eftir sr. Heimi Steinsson, og þá Saga Presta- félags Íslands frá 1988 til alda- mótanna 2000, eftir Hjalta Huga- son prófessor. Að sögu Prestafélagsins sagðri tekur við rækileg saga guðfræðideildar Há- skóla Íslands um hálfrar aldar skeið, 1947–1997, eftir sr. Guðna Þór Ólafsson og þá kemur kandí- dataskrá, þar sem taldir eru allir íslenskir kandídatar í guðfræði, sem brautskráðir hafa verið frá Prestaskólanum, Háskóla Íslands og erlendum háskólum á tíma- bilinu 1847–2002. Einnig er getið doktora og heiðursdoktora við guðfræðideild Háskóla Íslands og þeirra, sem lokið hafa BA- og MA- prófi í guðfræði við skólann. Allar eru ritgerðirnar um sögu Prestafélagsins og guðfræðideild- arinnar stórfróðlegar og vel samd- ar og góður fengur að þeim fyrir alla þá, sem vilja kynna sér fé- lagsstarf íslenskra presta og sögu guðfræðimenntunar hér á landi á síðara helmingi 20. aldar. Hið eiginlega guð- fræðingatal hefst á bls. 185 og fyllir það sem eftir er af fyrra bindi og allt síðara bindið. Uppsetning þess er næsta hefð- bundin og segir frá fæðingar- og dánar- dögum, foreldrum, mökum, börnum, menntun og störfum. Margar eru þessar æviskrár hinar fróð- legustu, en þó verður að segjast eins og er, að mér þykir það óþarfa semínarismi að geta einkunna fólks í bæði mennta- skóla og háskóla. Þær upplýsingar eru gjörsamlega gagnslausar og skólaeinkunnir segja sjaldan mikið um hæfni fólks í lífinu. Til nýmæla í þessu guðfræð- ingatali má telja, að hér eru tald- ir erlendir guðfræðingar af ís- lenskum uppruna, og er að því góður fengur. Hinir erlendu guð- fræðingar eru flestir Ameríku- menn, eins og vænta mátti, en nokkra athygli hlýtur að vekja, að í þessum kafla er grein um föður Jón Sveinsson (Nonna). Ánægjulegt er að sjá, að íslenskir guðfræðingar skuli loks telja Nonna eiga heima í sínum hópi, en óþarfa hótfyndni er það að setja hann á bekk með útlend- ingum. Í riti sem þessu á hann vitaskuld heima með Íslendingum og hvergi annars staðar, og vand- séð að aðrir, sem getið er á síðum þessa verks, geti talist meiri Ís- lendingar. Annarra kaþólskra presta íslenskra er ekki getið. Það er í sjálfu sér miður, en til þess liggja ástæður, sem grein er gerð fyrir í ávarpi ritstjórnar. Allur frágangur þessa verks er einkar vandaður. Það er prentað á fallegan pappír, í góðu bandi og myndir allar ágætlega skýrar. Vandað guðfræðingatal BÆKUR Persónusaga/ættfræði 1847–2002. I–II. Gunnlaugur Haralds- son. Prestafélag Íslands 2002. 1.028 bls., myndir. GUÐFRÆÐINGATAL Gunnlaugur Haraldsson Jón Þ. Þór GOETHE-Institut í Kaupmannahöfn hefur staðið fyrir verkefni þar sem 100 verk jafn margra rithöfunda af yngri kynslóðinni sem skrifa á þýska tungu eru kynnt. Verkin eru öll gefin út á árunum 1999–2001 og eru til kynningar í þeim löndum þar sem Goethe-stofnunin starfar. Goethe-Zentrum í Reykjavík tekur þátt í þessu verkefni og afhenti nýlega Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni eintak af þessum bókum. Þar verða þær skráðar og hafðar til útláns. Rithöfundar „af yngri kynslóðinni“ teljast þeir sem fæddir eru árið 1953 eða síðar. Þessar 100 bækur teljast vera góður þver- skurður þýskra bókmennta síðustu ára enda hafa þær hlotið sérstaklega lofsamlega dóma í Þýskalandi og sumar verið verðlaunaðar. Af þessu tilefni mun skáldkonan Felicitas Hoppe lesa úr bók sinni Pigafetta í Landsbókasafni 27. mars nk. Jan Gabbert og Sabine Barth frá Goethe-Zentrum, Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður, Peter Weiss frá Tungumálamiðstöð HÍ og Þorleifur Jónsson, forstöðumaður aðfangadeildar, við afhendinguna. 100 rithöfundar – 100 bækur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.