Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 6
„ÞETTA er frábært,“ segir hinn breski Harry Walker skælbrosandi þegar blaðamaður spyr hann hvernig honum lítist á nýju stoðtækin sem hann, ásamt þrem- ur öðrum börnum, er kominn til Íslands til að prófa. Harry sem er sjö ára hefur verið með gervifót frá 18 mánaða aldri. Hann segir að nýi fóturinn sé betri en sá sem hann hafði áður, mýkri þegar gengið er og dragist ekkert til. Harry stundar ýmsar íþróttir eins og fótbolta, krikket, tennis. Hann segist einnig hafa gaman af því að syngja og nýlega byrjaði hann að læra steppdans. Hann segist auðveldlega geta stund- að þessar íþróttir en þó verði hann að passa sig dálít- ið, aðallega í fótbolta. „Samt finnst mér fótboltinn skemmtilegastur af íþróttunum. Dansinn á þó hug minn allan núna og ég ætla að einbeita mér að frama mínum þar.“ Harry ætlar að einbeita sér að steppdansi FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                                                              !! "    #    ! "!   ! #  $  %   %  #  & $   # %  VERULEGUR munur á afstöðu kynjanna er fyrir hendi meðal kjós- enda hér á landi, að því er fram kem- ur í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið á fylgi flokkanna. Dregur stofnunin þessa ályktun út frá fylgistölum kynjanna við Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna þar sem marktækt fleiri konur en karlar styðja Sam- fylkinguna en þessu er öfugt farið með stuðning við Sjálfstæðisflokk- inn. Þannig segjast 38% kvenna styðja Samfylkinguna en 26,2% karla, en 39,8% karla ætla að kjósa Sjálfstæð- isflokkinn og 29,8% kvenna. Hefur stuðningur kvenna við Sjálfstæðis- flokkinn aukist frá síðustu könnun, á meðan hann hefur minnkað hjá Sam- fylkingunni. Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í öllum aldurshópum Munurinn milli kynja er ekki mik- ill í öðrum flokkum. Eilítið fleiri karl- ar en konur styðja Framsóknar- flokkinn og Frjálslynda flokkinn en lítið eitt fleiri konur en karlar kjósa Vinstri græna. Félagsvísindastofnun bendir á að greiningu sem þessa beri að taka með miklum fyrirvara vegna töluverðra skekkjumarka, að munin- um milli Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar undanskildum. Þegar stuðningur kjósenda er skoðaður eftir aldri sést að Sjálfstæðisflokk- urinn nýtur mests stuðnings í öllum aldurshópum, mest 35,7% meðal 35– 44 ára og 60–80 ára kjósenda. Sam- fylkingin fylgir fast á eftir í flestum aldurshópum ef frá er talinn sá yngsti, 18–24 ára. Þar nýtur Sjálf- stæðisflokkurinn 34,7% fylgis á með- an Samfylkingin er með 26,5% þess hóps á sínu bandi. Sé litið á fylgi Frjálslynda flokksins vekur athygli að hlutfallslega höfðar hann mest til yngstu kjósenda, eða með 12,3% fylgi, en fylgið í öðrum aldurshópum er á bilinu 6 til 8,4%. VG er sömuleið- is með mest fylgi hjá 18–24 ára kjós- endum, 14,1%, og næstmest meðal 45–59 ára, 12,1%. Stuðningur við Framsóknarflokkinn dreifist nokkuð jafnt á alla aldurshópa, mest 17% hjá 25–34 ára kjósendum en minnst 12,4% hjá þeim yngstu. Er þetta breyting frá fyrri könnunum þar sem flokkurinn hefur notið mestrar hylli hjá elstu kjósendunum, en taka ber þessa greiningu með fyrirvara vegna nokkurra skekkjumarka. Könnunin var gerð dagana 27.–30. apríl síðastliðinn. Stuðst var við 1.200 manna slembiúrtak úr þjóð- skrá er náði til allra landsmanna á aldrinum 18–80 ára. Alls svaraði 791 könnuninni þannig að brúttósvar- hlutfall var 65,9%. Nettósvörun var 68,5%, sem er heldur meira en í síð- ustu könnun, en þá hafa verið dregn- ir frá þeir sem ekki verða komnir með kosningarétt 10. maí, þeir sem eru búsettir erlendis, eru látnir eða veikir og geta ekki svarað. Nærri 20% úrtaksins neituðu og svara og ekki náðist í tæp 12%.      !"#$%&# '!&&%            (&$)&  *+$+,  %+$**  !+$%*  -)$!*   !  "  #    $    %&                    '     '    '           '  '                    Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskólans fyrir Morgunblaðið Raunverulegur munur á afstöðu kynjanna ÖSSUR hf. hefur hannað línu stoðtækja sem ætluð er börnum og er þetta í fyrsta sinn sem slíkar vörur eru þróaðar eingöngu með þann hóp í huga, að sögn Eyþórs Ben- der framkvæmda- stjóra markaðs- og vörusviðs, hjá Össuri. „Hér er um að ræða gervifætur sem eiga að auka færni barna frá 5 ára aldri og minnka áreynslu til dæmis við að ganga niður brekku, stunda íþróttir og leika sér,“ segir Eyþór. Hann bendir á að einnig séu þau líklegri til að ganga á réttan hátt sem hafi mikla þýðingu fyrir líkamsbygg- ingu, t.d. bak og beinabyggingu. „Væntanlega falla þau líka betur inn í hópinn með jafnöldr- um sínum og finna minna fyrir fötluninni, bæði líkamlega og fé- lagslega.“ Nýja línan hefur ver- ið í þróun í eitt ár og kemur á markað í haust. Hún verður seld um allan heim, að sögn Eyþórs. „Þetta gefur okkur tækifæri til að vinna með viðskiptavinum sem eru sérhæfðir í að vinna með börn með fötlun, til dæmis eru til sjúkrahús sem ein- göngu sinna þeim hópi.“ Hann bendir á að með þessari línu sé Össur í fyrsta skipti að selja gervilimi í heilu lagi, hingað til hafi fyrirtækið yfirleitt einungis selt hluta af þeim. „Þetta er því gott tækifæri og eykur vonandi markaðs- hlutdeild okkar.“ Í mismunandi litum Hann segir að hingað til hafi gervilimir eingöngu verið hannaðir fyrir fullorðna og síðan framleiddir í minni stærðum fyrir börn. Einungis hafi einstaka hlutir úr gervilimum verið þróaðir með börn í huga en aldrei allur gervilimurinn fyrr en nú. Hann bendir á að meðal þess sem huga verði sérstaklega að þeg- ar verið er að hanna fyrir börn sé ending og útlit auk þess sem tækin verði að vera fyrirferðarlítil. „Krakkar hreyfa sig meira en full- orðnir og því þarf endingin að vera góð. Á sama hátt skiptir útlit miklu máli, bæði að gervilimirnir geti ver- ið eðlilegir í útliti en einnig að þetta sé gert spennandi í augum krakk- anna eins og að vera til dæmis með mismunandi liti.“ Össur með fyrstu stoð- tækjalínuna fyrir börn Eyþór Bender TVEIR starfsmenn Morgun- blaðsins, Agnes Bragadóttir, sem verið hefur fréttastjóri sl. átta ár, og Nína Björk Jóns- dóttir blaðamaður, hafa verið ráðnar til starfa á vegum Ís- lensku friðargæslunnar sem heyrir undir utanríkisráðu- neytið. Agnes verður við störf á Sri Lanka og heldur áleiðis þangað í næstu viku og Nína Björk hefur þegar hafist handa í Makedóníu. Agnes Bragadóttir verður talsmaður friðargæslusveit- anna í Sri Lanka en henni stjórnar norskur hershöfðingi. Friðargæslusveitin er skipuð mönnum frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og hef- ur starfað í landinu frá því kom- ið var á vopnahléi milli stríð- andi afla. Nína Björk Jónsdóttir er í Skopje í Makedóníu þar sem friðargæslulið 27 landa innan Evrópusambandsins tók við af hersveitum Atlantshafsbanda- lagsins. Starfar Nína Björk á skrifstofu talsmanns friðar- gæslunnar. Þær eru báðar ráðnar til starfa sinna til sex til 12 mán- aða sem starfsmenn Íslensku friðargæslunnar til verkefna í þessum löndum. Tveir starfsmenn Morgun- blaðsins til friðargæslu ÍSLAND er eitt fárra ríkja sem náð hafa markmiðum Sameinuðu þjóð- anna um fjölda kvenna á þingi. Þróun- arsjóður kvenna hjá Sameinuðu þjóð- unum setti fram það markmið á kvennaráðstefnunni í Peking árið 1995 að a.m.k. 30% þingmanna væru konur. Norðurlöndin skapa sér nokkra sérstöðu þar sem þau sem hafa sjálfstæði, náðu öll markmiðinu. Þrátt fyrir að nokkur árangur hafi náðst í jafnréttisbaráttu SÞ eru að meðaltali aðeins 14% þingmanna í heiminum konur. Aðeins 10 lönd náðu settu marki auk Íslands: Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland, Þýska- land, Holland, Argentína, Costa Ríka, Mósambík, og Suður-Afríka. Pólitísk þátttaka kvenna Öll Norðurlöndin uppfylla markmið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.