Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 43 DAGBÓK Sumarsendingin frá Rowan og Jaeger er komin Nýtt garn, nýir litir Laugavegi 59, 2. hæð, sími 551 8258. 7 ný prjónablöð. Vertu áskrifandi og fáðu afslátt af garni. Hringdu núna! MEÐ MORGUNKAFFINU STJÖRNUSPÁ Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Afmælisbarn dagsins er at- hugult og veltir hlutunum fyrir sér áður en það lætur til skarar skríða. Það hjálpar því að ná takmarki sínu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú getur lært mikið á því að skiptast á skoðunum við vini þína. Það mun verða tekið eftir afstöðu þinni og verður þér til hróss, þegar allt fellur í ljúfa löð á ný. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert vonsvikin/nn vegna þess að fólk stendur ekki undir væntingum þínum. Það er ástæðulaust að kaupa allt sem hugurinn girnist, betra er að vanda valið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Dagurinn hentar vel til að taka á leyndarmálum eða feimnismálum. Að ætla sér að gleypa heiminn er vísasta leiðin til þess að ekkert tak- ist. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú stendur andspænis upp- gjöri við gamlan vin. Farðu þér hægt í umgengni við hitt kynið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú hefur í hyggju að taka þér tak í mataræði, en farðu ró- lega af stað. Þú ert mörgum góðum gáfum gæddur og átt að nota þær. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Haltu þig fjarri skarkalanum meðan mesta ásóknin í nær- veru þína gengur yfir. Þá léttir lipurðin oft samskiptin. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ef þú heldur rétt á spilunum mun þér ganga allt í haginn jafnt á vinnustað sem heima fyrir. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur lagt hart að þér. Treystu á sjálfan þig því aðr- ir munu ekki leysa þessi mál fyrir þig. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Vertu viðbúin/nn því að þurfa að verja málstað þinn fyrir háttsettum aðilum. Gerðu það sem til þarf að koma þér í samt lag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Nú er tíminn til þess hafa samband við vini og vanda- menn, einkum þá, sem þú hefur ekki séð lengi. Skoð- anaskipti eru eðlileg ef allrar kurteisi er gætt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gefðu félaga þínum þann tíma sem hann þarf til að hugsa málin og vertu bara ró- leg/ur því þið getið tekið upp þráðinn áður en þú veist af. Taktu þér tak. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú þarftu að komast að nið- urstöðu í máli, sem þú hefur lengi velt fyrir þér. En ekki síður þarf að þjálfa hugann og næra andann. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. TÍMINN Þá eg vil feginn þú fljúgir sem valur, sem fjöllin og jöklarnir stendurðu þá, hvíldarlaust næðir þinn helkuldinn svalur, svo hjartað í brjóstinu finnst eigi slá, þú leyfir mér aðeins að líta til baka á lífið, er eg hef mátt eyða í sekt, að knýja þig fram eða í taumana taka, og tefja þig, það er jafn-ómögulegt. En þegar svo dregur frá sólunni um síðir og sólgeislinn boðar mér himneskan frið, og þá eg vil helzt, að þú bíðir og bíðir og bið þig með tárum að standa nú við. Þá held eg Andskotinn færi þér fjaðrir, svo fljúgir þú skjótt með þá unaðarstund. Já, þú er mér bölvaður allt eins og aðrir, ónotagepill og kaldur í lund. Páll Ólafsson LJÓÐABROT Hxc6+! Hxc6?! Það var betra að reyna halda jafn- tefli með peði minna og hafa biskupaparið eftir 19. …Bxc6 20. Bxc4+ Kf5 21. Bd3+ Ke6 22. He1+ Kd7 23. Bf5+ Kd8. Í fram- haldinu fær hvítur tvö létta menn fyrir menn og dugði það til sigurs. 20. Rd4+ Kd7 21. Rf5 Hb1 22. Rxe7 Hxc1 23. Rxd5 Hxd1+ 24. Bxd1 Hd6 25. Re3 Hd3 26. Ba4+ Kd6 27. Rxc4+ Kc5 28. Re3 Hxc3 29. Kf1 g6 30. Ke2 Kd4 31. Rc2+ Ke4 32. Bb3 f5 33. h4 f4 34. Re1 Kf5 35. Rf3 Hc7 36. Kd3 h6 37. Kd4 g5 38. Bc4 Hd7+ 39. Bd5 Hc7 40. hxg5 hxg5 41. Be4+ Kf6 42. Re5 Hc1 43. Rd3 Hc2 44. a4 Ha2 45. Bc6 Hc2 46. Kd5 g4 47. Rxf4 Hxf2 48. g3 Kf5 49. Bd7+ Kg5 50. Re6+ Kh5 51. Rc5 Hf3 52. Re4 Hd3+ 53. Ke5 Ha3 54. Be8+ og svartur gafst upp. 8. um- ferð Stórmóts Hróksins hefst í dag kl. 17 að Kjar- valsstöðum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0–0 Be7 8. c4 Rb4 9. Be2 Be6 10. Da4+ Dd7 11. Dxd7+ Kxd7 12. Rc3 Rxc3 13. bxc3 Rc6 14. Hb1 dxc4 15. d5 Bxd5 16. Hd1 Ke6 17. Hxb7 Hab8 18. Hxc7 Hhc8 Staðan kom upp í Stór- móti Hróksins sem fram fer að Kjarvalsstöðum þessa dagana. Alexei Shir- ov (2.723) hafði hvítt gegn Etienne Bacrot (2.671). 19. Þessar duglegu stúlkur, Herdís Harðardóttir og Inger Ósk Sandholt, söfnuðu 6.116 kr. til styrktar Rauða krossi Ís- lands. Subaru-sveitin vann alla erlendu keppinauta sína á Flugleiðamótinu, þar á meðal sænska landsliðið 24-6. Leikurinn bauð upp á miklar sviptingar, til dæmis voru tvær alslemm- ur í kortunum. Hér er önnur, sem reyndar féll: Suður gefur; NS í hættu. Norður ♠ ÁG92 ♥ ÁKG2 ♦ G976 ♣K Vestur Austur ♠ 10 ♠ 4 ♥ 103 ♥ 9654 ♦ 10854 ♦ KD3 ♣G96432 ♣§ D10875 Suður ♠ KD87653 ♥ D87 ♦ Á2 ♣Á Á öðru borðinu sátu Sví- arnir ungu Nyström og Bertheau í NS. Þeir gátu rannsakað spilið óáreittir og enduðu í sjö gröndum, sem er vissulega góður ár- angur. Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson fengu hins vegar lítinn frið á hinu borðinu. Þar var villi- kötturinn Peter Fredin í austur og hann sleppir sjaldan tækifæri til að hræra í sagnpottinum: Vestur Norður Austur Suður Lindkvist Jón Fredin Þorlákur – – – 1 spaði Pass 2 grönd 3 lauf 4 grönd 6 lauf Dobl Pass 6 tíglar Pass 6 hjörtu Pass 7 spaðar Pass Pass Pass Magnus Lindkvist er raunar furðu rólegur að hindra ekki yfir einum spaða Þorláks með þrem- ur laufum, en hann er kannski orðinn vanur því að makker hans sjái um þá hlið mála. Svar Jóns á tveimur gröndum sýndi slemmuáhuga í spaða og þá stakk Fredin sér inn á þremur laufum á fimmlit- inn. Þorlákur ákvað að spyrja strax um lykilspil og nú vaknaði Lindkvist til lífsins með stökki í sex lauf. Dobl Jóns sýndi jafna tölu lykilspila (tvo ása í þessu tilfelli) og Þorlákur hélt alslemmuleitinni lif- andi með sex tíglum. Jón sýndi hjartastyrkinn með sex hjörtum og Þorlákur lét vaða í sjö. Vel að verki staðið, en engin sveifla. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Það hafa allar ránstilraunir misheppnast eftir að ungfrú Jóhanna fór að vinna hérna. Ég viðurkenni að þú hefur gefið mér bestu ár lífs þíns. En voru það ekki árin 1959 og 1960! HLUTAVELTA Bridsfélag Selfoss og nágrennis Lokaumferð aðalsveitakeppninn- ar var spiluð þann 20. febrúar sl. Úr- slit urðu þessi: Anton og félagar – Sigfinnur og fél. 10-20 Brynjólfur og fél. – Kristján og fél. 14-16 Garðar og fél. – Höskuldur og félagar 14-16 Ólafur og félagar – Þórður og félagar 18-12 Lokastaðan í mótinu varð þessi: Ólafur og félagar 146 Höskuldur og félagar 119 Brynjólfur og félagar 110 Þórður og félagar 105 Kristján og félagar 103 Garðar og félagar 86 Sigfinnur og félagar 84 Anton og félagar 79 Í sveit Ólafs og félaga spiluðu Ólafur Steinason, Guðjón Einarsson, Guðmundur Sæmundsson og Hörð- ur Thorarensen. Í sveit Höskuldar og félaga spiluðu Höskuldur Gunn- arsson, Jón Smári Pétursson, Magn- ús Guðmundsson, Gísli Hauksson, Þorvaldur Pálmason og Jón Viðar Jónmundsson. Í sveit Brynjólfs og félaga spiluðu Brynjólfur Gestsson, Guðmundur Theodórsson, Örn Guð- jónsson, Sturla Þórðarson, Stefán Short og Halldór Höskuldsson. Í samanburði á árangri einstakra para varð staða efstu para þessi (svigatalan er fjöldi spilaðra hálf- leikja hjá parinu): Ólafur Steinas. - Guðjón Einarss. 18,56 (14) Gísli Haukss. - Magnús Guðm. 17,30 (14) Brynjólfur Gestss. - Guðm. Theod. 16,49 (14) Garðar Garðarss. - Auðunn Herm..15,82 (10) Guðmundur Sæm. - Hörður Thor. 15,51 (14) Næsta mót er 4 kvölda aðaltví- menningur félagsins, sem nefnist Sigfúsarmótið, og hefst það fimmtu- daginn 27. febrúar. Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 26 pör til keppni þriðjudaginn 18. febrúar sl. Loka- staða efstu para í N/S varð þessi: Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 360 Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 344 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 344 Hæsta skor í A/V: Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 376 Guðm. Þórðars. - Magnús Þorsteinss. 351 Aðalbj. Benediktss. - Jóh. Guðmanns. 345 Á föstudag mættu 20 pör og þá urðu úrslitin þessi í N/S: Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 245 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 241 Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 240 Hæsta skorin í A/V: Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 278 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 262 Bent Jónsson - Garðar Sigurðsson 234 Meðalskor á þriðjudag var 312 en 216 á föstudag. Bridsfélag Kópavogs Sl. fimmtudag hófst tveggja kvölda Board a Match sveitakeppni og er staða efstu sveita þannig: Júlíus Snorrason 40 Ragnar Jónsson 38 Erla Sigurjónsdóttir 28 Þorsteinn Berg 28 Félag eldri borgara í Hafnarfirði Spilaður var tvímenningur á 6 borðum hjá eldri borgurum í Hafn- arfirði föstudaginn 21. feb. 2003. Úr- slit urðu þessi. Árni Guðmundsson – Sævar Magnúss. 132 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 129 Magnús Halldórss. – Sigurlín Ágústsd. 128 Björn Björnsson – Heiðar Þórðarson 109 Bridsfélag SÁÁ Sunnudagskvöldið 23. febrúar sl. var spilaður tíu para Howell-tví- menningur og urðu þessi pör hlut- skörpust (meðalskor 108): Harpa Fold Ingólfsd.– Þórður Sigurðss. 130 Sigurður Þorgeirss. – Einar L. Péturss. 128 Baldur Bjartmarss. – Gunnar Andréss. 126 Jóna Samsonard. – Kristinn Stefánsson 120 Næsta spilakvöld félagsins er sunndaginn 2. mars. Spilastaður er Lionssalurinn að Sóltúni 20. Um- sjónarmaður er Matthías Þorvalds- son (sími 860-1003) og veitir hann að- stoð við myndun para, sé þess óskað. Bridsfélag Akraness Að loknum 12 umferðum í Akra- nesmótinu í sveitakeppni er sveit Hársnyrtingar Vildísar efst með 222 stig, þar á eftir kemur sveit Öldung- anna með 221 stig þá Sveit Árna Bragasonar með 218 stig, í 4 sæti er Sveit Tryggva Bjarnasonar með 201 stig. Borgnesingar ljúka sinni sveita- keppni nk. miðvikudag en þar líkt og á Akranesi eru spilaðar 2 umferðir á kvöldi. Á toppnum trónir sveit Rún- ars Ragnarssonar með 226 stig, á hæla hennar kemur sveit Jóns H. Einarssonar með 214 stig, þar á eftir koma sveit Elínar Þórisdóttur með 186 stig og sveit Flemming Jessen með 183 stig. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Nýr listi www.freemans.is fyrirtaeki.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.