Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 27
ÁRBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 27 „ÞAÐ sem gerir þessa búrkistu merkilega er ekki bara sagan heldur líka að afi minn, Böðvar Magnússon á Laugarvatni, lét Ragnar Ásgeirs- son ráðunaut, listfengan og hagmæltan mann, skreyta hana. Fyrir bragðið er hún mun fallegri en hún hefur verið fyrir þann tíma. Hún er merkileg fyrir þá sök að henni fylgir sú sögn að aldrei skuli þrjóta mat í kistunni hjá þeim sem er með hana,“ segir Böðvar Stefánsson, fyrrverandi skólastjóri, um búrkistuna sem fylgt hefur ætt hans samkvæmt þeim reglum að hana skyldi ávallt varðveita elsti ættinginn sem bæri nafnið Böðvar. Böðvar fékk kistuna í janúarlok úr búi Böðvars Guðmundssonar frá Syðra-Seli. Fyrst er vitað um kistuna í eigu Jóns Jónssonar í Gunn- arsholtshjáleigu en Jón þessi var uppi 1739–1796. Búrkistan er áletruð og aftan á henni stendur þetta: „Aldrei skal björg í búi þrjóta / Böðvars þess er á búrkistuna.“ Framan á henni er þessi áletrun: „Elsti Böðvar í ættinni eiga skal þessa kistu. Enginn veit nú á Íslandi hver átti hana fyrstur.“ Draumkona fylgdi kistunni Í tímaritinu Heima er best nr. 12 1954 er frá- sögn eftir Böðvar Magnússon frá Laugarvatni, afa Böðvars Stefánssonar, þar sem hann segir frá kistunni. Hún kom í hans eigu 18. september 1918. Hann segir frá því að draumkona fylgi kist- unni og að hún hafi birst sér skömmu eftir að hann fékk kistuna. Var sem henni væri umhugað um hvar kistan væri og hvernig farið væri með hana. Í frásögn Böðvars í Heima er best segir: „Kona þessi kvaðst heita Guðrún. Fannst mér hún vera um fimmtugt, í meðallagi stór, holdug, rjóð í kinnum, með mikið hár, ljósbleikt, sem hún flétt- aði í fjórar fléttur, og fór henni mjög vel. Var hún fríð kona og fyrirmannleg. Oft fannst mér hún ráða mér heilt, ekki sízt vonda veturinn 1920 og lá við að ég væri farinn að trúa á hana og fara eft- ir ráðum hennar.“ Nokkru síðar hendir það hjá Böðvari Magn- ússyni á Laugarvatni að hann geymdi púður í kistunni og hafði hana uppi á lofti. Eldur komst í kistuna og sprakk hún með hvelli og eldur kvikn- aði í loftinu. Hann hafði af að bjarga kistunni við annan mann en hún hafði látið á sjá svo að hann fékk Geir Illugason til að gera við hana og síðar Ragnar Ásgeirsson. Geir skilaði kistunni úr viðgerð nokkuð seint að kveldi er allir voru gengnir til náða og setti hana á dyrahelluna. Þá nótt birtist draumkonan Böðv- ari og spurði hvort hann vissi um hvar kistan væri niður komin og virtist ekki líka meðferðin. Hún hafði nokkru áður, fyrir brunann, birst hon- um og þótti honum þá að hann sýndi henni hvað kistan hafði að geyma sem var matur og púður en svo virtist sem henni hefði ekki líkað það. Ragnar Ásgeirsson letraði með höfðaletri á kistulok, handraða og að utan þau munnmæli sem hafa fylgt henni. Í handraðaloki stendur: Víða um landið fækka fer fornum gripum því er ver. Gott er margt sem gamalt er góða muni vernda ber. Kemur hér í kvöld til þín kistan gamla ný og fín hafðu í henni heillin mín hangikjöt og brennivín. Hún hefur lifað margan mann og margt hefur komið í handraðann sá sem ætti auðinn þann óttast þyrfti ei rukkarann. Ósk þá síðast upp ég tel að endist vel þín höfuðskel kistuna þína þér ég fel þitt er að geyma hana vel. „Ég er afskaplega sæll að hafa fengið þessa kistu. Mér er þessi kista minnisstæð frá því að ég sem barn sá hana hjá afa og ömmu á Laug- arvatni. Ég hef gert mér grein fyrir því að svo gæti farið að ég fengi hana til varðveislu ef mér entist aldur til. Sú von hefur nú ræst og mér líður vel að hafa þennan gamla og merka grip hjá mér. Ég hugsa mér að varðveita hana næstu 20 árin sem er eftir hefðinni. Nei, ég hef ekki enn orðið var við draumkon- una sem afi minn nefnir. Ætli það bendi ekki til þess að hún hafi ekki undan neinu að kvarta,“ sagði Böðvar sem geymir harðfisk og brennivín í kistunni og ljóst er að gamla búrkistan er góður geymslustaður fyrir harðfiskinn því hann bragð- aðist vel. Böðvar Stefánsson á Selfossi geymir áletraða búrkistu á heimili sínu Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Böðvar Stefánsson, fyrrverandi skólastjóri, með ættargripinn, áletruðu búrkistuna, á heimili sínu. „Aldrei skal björg í búi þrjóta Böðv- ars þess er á búrkistuna“ Selfoss ÞÓRHALLUR Hróðmarsson kennslustjóri kenndi síðustu tím- ana sína í Garðyrkjuskólanum í aprílbyrjun eftir 32 ára starf en hann mun síðan hætta formlega hjá stofnuninni með vorinu. Þór- hallur hefur á þessu tímabili kennt margar greinar við skólann en síð- ustu ár hefur hann kennt jarðvegs- fræði, rekstur og áætlanagerð ásamt landmælingum. Af þessu tilefni var haldin stutt athöfn í skólanum þar sem Þór- halli voru færðar gjafir frá starfs- mönnum og nemendum í tilefni dagsins en hann verður þó ekki kvaddur formlega fyrr en í maí með veislu. Þórhallur Hróðmarsson með gjaf- irnar frá starfsmönnum. Hættir hjá Garðyrkju- skólanum eft- ir 32 ára starf Hveragerði Morgunblaðið/Óskar Magnússon Veturinn kvaddur Þorlákshöfn ELDRI borgarar í Þorlákshöfn efndu til vetrarkveðju síð- asta dag vetrarins, í nýju veitingahúsi sem risið er við ósa Ölfusár. Buðu þeir eldri borgurum á Eyrarbakka og Stokks- eyri að taka þátt í að kveðja þennan óvenjulega vetur. Eigandi staðarins, Hannes Sigurðsson, tók hlýlega á móti gestum og lýsti byggingu hússins sem er ákaflega skemmti- lega hannað og stendur á fjörukambinum með útsýn til ár- innar og hafsins. Á hverju borði er bátsnafn, grafið í lítinn eikarbút. Boðið var upp á fordrykk og síðan var fram- reiddur gómsætur fiskréttur úr saltfiski og ýsu. Að lokum var stiginn dans fram undir miðnætti. LEIKSKÓLARNIR á Selfossi voru með opið hús á sumardaginn fyrsta og buðu gestum og gangandi að kynnast starfseminni. Fólk kunni vel að meta þessa tilbreytingu og börnin höfðu greinilega áhrif á foreldra sína að koma með í leikskólann til að skoða teikningar og listaverk. Ásamt því að þiggja kaffi og heitar vöfflur með sultu og rjóma. Svo notuðu börnin auðvitað tækifærið til að leika sér dálítið og sýna færni sína með því t.d. að grípa í hljóðfærin á leikskólanum Álfheimum eða í lita- eða mynda- kassa á meðan foreldrarnir kíktu í dagbækur sem sögðu frá vikulegum skógarferðum barnanna. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Þessar stúlkur gripu hljóðfærin og sýndu færni sína. Opið hús á leikskólum Selfoss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.