Morgunblaðið - 26.02.2003, Side 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 41
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13-16.30. Handavinna, spilað,
föndrað. Gestur frá kirkjukór. Bílaþjónusta
í símum 553 8500, 553 0448 og
864 1448.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700. Krakka-
klúbbar í safnaðarheimilinu: 9-10 ára
börn kl. 16-17 og 11-12 ára kl. 17.30-
18.50. www.domkirkjan.is
Grensáskirkja. Samvera aldraðra kl. 14.
Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall.
Alfa-námskeið kl. 19.30-22.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Börn og
bænir. Sr. Sigurður Pálsson, sóknarprest-
ur.
Opið hús eldri borgara í Hallgrímskirkju kl.
14. Dagskrá um Kína í umsjá Unnar Guð-
jónsdóttur, myndasýning og dans. Hug-
vekju flytur séra María Ágústsdóttir. Allir
velkomnir.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð
með orelleik og sálmasöng. Allir velkomn-
ir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safnaðar-
heimilinu (kr. 300). Kl. 13-16 opið hús fyr-
ir eldri borgara. Söngur, spjall, föndur og
tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl. 17-18.10
Krúttakórinn, börn 4-7 ára.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.-4.
bekkur) kl. 14.10. Jóhanna G. Ólafsdóttir
guðfræðinemi og Hannes Guðrúnarson
tónlistarmaður og kennari leiða starfið
ásamt sóknarpresti. TTT-fundur kl. 16.15
(5.-7. bekkur). Andri Bjarnason og Þorkell
Sigurbjörnsson leiða starfið ásamt Sigur-
birni Þorkelssyni framkvæmdastjóra safn-
aðarins og hópi ungra sjálfboðaliða. Ferm-
ingartími kl. 19.15. Unglingakvöld
Laugarneskirkju og Þróttheima kl. 20 (8.
bekkur). Umsjón hefur Sigurvin Jónsson
guðfræðinemi og Ingibjörg Dögg Kjartans-
dóttir tómstundaráðgjafi hjá Þróttheim-
um. Adrenalínhópurinn kemur saman kl.
20 á Ömmukaffi, Austurstræti 20. Krakk-
ar úr 9. og 10. bekk Laugalækjarskóla vel-
komin. Rútufar heim að fundi loknum.(Sjá
síðu 650 í Textavarpinu).
Neskirkja. Foreldramorgun kl. 10-12. Af-
mælisfundur. Foreldramorgnar 14 ára.
Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára starf
kl. 14.30. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall.
Biblíufræðsla kl. 17, rætt verður um Hirð-
isbréfin. Umsjón sr. Frank M. Halldórs-
son. Fyrirbænamessa kl. 18. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa-námskeið í
safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og
bænastund í kapellu safnaðarins í safn-
aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð, kl.
12. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir
og íhugun. Kl. 13-16 opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10-12
ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM&K
kl. 20-21.45. (Sjá nánar: www.digranes-
kirkja.is).
Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er
upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Prestar safnaðarins
þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður
Bragason. Allir velkomnir. Námskeiðið Að
búa einn kl. 20-22. KFUM fyrir drengi 9-12
ára í Grafarvogskirkju kl. 16.30-17.30.
Kirkjukrakkar, börn 7-9 ára í Rimaskóla kl.
17.30-18.30. TTT (10-12 ára) í Rimaskóla
kl. 18.30-19.30. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 8.-9. bekk í Engjaskóla kl. 20-22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12.
Opið hús kl. 12. Léttur hádegisverður og
skemmtileg samverustund. TTT-starf fyrir
10-12 ára kl. 17. Tólf spora námskeið kl.
20.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börn-
um í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Starf með 10-12 ára börn-
um TTT á sama stað kl. 17.45-18.45.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19 Alfa-nám-
skeið í safnaðarheimili Lindasóknar, Upp-
sölum 3.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega
velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðs-
fundur fyrir unglinga 14-15 ára kl. 20.
Biblíulestraröð Seljakirkju kl. 19.30 ann-
an hvern miðvikudag. Næsti lestur er í
dag, 26. febrúar.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13-16 í samstarfi við Félag eldri borgara á
Álftanesi. Notalegar samverustundir með
fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Er-
lendur sjá um akstur á undan og eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10-12. Hittumst
og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir
börnin. Allir foreldrar velkomin með eða
án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og
brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er
að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests
eða kirkjuvarðar. Opið hús fyrir eldri borg-
ara í dag kl. 13. Gott tækifæri til að hitt-
ast, spjalla saman, spila og njóta góðra
veitinga. Verð velkomin.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10-12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
16.20 TTT yngri, 9-10 ára krakkar í kirkj-
unni. Undirbúningur æskulýðsdags. Kl.
17.30 TTT eldri, 11-12 ára krakkar í kirkj-
unni. Undirbúningur æskulýðsdags. Sr.
Þorvaldur Víðisson og leiðtogarnir. Kl. 20
opið hús í KFUM&K fyrir æskulýðsfélagið.
Hulda Líney Magnúsdóttir.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3.
hæð, frá kl. 10-12. Umsjón hefur Arndís
L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjalta-
dóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafells-
kirkju. Unnið í 12 sporunum.
Keflavíkurkirkja. . Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði,
allir aldurshópar. Umsjón Sigfús B. Ingva-
son. Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá kl.
19.30-22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson.
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). For-
eldramorgun í Safnaðarheimilinu í dag kl.
10.30 í umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petr-
ínu Sigurðardóttur. Baldur Rafn Sigurðs-
son.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróðleikur
og samvera. Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20. Í blíðu og stríðu. Albert
Bergsteinsson talar og Kristín Bjarnadótt-
ir með frásagnir af kristniboðinu. Allir vel-
komnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgun kl. 10.
Lovísa frá Abaco kynnir þjónustu fyrirtæk-
isins. ÆFAK, yngri deild, kl. 20.
Safnaðarstarf
Í DAG, miðvikudaginn 26. febrúar
kl. 13:30, verður haldinn fræðslu-
og umræðufundur í Safnaðarheim-
ili Dómkirkjunnar, Lækjargötu
14a, um atvinnumissi – áhrif hans á
líðan fólks og hvernig skynsamlegt
er að bregðast við.
Margir eiga vísan stuðning frá
fjölskyldu, vinum, kirkjunni og fé-
lagasamtökum, þegar þeir verða
fyrir mótlæti sem atvinnumissi.
Engu að síður getur verið gagnlegt
að koma saman og leiða hugann að
því hvaða áhrif mótlæti sem þetta
hefur á hugarástand og líðan fólks,
hvernig hægt er að glíma við erf-
iðleikana og forðast lífskreppu.
Þess vegna stendur kærleiksþjón-
ustusvið Biskupsstofu fyrir
fræðslu- og umræðufundi.
Á fundinum mun Pétur Tyrfings-
son sálfræðingur halda fyrirlestur
með yfirskriftinni Ég þoli, ég get,
ég skal … Í erindinu mun hann
ræða líðan fólks þegar það verður
fyrir mótlæti eins og atvinnumissi
og hvernig hægt er að bregðast
skynsamlega við. Í framhaldi af fyr-
irlestrinum verður þátttakendum
gefin kostur á umræðum.
Allir eru velkomnir.
Fundarstjóri er Bryndís Val-
bjarnardóttir guðfræðingur.
Helgistund í
Grafarvogskirkju
HELGISTUND í hádegi kl. 12:00.
alla miðvikudaga. Altarisganga og
fyrirbænir. Prestar safnaðarins
þjóna fyrir altari, orgelleikari
Hörður Bragason.
Boðið er upp á léttan hádeg-
isverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir.
Prestar Grafarvogskirkju.
Áhrif atvinnu-
missis á
líðan fólks
Morgunblaðið/Jim Smart
Dómkirkjan.
BRÉF TIL BLAÐSINS
ÞAÐ eru aldeilis loforðin eina
ferðina enn, lækka skatta, millj-
arðar í atvinnubótavinnu (eins og
var fyrir nokkrum áratugum með
atvinnubótavinnuna) og ekkert
minnst á heilbrigði þjóðarinnar.
Og enn þann dag í dag hefur lítið
verið að marka blessaða ráða-
mennina með loforðin, ekki eru nú
barnakortin sem Framsókn lofaði
sem mest fyrir síðustu kosningar
(hlakkaði í gamla karlinum mér að
fara að geta börn og gat börn en
ekkert barnakort), þannig að ég
barasta sagði unga fólkinu sem er
að vinna með mér að endilega ekki
byrja á því að eignast börn fyrr en
Framsókn væri búin að efna lof-
orðið með barnakortin. Sagði við
unga fólkið að hlusta endilega eftir
viðbrögðum, og ekki síst athuga
hvort að það borgi sig að eiga
barn, það er ekki allt gefið hvort
sem er fyrir börnin og eða alla
hina sem eru orðnir yfir 18 ára!
Hvað með mömmu gömlu (ljótt að
segja gömlu), hún verður áttræð í
júlí, hún hefur varla efni á því að
fara til læknis, vegna þess að
hennar lífeyrir og bætur duga
varla til að framfleyta henni. Hvað
með allt það fólk sem er búið að
safna í alla þessa sjóði í öll þessi
ár? Þá er peningurinn ekki svo
mikill eftir að búið er að taka
skattinn af. Tvíborgaður og jafnvel
þríborgaður skattur, er þetta rétt-
látt!? Þetta er það sem fólk má bú-
ast við miðað við skattalögin í dag.
Ég sé ekki fram á það að hafa efni
á að fara til læknis aftur (er búinn
að fara einu sinni) því ekki er það
ódýrt. Það er af sem áður var er
gamli Alþýðuflokkurinn kom
ásamt öðrum flokkum á Sjúkra-
samlaginu, og reif það svo niður
með þessum nýju Ameríkusjúkra-
lögum, þannig að fólk þarf að
borga. Við Íslendingar vorum
stoltir á þeim tíma, og einhverjir
tóku upp okkar kerfi og gagnast
það vel ennþá annó 2003 úti í
heimi! En í Bandaríkjunum eru til
sjúkrahús sem taka við fólki sem
ekki hefur sjúkratryggingu! Hérna
er þetta orðið það sama, fólk hefur
einfaldlega ekki efni á að leita sér
læknisþjónustu, og eftir að fá-
keppnin kom á lyfjamarkaðinn þá
virðast einhverjir ráða ofsaháu
lyfjaverði, ekki eru tollarnir og að-
flutningsgjöldin svo mikil. Eru
þetta kannski gjöldin frá ríkinu, og
eru þetta einhver samráð með
(Heilsustofnun) ráðuneytinu og
tryggingunum, að fólk þurfi að
tryggja sig fyrir öllum andsk...
veikindum og þaðan af verra – ég
bara spyr. Fólk ætti nú að fara að
íhuga þessi mál, og sjá hvernig
hefur verið farið með okkur Ís-
lendinga. (Einn franskur vinur
minn spurði hvað eruð þið að
hugsa, þið eru öll rugluð, enginn
þorir neinu, sjáðu hvað við gerðum
úti í Evrópu!) Sagði sannleikann
um okkur molbúana; við gætum
því miður ekki staðið saman, það
kjaftar hver tuska í sínu horni, og
þegar þarf að greiða atkvæði þá er
það bara út af skyldurækni við
gamla Flokkinn. Og var honum
brugðið við að Islandeeerne (mín
túlkun á okkar landsnafni) hefðu
ekki einu sinni rænu til að mót-
mæla einu né neinu sem viðkemur
samfélaginu, frá A til Ö. Þá er
stjórnsýslan ekki undanskilin.
Menn hafa, eins og hann sagði,
verið reknir fyrir minna en Jonsen
gerði. En Íslendingar – og þá segi
ég þetta til tilvonandi foreldra og
þeirra sem á eftir koma – ekki
taka neitt sem gefið, þessi rík-
isstjórn er búin að svíkja mörg
gömlu kosningaloforðin, þannig að
það er tími til kominn að Fólkið
rísi upp og segi nei við Óstjórn og
Kosningaloforðum. Látið verkin
tala, sagði einhver fyrir mörgum
árum, en þá er að athuga hvort
verkin hafi verið unnin, ekki mikið
nema á fárra manna hendur. Sam-
anber þjóðareign okkar Íslend-
inga, kvótinn. Hverjir fengu hann
og hverjir högnuðust á kílóum og
tonnum, og hverjir keyptu? Ekki
ég, lítilmagninn og ekki heldur
hinir sem vinna myrkranna á milli
til að láta enda ná saman. Er þetta
boðskapurinn ykkar, ráðamenn, að
plata fólkið (þá ginnkeyptu) með
sömu rullunni? Ég bara spyr.
ÖRN INGÓLFSSON,
Granaskjóli 34, 101 Reykjavík.
Kosningaloforð
Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks
Frá Erni Ingólfssyni:
EKKI hafa allir þeir sem andvígir
eru stíflugerð við Kárahnjúka kos-
ið að mæta á Austurvöll í hádeginu
– en þökk hafið þið öll sem þar haf-
ið mætt. Ég vona að svipuð
stemmning og ríkti í Borgarleik-
húsinu hafi blundað innra með ykk-
ur í haust og í vetur. Þvílíkt hita-
mál sem ekki var til umræðu fyrir
síðustu kosningar á að keyra í gegn
og hunsa óskir landsmanna um
þjóðaratkvæði.
Ég rakst á bæn í BÆNABÓK
sem séra Karl Sigurbjörnsson tók
saman 1992 og á hún vel við – fyrir
alla aðila málsins og hljóðar þannig
„Guð í önnum dagsins – Við þökk-
um þér, Guð, fyrir dagleg störf.
Lát okkur skilja að við vinnum ekki
aðeins fyrir okkur sjálf, heldur all-
an heiminn sem þú hefur skapað.
Gef okkur gleði og kraft og færni í
störfum okkar öllum. Hjálpa okkur
þegar vinnan er okkur erfið og ein-
hæf, og þegar atvinnuöryggi er
ógnað. Lát deilur og andstæð sjón-
armið fá lausn á þann hátt sem
verður öllum fyrir bestu. Gef okkur
hugrekki og fúsleik að standa gegn
ranglæti. Ver nálægur okkur í því
sem auðvelt er, og í erfiðleikum öll-
um, nú og ávallt. Í Jesú nafni.
Amen.“ Ég vil að lokum skora á
Guðmund Pál Ólafsson að bjóða sig
fram til embættis forseta Íslands.
SVEINN JÓHANNSSON,
stjórnarmaður í Sjálfboðaliða-
samtökum um náttúruvernd.
Varið
land II.
útgáfa
Frá Sveini Jóhannssyni:
alltaf á föstudögum
Bókamarkaður
Félags íslenskra
bókaútgefenda
h
in
n
e
in
i s
an
ni
bó
kamarkaður
Kópavogi:
Smáralind,
sími 562 9701.
Akureyri:
Hafnarstræti 91-93,
2. hæð,
sími 663 1224.
aðeins
nokkrir dagar eftir!
Mundu! Lýkur 2. mars
Opið 10 til 19
Líka um helgar
KÁRSNESBRAUT
Hörkugóð 96 fm neðri hæð í góðu húsi ásamt 30 fm bílskúr, búið er að
endurnýja eignina á afar smekklegan máta, nýjar inn-
réttingar, gólfefni, rafmagn, lagnir og fl.
Verð aðeins 14,9 millj.
Skúlagata 17, Rvk, 595 9000
Hlíðasmári 15, Kóp., 595 9090
holl@holl.is • www.holl.is
Opið virka daga kl. 9-18, laugard. kl. 12-14.