Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 1
Sálumessa
í fyrsta sinn
Stríðssálumessa Brittens undir
stjórn Ashkenazys Lesbók
Hvergi klippt
í talað mál
Andstaða Íslendinga gegn
stríðinu í Írak Fólk 68
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, talsmaður Sam-
fylkingarinnar, segir í samtali við Morgunblaðið í
dag að hún vilji að sú þorskkvótaaukning, sem
reiknað er með að komi til framkvæmda á næsta
fiskveiðiári, verði boðin upp til leigu strax í haust og
öllum verði gefinn kostur á að leigja þessar afla-
heimildir.
Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur lýst því
yfir að hægt verði að auka þorskveiðar um 30 þús-
und tonn á næsta fiskveiðiári. Ingibjörg Sólrún
bendir á að ef þessi 30 þúsund tonn væru leigð út
innan ársins næmi verðmæti þessara aflaheimilda
um 4,5 milljörðum króna. Hún segist ekki fylgjandi
því að þessar aflaheimildir verði afhentar þeim sem
séu með kvótann fyrir.
Forsætisráðherra hefur sagt eðlilegt að þessar
aflaheimildir fari til þeirra sem urðu áður fyrir
kvótaskerðingu. Ingibjörg Sólrún segist ekki vilja
úthluta þessum aflaheimildum með óbreyttum
hætti, enda vilji Samfylkingin breyta um stefnu í
sjávarútvegsmálum. „Við erum hins vegar að tala
um breytingu og aukningin gefur færi á að byrja
hana mjúkt. Hann [forsætisráðherra] vill að þeir
sem notið hafa forréttinda njóti þeirra áfram en við
viljum vinda ofan af því kerfi.“
Vísar gagnrýni á fyrningarleið á bug
Ingibjörg Sólrún vísar algerlega á bug gagnrýni
Davíðs Oddssonar um áhrif fyrningarleiðar í sjáv-
arútvegi, sem Samfylkingin vill fara, en hann telur
að þessi leið muni þýða hrun í sjávarútvegi og á
landsbyggðinni. Hún bendir á að allir eigi mögu-
leika á að bjóða í aflaheimildir sem hafa verið inn-
kallaðar, líka stórútgerðin. Hún segir að Samfylk-
ingin sé tilbúin að gefa góðan tíma í aðlögun og að
e.t.v. þurfi að nota hluta þeirra fjármuna sem komi
inn í fyrstu umferð til að milda áhrifin.
Ingibjörg Sólrún segir að viðbrögðin við fyrning-
arleiðinni séu mjög mótsagnakennd. Þeir sem séu
smáir í sjávarútvegi tali um að þeir komist ekki inn í
greinina því þeir þurfi að keppa við stóru og öflugu
fyrirtækin sem hafa aðgang að bankakerfinu.
Fulltrúar þessara stóru fyrirtækja segi aftur á móti
að þeir eigi eftir að tapa vegna þess að ætlunin sé að
taka heimildirnar af þeim. „Þessi stefnubreyting
þýðir hins vegar að það verður atvinnufrelsi í grein-
inni og a.m.k. einhver möguleiki fyrir kvótalitlar
sjávarbyggðir að fá þessar heimildir. Þær fá þá aft-
ur að njóta nálægðar sinnar við fengsæl fiskimið.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill breyta úthlutun á aflaheimildum
Aukinn þorskkvóti verði
boðinn upp næsta haust
Aðalatriðið/34
DRENG bjargað úr rústum í Bing-
ol. Vonir um að takast mætti að
bjarga fleiri börnum, sem voru í
heimavistarskóla sem hrundi í jarð-
skjálftanum, fóru þverrandi í gær.
117 nemendur björguðust.
Talið er að manntjónið geti að
einhverju leyti stafað af því að emb-
ættismenn hafi ekki fylgt eftir
reglum um öryggi bygginga en um-
ræddur skóli var byggður fyrir
nokkrum árum.
EPA
Vonir þverra um björgun
Nú er vitað með vissu að að minnsta
kosti 127 manns týndu lífi og yfir 500
slösuðust í jarðskjálftanum, að sögn
stjórnvalda. Upptök skjálftans, sem
var 6,4 stig á Richter-kvarða, voru
um 15 km frá Bingol. Um 200 manns
urðu undir braki húsa sem féllu í
borginni og þorpinu Celtiksuyu.
Á síðarnefnda staðnum var heima-
vistarskólinn sem hrundi. Ahmet
Aydin, aðstoðarhéraðsstjóri í Bingol,
tjáði Anatolia-fréttastofunni að allt
að 40 börn væru enn undir rústun-
um. Síðdegis í gær fóru vonir að
þverra um að einhver þeirra hefðu
lifað af. „Hvorki hlustunarbúnaður-
inn né hundarnir gátu numið nokk-
urt hljóð,“ sagði einn leitarmaðurinn
en bætti við að ekki yrði gefist upp.
„Þótt við finnum ekkert lífsmark
munum við halda áfram störfum eins
og það sé lifandi fólk þarna niðri.“
Björgunarmönnum tókst að ná
alls 117 nemendum út í gær og fyrra-
dag, þar af einum seint í gær. 21 lík
var grafið út úr rústunum.
Talsmenn aðgerðamiðstöðvar
vegna jarðskjálftans, sem var komið
upp í tyrkneska forsætisráðuneyt-
inu, sögðu í gær að auk manntjónsins
hefðu alls 537 manns slasazt í skjálft-
anum í héraðinu öllu.
Minnst 127 manns týndu lífi í jarðskjálftanum í Austur-Tyrklandi
Yfir 30 barna
enn saknað
Bingol, Celtiksuyu, Ankara. AFP.
Óánægja/18
TALIÐ var í gær að enn væru 30–40 börn grafin undir rústum
heimavistarskóla í þorpi við borgina Bingol í Austur-Tyrklandi, þar
sem sterkur jarðskjálfti reið yfir aðfaranótt fimmtudags. Staðfest
var að nærri 50 nemendur skólans hefðu farizt og einn kennari.
Björgunarmenn unnu hörðum höndum að því að leita í rústunum, en
vonir um að einhver barnanna fyndust á lífi voru farnar að dvína.
STOFNAÐ 1913 118. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Óttast um
réttindin
Haida Azzawi er ánægð með að
Saddam skuli horfinn Erlent 20
SLYS um borð í dísilknúnum
kafbáti kínverska flotans, sem
tók þátt í heræfingum í Gula-
hafi, varð til þess að öll sjötíu
manna áhöfnin fórst, að því er
kínverska ríkisfréttastofan
Xinhua greindi frá í gær.
Að sögn fréttastofunnar varð
slysið „nýlega“ í kínverskri lög-
sögu, austur af Neichangshan-
eyjum í Gulahafi, við mörk lög-
sögu Norður-Kóreu.
Heræfing kínverska flotans
stóð yfir er slysið varð vegna
„tæknilegrar bilunar“, með
þeim afleiðingum að allir um
borð fórust. Í tilkynningu Xinh-
ua var ekki nánar greint frá því
sem gerðist. Var kafbáturinn
sagður hafa verið dreginn til
hafnar á ótilgreindum stað.
Tilkynningin þykir óvenju-
leg, þar sem kínverska komm-
únistastjórnin hefur ekki tíðk-
að að greina opinberlega frá
hernaðarslysum. Vestrænir
sérfræðingar segja þetta í
fyrsta sinn sem Kínverjar við-
urkenni opinberlega svo alvar-
legt kafbátaslys.
Kínversk
kafbáts-
áhöfn ferst
Peking. AP.
BANDARÍSKUR fjallgöngumaður
notaði vasahníf til að skera hluta af
öðrum handleggnum af sér til þess
að losna undan bjargi sem hann
hafði verið fastur undir í fimm daga.
Greindi lögregla frá þessu í gær.
Útivistarfólk fann Aron Ralston,
sem er 27 ára gamall fjallaklifrari
frá Aspen í Colorado, á fimmtudag,
eftir að hann hafði skorið af sér
handlegginn fyrir neðan olnboga,
sigið síðan niður um 20 m háan
klettavegg og gengið yfir 6 kíló-
metra til að leita sér aðstoðar.
„Þessi náungi er hetja,“ sagði
Mitch Vetere, lögreglumaður í
Emery-sýslu í Utah.
Ralston var í fjallgöngu í Blue
John-gljúfri í Canyonlands-þjóð-
garðinum í Utah á laugardag. Er
hann leitaði handfestu á bjargi uppi
í miðju klettabelti steyptist það yfir
hann. Þar lá hann fastur unz hann sá
ekki aðra leið færa til að bjarga lífi
sínu en að skera sig lausan. Er líðan
hans nú eftir atvikum góð.
Bitið á
jaxlinn
Saltlækjarsytru í Utah. AFP.