Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 25 ALBERT Einstein sagði einhvern tíma að maður með eitt úr vissi ávallt hvað klukkan væri. Maður með tvö úr gæti hins vegar aldrei verið viss. Orð Einsteins hafa komið upp í hugann undanfarna mánuði þegar menn hafa borið saman laganám í Háskóla Ís- lands og Háskólanum í Reykjavík. Á meðan einungis var boðið upp á laga- nám í HÍ var takmörkuð opinber um- ræða um innihald námsins en nú þeg- ar námið er einnig í boði í HR hefur umræðan aukist mjög. Fjölbreytnin og samkeppnin hefur aukist og nem- endur hafa nú í fyrsta sinn val um hvar þeir vilja stunda námið. Jafnvel þó að maður með tvö úr geti aldrei al- veg verið viss um hvað klukkan er þá er samanburður á öllum sviðum holl- ur, ögrandi og einungis til þess fallinn að skila betri árangri. Að undanförnu hefur umræðan um laganám á Íslandi aðallega snúist um frumvarp til breytinga á lögum um lögmenn, sem nýlega var lagt fram á Alþingi. Spurningunni um það hvort gildandi lög tryggi á fullnægjandi hátt þær kröfur, sem rétt sé að gera til lögfræðimenntunar, hefur verið velt upp og fram hefur komið að hvergi í lögum sé að finna skilgrein- ingu á því hvernig haga skuli lög- fræðimenntun. Telja ýmsir að rétt sé að skilgreina innihald námsins áður en háskólar geti sett á stofn laga- deildir sem hafi heimild til að útskrifa lögfræðinga. Bent hefur verið á mik- ilvægi lögmanna og dómara fyrir rétt- aröryggi almennings og má skilja um- ræðuna svo að það kunni jafnvel að vera varasamt fyrir íslenskt samfélag ef hinum og þessum háskólum verður heimilað að útskrifa lögfræðinga, sem geti orðið lögmenn eða dómarar, án þess að fyrst verði settar almennar efnisreglur um inntak laganáms. Þessu er ég ósammála því að gildandi lögmanna- og háskólalög og þær breytingatillögur sem gerðar eru í fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á lögmannalögum tryggja að full- nægjandi kröfur séu gerðar til menntunar lögmanna. Í fyrsta lagi er ljóst að samkvæmt gildandi lögmannalögum þurfa ein- staklingar sem hafa lokið lögfræði- prófi að ,,standast prófraun“ sem nánar er kveðið á um í lögunum. Því dugar ekki að hafa lokið fullgildu lög- fræðinámi. Ekki stendur til að breyta þessu fyrirkomulagi í fyrirliggjandi frumvarpi. Sérstök þriggja manna prófnefnd, skipuð af dómsmálaráð- herra, er starfandi en hlutverk henn- ar er að ákveða hvers kyns prófraun einstaklingar með lagapróf þurfi að standast áður en þeir öðlast lög- mannsréttindi. Prófraunin skal ná til þeirra greina bóknáms og verk- menntunar sem helst varða rækslu lögmannsstarfa. Sett hefur verið reglugerð þar sem nánar er kveðið á um námsgreinar, námskeiðahald, framkvæmd prófraunar og lágmarks- árangur til að standast hana. Með þessu fyrirkomulagi hefur löggjafinn sett ákveðinn öryggisventil sem á að tryggja að enginn einstaklingur geti orðið lögmaður sem hefur ekki sann- anlega hlotið til þess ákveðna lág- marksþjálfun og menntun. Sambæri- legur öryggisventill hefur verið settur fyrir dómara en sérstakri dóm- nefnd, sem skipuð er af dómsmála- ráðherra, er ætlað að fjalla um hæfni umsækjenda um embætti héraðs- dómara. Á þetta fyrirkomulag að stuðla að því að þeir einstaklingar sem veljast til dómarastarfa séu til þess hæfir. Þetta fyrirkomulag við skipun dómara stuðlar að því að til dómarastarfa veljist einungis hæfir einstaklingar, burtséð frá því úr hvaða skóla þeir luku lagaprófi. Í öðru lagi tryggir frumvarpið til breytinga á lögmannalögum, verði það að lögum, að allir einstaklingar sem fá heimild til að gangast undir fyrrgreinda prófraun hafi fengið menntun í svokölluðum ,,kjarnafög- um“ lögfræðinnar. Í frumvarpinu segir m.a. að einstaklingar þurfi að hafa lokið ,,fullnaðarprófi“ í lögfræði til þess að geta öðlast lögmannsrétt- indi. Í athugasemdum með frumvarp- inu kemur fram að með orðunum ,,fullnaðarnám“ í lögfræði sé meðal annars litið til þess að lögmenn þurfi að hafa öðlast þekkingu á helstu grunngreinum lögfræðinnar, svo sem réttarheimildafræði og lögskýring- um, kröfurétti, skaðabótarétti, refsi- rétti og réttarfari. Af þessum um- mælum er ljóst að nú þegar hefur verið tilgreint hvaða efniskjarna laga- nám þarf að lágmarki að hafa til þess að teljast vera ,,fullnaðarnám“ í skiln- ingi umrædds ákvæðis. Hugsanlegt er að einhver sé þeirrar skoðunar að skilgreina þurfi þetta nánar og að jafnvel sé nauðsynlegt að skilgreina umfang og efni náms í fyrrgreindum kjarnagreinum lögfræðinnar. Þannig hefur verið bent á að í sumum skólum sé sama námsefni kennt á skemmri tíma og með færri kennslustundum eða jafnvel að allt annað kennsluefni sé notað. Það er hins vegar hvorki æskilegt né raunhæft að setja fram nákvæma útfærslu á því hvaða náms- efni í einstökum kjarnagreinum er kennt, hvernig það sé kennt eða á hversu löngum tíma. Veita þarf laga- deildum einstakra háskóla svigrúm til þess að móta sitt námsefni og ákveða hversu mörgum kennslustundum skuli varið í einstakar námsgreinar og hvernig kennslufyrirkomulag skuli vera. Annað fyrirkomulag kynni að leiða til stöðnunar og koma í veg fyrir jákvæð áhrif þess að hafa fleiri en einn háskóla sem býður upp á fullgilt laganám. Þess má geta að víða er- lendis er svokallað kjarnanám kennt á mun skemmri tíma en hér á landi, án þess að slíkt hafi verið talið skerða réttaröryggi almennings á nokkurn hátt eða draga úr samkeppnishæfni námsins í alþjóðlegu samhengi. Í þriðja lagi er mikilvægt að hafa í huga að gildandi lög um háskóla hafa að geyma reglur sem eiga að tryggja að kennarar í íslenskum háskólum séu starfi sínu vaxnir. Þannig eiga þeir að hafa bæði menntun og reynslu til þess að geta sjálfir tekið ákvarð- anir um umfang, kennsluaðferðir og megináherslur helstu námsgrein- anna. Í fjórða lagi er menntamálaráð- herra skylt samkvæmt háskólalögum að hafa eftirlit með gæðum mennt- unar sem einstakir háskólar veita og hafa almennar reglur verið settar um eftirlit með gæðum kennslunnar, hæfni kennara og hvernig ytra gæða- eftirliti skuli háttað í einstökum há- skólum. Hér hef ég nefnt fjóra þætti sem leiða til þess að innihald laganáms fyrir lögmenn og dómara er nægilega vel tryggt í núgildandi lögum og með frumvarpi dómsmálaráðherra til breytinga á lögmannalögum. Því eru engin rök fyrir því að stöðva fram- gang frumvarpsins. Það felur í reynd fyrst og fremst í sér þá breytingu að nemendur sem áhuga hafa á því að stunda lögmannsstörf í framtíðinni geti valið á milli skóla. Fullnægjandi kröfur til menntunar Eftir Aðalstein E. Jónasson „Nemendur með áhuga á lögmanns- störfum í framtíðinni geti valið á milli skóla.“ Höfundur er hæstaréttarlögmaður og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. A Ð A L F U N D U R HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS verður haldinn í Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu fimmtudaginn 13. mars 2003 og hefst kl. 14:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf skv. 55. gr. laga um hlutafélög. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar skulu vera komin skriflega í hendur stjórnar eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 13:00 á fundardegi. Reykjavík, 23. janúar 2003. Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS ÁRIÐ 2002 var mikilvægt ár í bar- áttu stúdenta fyrir bættum lánskjör- um. Fulltrúi stúdenta í stjórn Lána- sjóðs íslenskra námsmanna kom úr röðum Vöku í fyrsta skipti í áratug. Vaka sagði í síðustu kosningum að hún myndi fara að samningaborðinu með öðrum hætti en áður hefði verið gert. Árangurinn lét ekki á sér standa. Tekjutenging við maka var afnumin, sem var eitt stærsta skrefið í baráttu fyrir jafnrétti til náms í langan tíma. Jafnframt var grunn- framfærsla námslána hækkuð um 8,6%, sem er meira en undanfarin ár. Auk þessa voru skólagjaldalán hækkuð og gerð óháð gengisbreyt- ingum. Þessi árangur sýnir að Vaka er traustsins verð til að sinna þeirri mikilvægu baráttu sem snýr að námslánum og fjárhag stúdenta. Látum ekki staðar numið En þrátt fyrir að árangurinn af fyrsta ári Vöku í meirihluta hafi ver- ið góður, má ekki láta staðar numið. Skerðing námslána vegna tekna þarf að minnka enda gefur auga leið að það fólk sem þarf að vinna með námi þarf mest á aukatekjum að halda. Því er ósanngjarnt að refsa fólki með allt of háu skerðingarhlutfalli fyrir slíka sjálfsbjargarviðleitni. Frítekjumark námslána er einnig í algjöru ósam- ræmi við tekjur námsmanna. Frí- tekjumarkið er aðeins 280.000 krón- ur, en námsmaður sem vinnur yfir sumarmánuðina, á lágmarkstekjum, þénar um það bil 375.000 krónur. Ekki má gleyma grunnframfærslu námslána því þótt hún hafi hækkað um 8,6% á síðasta ári, er hún ekki enn í samræmi við raunframfærslu námsmanna. Lífeyrisréttindi námsmanna Öflugt málefnastarf hefur verið í Vöku í vetur og komu þar fram ýms- ar hugmyndir um hvernig bæta má hag stúdenta. Ein þeirra snýr að líf- eyrisréttindum stúdenta. Vaka vill að réttur stúdenta gagnvart lífeyr- issjóðum sé tryggður með því að þeir fái ýmist þá fjármuni sem þeir borga í sjóði yfir sumarið greidda út eða geti safnað réttindum í sjóðunum yf- ir veturinn á þeim forsendum að þeir séu í háskólanámi. Vaka vill einnig að þeir stúdentar sem eiga við veikinda að stríða eigi kost á aukaláni til að mæta auknum lyfja- og lækniskostn- aði. Slíkur kostnaður getur orðið stúdentum á námslánum ofviða. Skýr stefna Stefna Vöku í lánasjóðsmálum er skýr. Vaka biður um áframhaldandi umboð stúdenta til að halda áfram því starfi sem farið hefur fram í lána- sjóðsmálum og tryggja að hagsmun- ir stúdenta nái fram að ganga. Setj- um X við A á kjördag og kjósum áframhaldandi árangur í hagsmuna- baráttu stúdenta. Höldum vöku okkar í lána- sjóðsmálunum Eftir Sigrúnu Helgu Jóhannsdóttur og Ingunni Guðbrandsdóttur Sigrún Helga skipar 2. sæti á lista Vöku til Stúdentaráðs og Ingunn situr í Stúdentaráði fyrir Vöku. IngunnSigrún Helga „Skerðing námslána vegna tekna þarf að minnka.“ EINAR Stefánsson augnlæknir skrifar grein í Mbl., þann 21. febrúar sl., þar sem hann kallar eftir meira viðskiptafrelsi með landbúnaðarvör- ur og skilur ekki að íslensk stjórn- völd skuli styðja ,,einangrunar- stefnu“ í landbúnaði og halda þannig uppi verði á matvörum. Það hefur oft vakið furðu mína hvað margir setja kíkinn fyrir blinda augað þegar beðið er um meira frelsi í öllum viðskiptum og alltaf á það að koma blessuðum ,,neytandanum“ til góða. Í þessu sama Morgunblaði er önnur grein eftir augnlækni sem varar við því að sjóntækjafræðingar fái að mæla sjón þeirra sem þurfa að fá sér gleraugu. Þarna kemur ber- lega í ljós að augnlæknar vilja ekki fyrir nokkurn mun þurfa að láta það yfir sig ganga að keppa við innlenda stétt manna, hvað þá ef þeir þyrftu að keppa við erlenda kollega sína. Hvernig væri t.d. að stjórnvöld myndu hlutast til um að flytja inn augnlækna og tannlækna frá lág- launalöndunum? Það ætti að vera auðvelt að gefa þeim starfsleyfi hér og lækka þannig stórlega útgjöld heimilanna og heilbrigðisþjónust- unnar í landinu. Ef að menn hrópa á viðskiptafrelsi á eitt yfir allar stéttir að ganga. Það eiga ekki bara að vera fram- leiðslugreinarnar og ferðaþjónustan sem keppa í óvarinni samkeppni við allar þjóðir jarðarinnar. Það er ótrúlegur tvískinnungur í þessari umræðu og venjulega koma skoðanir eins og hér um ræðir úr röðum starfsstétta, sem telja sig örugga um að halda sinni lögboðnu vernd fyrir samkeppni umheimsins. Viðskiptafrelsi fyrir alla? Eftir Þóri N. Kjartansson „Ótrúlegur tvískinn- ungur í þessari umræðu.“ Höfundur er framkvæmdastjóri, Vík í Mýrdal.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.