Morgunblaðið - 11.03.2003, Page 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2003 33
En hversu torskildar eru mér hugsanir
þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær
allar samanlagðar.
(Sálmur 139. vers 1–2 og 13–17.)
Þessi sálmur kemur í hug þegar
hugsað er til Svövu, sem nú er okkur
horfin, langt fyrir aldur fram. Við töl-
uðum oft saman um frelsara okkar,
Jesú Krist, og ekki alls fyrir löngu
skrifaði hún í tölvupósti til annarrar
okkar: „Ég elska Drottin og Drottinn
veit það sannarlega. Hann á hjarta
mitt.“ Þessi orð ylja okkur um
hjartarætur og verða dýrmætur
hluti af öllum góðu minningunum um
Svövu.
Við erum harmi slegnar og skiljum
ekki hvers vegna hún dó svona ung.
Við tökum undir með Davíð konungi,
þar sem hann segir í Sálmi 139, versi
17: „En hversu torskildar eru mér
hugsanir þínar, ó Guð.“ En eitt er
víst að Svava er nú hjá honum, sem á
hjarta hennar, eins og hún sagði. Í
Opinberunarbókinni 21. 4-5 segir:
„Og Hann mun þerra hvert tár af
augum þeirra. Og dauðinn mun ekki
framar til vera, hvorki harmur né
vein né kvöl er framar til. Hið fyrra
er farið. Og sá, sem í hásætinu sat,
sagði: „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja.“
Við látum huggast við þessi orð og
treystum Guði.
Að lokum er það bæn okkar að Guð
megi gefa líkn með þraut ástvinum
Svövu. Við biðjum Guð sérstaklega
að vernda og styrkja Abigail litlu,
sem nú syrgir sárt móður sína sem
var henni allt.
Ragnhildur Hjaltadóttir,
Regína Hrönn Ragnarsdóttir.
Í dag kveðjum við elskulega vin-
konu okkar. Við minnumst þín með
bros á vör um þær góðu og ekki síst
þær skemmtilegu stundir er við átt-
um saman.
Við kynntumst Svövu fyrir meira
en tíu árum og upphófst þá vinskapur
okkar. Við minnust þess tíma er vina-
hópurinn var ávallt saman, þú hélst
fjörinu oft uppi með hinum ýmsum
uppátækjum sem komu okkur stöð-
ugt á óvart. Ævintýraþráin var mikil
hjá þér, meðal annars ákvaðst þú að
skella þér sem au-pair til Þýska-
lands. Þú naust þín vel þegar mikið
var um að vera og alltaf til í tjúttið.
Ekki má gleyma hvað þér þótti gam-
an að rúnta á laugardagskvöldum og
farið var á ýmsa staði. Þrátt fyrir
mikið grín og fjör var ávallt hægt að
leita til þín á erfiðum stundum. Þú
varst einstök manneskja og traustur
vinur. Þegar við fórum að eldast tók
alvaran við, við stofnuðum fjölskyld-
ur og samskipti okkar fóru að
minnka, en vináttan var alltaf til
staðar. Þú eignaðist litla yndislega
stelpu, hana Abigail. Hún var þinn
augasteinn. Hugur okkar verður
ávallt með þér og varðveitast minn-
ingar um þig að eilífu.
Við kveðjum þig með söknuði og
vottum fjölskyldu þinni okkar inni-
legustu samúð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Þínar vinkonur
Berglind, Fríða og Silja.
Ástarfaðir himinhæða,
heyr þú barna þinna kvak,
enn í dag og alla daga
í þinn náðarfaðm mig tak.
(Steingrímur Thorsteinsson.)
Mennirnir ætla en Guð ræður er
það fyrsta sem kemur upp í huga mér
eftir að ég fékk þessar slæmu fréttir
um að þú, Svava mín, hefðir yfirgefið
þennan heim.
Ég kynntist þér fyrst árið 1998,
þegar ég flutti í Jörfabakka 28, þá
bjóst þú í íbúðinni fyrir neðan mig.
Okkur kom mjög vel saman frá byrj-
un og það var eins og við hefðum allt-
af þekkst. Þær urðu ófáar heimsókn-
irnar okkar hvorrar til annarrar því
við áttum börn á sama aldri. Eftir að
þú fluttir upp í Hóla urðu heimsókn-
irnar aðeins færri en alltaf gaman að
hittast eins og áður. Það var svo á síð-
asta ári sem við fórum að hittast
meira þegar ég flutti í Hólana, þá
komst þú svo oft við heima hjá mér
og við drukkum te og með því, þá var
mikið spekulerað og rætt um okkar
drauma og framtíðarplön. Þú ætlaðir
að ganga menntaveginn, það var þinn
draumur ásamt því að skrifa, en eins
og þú sagðir alltaf „Ég kann að
skrifa, ég er eins og sagt er góður
penni“. En því miður kom kallið alltof
snemma.
Kæra Svava mín, ég kveð þig nú
með söknuði því það er alltaf erfitt og
óskiljanlegt af hverju svona ung kona
í blóma lífsins sem hafði ætlað sér
meira í lífinu hverfur úr þessum
heimi, en eitt get ég þó huggað mig
við að Guð hafi ætlað þér æðra og
mikilvægara verkefni.
Ég vil þakka fyrir að hafa fengið
að kynnast þér Svava mín, þó hefði
ég óskað að stundirnar hefðu getað
verið fleiri.
Elsku Abigail mín, ég veit að miss-
ir þinn er mikill því þið voruð svo
góðar vinkonur. Ég vil votta þér og
fjölskyldu þinni mína dýpstu samúð
og megi Guð gefa ykkur styrk í sorg-
inni.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Halldóra Margrét
Magnúsdóttir.
Í dag kveðjum við hana Svövu,
þessa elsku, sem svo skyndilega
kvaddi þennan heim. Ég leita í hjarta
mínu að orðum til að setja saman til
minningar um hana eins og hún kom
mér fyrir sjónir. Þá kom þar fyrst sú
mynd að hún var eins og engill þegar
hún sat á móti manni og brosti sínu
yndislega, glaðlega brosi og með fal-
legu möndlulöguðu augun sín sem
sýndu fram á hvernig hægt er að
slappa af og njóta líðandi stundar.
Hún kom alltaf við hjá mér þegar
hún kom upp í „sumó“ að heimsækja
afa sinn. Og hún gaf sér góðan tíma
til að rabba um daginn og veginn og
byrjaði alltaf að spyrja hvernig ég
hefði það og hvað væri að frétta af
minni fjölskyldu. Hún vildi fyrst fá
allt um mig áður en hún fór að segja
mér frá sjálfri sér.
Hún var inni í mörgum málum sem
hún hafði lesið um, þar á meðal voru
trúarbrögð. Hún skrifaði mikið um
það sem henni lá á hjarta. Henni
fannst gott að tjá sig með penna og
pensli. Hún málaði fallegar myndir
og sótti myndlistarnám sitt í fjöl-
brautaskóla. Hún sagði mér því, þeg-
ar hún hafði lokið stúdentsprófi og þá
var það bara ein af þeim fréttum sem
henni fannst sjálfsagt að ég ætti að
vita. Og þá undrast maður yfir sjálf-
um sér og hversu lítið maður veit um
þá sem ekki láta mikið yfir sér og
vinna bara að sínum málum í hljóði.
Þegar við hittumst, þó að það væri
bara einu sinni á ári, þá var það eins
og það hefði verið í gær eða hinn. Svo
sjálfsagt var að taka upp þráðinn aft-
ur. Þegar hún var lítil þá sagði pabbi
hennar að hún hefði alltaf viljað
koma til mín í heimsókn þegar hann
var úti að keyra með dætur sínar. Þá
myndaðist þessi vinartaug á milli
okkar og hennar elskulegu systur
sem hefur verið órofinn þráður í
gegn um tíðina síðan.
Hinn 13. febrúar sl. átti afi hennar
85 ára afmæli og þá vildi hann fá öll
afabörnin til sín. Þar átti fjölskyldan
saman góða stund ásamt Svövu og
dóttur hennar. Gott er að eiga góðar
minningar um samverustundir sem
aldrei koma aftur. Lífið er svo örstutt
spor en það getur verið auðnuspor er
stígur til himna. Elsku litla Abigail
sagði við Björgu móðursystur sína:
„Nú er mamma mín engill hjá guði.“
Svona talar barn sem hefur fengið
kærleiksríkt og kristilegt uppeldi.
Megi ljósið skína á þær fallegu minn-
ingar sem þessi litla vina hefur átt
með móður sinni. Og megi lífið fara
um hana mildum höndum.
Fjölskylda mín sendir öllum að-
standendum Svövu innilegar samúð-
arkveðjur. Megi góður guð varðveita
hana og blessa minningu hennar.
Súsanna Kristinsdóttir.
✝ Guðrún Guð-brandsdóttir
fæddist á Spágils-
stöðum í Laxárdal í
Dölum 5. september
1912. Hún andaðist á
Landspítalanum við
Hringbraut, hjarta-
deild, 1. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
Guðrúnar voru Guð-
brandur Jónsson,
bóndi á Spágilsstöð-
um, f. 30.8. 1873, d.
9.9. 1944, og Sigríð-
ur Margrét Sigur-
björnsdóttir kona
hans, f. 7.2. 1876, d. 14.3. 1946.
búsett hefur verið í Noregi frá
lokum síðara stríðs, og að miklu
leyti Báru Þórðardóttur, f. 1924,
d. 2001, sem ættuð var úr Vest-
mannaeyjum.
Guðrún Guðbrandsdóttir lauk
prófi frá Ljósmæðraskóla Íslands í
Reykjavík haustið 1944. Hún
hvarf þá aftur heim að Spágils-
stöðum og gerðist ljósmóðir í
heimasveit sinni, Laxárdalshreppi
í Dölum, og gegndi því starfi til
ársins 1973, er hún flutti búferlum
til Reykjavíkur. Frá 1947 til 1970
þjónaði hún einnig Haukadals-
hreppi í Dölum, og vesturhluta
Dalasýslu frá 1970 til 1973. Eftir
komuna til Reykjavíkur starfaði
Guðrún á fæðingardeild Landspít-
alans við Hringbraut þar til hún
náði eftirlaunaaldri.
Útför Guðrúnar verður gerð frá
Áskirkju í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Systkini Guðrúnar
eru: Sigrún, f. 1900, d.
1968, Guðmundur, f.
1901, d. 1932, Markús,
f. 1902, d. 1966, Ása,
f. 1903, d. 1972, Hin-
rik, f. 1905, d. 1940,
Guðríður, f. 1906,
Jón, f. 1907, d. 1931,
Kristmundur, f. 1909,
d. 1999, Sigurbjörn, f.
1913, d. 2000, og Sig-
urður, f. 1915, d.
1932. Auk ellefu
barna sinna ólu þau
Guðbrandur og Sig-
ríður upp Láru Mar-
teinsdóttur Wiken, f. 1918, sem
Við andlát móðursystur minnar,
Guðrúnar Guðbrandsdóttur, koma
upp í hugann margar ljúfar minn-
ingar frá nær sjötíu ára kynnum.
Þegar ég kom fyrst í heimsókn að
Spágilsstöðum, þar sem afi og amma
bjuggu, var hún heimasætan á bæn-
um, rúmlega tvítug að aldri. Sumr-
unum sem í hönd fóru eyddi ég á
Spágilsstöðum og mér er enn í
minni hvað Guðrún tók þessum
unga frænda sínum af mikilli ljúf-
mennsku. Þegar ég komst til vits og
ára varð mér ljóst að kurteisi, létt
lund og ljúft viðmót voru megin-
þættirnir í skaphöfn frænku minnar.
Guðrún stundaði nám við Ljós-
mæðraskóla Íslands í Reykjavík og
lauk þaðan prófi haustið 1944. Hún
fór þá aftur heim að Spágilsstöðum
og gerðist ljósmóðir í heimasveit
sinni, Laxárdalshreppi í Dölum, og
gegndi því starfi til ársins 1973, er
hún flutti búferlum til Reykjavíkur.
Frá 1947 til 1970 þjónaði hún einnig
Haukadalshreppi, og vesturhluta
Dalasýslu frá 1970 til 1973. Á starfs-
tíma sínum í Dölunum mun Guðrún
hafa tekið á móti 162 börnum. Eftir
komuna til Reykjavíkur starfaði hún
á Fæðingardeild Landspítalans við
Hringbraut þar til hún náði eftir-
launaaldri.
Á þessum löngu liðnu árum var
starf ljósmóður í sveit afar þýðing-
armikill hluti heilbrigðisþjónustunn-
ar. Börnin fæddust nær undantekn-
ingarlaust heima og ljósmóðirin
hafði ekki aðeins það hlutverk að
taka á móti þeim, heldur einnig að
dvelja á heimilinu í nokkra daga og
vera móður og barni til halds og
trausts. Guðrún starfaði einnig á
þeim vettvangi sem nú mundi
kenndur við ungbarnaeftirlit og
mæðraeftirlit, og með því að ekki
var starfandi hjúkrunarkona á
svæðinu kom það oft í hennar hlut
að aðstoða héraðslækni og sjúkra-
flutningamenn. Þannig bar það við
að hún var fengin til að fylgja sjúk-
lingum sem sendir voru á sjúkrahús
á Akranesi eða í Reykjavík og lenti
þá stundum í erfiðum ferðum við
misjöfn veðurskilyrði, m.a. flugferð-
um með sjúkraflugvélum og þyrlum.
Guðrún var farsæl í ljósmóður-
störfum sínum og það fór ekki hjá
því að hún byndist vináttuböndum
við þær mæður sem hér áttu í hlut.
Hún gerði sér far um að fylgjast
með ferli þeirra barna sem hún hafði
tekið á móti í Dölunum og hér komu
að góðum notum meðfædd greind
hennar og áhugi fyrir ættfræði og
ættartengslum. Þó að Guðrún eign-
aðist ekki sjálf börn varð hún þannig
í vissum skilningi mikil barnakona.
Börn systkina sinna umgekkst hún
eins og væru þau hennar eigin.
Það er til marks um stöðugleik-
ann í ljósmóðurþjónustu í Laxárdal
á síðustu öld, að á tímabilinu frá
1904 til 1973 voru það aðeins þrjár
konur þar í sveit sem starfinu
gegndu. Þær voru Guðrún Jónsdótt-
ir á Vígholtsstöðum 1904-1912, Guð-
rún Sigurbjörnsdóttir á Hrapps-
stöðum 1912-1942 og Guðrún
Guðbrandsdóttir á Spágilsstöðum
1944-1973. Það var Steinunn Guð-
mundsdóttir í Geirshlíð í Miðdölum
sem hljóp í skarðið og hjálpaði nýj-
um Laxdælingum að komast í heim-
inn árin 1942 til 1944.
Í dag stefnir hugur okkar með
djúpri samúð til Guðríðar, systur
Guðrúnar, sem nú er ein eftir af ell-
efu börnum Guðbrands og Sigríðar
á Spágilsstöðum. Guðríður verður
97 ára á þessu vori og er enn við
góða heilsu. Guðrún Guðbrandsdótt-
ir dvaldi hin síðustu misseri á Norð-
urbrún og síðan á Skjóli. Það góða
fólk, sem þar veitti henni kærleiks-
ríka umönnun, á miklar þakkir skil-
ið.
Að leiðarlokum minnumst við
Inga ljúfra samfunda á heimili Guð-
rúnar og heimili okkar, nú síðast á
liðnum jólum. Við þökkum henni
vináttu og ræktarsemi í okkar garð
og barna okkar og biðjum henni
blessunar Guðs.
Sigurður Markússon.
Aðeins örfá fátækleg orð til að
kveðja þig elsku frænka mín.
Við systkinin áttum því láni að
fagna að þú bjóst á heimili okkar á
meðan við vorum að alast upp.
Þú kenndir okkur svo margt og
það var alltaf svo gott að leita til þín
um góð ráð og ef við urðum veik
varst það þú sem hélst í höndina á
okkur og gafst okkur styrk.
Ég man alltaf hvað ég gladdist
mikið þegar þú sagðist vera búin að
fá vinnu á Landspítalanum því þá
værir þú svo nálægt okkur. Ég veit
að starfið gaf þér svo mikið. Þú
fékkst að annast um öll litlu börnin
fyrstu ævidaga þeirra. Þegar þú
hættir störfum fórstu að helga þig
áhugamálinu þínu sem var handa-
vinna. Þú komst næstum aldrei svo
til okkar að þú kæmir ekki færandi
hendi með eitthvað fallegt sem þú
hafðir unnið og gafst okkur. Þú
heklaðir alltaf mikið og varst alltaf
að prófa eitthvað nýtt í þeim efnum.
Þú vannst líka mikið í leir og síðan
þegar sjónin tók að þverra þá fórst
þú að vefa.
Nægjusemi, kærleikur, umhyggja
og hógværð voru meðal þeirra
mörgu góðu kosta sem prýddu þig,
þannig munum við ávallt minnast
þín.
Við kveðjum þig nú með söknuð í
hjarta og þakklæti.
Megi góður Guð vera með þér.
Þín bróðurdóttir
Sigríður.
Guðrún Guðbrandsdóttir fékk
hvíldina 1. mars sl. Hún hafði þá
dvalist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
síðustu árin. Ég kynntist henni þó
nokkru áður, því allar götur frá því
að Skjól tók til starfa árið 1988 hef-
ur hún sýnt heimilinu velvild og ver-
ið umhugað um hag þess. Hún
dvaldi hér öðru hvoru í skammtíma-
vistun en var síðan til heimilis í
Skjóli frá 2001. Guðrún var ákaflega
hæglát kona, æðrulaus og hlýleg í
allri umgengni. Guðrún lauk námi í
ljósmóðurstörfum og var ljósmóðir í
fæðingarsveit sinni í Dölunum og
fórst það afar vel úr hendi. Hún
sagðist hafa tekið á móti um 160
börnum og allt hefði gengið að ósk-
um.
Greinilegt var að henni þótti mjög
vænt um starf sitt sem ljósmóðir og
hafði af því mikla ánægju.
Guðrún var ógift og barnlaus en
naut mikillar hlýju frá systurbörn-
um sínum sem reyndust henni afar
vel.
Frá Skjóli fylgja Guðrúnu Guð-
brandsdóttur hlýjar kveðjur og við
sendum ástvinum hennar samúðar-
kveðjur. Góð kona er gengin en
minning hennar lifir með okkur.
Rúnar Brynjólfsson.
GUÐRÚN GUÐ-
BRANDSDÓTTIR
Nýja Glæsibæ, sími 533 6129 • Smáratorgi, sími 544 4031
Hafnarfirði, sími 565 0480 • Reykjanesbæ, sími 421 1501
Heiðrum minningu látinna
Blómalagerinn • beint frá bóndanum
Fallegar, sérmerktar
GESTABÆKUR
Í Mjódd
sími 557-1960www.merkt.is
merkt
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning