Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Netsalan ehf., Garðatorgi 3, 210 Garðabæ Sími 565 6241, 544 4210 - fax 544 4211, netf.: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan. Opið á virkum dögum frá kl. 10–18. Opið í dag, laugardag frá kl. 10-16 Opið í dag, sunnudag frá kl. 11-16 McLOUIS HÚSBÍLAR Fyrsta sending UPPSELD - önnur á leiðinni SÖLU- OG KYNNINGARSÝNING Landsins besta verð! Fellihýsin eru tilbúin á götuna með bremsubúnaði. Takmarkað magn. Til afgreiðslu strax Epic 1906 9 fet. Verð kr. 798.000 *himinn fylgir ekki VIKING FELLIHÝSI * Eigum til Grand Cherokee jeppa, Limited og Overland. Splunkunýja! SIGRÍÐUR Rut Júlíusdóttir hdl. gerði harða hríð að málatilbúnaði ákæruvaldsins í stóra málverkaföls- unarmálinu í varnarræðu sinni í gær. Krafðist hún sýknu fyrir skjól- stæðing sinn, Pétur Þór Gunnars- son, og sagði að engin gögn lægju fyrir um að hann hafi vísvitandi selt falsaðar myndir og í raun og veru væri alls ekki sannað að þeir hefðu falsað þær.-. Sönnunargögnin væru auk þess mun veikari heldur en í fyrra fölsunarmálinu en þá dæmdi Hæstiréttur Pétur Þór í sex mánaða fangelsi. Rut gaf lítið fyrir álit sérfræðinga sem hafa fært margvísleg rök fyrir því að verkin 102 séu fölsuð. Varla væri hægt að líta á álitin sem hlut- laus og fagleg enda hefðu sérfræð- ingarnir allir tengsl við kaupendur að hinum meintu fölsunum. Jafnvel sjálfir tekið þátt í að kaupa mynd- irnar á sínum tíma og ekkert séð at- hugavert við þær svo árum skipti. Rut benti á að Viktor Smári Sæ- mundsson forvörður væri starfs- maður Listasafns Íslands og list- fræðingarnir Hrafnhildur Schram og Júlíana Gottskálksdóttir hafi báð- ar unnið fyrir safnið. Kristín Guðna- dóttir listfræðingur hafi unnið á Kjarvalsstöðum í upphafi rannsókn- ar og jafnvel átt þátt í þeirri ákvörð- un að kæra myndir f.h. safnsins og sem slík „algjörlega óhæf“ til að veita álit sitt, að mati Rutar. Aðrir sérfræðingar væru ýmist tengdir kærendum eða hvorir öðrum. Þetta væri fyrsta lögreglurannsóknin, sem hún vissi til, þar sem lögregla óskaði eftir því að starfsfólk kærenda í sakamáli ynni sérfræðiálit. Og greiddi þeim margar milljónir fyrir. Ósanngjarn samanburður Pétur Þór er ákærður vegna 93 mynda. Rut rakti ákærutilvikin hvert af öðru og dugði ekki minna en sjö klukkustundir til þess. Hún sagði ótal brotalamir í rannsókninni. Meintar falsanir hafi iðulega verið bornar saman við allra bestu verk viðkomandi listamanna sem væri ákaflega ósanngjarnt enda hafi myndirnar oft verið seldar sem verk frá upphafi listamannsferils þeirra. Fullyrti Rut að margar óvefengdra mynda málaranna myndu ekki standast slíkan samanburð við meistaraverk þeirra. Taldi hún sammerkt með þessum rannsóknum að ekki hafi verið leitað eftir því sem gæti gefið vísbendingar um sýknu heldur hafi flestir sér- fræðingarnir beinlínis talið það hlut- verk sitt að finna eitthvað til að sanna sekt. Dæmi um það væri að við rannsókn á undirskrift á teikn- ingu eftir Þórarin B. Þorláksson hafi verið miðað við olíumálverk eftir listamanninn jafnvel þó að Listasafn Íslands ætti fjöldann allan af teikn- ingum eftir hann. Þegar rannsaka átti undirskrift á olíumálverki hafi síðan verið miðað við teikningar. Rut sagði sönnunarfærslu ákæru- valdsins verulega ábótavant. Ekki dygði að sanna að myndirnar væru falsaðar því einnig þyrfti að sanna að ákærði hefði sjálfur falsað eða látið falsa myndirnar í þeim ásetningi að hagnast. Ekkert þessara atriða hafi verið sannað. Eigendasögur sem lyki hjá ákærða, skortur á bókhalds- gögnum og hinn mikli fjöldi meintra falsana sem raktar eru til Gallerís Borgar dygðu ekki til. Það væri ekk- ert furðulegt að einstaklingar, sem ákærði benti á sem fyrri eigendur, hafi ekki viljað kannast við verkin enda vildu fæstir játa að hafa selt falsanir. Rut lagði áherslu á að sönn- unargögnin í þessu máli væru ekki sambærileg og í fyrra málverkaföls- unarmálinu en dómur í því féll í Hæstarétti árið 1999. Þá hafi lög- regla getað lagt fram gögn um að Pétur Þór hafi keypt þrjú málverk eftir danskan listmálara sem síðan voru seld sem myndir Jóns Stefáns- sonar í Galleríi Borg. Engin slík sönnunargögn hafi verið lögð fram í þessu máli. Aðalmeðferð stóra málverkaföls- unarmálsins lýkur væntanlega í dag Verjandinn gefur lítið fyrir sérfræðiálitin Myndin hér að ofan var seld sem verk Þórarins B. Þorlákssonar. List- fræðingur taldi myndina vera af heiði á Jótlandi og að hestar og kindur hefðu verið málaðar inn á til að gefa myndinni íslenskan blæ. Þessu hafn- aði verjandi í gær og sagði að landslagið gæti rétt eins verið íslenskt. ÚTFÖR Björns Jóhannssonar, fulltrúa ritstjóra Morg- unblaðsins, var gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í gær en Björn lést 23. apríl síðastliðinn. Prestur var sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, organisti Kári Þormar og Hljómkórinn söng. Gunnar Kvaran lék einleik á selló og Snorri Wium söng einsöng. Líkmenn voru samstarfsmenn Björns heitins á Morgunblaðinu, fremstir Magnús Finnsson (fjær) og Ragnar Axelsson, þá Guðlaug Sigurðardóttir og Ágúst Ingi Jónsson, Sigtryggur Sigtryggsson og Björn Vignir Sig- urpálsson og aftast Þórir Þorsteinsson og Freysteinn Jóhannsson. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Útför Björns Jóhannssonar ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra telur að með því að gera ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga á kvóta virkara en nú er yrði stuðlað að stöðugleika í byggðarlögum og í útgerð. Líklega þurfi lagabreyt- ingu til en hann vill þó ekki tjá sig frekar um hvernig breytingin yrði útfærð. Davíð Oddsson forsætisráðherra lýsti þeirri skoðun sinni á stjórnmálafundi í Vestmannaeyjum á fimmtu- dag, að til álita komi að gera forkaupsréttarákvæðið virkara en nú er. „Framsalið er fyrir hendi en það er nauðsynlegt að varnagli sé fyrir byggðirnar. Við hljót- um því að skoða gaumgæfilega hvaða kostir eru fyrir hendi,“ sagði Davíð. Árna lýst vel á þessa hugmynd og telur að virkara ákvæði stuðli að stöðugleika í byggðarlögum þar sem veiðiheimildir yrðu ekki fluttar þaðan jafn skyndilega eins og menn ætla að þær geti gert við núverandi virkni ákvæðisins. Sjávarútvegurinn hafi gengið í gegnum mikið hagræðingarskeið en nú sé sennilega komið að því að huga meira að því að viðhalda stöð- ugleika í greininni. Hægt sé að finna leiðir til þess án þess að stefna sveigjanleika og aðlögunarhæfni sjáv- arútvegsins í voða. Virkaði ekki eins og menn héldu Aðspurður segir Árni að forkaupsréttarákvæðið hafi ekki virkað eins vel og menn upphaflega gerðu ráð fyr- ir. Frá því ákvæðið var sett í lög hafi menn verið upp- teknir við að ræða um hvort setja ætti gjald á sjávar- útveginn eða afskrifa veiðiheimildir og ekki gætt að þeim möguleika að styrkja þennan rétt. Síðan hafi út- gerðarfyrirtæki þurft að bregðast við aflasamdrætti og aðlaga sig hratt að aðstæðum. Nú, þegar menn sjá fram á betri tíma sé sveigjanleikinn ekki jafn mik- ilvægur og því sé hægt að leggja meiri áherslu á að viðhalda stöðugleikanum. Virkari forkaupsréttur stuðlar að stöðugleika SKEMMDIR hafa komið í ljós á trjám og plöntum í kjölfar nætur- frosts undanfarna sólarhringa á Norður- og Austurlandi og víðar á landinu. Þröstur Eysteinsson, fag- málastjóri Skógræktar ríkisins, seg- ir skemmdirnar einkum bundnar við trjátegundir sem hafi grænkað óvenju snemma í vor. Aðallega sé um að ræða skemmdir á blöðum og nál- um. Tegundir sem helst hafa orðið fyr- ir skemmdum á Norður- og Austur- landi eru lerki og aspir. Þá hafa skrautrunnar í görðum; heggur, toppar, sírenur og fleiri tegundir orðið fyrir skemmdum. Þröstur seg- ir útlit fyrir að gróður verði ljótur í einhverjum görðum og einnig sumar trjátegundir í skógrækt. „Síðan eru aðrar tegundir sem eru sennilega ekki skemmdar, eins og greni, fura og birki.“ Hann segist vongóður um að til- tölulega litlar skemmdir verði á sprotunum sjálfum og tré ættu í flestum tilvikum að ná sér. Heldur snemmt sé hins vegar að segja til um hversu miklar skemmdirnar séu, það velti á því hvort rætist úr veðri og hvort sumarið verði sæmilega hlýtt. Þröstur segir ungplöntur viðkvæm- astar. Ef kal komist í sprotana kunni einhverjar þeirra að drepast. Skemmdir á trjám og plöntum Næturfrost og kólnandi veður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.