Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 11 hækkun varð á launatöxtum. Með- allaun á 4. ársfjórðungi 2002 byggj- ast á upplýsingum um laun rúmlega 15.500 starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Að meðaltali fengu launamenn greiddar 186.200 krónur í regluleg laun. Meðaltal heildar- launa var 239.000 krónur og meðal- vinnutími 45,2 stundir, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Verkafólk vinnur lengsta vinnutímann Fram kemur að verkafólk og iðn- aðarmenn vinna lengsta vinnutím- ann. Verkafólk tæpar 49 stundir á viku og iðnaðarmenn tæpar 47 stundir. Sérfræðingar og stjórnend- LAUN hækkuðu að meðaltali um 4,8% á tímabilinu frá fjórða ársfjórð- ungi 2001 til sama tímabils árið 2002, að því er fram kemur í launakönnun Kjararannsóknanefndar. Á sama tímabili hækkaði vísitala neyslu- verðs um 2,3% og jókst því kaup- máttur launa samkvæmt því að með- altali um 2,5% á tímabilinu. Launahækkun starfsstétta var á bilinu 3,4% til 6,3%. Laun kvenna hækkuðu um 5,6% en karla um 4,4%. Laun á höfuðborgarsvæði hækkuðu jafnmikið og laun utan höfuðborgar- svæðis eða um 4,8%. Laun hækkuðu almennt sam- kvæmt kjarasamningum um 3% hinn 1. janúar 2002 auk þess sem sérstök ur vinna hins vegar stysta vinnutím- ann tæpa 41 stund á viku. Þegar laun einstakra starfsstétta eru skoðuð kemur í ljós að verkafólk er með lægstu launin, 137.800 kr. í regluleg laun, þjónustu-, sölu og af- greiðslufólk er með 154.700 kr., skrifstofufólk með 177.600 kr., iðn- aðarmenn 209.800 kr., tæknar og sérmenntað starfsfólk 283.700 kr., sérfræðingar með 340.900 kr. og stjórnendur með 376.800 kr. Tölur Kjararannsóknarnefndar á 4. ársfjórðungi 2001 til jafnlengdar 2002 Kaupmáttur óx um 2,5% & +& -&& -+& !&& !+& %&& %+& *+&*&& ./#       !   " # !   " $ "%"% & " ' " """                0    ( " " " ) " " (  ) *+) "   ,--,   1  23   4 STEFÁN Hermannsson borgarverk- fræðingur hefur upplýst að gengið verði til viðræðna við hann um að hann taki að sér framkvæmdastjórn Austurhafnar-TR ehf. sem stofnað hef- ur verið til að annast framkvæmd sam- komulags um bygg- ingu tónlistarhúss og ráðstefnumið- töðvar við Austur- höfn. Tölvupóstur sem Stefán sendi samstarfsfólki sínu þess efnis var lesinn upp af borgar- stjóra á borgarstjórnarfundi á mið- vikudag. Fram kemur í bréfinu að stjórn Austurhafnar-TR hafi samþykkt til- lögu Ólafs B. Thors, formanns stjórn- ar, um að gengið yrði til viðræðna við Stefán. „Ég hef tekið jákvætt í þetta og er það gert í góðri sátt við borg- arstjóra, Þórólf Árnason. Gangi þetta eftir mun ég láta af störfum eftir 3–4 mánuði og í raun byrja að undirbúa þetta verkefni eins fljótt og mögulegt er,“ segir í bréfinu. „Ég vil undirstrika að hér er borgin að gefa kost á því að til þessa merka verks verði ráðinn sá besti maður sem við teljum að komi til greina og ég óska Stefáni til hamingju,“ sagði borgarstjóri. Borgarverk- fræðingur annast fram- kvæmd UMFERÐ rússneskra herflugvéla um íslenska loftvarnarsvæðið hefur verið mjög stopul frá lok- um kalda stríðsins haustið 1991 en var fram að því töluverð um þriggja áratuga skeið. Hámarki náði flugumferðin á árunum 1985 og 1986 þegar bandarískar flugvélar af Keflavíkurvelli voru sendar til móts við um 160 sovéskar vélar hvort ár, eða um 320 vélar á þessum tíma. Eftir að kalda stríðinu lauk kom engin vél inn á loftvarnarsvæð- ið fyrr en 1999 og nú síðast á föstudag þegar tvær rússneskar vélar, svokallaðir „Birnir“, önnur kaf- bátaleitarvél og hin fjarskiptavél komu inn á svæðið og fóru út aftur eftir 25 mínútna flug. Íslenska loftvarnarsvæðið nær að meðaltali 150 sjómílur út frá ströndinni og hefur svipaður viðbúnaður verið viðhafður þegar aðkomuvélar koma inn á það. Varnarliðsvélar hafa verið sendar á loft til að fylgja þeim eftir á meðan flogið er inn- an svæðisins og eru aðkomuvélarnar ljósmynd- aðar í lofti og fylgst með þeim. Ekkert skyldar aðkomuvélar til að tilkynna sig þegar þær koma inn á svæðið, en „Birnirnir“ frá því á föstudag komu einmitt ótilkynntir inn á svæðið. Með loft- varnarsvæðinu er átt við það svæði sem auglýst er á flugkortum og Varnarliðið áskilur sér rétt til að vita hvað er inni á á hverjum tíma. Ekki er um að ræða sjálfa 12 mílna lofthelgina sem Varnarlið- inu er falið að verja gegn óboðnum gestum. Frið- þór Eydal upplýsingafulltrúi Varnarliðsins segir að umferð sovéskra véla um svæðið hafi byrjað haustið 1962 í Kúbudeilunni, en eftir 1986 fór mjög að draga úr umferðinni. „Það varð svolítill skjálfti 1986 þegar Rússar fóru að nota nýja út- gáfu af H-módeli af „Björnum“ sem báru lang- drægar stýriflaugar sem gátu borið kjarnorku- vopn og æfðu flug að skotmörkum á austurströnd Bandaríkjanna,“ segir hann. Mismunandi er hversu nálægt lofthelginni vélarnar fóru á þeim þrem áratugum sem um ræðir. Ekki er vitað til þess að nokkur samskipti hafi átt sér stað milli aðkomuvélanna og varnarliðsvél- anna þau ár sem fylgst var með þeim á flugi. Orustuþota frá Varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli fylgist með rússneskri Bjarnar- sprengiflugvél við Ísland á árum áður. Umferð sovéskra herflugvéla á íslenska loftvarnarsvæðinu náði hámarki 1985–1986 Varnarliðsvélar sendar til móts við á fjórða hundrað véla FRAMBJÓÐENDUR eru á ferð og flugi þessa dagana og jafnvel á milli kjördæma, eins og Guðni Ágústs- son, varaformaður Framsókn- arflokksins og oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, sem brá sér ásamt Dagnýju Jónsdóttur á fund með hestamönnum og öðrum gestum í hesthúsinu í Hringsholti í Dalvík- urbyggð, þar sem áður var loð- dýrabú. Dagný skipar 3. sætið hjá Fram- sóknarflokknum í Norðaust- urkjördæmi. Yfir 50 manns komu á fundinn og var létt yfir umræðunum. „Þetta var sannarlega góð stund milli mjalta og messu og með skemmti- legri framboðsfundum sem ég hef farið á,“ sagði Guðni, sem hér er ásamt Dagnýju og einum gæðing- anna í Hringsholti. Guðni og Dagný á fundi með hestamönnum Utanríkisþjónustan ómissandi bandamaður Yfirlýsing um starfsemi utanríkisþjónustunnar MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá nokkrum stjórnendum fyrirtækja eða samtaka þeirra vegna umræðna um utanríkisþjónustuna. „Við undirritaðir starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja eða samtaka þeirra, sem eiga mikið undir erlend- um mörkuðum og kynningarstarfi er- lendis, hörmum villandi mynd sem reynt er að draga upp af starfsemi ut- anríkisþjónustunnar í aðdraganda kosninga. Fyrirtæki okkar hafa notið liðsinnis þessa mikilvæga ráðuneytis á erlendum vettvangi og hefur atbeini þess oft ráðið úrslitum í málum, sem snerta veigamikla hagsmuni. Bættur hagur fyrirtækja og nýir markaðir færa samfélaginu öllu mik- inn ávinning með nýjum störfum og gjaldeyristekjum. Á síðustu árum hafa verið gerðar miklar breytingar sem miða að því að ráðuneytið geti enn betur þjónað viðskiptalífinu og er það fagnaðarefni. Við teljum utanríkisþjónustuna ómissandi bandamann í útrás íslensks atvinnulífs.“ Undir yfirlýsinguna rita eftirtaldir: Arngrímur B. Jóhannsson, stjórnarformaður Atlanta hf. Benedikt Sveinsson, forstjóri SÍF Iceland Seafood Corporation. Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Eimskips hf. Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF. Gunnar Svavarsson, forstjóri SH. Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri SÍF. Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta hf. Hörður Arnarson, forstjóri Marels hf. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri hf. Eimskipafélag Íslands. Jón Hjaltalín Magnússon, forstjóri ALTECH. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Flugfélags Íslands, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Jón Sigurðarson, framkvæmdastjóri Bára ehf. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf. Magnús Gústafsson, forstjóri Icelandic USA. Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður Samskipa. Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Íslandsflugs. Ragnar S. Halldórsson, stjórnarformaður ALTECH. Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður SH. Sigurður Helgason, forstjóri Icelandair/Flugleiða. Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri Icelandair, markaðsstjóri Flugleiða. Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. SIV Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra hefur falið Um- hverfisstofnun Ísafjarðarbæj- ar að annast umsjón og rekstur friðlandsins á Horn- ströndum, en samningur þar að lútandi var undirritaður í gær. Með samningnum tekur Ísafjarðarbær að sér að sjá um að umgengni og ástand friðlandsins sé með besta móti og að farið sé að reglum frið- landsins. Ísafjarðarbær mun einnig sjá um að upplýsa ferðamenn um umgengnis- reglur og viðhalda gönguleið- um og upplýsingaskiltum í friðlandinu. Samningurinn gildir í eitt ár. Friðlandið á Horn- ströndum í umsjón Ísa- fjarðarbæjar Bygging nýs tónlistarhúss Stefán Hermannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.