Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 20
ERLENT 20 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ HAIDA Azzawi notar ekki trefil til að fela sítt og mikið hár sitt. Hún klæðist röndóttum bómull- arbuxum og litfagurri skyrtu. Hún fer út af heimili sínu ef henni sýn- ist og þarf ekki að vera í fylgd karlkyns ættmenna sinna. Svona vill hún hafa þetta áfram. Líkt og margar íraskar konur er Azzawi, sem er 24 ára og með gráðu í stærðfræði og tölfræði frá einkaháskóla í Bagdad, ánægð með endalok valdatíðar Saddams Husseins, en hún hefur áhyggjur af því að breytt stjórnarfyr- irkomulag geti leitt til þess að mjög dragi úr réttindum kvenna. Hún segist aldrei hafa falið and- lit sitt og höfuð, líkt og margar, heittrúaðar múslímakonur. „En nú veit ég ekki nema það sé fram- tíðin. Það og annað álíka,“ segir hún. Í marga áratugi hafa íraskar konur – að minnsta kosti þær sem búa í Bagdad og öðrum stór- borgum – notið persónufrelsis sem konur í nágrannalöndunum, eins og til dæmis Sádí-Arabíu og furstadæmunum við Persaflóann, geta einungis látið sig dreyma um. Þær mega aka bíl. Þær geta stundað háskólanám ásamt körl- um. Þær mega vinna utan heim- ilisins á skrifstofum þar sem einn- ig vinna karlar. Þær mega erfa eignir til jafns við bræður sína. Konur eru stór hluti af sér- menntastéttum landsins, læknum, lögfræðingum, verkfræðingum, háskólaprófessorum, bankastjór- um, skólameisturum. Margar geta ráðið því sjálfar hverjum og hvort þær giftast. Sjítar líklegir til að taka við En nú eru líkur taldar vera að aukast á því að stjórnmálamenn úr röðum sjítamúslíma muni að miklu leyti fylla valdatómið sem Saddam skildi eftir sig. Þessir menn kunni að reyna að innleiða þá íhaldssömu samfélagssiði sem einkenna suðurhluta landsins, þar sem sjítar eru í meirihluta. Líkt og Írakar allir eru íraskar konur nú að reyna að finna út úr því hvaða tækifæri bíði, og hvað geti að eilífu glatast, í kjölfar falls Saddams. Í stjórnartíð hans var Írak eitt mesta lögregluríki heims, en á sama tíma sá flokkur hans, Baathflokkurinn, sem er veraldlegur sósíalistaflokkur, mörgum konum fyrir atvinnu- og menntunartækifærum sem tíðk- uðust hvergi annars staðar í þess- um heimshluta. „Ég veit ekki mitt rjúkandi ráð,“ segir May George, 41 árs verkfræðiprófessor við Tæknihá- skólann í Bagdad. „Ég er svo glöð yfir því að hann skuli vera horf- inn, en sjáið nú þetta,“ heldur hún áfram þar sem hún stendur í rúst- um skrifstofu sinnar í málmfræði- og iðnaðarverkfræðideild skólans. Þar höfðu ræningjar brotið rúð- ur, dreift skjölum út um allt, kveikt eld sem skildi eftir sig reyk- og sótskemmdir og hent tölvum út um glugga á þriðju hæð. „Þetta minnir mig á það að þar sem breytingar verða verður oft eyðilegging líka,“ sagði George, sem fæddist inn í kristna fjöl- skyldu í borginni Mosul í norður- hluta landsins. „Þess vegna er ég áhyggjufull – mjög áhyggjufull – yfir því hvort ég muni geta haldið áfram að lifa því lífi og sinna því starfi sem ég hef hingað til gert.“ Stjórnin verði lýðræðisleg Ýmislegt hefur bent til þess að bráðabirgðastjórnin í landinu, sem Bandaríkjamenn standa að, muni vernda réttindi kvenna. „Við mun- um fá mjög sterka, lýðræðislega stjórn í Írak,“ sagði Jay Garner, bandaríski eftirlaunahershöfðing- inn sem er æðsti yfirmaðurinn í landinu eftir að stríðinu lauk. „Og ef til vill mun sá dagur renna upp þegar kona verður æðsti maður landins.“ En hvað svo sem Bandaríkja- menn ætla sér munu sterk sam- félagsöfl sem fall Saddams hefur leyst úr læðingi óhjákvæmilega láta til sín taka, sagði Wamid Nadmi, prófessor í stjórn- málafræði við Bagdadháskóla. „Í Írak, líkt og öllum öðrum múslímaríkjum, er til sterk íhalds- hyggja, þótt hér fari heldur minna fyrir henni en víða annars stað- ar,“ sagði hann. „Það mun óhjá- kvæmilega koma að því að stefna nýrrar ríkisstjórnar endurspegli þessa staðreynd.“ Í Írak undir Saddam giltu að mörgu leyti svipaðar reglur og í Sovétríkjunum sálugu, og voru kvenréttindi hluti af kenn- ingakerfi stjórnarflokksins. Þar af leiðandi veittust íröskum konum mörg góð tækifæri, en ýmis tákn sem oft var bent á til marks um stöðu kvenna voru óekta, sagði Hana Ibrahim Kafaji, þekktur hagfræðingur. „Jú, konur gegndu ráðherra- embættum og sátu á þingi og fá- einar konur voru háttsettar í Baathflokknum, en þessar konur voru allar valdar vegna tryggðar sinnar við flokkinn. Þetta er því ekki til marks um raunverulegt jafnrétti fyrir konur,“ segir Kafaji. Flokkshollusta skilyrði frama Sumar konur segja, líkt og sum- ir karlar, að starfsframi þeirra hafi verið heftur vegna þess að þær vildu ekki ganga í flokkinn, eða að þeim hafi fundist sem þær yrðu að heita flokknum hollustu til að komast áfram. „Maður verður að vera félagi í flokknum til að fá vinnu í mínu fagi,“ segir stærðfræðingurinn Azzawi, sem ekki hefur tekist að finna sér starf síðan hún útskrif- aðist. „Ég vil fá mér vinnu og fjöl- skylda mín leyfði mér það, en út af þessu gat ég ekki fengið starf.“ Areij Ibrahimi, þrítugur lög- fræðingur, segist hafa gengið í flokkinn vegna þess að hana lang- aði til að læra til doktorsprófs í alþjóðalögum. „Annars hefði ég ekki getað haldið áfram námi,“ sagði hún. „Öllum í bekknum mín- um var sagt að skrifa undir skjal sem sagði að við styddum stjórn- ina, og við gerðum það.“ Í Írak undir stjórn Saddams tengdust ýmis atvinnutækifæri kvenna hörmungum er dundu yfir unga karlmenn í hinu langa stríði við Íran á níunda áratug síðustu aldar. Mannfallið var svo mikið – sagt vera tugir þúsunda – að það skekkti hlutfallið milli fjölda karla og kvenna og konur urðu umtals- vert fleiri. Þegar stríðið stóð sem hæst gat maður allt eins búist við því að allir starfsmenn í banka eða póst- húsi væru konur, sagði stjórn- málafræðingurinn Nadmi. „Eftir stríðið komu margir karlanna aft- ur og endurheimtu störf sín, en margir áttu ekki afturkvæmt.“ Fátt breytt á landsbyggðinni Umræðan um kvenfrelsi í Írak fær lítinn hljómgrunn fyrir utan stærstu borgir landsins. Bæði áð- ur en Saddam tók við og í valda- tíð hans hafa konur á landsbyggð- inni notið fæstra þeirra réttinda sem kynsystur þeirra í borgunum hafa öðlast. Flestar búa við fá- tækt. Lítið er um vinnu utan heimilisins, hjónabönd eru skipu- lögð og kona sem álitin er hafa svert heiður fjölskyldunnar kallar yfir sig útskúfun eða eitthvað það- an af verra. „Þær berjast í bökkum – þær hafa ekki aðgang að góðri lækn- isþjónustu, sérstaklega ekki í sam- bandi við barneignir,“ sagði hag- fræðingurinn Kafaji. „Og skólaganga er miklu takmarkaðri. Þær lifa allt öðruvísi lífi og ég held að breytingar muni taka langan tíma úti á landsbyggðinni, burtséð frá því hvernig nýja rík- isstjórnin verður.“ Sumar konur segjast þegar vera farnar að sjá merki þess að nú, þegar stríðinu er lokið, muni hlut- skipti þeirra verða takmarkaðra. Ibrahimi segir að í doktorsnáminu hafi hún stundum hitt karlkyns nemendur – og jafnvel prófessora – sem telji að æðri menntun kvenna sé tímasóun. „Hér áður fyrr veitti ég þeim enga athygli,“ sagði hún. „En nú er ég ekki eins örugg með mig. Ég er ekki viss um að ég geti virt þetta viðhorf að vettugi.“ Aðrir eru þó bjartsýnni. Þarfir Íraks eru svo knýjandi, segja þeir, að allir sem vettlingi geti valdið – þar á meðal konur – verði að leggja hönd á plóg. „Þegar maður hefur einu sinni stigið tiltekið skref verður ekki aftur snúið,“ segir Kafaji. „Það er ekki hægt að taka aftur allt það sem konum hefur áunnist, allt það sem þær leggja af mörkum. Það myndi enginn láta slíkt viðgangast.“ Íraskar konur óttast um réttindi sín eftir fall Saddams Bagdad. Los Angeles Times. TPN Stærðfræðingurinn Haida Azzawi er ánægð með að Saddam Hussein skuli horfinn, en óttast að ný ríkisstjórn muni ekki gæta réttinda kvenna. ’ Í Írak, líkt og öll-um öðrum múslíma- ríkjum, er til sterk íhaldshyggja. ‘ TALIÐ er að 14 af 88 konum er fundist hafa látnar í mexíkósku landamæraborginni Ciudad Juarez kunni að hafa verið rænt og þær myrtar í því skyni að taka úr þeim líffæri og selja þau, að því er sak- sóknari greindi frá. Líkamsleifar kvennanna 88 hafa verið að finnast undanfarin tíu ár. Sl. miðvikudagskvöld greindi Carl- os Javier Vega Memije, aðstoðaryf- irsaksóknari í Chihuahua-fylki, frá því að „ýmis smáatriði“ styddu þá tilgátu að konurnar hefðu verið myrtar í þeim tilgangi að taka úr þeim líffæri. Ciudad Juarez er um 1,3 milljóna manna borg við landamærin að Bandaríkjunum, andspænis borg- inni El Paso í Texas. Þótt mexíkósk yfirvöld hafi ekki greint frá tilgátu sinni í smáat- riðum felur hún í sér að líffærin hafi verið seld efnuðum Bandaríkja- mönnum á læknamiðstöðvum og sjúkrahúsum í grennd við landa- mærin. Seld Bandaríkja- mönnum? „Hverjir gætu haft efni á því að kaupa líffæri? Samkvæmt þessari kenningu eru það Bandaríkja- menn,“ sagði Oscar Maynez, fyrr- verandi yfirmaður réttarlæknis- embættisins í Ciudad Juarez, sem vann að rannsókn málsins til ársins 2001. Maynez sagði aftur á móti að til að flytja líffæri til Bandaríkjanna þyrfti umfangsmikið flutningsnet, skriffinnsku og sérþekkingu. Sak- sóknarinn hefði ekki sýnt fram á neinar vísbendingar um slíkt. Maynez sagði ennfremur að þann tíma sem hann hefði unnið að rann- sókninni hefði hann aldrei séð vís- bendingar um að líffæri vantaði í líkin sem fundust. Oft hefðu líkams- leifarnar ekki verið annað en beina- grindur og því erfitt að segja af eða á. En Vega Memije sagði vísbend- ingarnar sem fundist hafa vera nægilega áreiðanlegar til að rétt- læta varðhaldsúrskurð yfir tveim mönnum sem handteknir voru í síð- asta mánuði, grunaðir um að hafa myrt þrjár af átta konum sem fund- ust myrtar 2001. Fjórtán morð talin tengd líffæraverslun Mexíkóborg. AP. MINNINGARATHÖFN verður haldin um Eugene V. Rostow, fyrr- verandi forseta lagadeildar Yale- háskólans í Bandaríkjunum, á morgun, sunnudag, í Yale. Rostow, sem lengi var aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kom að landhelgisdeilum Íslendinga og Breta á áttunda áratugnum. Rostow lést 25. nóvember í fyrra, 89 ára að aldri. Hann stund- aði nám við Yale og Cambridge í Bretlandi og hóf síðan kennslu við Yale árið 1938. Hann þjónaði í Bandaríkjaher í síðari heimsstyrj- öldinni en fór síðan til starfa í utan- ríkisráðuneytinu. Rostow var gerður að deildar- forseta lagadeildar Yale árið 1955 og gegndi hann því starfi í áratug. Er honum m.a. talið til tekna að hafa breytt náminu við deildina, og þannig stuðlað að því að orðspor Yale fór mjög upp á við. Rostow kom aftur til starfa í utanríkisráðu- neytinu snemma á sjöunda ára- tugnum og var gerður að að- stoðarutanríkis- ráðherra árið 1966, þ.e. í forsetatíð Lyndons B. Johnsons, einmitt á þeim tíma er Víetnamstríðið stóð sem hæst. Rostow þjónaði einnig undir for- setum, sem komu úr röðum repúbl- ikana, og á fyrstu árum Ronalds Reagans í embætti fór Rostow fyr- ir sérstakri stofnun innan stjórn- arinnar er sá um afvopnunarmál. Eugene V. Rostow minnst við Yale Eugene V. Rostow
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.