Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTUM því upp á dag fyrir
fimm árum birtist hér í blaðinu um-
sögn eftir undirritaðan um sýningu
á Broadway þar sem flutt voru lög
sem urðu vinsæl með sænsku hljóm-
sveitinni ABBA. Þar var ung söng-
kona, Birgitta Haukdal, að koma
fram í sinni fyrstu sýningu, en vet-
urinn 1996 hafði hún tekið þátt í
hæfileikakeppni sem kölluð var
Stjörnur morgundagsins á sama
stað.
Nú mun þessi „spútnik frá Húsa-
vík sem átti salinn“ koma fram fyrir
Íslands hönd í Evróvisjónkeppninni
í Rígu 24. maí nk. Gunnar Þórðar-
son fyrir hönd Broadway gaf Birg-
ittu tækifæri til að koma sér á fram-
færi og hún hafði bein í nefinu,
áhuga og getu til að nýta sér það til
að skapa sér starfsvettvang við að
flytja dægurtónlist og er nú vinsæl-
asta söngkona landsins á þeim vett-
vangi. Kristján Gíslason sem söng
íslenska lagið í Evróvisjón 2001
ásamt Gunnari Ólasyni nýtti líka
sýningarnar á Broadway sem stökk-
pall út í heiminn, en hann átti nokk-
urn feril að baki þegar hann tók þátt
í ABBA-sýningunni.
Selma Björnsdóttir, sá fulltrúi Ís-
lands sem lengst hefur náð í keppn-
inni, var ásamt Loga Bergmann
Eiðssyni kynnir kvöldsins. Þau
slógu á létta strengi og tókst vel upp
enda bæði í góðu formi. Efnið var
oft bráðfyndið, sérstaklega Eyfa-
brandararnir og allt sem var á
kostnað Charlotte Nielsen enda
hrifsaði hún sigurinn úr höndum
Selmu í denn. Selma sá líka um
dansana en að baki þeim var tölu-
verð vinna. Sporum sem sáust fyrst
við flutning laganna í keppninni var
ofið saman við hennar eigin sköpun.
Auk söngvaranna sáu tvær stúlkur
um dansinn þetta kvöld, Ásta Bær-
ings og Sigyn Blöndal. Þetta eru
hressar stelpur, vel samhæfðar og
fullar af krafti. Dansinn setti mikinn
svip á sýninguna hvort sem kynnin
voru endurnýjuð við gamalkunna
takta eður ei. Gott dæmi er hve vel
dönsurunum tókst að ná „eighties-
fílíngnum“ í sporum frá Söndru Kim
í „J’aime la vie“.
Í þessum sýningum hefur yfirleitt
verið tekinn sá póll í hæðina að
söngvararnir leika ekki hlutverk
upphaflegu flytjendanna þó að þeir
velji sér ákveðna þætti úr upphaf-
legum flutningsmáta til að líkja eft-
ir. Guðrún Árný varð t.d. undarlega
fáguð útgáfa af Birgittu – enda eru
þær hvor á sínum pólnum í dæg-
urmúsíkinni og ákaflega ólíkar í út-
liti og framkomu. Búningar eru af
ýmsum toga, stundum reynt að líkja
eftir upphaflegum búningi kepp-
enda og þá oftar en ekki dregnar
fram spaugilegar hliðar þeirra með
góðum árangri – sem dæmi má
nefna múnderinguna í hinum vel út-
færða „Lífsdansi“ Geirmundar Val-
týssonar og diskóbúningana í „Save
Your Kisses for Me“. Ljós og brell-
ur koma svo eiginlega í stað leik-
myndar í þetta flókinni og hraðri
sýningu.
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
átti ekki í neinum erfiðleikum með
að endurskapa frumútsetningar
laganna enda vanir menn í hverju
rúmi og hljómurinn þéttur og fal-
legur.
Flutt voru 24 lög, flest hröð og
grípandi og valin þau lög sem ætla
mætti að flestir könnuðust við.
Langflest voru þau flutt á ensku,
nokkur á íslensku og svo hvort lagið
um sig á norsku og frönsku.
Davíð, Hjördís, Guðrún og Haf-
steinn hituðu upp með laginu „Wat-
erloo“ með ABBA frá 1974, sem
jafnframt var elsta lagið sem ákveð-
ið var að flytja. Flutningur þess var
hálfmisheppnaður, samsöngurinn
allur á skjön, enda hef ég grun um
að söngkerfið hafi verið fínstillt á
meðan á flutningi lagsins stóð. En
þetta voru bara byrjunarörðugleik-
ar. Þó að seinna kæmi í ljós að radd-
ir Davíðs og Hafsteins hljómuðu
ekki sérstaklega vel saman, var yf-
irleitt reynt að fara í kringum það í
útsetningum. Sama má í raun segja
um raddir Hjördísar Elínar og Guð-
rúnar Árnýjar. Þetta kom sjaldnast
að sök því oft var karl- og kvenrödd-
um blandað saman eða Guðbjörg
var fengin til að bjarga málunum.
Davíð Olgeirsson sýndi í Bee
Gees-sýningunni fyrir rúmum
þremur árum að það er töluvert í
hann spunnið sem söngvara. Hann
var mjög líflegur á sviði og reyndi
að setja sig í spor frumflytjenda lag-
anna með leikrænum tilburðum.
Þar má nefna hreiminn í laginu
„Hold Me Now“ sem Írinn Johnny
Logan gerði frægt á sínum tíma.
Best tókst honum upp í „Fly on the
Wings of Love“ sem skaut Olsen-
bræðrunum dönsku aftur upp á
stjörnuhimininn.
Hjördís Elín og Guðrún Árný búa
þrátt fyrir ungan aldur að mikilli
reynslu. Þær eru hagvanar á sviðinu
í Broadway og öryggið uppmálað
sem skilar sér í betur unnum hreyf-
ingum og dansi. Svo eru þær báðar
firnagóðar söngkonur. Skemmtilegt
var t.d. að fylgjast með þeim saman
Morgunblaðið/Árni Torfason
Guðný Árný Karlsdóttir, Davíð Olgeirsson og Hjördís Elín Lárusdóttir í
sannri diskósveiflu búin eins og rúmenskir skautadansarar.
Stjörnur
morgundagsins?
SKEMMTANIR
Broadway
Leikstjóri: Egill Eðvarðsson. Búningar:
Sigríður Guðlaugsdóttir. Ljósahönnun:
Aðalsteinn Jónatansson. Tónlistarstjóri:
Gunnar Þórðarson. Hljóðstjórn: Bjarni
Bragi Kjartansson. Hljómsveit Gunnars
Þórðarsonar: Ásgeir Steingrímsson,
Kristinn Svavarsson og Sigurður Flosa-
son (blásturshljóðfæri og ásláttur), Har-
aldur Þorsteinsson (bassi), Gunnar Þórð-
arson (gítar) Jon Kjell Seljeseth
(hljómborð) og Sigfús Óttarsson (tromm-
ur). Slaghörpusláttur undir borðum:
Haukur Heiðar. Höfundur dans og hreyf-
inga: Selma Björnsdóttir. Dansarar: Ásta
Bærings og Sigyn Blöndal. Búningar: Sig-
ríður Guðlaugsdóttir. Kynnar: Logi Berg-
mann Eiðsson og Selma Björnsdóttir.
Söngvarar: Davíð Olgeirsson, Guðbjörg
Magnúsdóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir,
Hafsteinn Þórólfsson og Hjördís Elín Lár-
usdóttur. Yfirmatreiðslumaður: Sigurður
Sigurðsson. Laugardagur 24. apríl.
EUROVISION – Í BEINNI
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl 2, 4 og 6. B.i. 12
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Traust, svik og blekkingar. Í
heimi leyniþjónustunnar er ekki
allt sem sýnist.
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
400
kr
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Miðasala opnar kl. 13.30
HL MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
X-97,7
kl. 3, 6 og 9.
Heims
frumsýning
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl. tal. 400 kr.
Sagan
heldur áfram.
Enn stærri og
magnaðri en fyrri
myndin.
Missið ekki af þessari!
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 12
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
Sýnd kl. 4 og 5.50. Tilboð 400 kr.
400
kr
Sýnd kl. 10. B.i. 14.Sýnd kl. 8.
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð
... þangað til
hún byrjaði!
Heims
frumsýning
Sagan
heldur áfram.
Enn stærri og
magnaðri en fyrri
myndin.
Missið ekki af þessari!
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
SMÁRALIND • S. 555 7878
Laugavegi 63 • sími 5512040
Vönduðu silkiblómin
fást í
Útitré - útiker
DILBERT
mbl.is