Morgunblaðið - 20.04.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 61
DAGBÓK
EFTIR því sem háspilin
eru „fyrirferðarmeiri“ er
auðveldara að finna þau á
höndum andstæðinganna.
Ásar og kóngar dyljast illa,
en drottningar eiga betra
með að fela sig, og gosa er
nánast útilokað að reikna
út – svona oftast nær. Spil
dagsins snýst fljótlega upp
í gosaleit:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ 10982
♥ K102
♦ ÁD92
♣Á5
Suður
♠ KDG653
♥ D63
♦ 73
♣G4
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 lauf 2 spaðar
Dobl * 4 spaðar Pass Pass
Pass
Kerfi AV er Standard og
dobl vesturs neikvætt og
lofar fjórlit í hjarta. Vestur
kemur út með lauftíu og
þú tekur drottningu aust-
urs með ás. Og spilar
spaða. Vestur reynist eiga
spaðaásinn og hann spilar
laufníu yfir á kóng félaga
síns. Austur klórar sér í
höfðinu stutta stund, en
spilar svo smáum tígli og
vestur setur kónginn. Þú
tekur með ás og staldrar
við til að meta stöðuna.
Vörnin hefur fengið tvo
slagi og fær þann þriðja á
hjartaás. Viðfangsefnið er
að gefa ekki líka slag á
hjartagosa. AV eiga ekki
mikil spil, þótt báðir hafi
sagt. Vestur hefur sýnt
spaðaás og tígulkóng, sem
rétt nóg til að dobla tvo
spaða. En hvað með aust-
ur? Hann á laufhjónin og
örugglega hjartaásinn. Það
eru bara níu punktar. Sé
hann ekki þeim mun léttari
á bárunni á hann rauðu
gosana líka.
Norður
♠ 10982
K102
♦ ÁD92
♣Á5
Vestur Austur
♠ Á7 ♠ 4
♥ 9854 ♥ ÁG7
♦ K1064 ♦ G85
♣1098 ♣KD7632
Suður
♠ KDG653
♥ D63
♦ 73
♣G4
Ef þú kemst að þeirri
niðurstöðu, þá er úrvinnsl-
an þessi: Þú tekur tígul-
drottningu og trompar tíg-
ul. Spilar spaða á blindan
og trompar síðasta tíg-
ulinn. Loks hjarta á
drottningu og leggur upp.
Austur verður að spila út í
tvöfalda eyðu eða hjarta
frá gosanum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. c3 e6 3. d4 d5 4.
exd5 exd5 5. Rf3 Rc6 6.
Bb5 Bd6 7. O-O Rge7 8.
Rbd2 cxd4 9. Rxd4 O-O
10. R2f3 Bg4 11.
Be2 h6 12. h3
Bh5 13. Be3 Bg6
14. Bd3 Dd7 15.
Bxg6 fxg6 16.
Rb3 b6 17. He1
Hf7 18. De2
Haf8 19. Bd4
Hxf3 20. gxf3
Kh7 21. De6 Dd8
22. Kf1 Hxf3 23.
Ke2 Hf4 24. Kd3
Dc7 25. He2 Rf5
26. Dxd5 Rfxd4
27. He8
Staðan kom
upp í flokki al-
þjóðlega meistara Gausdal
mótsins sem lauk fyrir
skömmu. Leszek Ostr-
owski (2324) hafði svart
gegn Ingvari Þ. Jóhann-
essyni (2263). 27... Rb4+!
og hvítur gafst upp enda
verður hann mát eftir 28.
cxb4 Dc2+ 29. Ke3 De2#.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
60ÁRA afmæli. Sextug-ur verður á morgun,
mánudaginn 21. apríl, Arnór
L. Pálsson, framkvæmda-
stjóri Útfararstofu Kirkju-
garða Reykjavíkur, Kórsöl-
um 1, Kópavogi. Eiginkona
hans er Betsý Ívarsdóttir.
Þau hjónin dvelja á Kanarí-
eyjum á Gran Hotel Costa
Meloneras, á afmælisdag-
inn. Síminn þar er 0034-928-
128100, fax 0034-928-128122.
90 ÁRA afmæli. Í dag,20. apríl, páskadag,
verður níræð Herborg
Laufey Gestsdóttir, Furu-
gerði 1, Reykjavík.
ÁRNAÐ HEILLA
MEÐ MORGUNKAFFINU
FÖÐURLANDSMINNI
Ísland ögrum skorið,
eg vil nefna þig!
sem á brjóstum borið
og blessað hefir mig
fyrir skikkun skaparans,
vertu blessað, blessi þig
blessað nafnið hans.
Gleymt ég get þér aldrei,
göfugt föðurland!
þótt í þykkju kaldri
þetta tryggða-band
fyrnast taki fyrir mér,
vanmátturinn veldur því,
ég vil samt fylgja þér.
- - -
Eggert Ólafsson
LJÓÐABROT
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 25. apríl og
laugardaginn 26. apríl í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Tek að mér að útbúa ilmkjarnaolíublöndur fyrir börn og
fullorðna við hvers kyns kvillum. Hægt er að fá blöndur til
innöndunar, baðblöndur eða til að bera á líkamann.
Verð frá 500 krónum. Sjá nánar á www.yogastudio.is
Lísa B. Hjaltested, ilmkjarnaolíunámskeið og -ráðgjöf, s: 544 5560
ILMKJARNAOLÍU-RÁÐGJÖF LÍSU
JAKKAR, JAKKAR
GALLAJAKKAR, RÚSKINSJAKKAR,
LEÐURJAKKAR
MIKIÐ ÚRVAL GOTT VERÐ
STÆRÐIR 34-48
HLIÐARGANGINUM
SMÁRALIND
NÝJAR VÖRUR
MIKIÐ ÚRVAL OG GOTT VERÐ
STÆRÐIR 34-56
KONAN KLÆÐIR ÞIG
Af því að myndin er bönnuð börnum!
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú kannt að vilja kaupa eitt-
hvað dýrt í næsta mánuði. Þú
hefur komið auga á eitthvað
sem mun fylla þig stolti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í dag fer sólin í merki þitt og
verður þar næstu fjórar vikur.
Nú er rétti tíminn til að hlaða
orkustöðvarnar fyrir næsta
árið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Reyndu að grípa hvert tæki-
færi sem gefst til að eiga
kyrrðarstund. Þú þarft á því
að halda að íhuga málin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vinsældir þínar fara vaxandi
á næstunni. Fólk vill hitta þig
og þú vilt hitta það. Skemmtu
þér vel.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú nýtur talsverðrar athygli
um þessar mundir, kannski
vegna þeirrar stöðu sem þú
gegnir. Hver sem ástæðan er
skaltu njóta þess.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hafðu auga á tækifærum á
næstunni til að auka þekkingu
þína. Lestu meira, horfðu á
sjónvarp eða kvikmyndir en
best er ef þú fengir tækifæri
til ferðalaga.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að einbeita þér meira
að skyldumálum á borð við
tryggingar, skatta, sameig-
inlegar eignir og tekjur. Ef þú
getur komið skikk á þessi mál
mun þér líða betur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Á þessum tíma árs er sólin
eins fjarri þínu merki og
mögulegt er. Það þýðir að það
dregur úr orku þinni. Þess
vegna þarftu meiri hvíld og
svefn en ella.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú telur að þörf sé á betra
skipulagi í kringum þig. Þegar
þú þarft á einhverju að halda
viltu geta fundið það strax.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ástarmál, rómantík, sam-
kvæmi og allt sem tengist
skemmtunum verða í brenni-
depli hjá þér næstu vikurnar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki undrast þótt þú fáir
skyndilega mikinn áhuga á
heimilinu og fjölskyldunni. Þú
þarft að einbeita þér að þess-
um hlutum, einkum þar sem
börn koma við sögu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er annríki framundan.
Stuttar ferðir, samningar,
kaup og sala og aukin sam-
skipti við systkini og ná-
granna halda þér við efnið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sterkur leiðtogi. Þú
vinnur hörðum höndum í
þágu þín og annarra, eink-
um fjölskyldunnar. Á
árinu einbeitir þú þér að
samskiptum við þína
nánustu.
ATVINNA mbl.is