Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 26
SUÐURNES 26 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ „JÁ, þetta er draumastarfið. Ég hef verið við kennslu nánast allan minn starfsaldur og hef gaman af að vinna með börnum og unglingum og fólki yf- irleitt,“ segir Jónína Guðmundsdóttir sem bæjarráð Reykjanes- bæjar hefur samþykkt að ráða í stöðu skóla- stjóra Holtaskóla í Keflavík. Jónína hefur verið aðstoðarskólastjóri í Holtaskóla í sjö ár og hefur gegnt starfi skólastjóra frá ára- mótum í veikindaleyfi Sigurðar E. Þorkels- sonar. Staðan var aug- lýst nýlega eftir að Sigurður óskaði eftir að ljúka störfum við skólann. Auk Jónínu sóttu um starfið Ásta Katrín Helgadóttir á Selfossi og Stella Á. Kristjánsdóttir á Skagaströnd. Jónína er 52 ára gömul og segist hafa kennt í tæpa þrjá áratugi, all- an þann tíma í Holtaskóla. Hún seg- ist hafa lent í kennslu fyrir tilviljun. „Mér var boðið starf hérna þegar ég var nýflutt í bæinn og ætlaði ekkert í kennslu. Ég sá að þetta átti vel við mig og ákvað að fara í kenn- aranám,“ segir hún. Hef gaman af að vinna með fólki Keflavík Jónína segir að spennandi sé að takast á við þetta starf. „Mig lang- aði að taka við stjórnun og vinna áfram að uppgangi skólans,“ segir Jónína um umsókn sína. Holtaskóli var lengst af unglingaskóli fyrir Keflavík en fjög- ur ár eru síðan skóla- kerfinu í Reykjanesbæ var breytt á þann veg að þar starfa nú fjórir grunnskólar sem allir eru með 1. til 10. bekk. „Þetta var mikil breyt- ing sem að flestu leyti hefur verið til góðs. En það var einnig mjög skemmtilegt að vinna við skólann eins og hann var áður og ég hefði ekki viljað missa af því,“ segir Jónína. Hún segist líta á Holtaskóla sem nýjan skóla sem enn sé í mótun. Verið sé að skapa þar skólahefð. Hún segist vilja halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið og gera skól- ann enn betri. „Það er mjög áhugavert að vinna að skólamálum í Reykjanesbæ. Mik- ill metnaður er hjá bæjaryf- irvöldum, foreldrum og skólafólki að bæta skólastarf og ná betri ár- angri. Gaman er að taka þátt í þessu,“ segir Jónína. Jónína Guðmundsdóttir Stórkostlegur fengur fyrir þá sem þekkja til slíkrar gæðavöru EINSTÖK PERSNESK TEPPI og önnur fyrirtaks austurlensk teppi af hæsta alþjóðlega gæðastaðli ásamt persneskum og austurlenskum skrautteppum í ýmsum stærðum UPPBOÐ á persneskum teppum í hæsta gæðaflokki. Að þessu sinni bjóðum við úrval handofinna austurlenskra teppa í hæsta gæðaflokki: Gullfallegt skrautofið persneskt silkinain 295 x 197 cm Fínofið isfahan úr silki að hluta 173 x 112 cm Fínofið satínsrinagar 430 x 304 cm Sígilt persneskt kashan teppi 400 x 292 cm Persneskt ghom úr hreinu silki 196 x 135 cm Skrautofið persneskt heriz teppi 370 x 290 cm Persneskt sarouk af hæsta gæðaflokki 203 x 130 cm Persneskur zandjan dregill 297 x 100 cm Agra satínteppi 313 x 241 cm Persneskt senneh teppi 313 x 197 cm Auk þess bjóðum við margar aðrar persneskar og austurlenskar hágæða gólfmottur, dregla og teppi sem verða boðin upp og seld á uppboðinu. Við ábyrgjumst að hvert teppi sé ósvikið, handunnið og ekki hvíli á því neinar útistandandi skuldir eða gjöld. SUNNUDAGUR 4. MAÍ UPPBOÐ KL. 19:00, HÆGT ER AÐ SKOÐA VÖRUNA FRÁ KL. 17:00 í Sunnusal á RADISSON SAS Hótel Sögu Greiðslumáti: Reiðufé, ávísanir með bankaábyrgð, öll helstu greiðslukort FREKARI UPPLÝSINGAR FÁST VIÐ SKOÐUN OG Á UPPBOÐINU sem haldið er í samvinnu við Bickenstaff and Knowles, alþjóðlegra uppboðshaldara í Lundúnum. Uppboð þetta er haldið samkvæmt tilskipun alþjóðlegs stórbanka til að nýta haldsrétt vegna umtalsverðra vanskila og gjaldþrots leiðandi heildsala á persneskum teppum. BÖRNIN í leikskólanum Suðurvöll- um í Vogum sýndu foreldrum sín- um húsakynni leikskólans og verk sín á Suðurvalladeginum sem var í gær. Þá komu trúðar í heimsókn og börnin skemmtu sér í hoppi- kastala. Síðasta vor var opið hús hjá leik- skólanum og segir Ragnhildur Sig- mundsdóttir leikskólastjóri að svo vel hafi til tekist að ákveðið hafi verið að halda Suðurvalladag framvegis fyrsta föstudag í maí ár hvert. Dagurinn í gær var ekki síðri, að sögn Ragnhildar. Hún sagði ánægjulegt hversu margir foreldrar komu með börnum sínum í skólann. Foreldrafélag leikskólans notaði skemmtisjóð sinn til að fá kastala fyrir börnin að leika sér í og trúða til að skemmta börnunum. Þá var grillað í hádeginu og boðið upp á kaffihlaðborð áður en samkomunni var slitið. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Biðröð myndaðist við hoppikastalann en trúðarnir gengu um og léttu börnunum biðina erfiðu. Foreldrar og trúður í leikskólanum Vogar GUÐBJÖRG Jóhannsdóttir við- skiptafræðingur hefur verið ráðin í nýja stöðu atvinnuráðgjafa á Suður- nesjum. Stjórn Sambands sveit- arfélaga á Suður- nesjum ræður í starfið með fjár- hagslegum stuðn- ingi Byggðastofn- unar. Samband sveit- arfélaga gerði fyrr á árinu samn- ing við Byggða- stofnun um verkefni á sviði atvinnu- og byggðaþróunarmála á Suðurnesj- um. Kom sá samningur í stað samn- ings Byggðastofnunar við Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanes- bæjar sem lögð var niður fyrr í vetur. Í samningnum felst að SSS ræður atvinnuráðgjafa til að sinna verkefn- um á þessu sviði. Staðan var auglýst og sótti 31 um og segir Guðjón Guð- mundsson, framkvæmdastjóri SSS, að í þeim hópi hafi verið margir mjög hæfir einstaklingar. Stjórn SSS ákvað að ráða Guð- björgu Jóhannsdóttur. Hún er 38 ára og lauk meistaraprófi í viðskipta- fræði frá Háskóla Íslands á síðasta ári. Hún starfar við rekstrarráðgjf á sviði markaðs- og sölumála, fjármála og rekstrar. Ráðin í nýja stöðu atvinnu- ráðgjafa Reykjanes Guðbjörg Jóhannsdóttir BJÖRN B. Kristinsson, verkamaður í Sandgerði, var heiðraður við há- tíðahöldin 1. maí í Sandgerði. Björn er rúmlega sjötugur, fædd- ur á Siglufirði 1931. Hann hefur stundað sjómennsku, lengst af á tog- urum og vertíðarbátum. Kona hans er Elsa Ingibjörg Þorvaldsdóttir og eiga þau þrjú uppkomin börn. Baldur Matthíasson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Sand- gerðis, afhenti Birni fána félagsins og blómvönd af þessu tilefni við há- tíðahöldin á baráttudegi verkalýðs- ins. Þau fóru fram í Samkomuhúsinu og voru fjölsótt. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Baldur og Björn á verkalýðsdaginn. Aldraður verkamaður heiðraður Sandgerði INNAN við fjórðungur þeirra nemenda grunnskóla á Suður- nesjum sem hjóla í skólann virðast nota reiðhjólahjálma. Kom það fram í athugun sem lögreglan í Keflavík gerði við þrjá skóla í vikunni. Lögreglumenn könnuðu hjálmanotkun við Sandgerðis- skóla, Holtaskóla í Keflavík og Njarðvíkurskóla á mánudag og þriðjudag í þessari viku. Fæstir í Holtaskóla Tíu börn komu á reiðhjólum í Sandgerðisskóla og voru aðeins þrjú með hjálm. 21 barn kom á reiðhjóli í Holtaskóla og voru aðeins fjög- ur þeirra með hjálm. Er það innan við fimmtungur barn- anna. Sex mættu á reiðhjóli í Njarðvíkurskóla, kennari og fimm nemendur. Kennarinn var með hjálm ásamt einum nemanda. Lögreglan segir að ekki sé nógu gott að aðeins um fjórð- ungur nemenda sem koma á reiðhjólum sé með hjálm til að hlífa höfðinu. Minna en fjórðungur með reið- hjólahjálm Suðurnes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.