Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HEYRT hef ég fólkið mæla margt, en meina ekki neitt. Velfægðir vindhanar hafa nú snúist í hringi, hringinn í kringum landið og hringavit- leysunni virðist aldrei ætla að linna. Það væri ekki í frá- sögur færandi nema fyrir það eitt að þessir vindhanar eru mennskir. Ístöðuleysi og órói virðast ein- kenna þá fremur en stefnufesta og öryggi. Nú hafa þeir kveðið öf- ugmælavísur hver í kapp við ann- an, nær stanslaust síðastliðið ár. Þeir hafa kosið að setja Evrópu- sambandsaðild ofarlega á stefnu- skrána hjá sér en vilja þegar á hólminn er komið varla tala mikið um það. Þeir vaða elginn er þeir básúna eigin umhyggju fyrir lýð- ræðinu en láta sinn kjörna for- mann lönd og leið þegar þeir tefla fram forystumanni sínum. For- manninum var um áramót falið að hugsa um innra starf hópsins en er nú farinn að úttala sig á op- inberum vettvangi um hin ýmsu mál. Forystumaðurinn þvertók fyrir þingframboð, fór í þing- framboð fyrir Reykjavík en er nú sagður í framboði fyrir alla lands- menn. Í menntamálum láta þeir sem þeir vilji breytingar t.a.m. á lögum um framhaldsskóla sem þeir hafa ekki svo mikið sem ýjað að á undanförnum árum. Jafn- lausgeðja eru þeir í sjávarútvegs- málum, þar sem færa átti þjóðinni auðlindina aftur með álögum á út- gerðaraðila, svo komust þeir að því að megnið af útgerðaraðilum hefði varið allnokkru fé til kvóta- kaupa, þá á að taka kvótann af út- gerðinni, bjóða hann upp til sölu sem útgerðaraðilar geta keypt en svo á að endurgreiða útgerð- armönnunum fyrir það að kvótinn var hafður af þeim. Þá mun vera óljóst til hvers var farið í svona snúninga eða hvernig eigi að skil- greina kvótakaup og þátttöku hluthafa í útgerðarfélögum. Í einu orði er látið að því liggja að þeir vilji uppbyggingu á lands- byggðinni, en gefa í skyn að hún megi ekki vera meiri en á höf- uðborgarsvæðinu, sbr. viðbrögð við flýtiframkvæmdum í vegagerð nýverið, og finna svo að því að markmið byggðaáætlana hafi ekki náðst. Þeir eru með glysmælgi er þeir tala um siðferði en skortir allt þrek í þeim efnum eins og sjá má. Berist talið að skattamálum reyna þeir hvað þeir geta að loka aug- unum fyrir því að þeir hugsa slíkt ekki til enda frekar en önnur mál, krefjast þess að endurskoðuð gylliboð þeirra verði reiknuð þeim í hag. Komi í ljós að séð frá ein- hverju sjónarhorni séu tillögur þeirra lakari en annarra, þá er fólk hvatt til að líta undan meðan þeir keppast við að umorða stefnu sína. Þeir hurfu frá hugmyndum sínum um fjölþrepa skattkerfi, sennilega þegar þeir sáu fram á það að ef fólk myndi auka tekjur sínar þannig að það myndi færast upp um skattþrep þá þýddi það meiri en ekki minni jaðarskatta. Álit manna á óaðgengilegum skil- yrðum þeirra fyrir stjórn- armyndun eru sögð vera yfirlýsing um að þeir séu útilokaðir frá stjórnarmyndun, þó útiloka þeir aðra með þeim skilyrðum sem sett eru fram. Við Íslendingar höfum flokk manna sem hefur ekki lagt í vana sinn að lofa miklu en Sjálfstæð- isflokkurinn hefur tamið sér að standa við það litla sem hann lofar og gera betur en það. Þar hefur þjóðin vin í raun sem Sjálfstæð- isflokkurinn er, enda hefur Sjálf- stæðisflokkurinn skýra og tæra stefnu í öllum málum. Hjá vindhönunum virðist til- gangurinn helga meðalið, allt skal reynt og öllu skal beitt til þess að komast í tæri við völd, ekki skoð- ana eða stefnunnar vegna hvað þá vegna fólksins í landinu. Vindhan- arnir vilja völd valdanna vegna. Rétt eins og þeir krefjast breyt- inga breytinganna vegna en ekki vegna þess að eitthvað sé að, eða það sé eitthvað sem megi betur fara. Sumir þeirra hafa sumstaðar lofað að hækka ekki skatta en hafa svo hækkað skatta, og halda þeir nú áfram að lofa, lofa og lofa og við getum vel ímyndað okkur hve lítill vilji er fyrir efndum af þeirra hálfu. Þótt þetta hafi staðið lengi, svo lengi að sumir eru komnir með leið á þessari hringavitleysu, þá tel ég að við höfum einungis fengið að kynnast smjörþefnum af þeim ruglingi sem þjóðfélagið gæti end- að í, kveði þessir öfugmæltu vind- hanar sig inn í ríkisstjórn. Fari svo tel ég morgunljóst að Ísland þurfi á allri þeirri blessun að halda sem Eggert Ólafsson bað fyrir í Íslands minni sínu. „Vertu blessað, blessi þig“. Örvæntingarfullar öfugmælavísur Eftir Arnljót Bjarka Bergsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur. Á PÁSKADAG ryðst fyrrverandi formaður Knattspyrnufélagsins Vík- ings, Hallur Hallsson, enn og aftur fram á síður Morgunblaðsins með óhróður og dylgjur í garð fyrrverandi borgarstjóra og borgaryfirvalda varðandi samskipti Reykjavíkurborgar og Víkings. Og ekki nóg með það, því nú telur formaðurinn fyrrver- andi að hann hafi orðið fórnarlamb þessara samskipta og orðið að láta af formennsku hjá félaginu „svo félagið væri ekki látið gjalda starfa fréttamannsins“. En Hallur heldur því fram í grein sinni að störf hans sem fréttamanns á Stöð 2 hafi komið í veg fyrir fundi í Ráðhúsinu um málefni Vík- ings og að í Ráðhúsinu hafi dyrum verið lokað á Víking og allt frosið fast. Þess vegna hafi verið ráð fyrir hann að láta af störfum sem formaður Víkings. Hallur veit vel að það voru allt aðrar ástæður fyrir því að hann hætti sem formaður Víkings og það er alls ekki rétt að lítið hafi gerst í málefnum Víkings í tæpan áratug. Með árásum sínum er fyrrverandi formaður Vík- ings ekki eingöngu að ráðast á fyrrverandi borgarstjóra, heldur einnig nú- verandi, á Íþrótta- og tómstundaráð og framkvæmdastjóra þess. Það er ekki falleg saga því þessir aðilar eiga síst skilið slíkar árásir varðandi sam- skipti þeirra við íþróttahreyfinguna í höfuðborginni. Mikilvæg og góð samskipti hafa verið á milli núverandi forystumanna Víkings og borgaryfirvalda eins og þau voru í raun einnig áður. Þannig var Víkingur fyrsta félagið í Reykjavík þar sem gerður var samningur um uppbyggingu á íþróttahúsi á svæði félaga í borginni og síðan hafa komið fjölmargir slíkir samningar í kjölfarið við önnur félög. Hvað varðar samskipti milli Víkings og borgaryfirvalda á síðustu árum nægir að nefna þar nokkur dæmi til sögunnar. Árið 2000 var samþykkt að stækka svæði félagsins við Stjörnugróf og tók- ust um það samningar milli borgaryfirvalda, Kópavogs og Víkings. Borg- aryfirvöld styrktu Víking til þessara framkvæmda með 55 m.kr. styrk. Árið 2001 fékk Víkingur 10 m.kr. styrk til framkvæmda við nýja glæsi- lega stúku við nýjan aðalvöll félagsins. Þá lokaði borgarstjóri engum dyr- um í Ráðhúsinu. Árið 2002 var gerður samningur milli Víkings og borgaryfirvalda um 20 m. kr. styrk til framkvæmda við lokafrágang félagsheimilis Víkings. Þá var eng- um dyrum Ráðhússins lokað. Árið 2001 var gerður þjónustusamningur milli Víkings og borgaryf- irvalda m.a. um starf íþróttafulltrúa á vegum Víkings með stuðningi ÍTR. Hér var um tímamótasamning að ræða sem var endurnýjaður í lok síðasta árs. Hér var engum dyrum í Ráðhúsinu lokað. Um árabil hefur verið í gildi þjónustusamningur á milli skíðadeilda Vík- ings og ÍTR um rekstur skíðasvæðis Víkings í Sleggjubeinsskarði og hefur verið mikið og gott samstarf á milli aðila vegna þessa verkefnis og nú ligg- ur fyrir að gera nýjan samstarfssamning á milli aðila. Hér hefur ekkert frosið fast. Nær væri að segja að þíða og gott samstarf hefðu ríkt í öllum sam- skiptum á milli forráðamanna Víkings og borgaryfirvalda síðasta áratug. Þannig hafa á vegum framkvæmdastjóra ÍTR m.a. verið lagðar fram til- lögur um styrkveitingu til Víkings vegna sumarnámskeiða, afrekssjóðs og stúkubyggingar. Og nú nýverið var samþykkt í Íþrótta- og tómstundaráði tillaga þar sem gert er ráð fyrir að gengið verði til samninga við Knatt- spyrnufélagið Víking um styrkveitingar á næstu árum vegna loka- framkvæmda við stúkubyggingu og fleira á svæði félagsins. Vegna þessara tillagna hefur engum dyrum verið lokað í Ráðhúsinu og ekkert frosið fast. Og í raun væri gaman að fá að heyra frá núverandi formanni Víkings um hvort hann telji að lokað hafi verið á dyr í samskiptum borgaryfirvalda og Víkings og hvort þau mál sem Víkingur hefur komið með til borgaryfirvalda séu þar í einhverju frosti. Ef fyrrverandi formaður Víkings þarf að ráðast á pólitíska andstæðinga sína með dylgjum og óhróðri fer ég þess vinsamlegast á leit við hann að mínu gamla og góða íþróttafélagi, Knattspyrnufélaginu Víkingi, sé haldið utan við þá orrahríð. Þannig að núverandi forystumenn félagsins geti, með fullri reisn, haldið uppi eðlilegum og málefnalegum samskiptum við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur. Því þar á bæ, frekar en í Ráðhús- inu, hefur engum dyrum verið lokað né hlutirnir frosið fastir varðandi samskipti við Knattspyrnufélagið Víking. Það er nú svo. Með fullri reisn Eftir Ingvar Sverrisson Höfundur er varaformaður ÍTR og Víkingur. BARÁTTAN um þingsætin á að vera hinn lýðræðislegi farvegur átak- anna um áhrif á stefnumörkun land- stjórnarinnar. Mál- svarar stjórnmála- flokkanna, fram- bjóðendurnir, kynna þá fyrir kjósendum málin, sem flokkar þeirra hafa sett á oddinn. Kjósendum er þannig gert kleift að taka mál- efnalega afstöðu. Andstæðan við þessar leikreglur lýðræðisins er per- sónudýrkun og málefnafælni. Beiti flokkar slíku verður frambjóðendum þeirra í lófa lagið að sigla undir fölsku flaggi fyrir kosningar. Kann þá um síðir að renna upp fyrir ýmsum að hafa keypt köttinn í sekknum. Í þess- ari kosningabaráttu hefur það borið til tíðinda, að prinsessa Samfylking- arinnar, „forsætisráðherraefni“ án skýrs umboðs frá flokki sínum, nema til framboðs í 5. sæti í Reykjavík, hef- ur gerzt hælbítur sitjandi forsætis- ráðherra. Þannig sakar hún ráð- herrann um að misfara með vald sitt og að tjá sig um of um ýmsa kaup- sýslumenn, þjóna þjóðkirkjunnar og forseta lýðveldisins, svo að sitthvað sé nefnt. Hér gerir téður frambjóð- andi tilraun til að setja býsna loðnar leikreglur, sem standast ekki. Alþing- ismenn og þar á meðal ráðherrar njóta skýlauss tjáningarfrelsis. Ef t.d. ráðherrar telja þörf á að gera grein fyrir afstöðu sinni til atburða eiga þeir óheftan rétt á því. Mála- tilbúnaður málpípu Samfylking- arinnar reynist vera stormur í vatns- glasi. Ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar hafa staðið að mestu lagabótum í sögu lýðveldisins til að tryggja rétt- arstöðu fyrirtækja og hins almenna borgara í landinu gagnvart stjórn- völdum, eins og rakið er í yfirlitsgrein Davíðs Þórs Björgvinssonar lagapró- fessors í Morgunblaðinu 20. apríl sl., „Ríki og þegnar“. Þá hafa rík- isstjórnir Davíðs Oddssonar stórlega dregið úr ítökum ríkisins og af- skiptum stjórnmálamanna af at- vinnulífinu. Þetta er þáttur í stefnu Sjálfstæðisflokksins til að bæta stjórnun atvinnulífsins og til að auka framleiðni fjármagns og vinnuafls, öllum þegnum landsins til hagsbóta. Í fyrrgreindu tölublaði Morg- unblaðsins er að finna grein eftir Hall Hallsson, fyrrverandi formann Vík- ings og fréttamann, „Með fulla vasa af grjóti“. Þar segir af viðskiptum hans og fyrrverandi borgarstjóra. Af þeirri frásögn að dæma eru engla- vængir „forsætisráðherraefnisins“ býsna sviðnir. Ályktunin, sem hægt er að draga af þessu öllu saman, er, að „forsætisráðherraefnið“ sé úlfur í sauðargæru. Þjóðnýtingaráformin Seint verður sagt með réttu, að stjórnarandstaðan geisli af frumleika eða hugmyndaauðgi. Hún hefur t.d. lagt fyrir kjósendur tillögur um stjórnun fiskveiða, sem gætu verið ættaðar úr vopnabúri aðalhugmynda- fræðings sameignarsinna á 19. öld, Karls Marx. Á Íslandi eru atvinnu- tæki útgerðanna veðsett með kvóta- eigninni, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Þjóðnýting fiskveiði- heimilda („fyrningin“) um 5–20% á ári mundi þess vegna jafngilda eign- arnámi atvinnutækjanna. Vinstri- flokkarnir á Íslandi birtast kjós- endum í þessu máli sem öðrum sem gamalt vín á nýjum belgjum; þeir hafa ekkert lært og engu gleymt. Kvótakerfið er barn síns tíma og var innleitt, þegar sjávarútvegur var hér á heljarþröminni. Síðar var heim- ilað frjálst framsal aflaheimilda til að flýta fyrir hagræðingu í greininni. Öflugar útgerðir hafa síðan myndazt, og í sumum tilvikum hefur kvótaeign náð leyfilegu hámarki, 1⁄8 af heild- arkvóta. Þess vegna er ekki úr vegi nú að líta svo á, að tímabært sé að breyta hinum umdeildu framsals- ákvæðum. Það mætti t.d. gera með því að stofna aflasjóð, og renni ónýtt- ar veiðiheimildir hvers fiskveiðiárs til hans á ákveðnum hundraðshluta markaðsverðs. Sjóðurinn fái auk þess leyfi til að ganga inn í viðskipti með kvóta; njóti með öðrum orðum for- kaupsréttar með svipuðum hætti og hreppar, þegar um jarðasölu er að ræða. Sjávarútvegsráðuneytið flokki þessar keyptu veiðiheimildir að nýju eftir leyfilegum veiðarfærum sam- kvæmt ástandi lífríkisins í sjónum og almennri stefnu sinni um veiðar og bjóði síðan upp hvern flokk fyrir sig til afnota í nokkur ár. Verði einhver hagnaður af þessum viðskiptum afla- sjóðs skuli nýta hann innan sjáv- arútvegsins. Jafnframt þessu verði hætt við veiðileyfagjaldið, enda er það skattlagning á sjávarútveginn, sem skekkir samkeppnisstöðu hans. Hagstjórnun Á næstu árum mun reyna mjög á hagstjórnun á Íslandi. Ástæðan er sú, að í hönd fer mikið þenslutímabil, eins og kunnugt er. Til að stöðugleik- inn haldist má enginn hlekkur bresta. Ríkisstjórnin, Seðlabankinn og verkalýðshreyfingin verða öll að leggjast á eitt, ef takast á að sigla fleyinu á milli skers og báru. Til að sporna við verðbólgu verður Seðla- bankinn að hækka stýrivexti. Háir vextir og miklar erlendar fjárfest- ingar í samanburði við viðskiptalönd- in munu valda hækkun íslenzku krón- unnar. Þessi staða veldur útflutningsatvinnuvegunum tíma- bundnum erfiðleikum. Á meðan geta þeir ekki staðið undir launahækk- unum. Hér mun ríkisstjórnin verða að koma til skjalanna með jöfnum hlutfallslegum skattalækkunum í anda Sjálfstæðisflokksins. Að stjórna þessari atburðarás verður ekki heigl- um hent. Prinsessan á bauninni Eftir Bjarna Jónsson Höfundur er verkfræðingur. STJÓRNMÁLAMENN, fjöl- miðlar, álitsgjafar og aðrir þeir sem til eru kallaðir að meta stöðuna tala um að loksins sé þrjátíu ára bið Aust- firðinga eftir stór- iðju lokið. Það sé rétt að gleðjast með þeim og láta af öllu nöldri. Að vísu hefur Morgunblaðið minnsta kosti einu sinni skrifað í leiðara um að málstaður andstæð- inganna sé nokkuð sem taka þurfti tillit til og ekki eigi að gera lítið úr. Nánari útfærsla á þeirri sáttargjörð hefur þó ekki litið dagsins ljós. Virkjunar- og stóriðjumálið er þó ekki ástæða þess að ég sé mig knúna til að stinga niður penna heldur notkunin á hugtakinu bið. Saga byggðar á Íslandi spannar samkvæmt rituðum heimildum um það bil ellefu hundruð og þrjátíu ár. Það er í hæsta máta líklegt að konur hafi búið hér nánast jafnlengi og karlar, í það minnsta hafa ekki liðið margir áratugir sem karlar hafa ver- ið hér einir. Allan þennan tíma hafa konur búið við lakari kjör en karlar og mátt sæta því að samfélagið hafi verið mótað út frá sjónarmiðum og þörfum karla. Það er fyrst í byrjun síðustu aldar sem kvenfrelsisbarátta hefst af fullum krafti á Íslandi. Með fyrstu bylgju kvenfrelsis náðist kosningaréttur og jafn réttur til embætta og náms. Það tók síðan alla öldina að koma á þeirri skipan að sjálfsagt væri að konur væru í stjórnmálum, sæktust eftir emb- ættum og stunduðu nám til jafns við karla. Á þeim þrjátíu árum sem Aust- firðingar hafa beðið eftir stóriðju hafa konur flykkst í nám og eru nú orðnar fleiri en karlar í skólum. Konur eru í meirihluta nemenda Há- skóla Íslands og þar hafa þær aflað sér menntunar á sviði kynjafræði og í mörgum deildum skólans eru nám- skeið sem skoða viðkomandi fræði- grein út frá kynjuðu sjónarhorni. Þessi þróun er afsprengi annarrar bylgju kvenfrelsis sem hófst með stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar og síðan Kvennalistans. Í þessu tvennu, formlegri menntun og reynslu af starfi í þessum tveimur hreyfingum, felst gífurlegur auður í formi þekkingar á stöðu kvenna á Ís- landi árið 2003. Eitt hefur þó ekki breyst sem nokkru nemur og á ég þar við launa- mun kynjanna. Kynbundinn launa- munur er staðreynd og skiptir þar ekki öllu hvort hann er 24% eða 37% eða jafnvel enn meiri, heldur hvað er hægt að gera til að útrýma honum. Það er nefnilega hægt því hér er um mannasetningu að ræða, en ekki náttúrulögmál. Það hefur sýnt sig í fordæmi Reykjavíkurborgar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur og Verzlunarmannafélags Reykjavíkur í að styðja konur til að gera kröfur í launamálum. Því miður eru fáir sem fetað hafa í fótspor þeirra og flestum virðist standa á sama um bið kvenna eftir jöfnum launum á við karla. Í komandi kosningum er því mik- ilvægt að konur skoði vel hvað flokk- arnir ætla að gera í launa- og at- vinnumálum kvenna. Við höfum beðið í þrjátíu ár líkt og Austfirð- ingar og vel það og ættum því að fá sömu skjótu lausnirnar og þeir fengu eftir sína bið. Það eru fá ár síðan Jafnréttisstofa komst að þeirri niðurstöðu að það tæki 114 ár að jafna launamuninn. Aðgerðir Reykjavíkurborgar hafa að vísu orð- ið til að stytta þessa bið, en samt tæki biðin næstum því meðalmanns- aldur þegar á heildina er litið. Og það er nokkuð sem við femínistar ætlum ekki að sætta okkur við. Stjórnmálaflokkarnir verða því að svara af hverju þeir setja konur ekki á sama bekk hvað mikilvægi varðar og þá sem vilja eindregið stóriðju, og sýna um leið fram á hvernig afleidd störf vegna framkvæmdanna, sem koma að líkindum í hlut kvenna, verða metin til launa. Biðin Eftir Sigurbjörgu Ásgeirsdóttur Höfundur er afgreiðslukona.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.