Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Velkomnir um borð. Meistaranám í félagsráðgjöf Alveg nýtt námstilboð VERIÐ er að kynnanýtt meistaranámí félagsráðgjöf við Háskóla Íslands nú um stundir. Þar er á ferðinni ný námsleið í félagsráð- gjöf með áherslu á fjöl- skyldufræði. Sigrún Júl- íusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ, er í forsvari fyrir þetta nám og svaraði hún nokkrum spurningum Morgun- blaðsins. – Þegar talað er um nýtt meistaranám í fé- lagsráðgjöf, hvað er átt við? „Í félagsráðgjöf við Há- skóla Íslands er, og verður áfram, kostur á einstak- lingsbundnu MA-námi til 60 eininga. Þetta er hins vegar alveg nýtt námstilboð, svo- kallað starfstengt meistaranám.“ – Segðu okkur frá náminu … „Nýja námsleiðin er 45 eininga nám, sem unnt er að taka sam- hliða starfi og ljúka á einu ári. Miðað er við 30 einingar í nám- skeiðum og 15 eininga lokarit- gerð sem byggist á sjálfstæðri rannsókn á fjölskyldumálefnum. Nemendur eiga jafnframt kost á að sækja meistaranámskeið við erlenda háskóla eða í öðrum greinum HÍ. Meðal nýrra nám- skeiða sem kennd verða eru „Fé- lagsráðgjöf og fjölskyldukenn- ingar“, þar sem m.a. er áhersla á vísindasögulega kenningaþróun, sjúkdómshugtakið, breytt við- fangsefni og fagsiðfræði og „Að- ferðir í fjölskyldumeðferð“, þar sem kynnt eru meðferðarlíkön, meðferðarnálgun og viðtalstækni auk klínískrar greiningarvinnu. Fjallað verður um sértæk svið svo sem hjónameðferð, skilnaðar- og foreldraráðgjöf. Þá hafa hand- leiðslufræði ekki áður verið kennd í félagsvísindadeild en í námskeiðinu „Handleiðslufræði – kenningar og aðferðarþróun“ er m.a. fjallað um fagsiðfræði og þrekþurrð (burnout) hjá fagfólki. Jafnframt er fjallað um kenning- ar og aðferðarlíkön sem unnið er eftir til að vernda og aðgreina einkasjálf og starfssjálf meðferð- araðila í störfum þeirra í krefj- andi návígi við ágeng vandamál, samskiptaerfiðleika og mannleg- ar þjáningar.“ – Er mikil spurn eftir námi í fé- lagsráðgjöf á Íslandi? „Já, félagsráðgjöf er sérfræði- grein í takt við tímann, samanber heiti nýlegrar BA-ritgerðar, og það er vaxandi aðsókn bæði í grunn- og framhaldsnám. Fé- lagsráðgjöf við Háskóla Íslands hefur eflst mjög undanfarið. Ný kennslu- og rannsóknarsvið hafa þróast og frjótt rannsóknarstarf í tengslum við þau. Má þar nefna öldrunarfræði og barnavernd sem hvort tveggja tengist fjöl- skyldufélagsráðgjöf. Nýja meist- aranámsleiðin mun styrkja þessa þróun.“ – Er þetta nám andsvar við þörf fyrir nýja þekk- ingu og stefnumörkun? „Já. Flóknara sam- félag, breytt staða kynjanna, aðlögun at- vinnu- og fjölskyldu- lífs, öðruvísi uppeldishlutverk, nýstárleg samskiptamynstur og nýjar fjölskyldugerðir framkalla breytt viðfangsefni, öðruvísi þekkingu og annars konar færni fagfólks. Þá hefur einnig þjóð- félagsumræðan og athygli stjórn- málamanna beinst æ meir að mál- efnum fjölskyldunnar. Má nefna að rektor HÍ hefur skipað starfs- hóp til að kanna aðstæður stúd- enta með fjölskylduábyrgð. Fjöl- skylduráð undirbýr nú þróun sk. Fjölskylduvogar, til að greina stöðu og þarfir fjölskyldna, eins konar vísitala sem tæki fyrir stjórnendur og stefnumótendur. Einnig undirbýr fjölskylduráð al- mennan Foreldraskóla fyrir verðandi foreldra. Þarfir almenn- ings sem snerta þennan mála- flokk tengjast sérkennum ís- lensks samfélags og menningu. Félagsráðgjöf við Háskóla Ís- lands telur því brýnt að gefa reyndum félagsráðgjöfum kost á framhaldsnámi hér heima sem veitir sérhæfða þekkingu í fjöl- skyldufræðum. Um leið er verið að skapa forsendur til að uppfylla kröfur um sérfræðiréttindi sam- kvæmt breytingu á lögum um fé- lagsráðgjöf og styrkja þannig faglega stöðu félagsráðgjafar til að fást við sérhæfð meðferðar-, fræðslu- og rannsóknarstörf á þessu sviði.“ – Stenst þetta nám fyllilega samanburð við nám í sömu grein ytra? „Vandað hefur verið til undir- búningsins, sem hefur staðið í langan tíma. Mið hefur verið tek- ið af starfstengdu meistaranámi í félagsráðgjöf við erlenda háskóla í Bandaríkjunum og á Norður- löndum og samráð verið haft við fjölmarga aðila hérlendis og er- lendis um námsefni, rannsóknar- verkefni og kennslukrafta. Um- sjónarmenn námsins og aðalkennarar eru auk mín Steinunn Hrafns- dóttir lektor, auk ann- arra fastra kennara í félagsvísindadeild og sérfræðinga í fjöl- skyldumeðferð. Erlendir gesta- fyrirlesarar verða fengnir til þess að kenna einstaka námsþætti.“ – Byrjar þetta nám í haust? „Já, og umsóknarfrestur til að sækja um námið rennur út um næstu mánaðamót. Við erum með heimasíðu, www.felags.hi.is/, og þar getur fólk aflað sér nánari upplýsinga, svo og hjá umsjónar- mönnum námsins.“ Sigrún Júlíusdóttir  Sigrún Júlíusdóttir fæddist í Hrísey á Eyjafirði 3. febrúar 1944. Stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1964 og fór til náms í félagsvísindum til Svíþjóðar þar sem hún lauk fé- lagsráðgjafanámi frá Lundarhá- skóla 1970. MA í klínískri fé- lagsráðgjöf frá Michiganháskóla 1978 og doktorspróf frá Gauta- borgarháskóla 1993. Yfirfélags- ráðgjafi á geðdeild Landspít- alans til 1990 en varð þá lektor í félagsráðgjöf við HÍ og er nú prófessor þar. Maki er Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor við HÍ, og eiga þau samtals fimm börn. Sérfræðigrein í takt við tímann MARGT bendir til þess að hár blóð- þrýstingur geti verið áhættuþáttur fyrir Alzheimersjúkdóm á efri ár- um. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnu um heilabilun og aðra sjúkdóma í heila aldraðra sem lauk í vikunni. Ráðstefnan var haldin á vegum NorAge sem eru norræn samtök þeirra sem stunda rannsóknir á breytingum í heila aldraðra. Jón Snædal yfirlæknir á öldrunarsviði Landspítala háskólasjúkrahúss seg- ir að of hár blóðþrýstingur hafi hingað til fyrst og fremst verið álit- inn áhættuþáttur fyrir hjarta- og æðasjúkdóma en ýmsar rannsóknir sem gerðar hafi verið á Norðurlönd- unum og annars staðar sýni að hann geti einnig verið áhættuþáttur fyrir Alzheimer. Hann segir að þessi vitneskja sé ekki nýtilkomin en nú hafi hún verið studd af fleiri rannsóknum. „Það er viðurkennt núna að með því að með- höndla blóðþrýsting vel á miðjum aldri og upp úr því minnka líkurnar á að fá Alzheimersjúkdóm,“ segir Jón. Hann segir að um 10 til 15 pró- sent Íslendinga sem komnir eru yfir áttrætt hafi einkenni Alzheim- ersjúkdóms og því sé um að ræða stóran hóp af fólki sem þurfi að fylgjast með og stunda forvarnir hjá. Á ráðstefnunni var einnig rætt um þunglyndi meðal aldraðra en Jón segir þunglyndi býsna algengt hjá þessum aldurshópi. „Um tíu prósent aldraðra þjáist af þunglyndi og hlutfallið er ennþá hærra inni á hjúkrunarheimilum,“ segir Jón. Hann segir vitneskju um forvarnir sjúkdómsins ekki mjög langt komna en menn hafi komið fram með til- gátur um hvað hægt sé að gera til að fyrirbyggja að fólk verði alvar- lega þunglynt á efri árum. „Það eru bæði félagslegar og and- legar ástæður fyrir þunglyndi meðal aldraðra og má þar nefna missi. Líkamlegir sjúkdómar geta einnig skipt máli. Til dæmis er fólk sem hefur fengið heilablóðfall í áhættu- hópi, jafnvel þótt um minniháttar heilablóðföll sé að ræða,“ segir Jón. Hann segir félagslega þáttinn skipta miklu máli og nefnir sem dæmi að starfslok geti reynst fólki erfið. „Það er vitað að fólk sem hættir störfum og er ekkert búið undir hvað skal gera í framhaldinu er í meiri áhættu fyrir að fá þunglyndi miðað við þá sem hafa búið sig undir hvað þeir ætla að taka sér fyrir hendur,“ segir Jón. Hann segir að miklu máli skipti að fólk búi sig und- ir eftirlaunaárin félagslega með því meðal annars að sjá til þess að það hafi nóg fyrir stafni þegar að þeim tímamótum kemur. Nýjar rannsóknir kynntar á ráðstefnu um heilabilun Hár blóðþrýstingur áhættu- þáttur fyrir Alzheimersjúkdóm SAMBAND eldri sjálfstæðis- manna hélt í vikunni upp á fimm ára afmæli sitt í kosningaskrif- stofu flokksins í Álfabakka. 140 sjálfstæðismenn, 60 ára og eldri, mættu í veisluna og sungu og gæddu sér á veitingum. Margt mætra manna var á staðnum og héldu Katrín Fjeldsted, Ásta Möll- er, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðmundur Hallvarðsson m.a. ávörp. „Það var fjöldasöngur og þetta var mjög skemmtilegt,“ segir Guð- mundur sem var aðalhvatamaður að stofnun félagsins. „Þetta félag er mjög öflugt og hefur haft mjög jákvæð áhrif á Sjálfstæðisflokkinn. Það hefur meðal annars náð því fram að nú er búið að lækka eignaskattinn úr 1,2% í 0,6% og það var meðal ann- ars eitt af baráttumálum Sam- bands eldri sjálfstæðismanna,“ segir Guðmundur. Um 1.800 manns eru skráðir í félagið og segir Guðmundur að fé- lögum fari fjölgandi. Árangur af starfi eldri sjálfstæðismanna Morgunblaðið/Árni Torfason Á afmælisfundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna litu menn yfir farinn veg og ræddu helstu verkefni sem eru framundan í starfi samtakanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.