Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 23
ALMENNAR
BÍLA-
VIÐGERÐIR
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
Í ARINSTOFU Listasafns ASÍ
stendur yfir sýning á verkum fimm
listamanna, en verkin eru öll í eigu
safnsins. Listamennirnir eru Egg-
ert Magnússon, Ísleifur Konráðs-
son, Samúel Jónsson, Sigurlaug
Jónsdóttir og Stefán Jónsson frá
Möðrudal.
Eggert Magnússon (f. 1915) hætti
til sjós 1960 og fór þá að mála. Egg-
ert málar fyrst og fremst sögur og
atburði úr fortíð sinni, sem oft
tengjast hafinu og lífríki þess. Ís-
leifur Konráðsson (1889–1972) frá
Steingrímsfirði sækir myndefni sín
til náttúru og bændamenningar.
M.a. eru sýnd tvö verk sem safninu
bárust nýlega að gjöf frá Valtý Sig-
urðssyni. Samúel Jónsson (1884–
1969) frá Brautarholti í Selárdal
málaði og steypti myndir jöfnum
höndum. Eftir hann er sýnd alt-
aristafla sem hann málaði fyrir
kirkjuna í Selárdal. Þegar altaris-
taflan var afþökkuð réðst hann í að
byggja kirkju fyrir töfluna. Sigur-
laug Jónsdóttir (1913) er frá Öxney
á Breiðafirði. Hún sækir myndefni
sín í sína eigin fortíð og eiga þau
sér ætíð stoð í raunveruleikanum.
Stefán Jónsson frá Möðrudal (1908–
1994) er einnig þekktur sem Stór-
val. Sýnd er hestamyndin Vorleikur
en Stefán var í eina tíð tekinn fast-
ur fyrir að sýna Vorleik á Lækj-
artorgi, þar sem myndin var talin
brjóta í bága við almennt velsæmi.
Sýningin stendur til 9. mars.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41, er
opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 13–17. Aðgangur er ókeypis.
Fimm
alþýðulista-
menn í Lista-
safni ASÍ
NÝ tónlist var í forgrunni á tón-
leikunum í Norræna húsinu á
sunnudag þegar Ingólfur Vil-
hjálmsson (27) „debúteraði“ eftir
námsdvöl í Hollandi. Með í för var
ungur hollenzkur sellisti, Stephan
Heber (26), auk þess sem ofantald-
ir slagverksleikarar léku með í síð-
asta verki.
Þrjú verk kváðu frumflutt á Ís-
landi við þetta tækifæri. Fyrst lék
Ingólfur hið stutta Ixor II fyrir
bassaklarínett eftir ítalska sérvitr-
inginn Goacinto Scelsi (1905–1988)
er einkenndist af afar víðum tón-
bilum og var snöfurlega túlkað.
Hin hugfenga 1. einleikssvíta Ben-
jamins Brittens af þremur sem
hann skrifaði fyrir Mstslav Rost-
ropovitsj var prýðilega flutt af
Staphan Heber er opinberaði
hljómmikinn tón og snyrtilegt ör-
yggi í tjáningu.
Preludio e Danza [5’] fyrir bas-
saklarínett eftir slóvakísku tón-
skáldkonuna Iris Szeghy (47) lék
sér við kankvíslegt
andspil ítrekaðrar
„secco“ bordúnnótu
og snuðrandi fleðu-
láta í hæðinni,
skemmtilega túlkað
af Ingólfi. Úr 1.
sellósvítu Bachs
BWV 1007 lék þar
næst Heber forleik,
saraböndu og gikk af
fagmannlegu öryggi
og með fínlegum tví-
gripum í sarabönd-
unni.
Síðan léku þeir fé-
lagar saman lítið dúó
eftir kunna gríska
módernistann Iannis
Xenakis (1922–2001) er nefndist
Charisma [4’].
Það var byggt á tilvitnun í
Iliónskviðu og mætti vissulega
heimfæra sem röð „epískra
óhljóða“ (þ.á m. tvíhljóma, ískra
o.fl.) aðgreind af alþögnum; þó
ekki áhrifalaust, enda spilað af inn-
lifun.
Að ná sem mest „sláandi“ áhrif-
um virtist megintilgangur loka-
verksins, tríósins Ablauf fyrir klar-
ínett/bassaklarínett og tvær
sinfónískar bassatrommur eftir
Finnann Magnus Lindberg (49).
A.m.k. var tónsmíðin ekki fyrir
hjartveika hlustendur.
Né heldur létu slagarar sitt eftir
liggja, og hætt við að sumum hafi
brugðið illilega við fyrsta bylm-
ingshöggið, sem í litla
kammersalnum verkaði
eins og spark í magann.
Rifjuðist skyndilega
upp ummæli þessa
handhafa tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs
úr gömlum geisladisk-
sbæklingi – „Aðeins
öfgar eru áhugaverðir!“
– því hér var sannar-
lega ekki skafið utan af
því.
Merkilegast var þó
að verkið skyldi halda
athygli allt til enda –
eftir 10 mínútur – við
nokkuð sannfærandi
framþróun á dómsdags-
slagverkinu, inn á milli klarínett-
innskota Ingólfs, að dúnmjúku nið-
urlagi, einkum eftir að blásarinn
(eftir að tónskáldið fyrirskrifaði
aðskiljanleg gjammandi gelthljóð,
líkt og í mótmælaskyni) skipti yfir
á bassaklarínett, og slagarar á
mýkri slegla.
Þó gæti alveg eins verið að verki
uggur hlustandans um endurupp-
tekningu fyrri láta; það dottar eng-
inn á tímasprengju.
Ingólfur komst ágætlega frá
þessari frumraun, enda þótt fram-
sækið verkefnavalið veitti tæplega
jafnglögga viðmiðun og sígildari
höfuðverk tónbókmenntanna hefðu
gert.
Skammtur
stórra höggva
TÓNLIST
Norræna húsið
Scelsi: Ixor II (frumfl. á Ísl.). Britten:
Sellósvíta Op. 72. Szeghy: Preludio e
Danza. Bach: 3 þættir úr Sellósvítu nr. 1 í
G. Xenakis: Charisma (fr.fl. á Í.). Magnus
Lindberg: Ablauf* (fr.fl. á Í.). Ingólfur Vil-
hjálmsson klarínett/bassaklarínett og
Stephan Heber selló; Frank Aarnink*,
Askelsson* bassatromma. Sunnudaginn
23. febrúar kl. 17.
KAMMERTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Ingólfur
Vilhjálmsson