Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 27

Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 27 FIMMTUDAGINN 27. febrúar verður kynning á framhaldsnámi við Háskóla Íslands og sunnudaginn 9. mars verður síðan önnur kynning á sama stað á öllu háskólanámi sem býðst í landinu. Allir landsmenn eru velkomnir á þessar tvær kynningar sem einkum eru ætlaðar stúdents- efnum á framhaldsskólastigi og öðr- um sem stefna á framhaldsnám. Hérna á eftir verður kynnt sú fræði- grein sem ég stend fyrir, félagsfræð- in, en hún er í boði á bæði BA- og MA-stigi við Háskóla Íslands. Í hverju felst mikilvægi fé- lagsfræðinnar? Hvað fara fé- lagsfræðingar að gera þegar námi þeirra lýkur? Er nokkur þörf á þessu námi? Mikilvægi félagsfræðinnar Markmiðið með kennslu í fé- lagsfræði er ekki bara að efla þekk- ingu og skilning nemenda á grein- inni sjálfri heldur er einnig mikilvægt að kunnátta í henni nýtist á margvíslegan hátt í daglegu lífi, hvort heldur í starfi eða leik. Við- fangsefni félagsfræðinnar endur- spegla mörg brýn verkefni nútíma- samfélags og spanna í raun mjög fjölbreytt svið. Sem dæmi má nefna málefni afbrota, fjölmiðla, ung- menna og atvinnu- og velferðarmál af ýmsu tagi. Félagsfræðin veitir nemendum þjálfun og færni í öflun og meðferð margvíslegra upplýsinga sem eru kostir sem mikil þörf er á í upplýsinga- og þjónustusamfélagi nútímans. Hagnýting gagna er ómissandi þáttur í samfélaginu og félagsfræðin veitir nemendum færni í myndrænni framsetningu og þjálf- un í að túlka þau. Að auki felur áhersla félagsfræðinnar á sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði nemenda, auk tjáningarhæfileika og sam- skiptahæfni, í sér mikilvæga og eft- irsótta eiginleika á síbreytilegum vinnumarkaði. Hvað gera félagsfræðingar? Áhersla hefur lengi verið lögð á að skoða mikilvægi menntunar í ljósi þess hvort hún tryggi góða atvinnu og afkomu. Þetta kemur ekki á óvart og oft er spurt hvað félagsfræðingar fari að gera að loknu námi. Til að ganga úr skugga um þetta var unnin BA-ritgerð í félagsfræði undir minni handleiðslu þar sem kannað var hvað nemendur sem lokið höfðu fé- lagsfræðinámi frá Háskóla Íslands hefðu tekið sér fyrir hendur að loknu námi. Kolbrún Ósk Hrafnsdóttir gerði rannsóknina og kom í ljós að vel á fjórða hundrað nemenda hafði lokið námi í félagsfræði frá því að nám í greininni hófst við HÍ snemma á átt- unda áratug síðustu aldar. Ýmislegt fróðlegt kom fram en um 90 prósent útskrifaðra tóku þátt í athuguninni. Um 64 prósent þeirra höfðu stundað frekara háskólanám, svipað hlutfall karla og kvenna. Af þeim hafði helm- ingur karlanna lokið meistaragráðu en sambærilegt hlutfall meðal kvenna var um 20 prósent. Tuttugu höfðu lokið doktorsgráðu, sautján karlar og þrjár konur. Meðal kvennanna var eins árs viðbótarnám í félagsráðgjöf algengast. Afgerandi meirihluti þeirra sem voru í launavinnu starfaði við ýmsar þjónustugreinar, einkum fræðslu, opinbera stjórnsýslu, félagsþjón- ustu, tómstunda-, menningar- og íþróttastarfsemi. Aðrar áberandi þjónustugreinar voru verslunar- störf, fjármála- og tryggingastarf- semi, rannsóknir og ráðgjöf og önn- ur ótalin viðskipti og þjónusta. Rúmur helmingur svarenda til- heyrði stétt sérfræðinga, um fjórð- ungur stétt æðstu embættismanna og stjórnenda og um 15 prósent starfandi svarenda tilheyrðu stétt tækna og sérmenntaðs starfsfólks. Atvinnuþátttaka var mjög almenn og enginn svarenda sagðist atvinnu- laus. Stundum er því fleygt að fé- lagsfræðin nýtist mest hjá hinu op- inbera en ekki á einkamarkaði. Það sem kom í ljós var að rúmlega 60 prósent störfuðu hjá ríki og sveit- arfélögum en tæp 40 prósent á al- mennum vinnumarkaði. Niðurlag Í heildina sýnir rannsóknin á af- drifum útskrifaðra nemenda í fé- lagsfræði að verkefni þeirra að námi loknu eru bæði fjölbreytt og spenn- andi. Námið hefur sýnt sig að vera hagnýtt og þörfin fyrir sérmenntað starfsfólk með félagsfræðimenntun óneitanlega fyrir hendi enda teljast um 70 prósent allra starfa á vinnu- markaðnum á Íslandi til þjónustu. Við sem komum nálægt félagsfræð- inni getum því óhikað litið björtum augum á framtíð greinarinnar í ís- lensku samfélagi. Félagsfræði: Spennandi háskólanám Eftir Helga Gunnlaugsson „Í heildina sýnir rann- sóknin á afdrifum útskrifaðra nemenda í félagsfræði að verkefni þeirra að námi loknu eru bæði fjölbreytt og spennandi.“ Höfundur er formaður námsnefndar í félagsfræði við Háskóla Íslands. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 www.nowfoods.com í nýju umhverfi ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - FL U 2 00 30 02 /2 00 3 Fundarfriður og allt er til reiðu á fundarstað! Þjónusta við íslensk fyrirtæki hvar sem er á landinu. Hafðu strax samband við Hópadeild í síma 570 3038/3035 tölvupóstur: hopadeild@flugfelag.is f l júgðu frekar! símtal FLOGIÐ OG FUNDAÐ Flugfélag Íslands og samstarfshótel úti á landi bjóða í einum pakka alla aðstöðu til fundarhalda. Fljúgið að morgni og aftur heim sam- dægurs um kvöldið eða gistið eina nótt eða fleiri. Náið betri árangri á fundi Eflið starfsandann og treystið liðsheildina í samstilltum hóp með góðri dvöl á fyrsta flokks gististöðum úti á landi. VIÐ SJÁUM UM ALLAN UNDIRBÚNING Hópadeild Flugfélags Íslands pantar flugfar, akstur til og frá flugvelli á áfangastað, fundar - aðstöðu og veitingar og sér til þess í samvinnu við samstarfshótel að allur búnaður verði til reiðu á fundarstað. Pöntum gistingu og skipuleggjum skoðunar ferðir eða aðrar útivistarferðir í nágrenni fundarstaðanna. • fundaraðstaða fyrir allt að 80 manns • fundaraðstaða fyrir allt að 110 manns • fundaraðstaða fyrir • fundaraðstaða fyrir allt að 230 manns allt að 60 manns

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.