Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Kristján G.Magnússon fædd-
ist að Króki í Ketil-
dalahreppi í Vestur-
Barðastrandarsýslu
22. nóvember 1922.
Hann andaðist á
heimili sínu laugar-
daginn 15. febrúar
síðastliðinn. Hann
var sonur hjónanna
Magnúsar Kristjáns-
sonar bónda í Langa-
botni í Geirþjófsfirði,
f. 1888, d. 1966, og
konu hans Hildar
Bjarnadóttur, f.
1892, d. 1939.
Hann var sjöundi í röð 11 systk-
ina. Systkini hans eru: Auður, f.
1916, d. 1998, Guðrún, f. 1917,
Björn Magnús, f. 1918, d. 1998,
Sverrir, f. 1920, d. 1989, Hlín, f.
1921, Jónína Hrefna, f. 1921,
Valdimar, f. 1925, d. 1972, Gísli
Angantýr, f. 1927, Kristín Sigríð-
ur, f. 1929, og Vésteinn Gunnar, f.
1931.
Kristján kvæntist 5.desember
1953 Guðrúnu Árnadóttur frá
Akri á Eyrarbakka, f. 1920, d.
1979, hann kynntist henni við sjó-
mennsku á Eyrarbakka. Kristján
og Guðrún fluttust til Reykjavíkur
1954, Þau eignuðust tvo syni: a)
Magnús, f. 1955, eig-
inkona Hrafnhildur
Hlíðberg, f. 1960,
börn þeirra eru
Gyða Guðrún, f.
1982, Ellen Mjöll, f.
1986, og Bjarki
Fannar, f. 1989, og
b) Árna, f. 1962. Fyr-
ir átti Guðrún dótt-
ur, Kristínu Þórðar-
dóttur, f. 1943, sem
Kristján gekk í föð-
urstað, eiginmaður
hennar er Sævar
Örn Kristjánsson, f.
1948, synir þeirra
eru Kristján Örn, f. 1974, og Viðar
Örn, f. 1977. Barnabarnabörnin
eru þrjú.
Eftir nám hjá Ósvaldi Knudsen,
starfaði Kristján lengst af sem
sjálfstætt starfandi málarameist-
ari. Hann var virkur félagi í hin-
um ýmsu félögum, málarafélag-
inu, þar sem hann sat meðal
annars í stjórn, Kvæðamanna-
félaginu Iðunn, Örnefnastofnun,
Sögufélaginu og Skógræktar-
félagi Íslands, síðast stofnaði
hann ásamt fleirum félag aðstand-
enda samkynhneigðra.
Útför Kristjáns verður gerð frá
Grensáskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Í dag kveð ég tengdaföður minn
Kristján G. Magnússon frá Langa-
botni í Geirþjófsfirði í Arnarfirði. Það
eru liðin 32 ár frá því að ég tengdist
Kristjáni fyrst, eftir að ég hóf sambúð
með stjúpdóttur hans Kristínu Þórð-
ardóttur, svo að okkar kynni eru orð-
in löng og hafa ávallt verið mér til
mikillar ánægju. Strax við fyrstu
kynni sá ég að þar fór maður sem
hafði margt til brunns að bera og var
að mörgu leyti mjög sérstakur. Fljót-
lega eftir að ég tengdist inn í fjöl-
skylduna fann ég að þar var á ferðinni
fólk sem gerði mann að betri mann-
eskju með nærveru sinni, Guðrún
með sitt ljúfa skap og skemmtilega
húmor, blessuð sé minning hennar,
og Kristján frekar alvörugefinn og
hugsandi, stundum dálítið utan við
sig, líkt og hann væri í öðrum heimi.
Eftir að ég og Kristín eiginkona
mín hófum búskap og eignuðumst
okkar drengi komu mannkostir og
hugulsemi Kristjáns afar sterkt í ljós,
einkum þegar konan mín þarfnaðist
aðstoðar við viðhald eða önnur viðvik,
svo sem að líta eftir strákunum. Þar
sem að ég stundaði sjómennsku á
okkar fyrstu búskaparárum þegar
strákarnir voru litlir, var ég oft lang-
an tíma að heiman, og var þá sam-
gangur Kristínar og foreldra hennar
mikill, nánast daglegur og kom það
þá glöggt í ljós hvað Kristján átti eftir
að reynast okkur vel og var hann
strákunum okkar sérstaklega mikill
afi. Þegar eldri strákurinn okkar
fæddist kom í ljós fæðingargalli sem
varð þess valdandi að hann var óvær
og grét mikið vegna vanlíðanar fyrstu
2 árin, og var þá of gott að eiga afa og
ömmu sem gátu komið til að létta
undir eftir erfiðar vökunætur og var
þá Kristján óþreytandi við að ganga
með nafna sinn um gólf með sínu ró-
lega og þægilega viðmóti. Þessi ár
urðu til þess að Kristján tengdist
þessu barnabarni sínu mjög nánum
böndum sem hafa varað fram á þenn-
an dag.
Kristján var óvenju hjálpfús maður
og átti mikið betur með að gefa en að
þiggja og eru þeir ófáir innan fjöl-
skyldunnar sem að eiga honum að
þakka mörg handtökin við að koma
sér upp heimili eða aðstoð með máln-
ingu og ýmis viðvik, því Kristján var
mikill hagleiksmaður á marga hluti.
Kristján var mjög bókhneigður
maður og notaði hverja stund sem
gafst til þess að lesa bækur um hin
ýmsu mál og átti hann mjög stórt og
vandað bókasafn. Efst í huga var hon-
um að lesa um og ræða gamlar sagnir
af fólki og þjóðháttum á árum áður og
var hann óþrjótandi fræðslubrunnur
fyrir okkur yngra fólkið um lífið og
tilveruna á fyrri hluta síðustu aldar.
Trúmál voru honum mikilvæg og
átti ég margar stundir með Kristjáni
þar sem við ræddum trúmál, og það
get ég sagt að mín viðhorf til trúmála
eru mikið mótuð af þeim samræðum,
því fáir menn áttu eins gott með að
rökræða hlutina til að komast að nið-
urstöðu eins og hann. Kristján var
ekki alltaf sáttur við viðhorf kirkjunn-
ar til ýmissa mála og lá ekki á því að
honum mislíkaði mjög viðhorf hennar
til samkynhneigðra, en fyrir þau sam-
tök barðist Kristján mikið, og hélt
nokkra fyrirlestra um þeirra mál
gangvart kirkjunni. Þessi viðhorf
kirkjunnar urðu til þess að hann sagði
sig úr hinni íslensku þjóðkirkju, þó
það breytti ekki hans trú á æðri mátt
sem hann hafði alla tíð þar til yfir
lauk.
Tengdapabbi var mjög listhneigð-
ur maður og hafði gaman af söng og
þá aðallega af sígildum kórsöng og
kirkjutónlist og sótti tónleika, ef hann
gat því við komið, hann átti einnig
auðvelt með að setja saman ljóð eins
og eftirfarandi erindi úr 10 ljóða bálk
til móðir hans ber vitni um.
Rödd sem á undirrót innra
óskir sem kalla á svör
er löngun að minnast þín, mamma,
þó málfarið stirðni á vör,
ylsins frá ástríki þínu,
ævilöng minninga sýn.
Með þér í ljúfsárum ljóma
leikvangur bernskunnar skín.
Í kyrrðinni er líður á kvöldið
hverfur það allt sem brást.
Mér finnst eins og fram undan bíði
þín fórnandi móðurást.
Nú veit ég þú breiðir bráðum
á barnið þitt hvíta lín,
þá heldur þinn hjásetudrengur
heimleiðis aftur til þín.
Kristján var ágætur málari og eru
margar myndir til eftir hann sem ætt-
ingjar og vinir eiga og bera vitni um
listhneigð hans, enda dreymdi hann
um að verða listmálari þegar hann
var ungur.
Eftir að tengdamóðir mín lést
langt fyrir aldur fram var Kristján
nær daglegur gestur á okkar heimili
og tengdist okkur og strákunum okk-
ar mjög náið, og eftir að við fluttum
norður í Mývatnssveit kom hann oft í
heimsókn, strákunum og okkur til
mikillar ánægju og dvaldi þá oft í
langan tíma í senn.
Tengsl Kristjáns við æskuslóðirnar
í Geirþjófsfirði voru mjög sterk svo
við í fjölskyldunni fórum oft í Arn-
arfjörð með honum og dvöldum þá í
Langabotni og nutum þess að vera
með honum þar og hlusta á hann
segja okkur frá æskuárunum og lífinu
í Geirþjófsfirði. Gísla saga Súrssonar
var honum mjög hugleikin enda Geir-
þjófsfjörður eitt aðalsögusvið þeirra
sögu, enda bera systkini Kristjáns
mörg hver nöfn sögupersóna þeirrar
sögu.
Að lokum vil ég segja þetta að í dag
er borinn til grafar einn af þessum
sönnu íslensku alþýðumönnum sem
að unni landi sínu þjóð og tungu
meira en nokkru öðru. Það eru svona
menn sem að tengja okkur arfleifð-
inni, tungunni og sögunni, það eru
svona menn sem vekja áhuga okkar á
því sem að við erum og gerðu okkur
að þeirri þjóð sem við erum í dag.
Sævar Örn Kristjánsson.
Í dag kveðjum við hann afa okkar,
Kristján G. Magnússon sem lést á
heimili sínu 15. febrúar síðastliðinn.
Afi var stór hluti af lífi okkar og mun-
um við aðeins eftir einum til tvennum
jólum á tuttugu ára tímabili sem hann
var ekki með okkur. Verður því stórt
skarð við jólaborðið framvegis. Á
hverjum laugardegi í mörg ár kom afi
í heimsókn um hádegisbilið og hafði
meðferðis stóran poka úr Kolaport-
inu fullan af nammi eða rjómaís úr
Skalla. Þessir laugardagar voru í
miklu uppáhaldi á okkar yngri árum.
Afi hafði mjög gaman af því að
kynna okkur fyrir gömlum tíma og
eyddi hann mörgum stundum í það
m.a. með því að fara með okkur í Ár-
bæjarsafnið og á Þjóðminjasafnið.
Sögurnar hans kveiktu áhuga á göml-
um tíma og hefur allavega eitt okkar
hugleitt að læra meira á þessu sviði.
Afi var endalaus hafsjór af upplýs-
ingum og það var ekki til sú spurning
sem hann hafði ekki svar við. Enda
átti hann ógrynni af bókum og hafði
yndi af að lesa. Æskustöðvar afa voru
honum mjög hugleiknar og ferðuð-
umst við tvisvar þangað í fylgd hans.
Fengum við að heyra margar sögur
um lífið í Langabotni og ýmsar þjóð-
sögur tengdar firðinum. Sá lærdómur
situr eftir og getum við borið hann
áfram til okkar barna.
Afi var listamaður í eðli sínu og
lærður málarameistari. Hann vann
við sitt fag alla ævi og í frístundum
málaði hann ýmist málverk eða kistla
og sitja eftir hann ógrynni af verkum
sem munu ylja fjölskyldu, vinum og
velgjörðarmönnum um hjartarætur
um ókomin ár.
Hvíldu í friði, elsku afi. Við vonum
að endurfundirnir hafi verið góðir
hinum megin. Sjáumst seinna.
Gyða, Ellen og Bjarki.
Kristján Guðbjartur Magnússon
andaðist á heimili sínu að kvöldi 15.
febrúar. Langri og farsælli ævi er
lokið. Hann var fæddur 22. nóvember
1922 að Langabotni í Geirþjófsfirði
og varð því áttræður á síðasta ári. Að
alast upp í stórum systkinahópi í stór-
brotnu og fögru umhverfi á sögu-
frægum stað hlýtur að hafa áhrif á
uppvöxt fólks. Og hvergi hef ég séð
fegra síðsumarskvöld en á siglingu á
Arnarfirði, þá skildi ég til hlítar hug-
takið ,,sólarglóð“. Þessi stóri og sam-
henti systkinahópur komst fljótt að
því að menn þurftu að taka til hönd-
unum til að bjarga sér. Þótt þessi jörð
muni vel sett til afnota bæði til lands
og sjávar ílentust systkinin ekki í
Langabotni. Flest þeirra eru búsett í
Reykjavík og þegar þau hittust var
umræðuefnið oftast æskuárin fyrir
vestan, og þeim umræðum voru aldr-
ei gerð full skil. Fyrir Kristjáni var
aðeins einn staður sem hét „heima“
og það var í Langabotni og ritað með
stórum staf. Hann var bókelskur og
listhneigður, átti dágott valið bóka-
safn og málaði bæði með vatnslitum
og olíu í tómstundum sínum, auk þess
sem allar viðgerðir á stórum og
smáum hlutum léku í höndum hans.
Kristján var bóngóður og hafði
ánægju af að gera öðrum greiða. Fyr-
ir nokkrum árum skrifaði hann rit-
gerð að beiðni Þjóðminjasafnsins sem
lýsir búskaparháttum og lífi fólks
sem bjó í sveitum á þeim tíma. Og má
Þjóðminjasafn Íslands vel við una að
hafa fengið í hendur svo nákvæma og
góða lýsingu á kjörum sveitafólks upp
úr 1920.
Fjölskyldan var Kristjáni hugstæð
og ekkert var of gott ættingjum hans
til handa, enda hafa afkomendur hans
og tengdabörn launað honum um-
hyggjuna nú þegar veikindin ágerð-
ust og þrekið þvarr.
Öllum honum skyldum og tengdum
votta ég samúð mína og þakka þá
kurteisi og hlýju sem hans fólk hefur
sýnt mér. Slíkt er ekki sjálfgefið.
Kristín Guðnadóttir.
Mig langar að minnast Stjána, eins
og við kölluðum hann alltaf, móður-
bróður míns í örfáum orðum. Hann
fæddist einu og hálfu ári á eftir móður
minni Hrefnu og tvíburasystur henn-
ar. Þau voru nánir vinir alla ævi og
var einstök upplifun að fá að sitja hjá
þeim þegar þau hittust og hlusta á
þau rifja upp gamla daga.
Stjáni var mömmu mikil stoð og
stytta, ekki síst þegar pabbi veiktist
og þurfti að vera á sjúkrahúsi lang-
dvölum þá keyrði hann hana ótaldar
ferðirnar í spítalaheimsóknir og eins
fóru þau í margar ferðir saman út á
land, t.d. austur í sveitir í heimsóknir
til okkar systkinanna í sumarbústað-
ina og var þá tilheyrandi partur af
ferðalaginu að koma við í Eden í
Hveragerði á heimleiðinni og fá sér
kaffi og og eitthvað gott með. Eftir lát
pabba var Stjáni alltaf til taks að
skutla eða bara að koma í heimsókn
og spjalla meðan hann sjálfur hafði
heilsu til.
Hann lærði málaraiðn í Iðnskólan-
um á Eyrarbakka og starfaði alla tíð
við iðn sína, hann var líka listfengur
og málaði fallegar myndir sem prýða
veggi í mörgum stofunum. Einnig var
hann vel hagmæltur, orti mörg falleg
ljóð og kastaði gjarnan fram vísum
við ýmis tækifæri. – Ekki var síðra að
hlusta á hann segja frá ferðum sínum
til útlanda. Hann ferðaðist til Barce-
lona fyrir tveimur árum og dvaldi þar
í nokkrar vikur hjá syni sínum. Sú
ferð var honum ógleymanleg. Vona
ég að ég eigi eftir að fara til Barcelona
einhverntíma og mun ég þá heim-
sækja þá staði sem hann lýsti svo ljós-
lifandi fyrir mér.
Fyrir fáum árum veiktist Stjáni af
illkynja sjúkdómi. Hann barðist
hetjulega við þennan illvíga vágest og
vann marga orrustuna, en þurfti að
lokum að játa sig sigraðan.
Hann hefur nú kvatt okkur í hinsta
sinn en við geymum í minningunni
myndina af þeim góða og vandaða
manni sem hann var.
Ég votta aðstandendum Stjána
mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð
blessi ykkur öll.
Ingigerður Magnúsdóttir.
Í dag kveðjum við hjónin vin okkar
og móðurbróður minn, Kristján G.
Magnússon málarameistara. Okkur
er efst í huga þakklæti fyrir hversu
ávallt hann var reiðubúinn til þess að
rétta okkur hjálparhönd hvort heldur
var í orði eða verki. Þar gilti einu
hvort um var að ræða heimili okkar í
Hlaðbænum, Rauðagerðinu eða nú
síðast í Langagerðinu. Við minnumst
einnig ótal margra gleðistunda svo
sem ferðalaga, afmæla, söngs og
dans. Stjáni var víðlesinn og oft hrók-
ur alls fagnaðar. Við njótum þeirra
forréttinda að eiga fallega málaðar
myndir eftir Stjána frá æskustöðvum
og ekki síst af veiðislóðum. Hann átti
einnig gott með að koma fyrir sig orði
hvort heldur var í bundnu eða
óbundnu máli og eigum við margar
skemmtilegar vísur í minningunni.
Ástvinum hans öllum sendum við
innilegar samúðarkveðjur. Hafðu
þökk fyrir samfylgdina.
Aðalheiður og Hilmar.
KRISTJÁN G.
MAGNÚSSON
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGURLAUG ANNA HALLMANNSDÓTTIR,
Suðurgötu 15-17,
Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 20. febrúar, verður jarðsungin
frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 27. febrúar
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast
hinnar látnu, láti líkarfélög njóta þess.
Sigurður Gíslason,
Hallmann Sigurður Sigurðarson, Aðalheiður Helga Júlíusdóttir,
Margrét Ragnheiður Sigurðardóttir, Þorsteinn Valgeir Konráðsson,
Ráðhildur Ágústa Sigurðardóttir, Einar Magnús Sigurbjörnsson,
Gísli Sigurðsson, Árný Dalrós Njálsdóttir,
Sigurlaug Sigurðardóttir, Snæbjörn Kristjánsson,
Sigurður Sigurðarson, Halldóra Kristín Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
KRISTJÁN G. MAGNÚSSON
frá Langa-botni,
síðast til heimilis
á Hrísateigi 10,
Reykjavík,
sem andaðist á heimili sínu laugardaginn
15. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Grensáskirkju í dag, miðvikudaginn
26. febrúar, kl. 15.00.
Magnús Kristjánsson, Hrafnhildur Hlíðberg,
Kristín Þórðardóttir, Sævar Örn Kristjánsson,
Árni Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÚLFAR NÍELS STEHN ATLASON,
Strandaseli 1,
Reykjavík,
andaðist laugardaginn 22. febrúar á
Landspítalanum Fossvogi.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 11.00.
Maríanne Sif Úlfarsdóttir, Leó Jóhannsson,
Garðar Örn Úlfarsson, Lena Helgadóttir
og barnabörn.