Morgunblaðið - 20.04.2003, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 33
mar Örn Aðalsteinsson var skemmti-
lega ofvirkur Jón (það hefur trúlega
verið lítið um himneska ró í efra síðan
hann kom), en furðulegur munur á
framsögn hans eftir því hvort hann
talaði í hljóðnema innan úr skjóðunni
(góð) eða stóð á sviðinu í eigin per-
sónu (ekki svo góð). Guðmunda Ólafs-
dóttir og Laufey Einarsdóttir voru
öflugur Óvinur. Aðrir leikarar
brugðu sér í ótal hlutverk og tókst öll-
um vel að greina milli þeirra, engum
betur þó en Valdimar Össurarsyni
sem var frábær hreppstjóri og ynd-
islegur bóndi á himnum.
Sýning Umf. Vöku er ágæt
skemmtun og óskandi að ekki líði
þrjátíu ár fram að næstu uppfærslu í
Þjórsárveri.
Þorgeir Tryggvason
Ferðalok er eftir
Jón Karl Helga-
son og kemur út í
Svörtu línunni frá
bókaforlaginu
Bjarti. Meginefnið
er saga beina Jón-
asar Hallgríms-
sonar og örlög
þeirra í skáldskap
og veruleika. Meðal efnis sem höf-
undur kannar eru skáldsögurnar At-
ómstöðin eftir Halldór Laxness og Fá-
fræðin eftir Milan Kundera en í þeim
báðum kemur beinamálið við sögu.
Jón Karl ber vitnisburð sagnanna og
fleiri nýlegra texta saman við tiltækar
frumheimildir um beinamálið. Hann
fullyrðir að þetta mál sé ekki aðeins
merkilegt fyrir þá óvissu sem skapast
hefur um innihaldið í kistu Jónasar
heldur einnig og ekki síður fyrir það
hvernig það tengist sjálfstæðisbarátt-
unni, Keflavíkursamningnum, kaþ-
ólskri dýrlingadýrkun, ódauðleikaþrá
ráðamanna jafnt sem einstaklinga,
spíritismanum á Íslandi og auðlin-
daumræðu.
Í fréttatilkynningu segir að í Ferða-
lokum sé beinamálið sett í víðtækt
og fjölbreytt samhengi og meðal ann-
ars bent á að deilurnar sem urðu um
bein Jónasar árið 1946 séu á ýmsan
hátt hliðstæðar þeim deilum sem
hafa á síðari árum orðið um ráð-
stöfun á þeim náttúruauðlindum sem
taldar eru sameign íslensku þjóð-
arinnar.
Bókin er 144 bls. og kostar 1.480
kr.
Beinamál
OPNUÐ hefur verið vefsíðan
www.heimsbokmenntir.tk og er
ábyrgðarmaður hennar Ragnar Þór
Pétursson kennari og heimspeking-
ur. Þar getur almenningur skráð sig
í hóp fólks sem stendur fyrir sérút-
gáfu helstu verka heimsbók-
menntanna.
Hagstæðir samningar
Á síðunni segir m.a. „Með mikilli
vinnu sjálfboðaliða og hagstæðum
samningum hefur tekist að halda
verði safnsins í algjöru lágmarki eða
350 kr. fyrir hverja bók. Samanburð-
ur við Amazon.com sýnir að verðið er
mörgum tugum prósenta lægra hjá
okkur en þeim. Hjá okkur kostar allt
safnið 7.000 kr. en tæp 11.000 hjá
þeim.
Þá er ótalinn flutningskostnaður
og tollar!
Allar bækurnar eru kiljur á ensku.
Vandaðar að útliti og gerð. Hver bók
byrjar á inngangi eftir valdan ein-
stakling úr úrvalshópi. T.d. munu
prófessorar í heimspeki skrifa um
heimspekilegu ritin.“
Sérútgáfa heimsbók-
menntanna á Netinu
N‡tt happdrættisár hefst 8. maí
Í hverri viku
er einhver
a› vinna
-vinningur í hverri v iku
• 20 milljónir í a›alvinning á tvöfaldan mi›a og
4 milljónir í hverri viku
• 626 milljónir í heildarver›mæti á árinu
...og allt skattfrjálst!