Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Kristín Þórðar-dóttir fæddist á
Brávöllum á Stokks-
eyri 28. nóvember
1913. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 18. febrúar síð-
astliðinn. Kristín
var dóttir hjónanna
Málfríðar Halldórs-
dóttur, f. 8.8. 1889,
d. 7.11. 1933, og
Þórðar Jónssonar
bókhaldara frá
Stokkseyri, f. 16.4.
1886, d. 28.9. 1959.
Systkini Kristínar
eru Sigurður, f. 1912, d. 1978;
Ragnar, f. 1915, d. 1972; Guðrún,
f. 1922, og Helga, f. 1926.
Kristín og Hildur; b) Björn, f.
1961, kvæntur Skúlínu H. Guð-
mundsdóttur. Börn þeirra eru:
Hjörtur Björn, Jóhann Skúli og
María Rós; c) Kristín, f. 1962,
sambýlismaður Guðmundur
Benediktsson, dætur þeirra eru
Anna Björk og Oddný; d) Þórður,
f. 1976;2) Margrét skrifstofumað-
ur, f. 29.1. 1947, var gift Eiríki
Karlssyni. Börn þeirra eru: a)
Ingibjörg, f. 1972, dóttir hennar
er Þórhildur Marteinsdóttir; b)
Karl, f. 1975, í sambúð með Stein-
unni Bjarnarson.
Kristín ólst upp á Stokkseyri til
11 ára aldurs, en fluttist þá með
foreldrum sínum til Reykjavíkur.
Ung að árum hóf hún störf í bóka-
búð Guðmundar Gamalíelssonar
og vann þar um áratugsskeið.
Síðustu æviár sín dvaldi hún á
Hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför Kristínar verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Kristín giftist 15.
júlí 1939 Birni Magn-
ússyni vélfræðingi, f.
5. des. 1913, d. 21.
sept. 1985. Björn var
sonur hjónanna
Magnúsar Björnsson-
ar fuglafræðings, d.
1947, og Vilborgar
Þorkelsdóttur, d.
1930. Dætur Kristín-
ar og Björns eru: 1)
Málfríður Kristín
læknaritari, f. 20.12.
1939, gift Guðmundi
A. Þórðarsyni vél-
fræðingi, f. 29.6.
1934. Börn þeirra eru: a) Guðrún
Helga, f. 1959, gift Jóni Gunn-
laugssyni, dætur þeirra eru Fríða
Mig langar að minnast tengda-
móður minnar, Kristínar Þórðar-
dóttur, í nokkrum orðum, en um
þessar mundir eru u.þ.b. 45 ár síðan
ég kom fyrst á heimili hennar og
Björns í Barmahlíðinni, þar sem þau
bjuggu þá, og var ég einmitt þá að
gera hosur mínar grænar fyrir eldri
heimasætunni, henni Fríðu, sem
varð konan mín. Að sjálfsögðu var ég
hálfkvíðinn er ég kom fyrst á heimili
þeirra, en sá kvíði hvarf brátt og var
ég strax tekinn sem einn af fjölskyld-
unni og hefur aldrei síðan borið
skugga á, enda voru bæði tvö ein-
staklega ljúfar og viðmótsþýðar per-
sónur.
Kristín var þá eins og alla tíð, fyrst
og fremst húsmóðir. Á yngri árum
hafði Kristín unnið um árabil í bóka-
búð Guðmundar Gamalíelssonar,
sem þá var ein virtasta bókabúð bæj-
arins og heyrði ég hana oft minnast
þeirra tíma með mikilli virðingu. Í
slíku umhverfi sé ég tengdamóður
mína eins og drottningu í ríki sínu
innan um allt þetta bókaflóð. Þekk-
ing hennar á bókmenntum þeirra
tíma var ótrúleg. Sérgrein hennar
var þó fyrst og fremst ljóðabækur
þeirra tíma, sem hún meðhöndlaði
og dáði mest. Kunni hún og þuldi ljóð
helstu ljóðskálda þeirra tíma, svo
sem Davíðs og Einars Ben.
Þau Björn og Kristín áttu mjög
gott bókasafn og sér í lagi ljóðasafn.
Allmargar bækur voru innbundnar
af þeim sjálfum og stunduðu þau
þetta tómstundagaman á seinni ár-
um.
Eitt sinn barst það í tal milli okkar
Kristínar að afi minn, sem hét Jón
Ólafsson, hefði drukknað á flóabátn-
um Geraldínu hér í Faxaflóa árið
1908. Sagðist ég hvergi hafa séð neitt
um þetta slys á prenti. Næst þegar
ég hitti Kristínu kom hún með tvær
bækur sem sögðu frá þessu slysi.
Þetta sýnir m.a. hve þekking hennar
á þessu sem öðru var geysilega víð-
tæk. Enda sagði hún oft og einatt að
bækur væru til að lesa en ekki bara
horfa á þær í hillum.
Bæði voru þau hjón einstaklega
barngóð og barnabörnin hændust að
þeim, hvort heldur að afi og amma
komu í heimsókn upp á Skaga, eða
börnin voru í nokkra daga dvöl í Álf-
heimum. Það var alltaf tilhlökkunar-
efni hjá börnunum á þessum árum.
Kristín var framan af ævi sinni
mjög heilsuhraust og vel á sig komin.
Hún var glæsileg kona með brún
augu og einkar fallegt kastaníubrúnt
þykkt hár, sem hún hélt að mestu til
hins síðasta.
Heimili hennar og Björns var hlý-
legt og notalegt og var samband
þeirra einstaklega gott og elskulegt.
Björn, tengdafaðir minn, var gull af
manni, en eftir að hann veiktist og
féll frá, eftir löng og erfið veikindi,
var eins og strengur brysti hjá Krist-
ínu og heilsu hennar, bæði andlega
og líkamlega, hrakaði skjótt.
Síðustu níu árin dvaldi hún á
Hjúkrunarheimilinu Eir, og viljum
við aðstandendur Kristínar flytja
sérstakar þakkir til starfsfólks fyrir
þá frábæru hjúkrun og aðhlynningu
sem hún fékk á þessum árum og var
starfsfólkinu til sóma.
Að lokum vil ég þakka tengdamóð-
ur minni samfylgdina.
Hvíl þú, í guðsfriði.
Guðmundur A. Þórðarson.
Í dag er kvödd mágkona mín
Kristín Þórðardóttir. Hún andaðist á
hjúkrunarheimilinu Eir eftir margra
ára erfið veikindi.
Kristín fæddist á Brávöllum á
Stokkseyri árið 1913. Þar ólst hún
upp í foreldrahúsum og gekk í
barnaskóla uns fjölskyldan flutti til
Reykjavíkur árið 1924. Þar hélt hún
áfram skólagöngu sinni en þó kom
fljótlega að því að hún þyrfti að fara
að vinna. Í kreppunni miklu og þeirri
fátækt sem var hlutskipti margra á
þessum árum hafði fólk ekki sömu
tækifæri til menntunar og nú þykja
sjálfsögð.
Kristín byrjaði því ung að vinna í
bókabúð Guðmundar Gamalíelsson-
ar og þar starfaði hún í um tíu ár. Í
bókabúðinni undi hún hag sínum vel.
Bókhneigð var henni í blóð borin
enda hafði faðir hennar, Þórður
Jónsson, rekið bókabúð á Stokks-
eyri. Starfi sínu í bókabúðinni sinnti
Kristín af alúð og áhuga. Og starfið
átti eftir að móta hana svo um mun-
aði. Þarna lifði hún og hrærðist inn-
an um bækur og bókamenn. Margir
þekktir bókamenn og rithöfundar
lögðu leið sína í bókabúðina. Má þar
nefna Tómas Guðmundsson og Jón
Sveinsson (Nonna). Einnig mun Vil-
hjálmur Stefánsson landkönnuður
hafa komið við í búðinni. Nærri má
geta hvaða áhrif þessar aðstæður
hafa haft á Kristínu. Hún drakk af
viskubrunninum. Bókmenntaáhugi
hinnar ungu konu óx og dafnaði og
starfið varð henni dýrmæt reynsla
sem hún fékk notið lengi á eftir. Þótt
formleg skólaganga væri stutt
menntaði Kristín sig með því að lesa
ógrynni bóka af ýmsu tagi. Hún var
stálminnug og mundi vel það sem
hún las. Hún kunni vel að meta ljóð-
list og kunni mörg ljóð. Þegar Krist-
ín var orðin fullorðin var hún mjög
víðlesin og fróð kona. Hún fylgdist
líka vel með þjóðmálum og hafði
ákveðnar skoðanir á þeim.
Snemma varð ljóst að Kristín
hafði góða söngrödd enda gott söng-
fólk í hennar ætt. Hún var hvött til
að fara í söngnám en því miður leyfði
efnahagur fjölskyldunnar það ekki.
Þannig kom fátæktin sem fyrr var
nefnd í veg fyrir að þessir hæfileikar
Kristínar yrðu ræktaðir.
Kristín giftist árið 1939 Birni
Magnússyni. Hjónaband þeirra var
farsælt og gott enda voru þau einkar
samhent og öðrum hjálpsöm. Þeirrar
hjálpsemi varð ég fyrst aðnjótandi
árið 1952 þegar ég kom frá Ísafirði
til Reykjavíkur í atvinnuleit. Mág-
kona mín og svili veittu mér húsa-
skjól og greiddu götu mína á allan
hátt. Ég hef alltaf verið þeim þakk-
látur fyrir. Þau vildu hins vegar sem
minnst um eigin hjálpsemi tala. Þau
létu verkin tala.
Eftir að ég og Guðrún eiginkona
mín fluttum til Reykjavíkur áttum
við mikil og góð samskipti við Krist-
ínu og Bjössa. Þau voru góð heim að
sækja, hún hafsjór af fróðleik og
hann ávallt með spaugsyrði og bros á
vör.
Kristín og Bjössi eignuðust tvær
dætur, Málfríði Kristínu og Mar-
gréti. Báðar eru þær vel gerðar
dugnaðarkonur og bera uppeldi for-
eldra sinna fagurt vitni. Ekkert þótti
Kristínu og Bjössa betra en að vera
með dætrum sínum og fjölskyldum
þeirra. Það voru þeirra dýrmætustu
stundir og víst hafa þær líka verið
dýrmætar barnabörnum þeirra sem
fengu að kynnast ástríki þeirra
Kristínar og Bjössa.
Síðustu þrjátíu ár ævi Kristínar
voru henni og aðstandendum hennar
erfið. Þegar þau Bjössi voru um sex-
tugt veiktist hann alvarlega og lést
1985. Veikindi hans reyndu mjög á
Kristínu enda hjúkraði hún honum
eftir fremsta megni. Skömmu fyrir
dauða hans veiktist hún sjálf af heila-
rýrnunarsjúkdómi sem að lokum dró
hana til dauða.
Kristín mágkona mín er komin yf-
ir móðuna miklu. Við hjónin höfum
margs að minnast um samskipti okk-
ar við Kristínu og fjölskyldu hennar.
Allt eru það góðar og ljúfar minn-
ingar.
Við sendum Málfríði og Margréti,
börnum þeirra og öðrum ættingjum
innilegar samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guðmundur L.Þ.
Guðmundsson.
KRISTÍN
ÞÓRÐARDÓTTIR
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför okkar
elskulega eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
SIGÞÓRS BJÖRGVINS SIGURÐSSONAR
vélstjóra,
Skarðshlíð 13b,
Akureyri.
Hallveig Magnúsdóttir,
Fróði Jónsson, Ástfríður Njálsdóttir,
Magnús S. Sigþórsson, Rut Guðbrandsdóttir,
Hafþór B. Sigþórsson, Gréta Adolfsdóttir,
Jónína B. Sigþórsdóttir,
Sigurður J. Sigþórsson,
Olga B. Sigþórsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ARNDÍSAR ÞORVALDSDÓTTUR
fyrrverandi kaupmanns,
Hæðargarði 29,
Reykjavík.
Haukur Benediktsson,
Erna Hauksdóttir, Júlíus Hafstein,
Þorvaldur Hauksson, Kolbrún Jónsdóttir,
Benedikt Hauksson, Guðlaug Sveinsdóttir,
Haukur Þór Hauksson, Ásta Möller,
Hörður Hauksson, Jóna Jakobsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför bróður okkar, mágs
og frænda,
VIGFÚSAR K. GUNNARSSONAR
löggilts endurskoðanda,
Sóltúni 5,
Reykjavík.
Anna L. Gunnarsdóttir,
Óskar H. Gunnarsson, Unnur Agnarsdóttir,
Gunnhildur Óskarsdóttir, Arnór Þórir Sigfússon,
Agnar Óskarsson, Margrét Ásgeirsdóttir.
Við þökkum af alhug öllum þeim fjölmörgu
sem heiðruðu minningu okkar ástkæra
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
forstjóra Loftorku, Reykjavík,
Vonarholti,
Kjalarnesi,
og sýndu okkur hlýju og samúð við andlát og
útför hans. Samhugur ykkar og góðvild hefur
verið okkur og allri fjölskyldunni mikils virði.
Sæunn Andrésdóttir,
Kristín Sigurðardóttir, Ólafur Jónsson,
Sigurveig Sigurðardóttir, Björn Þráinn Þórðarson,
Ari Sigurðsson, Anna Ólafsdóttir Björnsson,
Freyr Sigurðsson, Mercedes Berger,
Andrés Sigurðsson, Hjördís Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, dóttur, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR ÁKADÓTTUR,
Hofteigi 8,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heima-
hlynningar Karitasar og deildar 11E á Land-
spítalanum við Hringbraut fyrir góða umönnun og vinarhug.
Jóhann Lárus Jónasson,
Áki Jóhannsson, Guðlaug Sturludóttir,
Jóhann Lárus Jóhannsson,
Jónas Jóhannsson, Dís Sigurgeirsdóttir,
Ólöf Áslaug Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
GÍSLA INGVARS JÓNSSONAR,
Miðvangi 75,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við félögum Flug-
björgunarsveitarinnar í Reykjavík og starfsfólki
líknardeildar LSH í Kópavogi.
Margrét Fjeldsted,
Daníel Gíslason, Steinunn Jónasdóttir,
Snorri Gíslason, Guðrún Lára Skarphéðinsdóttir,
Jónas Orri Daníelsson.