Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í HUGA margra er kosningabaráttan vafa- laust flókin og samhengislaus. Erfitt sé að átta sig á meginstraumum hennar og rökum andstæðra fylkinga. Þegar stjórnmálamenn hittist á sjónvarps- eða útvarpsfundum reyni þeir að skjóta sér undan að svara á skýran og afdráttarlausan hátt. Helst hafi verið kafað ofan í tillögur um skattamál, en þegar þær séu ræddar við talsmenn einstakra flokka eins og Samfylking- arinnar eða Frjálslynda flokksins fari þeir undan í flæmingi eða sýni, að þeir skilji hvorki eigin tillögur né viti, hvaða fjárhagslegar skuldbindingar fylgi þeim. Þegar menn geti ekki einu sinni skýrt, hvað þeir sjálfir vilja, hvernig geti þeir þá skýrt, hvað felst í tillögum annarra? Frá heimspekilegum sjónarhóli er auðvelt að greina ógagnrýnan póstmódernisma í tilburðum Samfylkingarinnar. Hún hefur ekki lagt fram neitt sjálfstætt stefnumál í kosningabaráttunni. Við blasir samhengislaus samsuða ólíkra hugmynda, sannleik- anum er oft sýnd nokkur léttúð og alið á umræðum með hálfkveðnum vísum. Mælt er með breytingum bara breytinganna vegna eða jafnvel á þeirri for- sendu, að í Bandaríkjunum megi sami maður aðeins vera forseti í átta ár! Hvaða erindi eiga slíkar rök- semdir hingað, þegar verið er að kjósa þingmenn, sem semja um stjórn að kosningum loknum? Hvergi svo vitað sé eru því settar skorður, hve oft þing- menn geta boðið sig fram – að minnsta kosti ekki í Bandaríkjunum, þar sem þeir sitja áratugum sam- an, jafnvel þar til þeir verða 100 ára. Í skattamálum fór Samfylkingin af stað með um- ræður um fjölþrepa tekjuskatt en hljóp frá tillögum um hann, þótt talsmaður hennar segi þær þó enn einhvers staðar á kreiki. Þegar kemur að umræðum um, hvernig stjórn eigi að mynda eftir kosningar, segir Össur Skarphéðinsson eðlilegt, að stjórnar- andstaðan, Samfylking, vinstri/grænir og frjáls- lyndir, axli ábyrgðina en Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir fer undan í flæmingi, þótt enginn hafi talað ákafar um, að Sjálfstæðisflokkurinn megi ekki vera áfram í ríkisstjórn. Hér skal stuttlega rætt um fjögur mál, sem borið hefur hátt við hlið skattamála og kvótans: fátækt, menntun og jafnrétti. Í fátæktarumræðum hefur vafist fyrir öllum að finna sameiginlegan umræðugrundvöll, vegn að hann er hvergi skilgreindur. Stjórnmálam geta deilt endalaust um, hver geri mest og b ir þá, sem minna mega sín, en erfitt er að m angur, ef sameiginlega mælistiku vantar. Í stað þess að styðjast við skilgreindan m kvarða er vísað í sérfræðinga. Mest athygli beinst að rannsóknum og ritgerð Hörpu Njá Sjálfur forseti Íslands hefur sagt, að Harpa að einna merkilegustu félagsfræðiritgerðina lensku og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kalla Hörpu „nýju biblíuna“ sína. Þetta mikla ver þó ekkert um það, hvort fátæku fólki vegni með því að kjósa þennan eða hinn flokkinn Fátæktarmál heyra undir sveitarfélög og Helgi Kristinsson prófessor hefur gefið út b rannsóknir á viðhorfi fólks til félagsmála í þ Rannsóknirnar sýna, að óánægja með félags þjónustu er mest í Reykjavík undir stjórn R vinstrimanna, sem hafa hækkað skatta en e lækkað, auk þess að hækka skuldir Reykjav 1100%. Harpa Njáls segir frá því, að ásókn Mæðrastyrksnefndar og Hjálparstofnunar k unnar hafi aukist, eftir að R-listinn þrengdi lega heimildarbætur, það er skyndiaðstoð og araðstoð Félagsþjónustu Reykjavíkur, árið Nú hefur Sigurður Snævarr borgarhagfræ birt niðurstöður rannsókna sinna, sem sýna 2,6% barna hafi verið undir skilgreindum fá armörkum árið 2001 en 2,9% árið 1995, og a eitt land, Svíþjóð, sé með minni fátækt með Gunnlaugur Jónsson fjármálaráðgjafi hefur þá ályktun af rannsóknum Sigurðar, að á ár 1995 til 2001 hafi fátækt minnkað um helmi landi, fjöldi undir fátæktarmörkum hafi ver íbúa árið 1995 en 2% árið 2001. x x x Samfylkingin hefur hamast við að reyna a því inn, að Íslendingar standi sig illa á sviði menntamála, með því að nota fjárhagslega m stiku til að sanna mál sitt. Miðar hún gjarna síðustu 12 ár til að ná hæfilega löngu tilhlau ar þetta er metið má til dæmis skoða opinbe gjöld til menntamála á hvern Íslending á fö lagi. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands nám VETTVANGUR Villuljós um fátækt, Eftir Björn Bjarnason SENNILEGA hefur Framsóknarflokk- urinn fengið bakþanka eftir að hann kynnti í lok febrúar stefnumótun sína í efnahagsmálum fyrir komandi kjör- tímabil. Þá voru opinberaðar tillögur flokksins sem kæmu til með að veikja stöðu ríkissjóðs um 15 milljarða króna. Í kjölfarið kom Sjálfstæðisflokkurinn með enn meiri tekjurýrnun fyrir ríkissjóð. Samfylkingin sá að við svo búið mátti ekki standa og sagði að fyrst stjórn- arflokkarnir sæju svigrúm til skatta- lækkana hlyti að vera óhætt að byggja á því. Nokkrum dögum síðar kom svo Samfylkingin með tillögur um nið- urskurð á tekjum ríkissjóðs um 15 millj- arða. Þetta væri svo sem í góðu lagi ef þessir flokkar væru ekki jafnframt með tillögur um að auka útgjöld ríkissjóðs. Á sama tíma og þeir boða stórfelldan nið- urskurð á tekjum hins opinbera lofa þeir gulli og grænum skógum í samfélags- legum verkefnum. Einhvern tíma hefði verið sagt að þetta væru eins og álfar út úr hól. Taugatitringur Allt byrjaði þetta á útspili Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsókn- arflokksins, á þingi flokksins. Skoð- anakannannir voru flokknum óhag- stæðar um þær mundir. Var nú tekið til við að hanna hagvöxt. Flest var rakið til fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda á Austurlandi. Halldór kvaðst reikna með „að afkastageta þjóðarbúsins verði 4–5 prósentustigum meiri í lok næsta kjör- tímabils en án þessara aðgerða“. Ein- vörðungu vegna þessa yrði svigrúm rík- issjóðs 20–25 milljörðum meira á kjörtímabilinu en ella hefði orðið og sveitarfélaganna 5 milljörðum meira. Formaður Framsóknarflokksins klykkti síðan út með því að segja að hann teldi „augljóst að almenningur í landinu ætti að njóta stærsta hluta þessara auknu tekna“. Óskhyggja og líkindareikningur Þessar yfirlýsingar formanns Fram- sóknarflokksins voru ekki mjög vísinda- legar og byggjast þær á blöndu af ósk- hyggju og líkindareikningi. Efnahagssérfræðingar hafa margoft bent á að stóriðjufjárfestingar rík- isstjórnarinnar skapa almannasjóðum og efnahagskerfinu almennt minni tekjur en aðrir kostir. Framangreindar staðhæf- ingar Halldórs Ásgrímssonar byggjast ekki á neinum haldgóðum útreikningum. Því er t.d. enn ósvarað hvernig sú sam- setning efnahagslífsins sem Framsókn- arflokkurinn boðar með stóriðjuáformum sínum kemur út varðandi tekjustreymi skatta í ríkissjóð og sveitarsjóði borið saman við þá samsetningu atvinnulífs sem byggist á fleiri fyrirtækjum en smærri. H málaráðun meta hvað setning efn iðnaður í e meira í efn þjóðarbúsk staklega á Hve já Samkvæ unar, sem aráls, hefð aðeins 0,7% kvæmt ath hagfræðing coa líklega örðum kró tekjum ári árshagnað góðu árfer jákvæðu áh jafnvel nei framkvæm Þá er á kemur til m rekstri og ari uppbyg Flöktandi Frams óábyrgur Sjálfst Eftir Ögmund Jónasson „Vinstrihreyfingin – grænt málaflokkurinn sem kemur ábyrgð. Hann er sá flokkur að lofar ekki upp í ermina e vegar við fyrirheit sín.“VEGVÍSIR TIL FRIÐAR Eftir langt þóf hafa Ísraelar og Pal-estínumenn loks fengið afhentansvokallaðan Vegvísi að friði í Mið-Austurlöndum. Fulltrúar Banda- ríkjastjórnar, Rússa, Evrópusambands- ins og Sameinuðu þjóðanna afhentu Veg- vísinn á miðvikudag, en sama dag sór Mahmud Abbas embættiseið sem for- sætisráðherra í nýrri stjórn Palestínu- manna. Í stuttu máli er Vegvísirinn í þremur áföngum. Í þeim fyrsta er gert ráð fyrir að Ísraelar lýsi yfir staðföstum vilja til stofnunar sjálfstæðs ríkis Palestínu- manna, hætti útþenslu landnemabyggða á herteknu svæðunum, yfirgefi ólöglegar landnemabyggðir og dragi herlið frá svæðum, sem hafa verið hernumin eftir að uppreisn Palestínumanna hófst fyrir tveimur og hálfu ári. Palestínumenn eiga að viðurkenna tilvistarrétt Ísraelsríkis, leysa upp hryðjuverkasamtök, hætta að hvetja til árása gegn Ísrael og halda kosningar á sjálfstjórnarsvæðum Palest- ínumanna. Í öðrum áfanga er gert ráð fyrir því að Palestínumenn fái fullveldi og stjórnar- skrá og haldin verði alþjóðleg ráðstefna um stofnun bráðabirgðaríkis Palestínu- manna. Í þeim þriðja er gert ráð fyrir að haldin verði önnur slík ráðstefna þar sem gengið verði frá endanlegu samkomulagi um stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu- manna og samningum um endanleg landamæri, yfirráð yfir Jerúsalem, stöðu palestínskra flóttamanna og ísraelskra landnema. Gengið verði frá friðarsamn- ingum Ísraela og arabaríkjanna. Afhendingin markar reyndar ekki tímamót að því leyti að bæði Ísraelar og Palestínumenn hafa haft drög að Vegvís- inum undir höndum síðan í desember. George Bush Bandaríkjaforseti hefur hins vegar ítrekað frestað formlegri af- hendingu og setti að lokum það skilyrði að ný stjórn Palestínumanna kæmi til valda. Án Bandaríkjamanna mun ekkert þok- ast í samskiptum Ísraela og Palestínu- manna og vonandi ber það því vitni að þeir geri sér grein fyrir því, að Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hyggst fara til Mið-Austurlanda og ræða bæði við forustumenn Ísraela og Palestínumanna. Ísraelar hafa þegar hafnað ákveðnum þáttum áætlunarinnar og segjast ekki munu draga herlið sitt til baka fyrr en Palestínumenn hafi lagt niður vopn. Vegvísirinn er ekki nema sjö blaðsíður og því ljóst að hann getur ekki verið nema upphaf að samkomulagi. Í honum er hins vegar kveðið á um þá meginnið- urstöðu, sem verður að knýja fram eigi að verða friðvænlegt fyrir botni Miðjarð- arhafs. Ísraelar hafa jafnt og þétt þrengt að Palestínumönnum og grafið undan innviðum þjóðfélags þeirra í árangurs- lausum tilraunum sínum til að binda enda á hryðjuverk. Eigi Palestínumenn að taka mark á Vegvísinum er ekki hægt að láta undan þeirri kröfu Ísraela að þeir að- hafist ekkert fyrr en hryðjuverkum Pal- estínumanna linni. Ísraelar og Palestínu- menn verða að stíga þessi skref samtímis og ítrekaði Powell það í gær. Það verður hins vegar ekki auðvelt fyrir Palestínu- menn að gæta öryggis því að hernám og aðgerðir ísraelska hersins hafa veikt mjög öryggissveitir þeirra. Hins vegar má ekki láta slík vandamál standa í vegi fyrir því að hafist verði handa til að framfylgja tillögunum í Veg- vísinum af því að hinn kosturinn – að að- hafast ekkert – mun leiða til áframhald- andi hryllings og blóðsúthellinga þar sem öfgar munu bera hófsemi ofurliði bæði í röðum Ísraela og Palestínumanna. „ÞÆGILEGUR“ FLOKKUR Einn af baráttumönnum sósíalista áÍslandi síðustu tæpa hálfa öld, Gísli Gunnarsson prófessor í sagnfræði, skrif- ar grein hér í Morgunblaðið í gær, þar sem hann gagnrýnir svohljóðandi um- mæli í forystugrein Morgunblaðsins fyr- ir skömmu en þar sagði m.a.: „… það blasi við að Alþýðuflokksmenn hafi orðið undir við sameiningu flokk- anna á vinstri kantinum í Samfylking- unni og að þeim stjórnmálaflokki er nú stjórnað af fólki, sem á rætur í Alþýðu- bandalaginu.“ Gísli Gunnarsson segir að þessa afstöðu megi rekja til óskhyggju manna, „sem úrelt og röng sjónarmið hafa mótað“. Nokkru síðar lýsir Gísli Gunnarsson í grein sinni pólitískri upplifun sinni um þessar mundir og segir: „Fyrir mann eins og undirritaðan, sem verið hefur um áratugi virkur félagi í Alþýðubandalaginu, er þægilegt að taka þátt í starfi Samfylkingarinnar. Þar eru vissulega stundum skiptar skoðanir en ekki er reynt að magna þær með per- sónuhnútum heldur ræðir fólk álitamál til að ná samkomulagi. Ég er ekki frá því að það bezta í vinnubrögðum Kvennalist- ans hafi skilað sér til Samfylkingarinn- ar.“ Í ljósi þess, að flestir helztu forystu- menn Samfylkingarinnar um þessar mundir eiga rætur í Alþýðubandalaginu þarf engum að koma á óvart, að Gísla Gunnarssyni þyki „þægilegt“ að taka þátt í starfi Samfylkingarinnar. Sú spurning hlýtur hins vegar að leita á Alþýðuflokksmenn, sem gengu til þessa samstarfs undir merkjum þeirrar hugsjónar að sameina vinstri menn í ein- um flokki, hvað valdi því, að flestum for- ystumönnum Alþýðuflokksins hefur ver- ið ýtt til hliðar. Þótt sumir þeirra sitji enn á þingi skipa þeir ekki helztu emb- ættin í forystusveit Samfylkingarinnar. Þessi veruleiki veldur því að fyrrver- andi stuðningsmenn Alþýðuflokksins eru margir hverjir heimilislausir um þessar mundir. Ýmislegt bendir til þess að stuðningur þeirra skýri að einhverju leyti uppgang Frjálslynda flokksins, þótt stuðningsmenn hans komi augljós- lega úr fleiri áttum. Alþýðuflokkurinn undir forystu Jóns Baldvins Hannibalssonar hóf umtals- verða baráttu fyrir aðild Íslands að Evr- ópusambandinu en hafði ekki erindi sem erfiði. Að sumu leyti hefur Halldór Ás- grímsson, formaður Framsóknarflokks- ins, tekið þá baráttu upp. Þess vegna er ekki fráleitt að ætla, í ljósi málefnalegrar samstöðu um meginmál, að ýmsir stuðn- ingsmenn Alþýðuflokksins á sínum tíma gætu hugsanlega gengið til liðs við Framsóknarflokkinn á forsendum svip- aðrar afstöðu til ESB. Það eru þess vegna engin rök fyrir þeirri staðhæfingu Gísla Gunnarssonar að þessa athugasemd í forystugrein Morgunblaðsins megi rekja til „ósk- hyggju manna, sem úrelt og röng sjón- armið hafa mótað“. Það má hins vegar velta því fyrir sér, hvort gamlir flokksbræður og flokks- systur Gísla Gunnarssonar úr Alþýðu- bandalaginu sjái sér nú leik á borði að komast til valda og áhrifa undir nýju nafni! Það eru söguleg fordæmi fyrir því eins og prófessor í sagnfræði veit betur en flestir aðrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.