Morgunblaðið - 03.05.2003, Síða 10

Morgunblaðið - 03.05.2003, Síða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á FUNDI Framsóknarflokksins í gær með fasteignasölum og forráða- mönnum Íbúðalánasjóðs voru kynnt- ar hugmyndir um það að gera fólki kleift að taka 90% húsnæðislán. Talsmenn flokksins sögðu að fjöl- skyldurnar í landinu væru með sam- tals 60 milljarða í yfirdrátt í bönkum landsins og væru að borga himinháa vexti af honum. Segja talsmenn flokksins að með nýja húsnæðislána- kerfinu, sem verður komið í gagnið að fullu árið 2007, hafi fjölskyldurnar meira á milli handanna og þurfi síður að nýta sér yfirdráttarheimildir bankanna. Árni Magnússon, sem situr í 2. sæti Reykjavíkurkjördæmis norður, kynnti áætlun um breytingar á nýju húsnæðislánakerfi. Hann sagði að áætlað væri að lánin hækkuðu í áföngum. Hann sagði að til stæði að hinn 1. desember á næsta ári væri lánshlutfall komið upp í 70% af brunabótamati íbúðar auk þess sem hámarkslán yrðu hækkuð í t.d. 10 milljónir. 1. maí 2004 færi lánshlut- fall upp í allt að 75%, 1. maí 2005 upp í 80%, 1. maí 2006 upp í 85% og 1. maí árið 2007 upp í 90% lán, þar sem há- markslán væri t.d. orðið 21 milljón króna. Árni sagði mjög mikilvægt að kerfið væri sett á í áföngum til þess að halda aftur af þenslu, vaxtahækk- unum, skyndilegri hækkun húsnæðis og auknum afföllum húsbréfa. Halldór Ásgrímsson sagði að nú væri möguleiki á að hækka lánapró- sentuna þar sem nokkur stöðugleiki hafi náðst í þjóðfélaginu. Árni tók undir og sagði að sala á íslenskum húsbréfum væri að aukast. Nú seld- ust íslensk húsbréf fyrir 4-5 millj- arða á mánuði og enn væri aukning þar á. „Við viljum halda áfram að end- urskipuleggja fjármálamarkaðinn á Íslandi og viljum taka frekari skref í húsnæðismálum,“ sagði Halldór. Fasteignasalarnir sem sátu fund- inn lýstu áhyggjum sínum yfir að lánin væru bundin brunabótamati sem þeir vildu meina að væri að jafn- aði 20% lægra en eiginlegt fasteigna- verð. Sögðust þeir halda að íbúðar- verð hækkaði en brunabótamat ekki og því sæti fólk með svipaða greiðslubyrði og nú þrátt fyrir að lánið væri hærra í prósentum talið. Þeir sögðu núverandi 90% undan- þágulán virka vel þar sem þau væru í hlutfalli við raunverulegt fasteigna- verð íbúðanna. Halldór sagði að kerfið væri enn í þróun og að enn væri hægt að bæta það. Hann sagði að vel mætti endurskoða tengingu lánanna við brunabótamat og finna betri lausnir. Forráðamenn Íbúða- lánasjóðs vöruðu þó við slíku og sögðu að ef húsnæðislán tengdust fasteignaverði væri hætta á stór- hækkun á íbúðarverði. Árni sagði að flokkurinn hafi lagt grunnhugmynd sína að breytingunni fyrir Íbúðalánasjóð og að áætlunin hafi verið unnin í takt við það. Hann sagði að tæknilega ætti ekki að vera mikið mál að koma nýja kerfinu í gagnið. Halldór var þá spurður af fast- eignasölunum hvort hann teldi erfitt að koma málinu í gegnum Alþingi og hann svaraði því þannig, að það færi allt eftir því hvort flokkurinn yrði í meirihluta eða ekki. „Við teljum að þetta gæti haft já- kvæð áhrif á efnahagslífið í landinu á margvíslegan hátt,“ sagði Halldór. Hann sagði einnig að ef kerfið kæmist í gagnið væri fólk með lægri greiðslubyrði á mánuði þar sem það þyrfti þá ekki að taka bankalán eða lífeyrissjóðslán til að ná upp í út- borgun. „Við viljum vera varkárir í þessu. Betra er að fara varlega og bæta heldur við,“ sagði Halldór. Framsóknarmenn kynntu fasteignasölum tillögur sínar í húsnæðismálum Morgunblaðið/Árni Torfason Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, kynnti áætlun um 90% húsnæðislán á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins í gær. Fjölskyldurnar með um 60 milljarða í yfirdráttarlán „VIÐ TELJUM mikilvægt að það verði skoðað rækilega hvort skatt- peningarnir eru notaðir á hagkvæm- an hátt í heilbrigðismálum fyrir skattgreiðendur og sjúklinga. Við viljum reyna að breyta forgangsröð- un þar. Sjúklingar ættu að hafa for- gang, það ætti að skilgreina rétt sjúk- linga og vinna út frá því.“ Þetta sagði Margrét Sverrisdóttir, sem skipar efsta sæti á lista Frjálslynda flokks- ins í Reykjavík suður, á vinnustaða- fundi á Landspítalanum í Fossvogi í gær. Sagði hún flokkinn andsnúinn þeirri hugmynd ungra sjálfstæðis- manna að sjúklingar ættu að greiða fyrir fæði og húsnæði á sjúkrahúsum. Margrét sagði Frjálslynda flokk- inn hafa mótmælt því harðlega á Al- þingi að ríkisstjórnin veitti Decode ríkisábyrgð. „Það samræmist engan veginn hugsjónum um frjálsa sam- keppni að hygla einkafyrirtæki á þann hátt.“ Margrét minntist einnig á skatta- mál á fundinum og sagði að Frjáls- lyndi flokkurinn vildi hækka per- sónuafsláttinn um 10 þúsund krónur því það myndi hafa meira að segja en flöt skattalækkun sem stjórnarflokk- arnir boðuðu. Margrét greindi frá hugmyndum frjálslyndra um fiskveiðistjórnun. „Við mótmælum kvótakerfinu vegna áhrifa þess á byggðir landsins. Við höfum komið með skýrar og raun- hæfar tillögur um breytingar á því.“ Sagði Margrét að hugmyndirnar gengju ekki út á að svipta skip veiði- rétti heldur að breyta kerfinu á þann hátt að kvótabrask heyrði sögunni til og brottkast sömuleiðis. Vinnustaðafundur Frjálslynda flokksins á Landspítalanum í Fossvogi Morgunblaðið/Jón Svavarsson Margrét Sverrisdóttir, sem skipar 1. sæti á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður, ræddi við starfsfólk Landspítala í Fossvogi í gær. Skilgreina þarf rétt sjúklinga SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra hefur ákveðið að veita tvær milljónir króna á tveimur árum til að greiða fyrir sérhæfða lögfræðiaðstoð við þolendur heimilisofbeldis sem leita til Slysa- og bráðadeildar. Er þetta gert að tillögu nefndar sem dómsmálaráðherra skipaði árið 1997 og koma átti með tillögur um hvern- ig sporna mætti við heimilisofbeldi. Um 140 einstaklingar leita til slysadeildar ár hvert vegna heimilis- ofbeldis og munu þeir nú hafa að- gang að löglærðum talsmanni sér að kostnaðarlausu en kostnaður hefur í mörgum tilfellum hindrað það að þolendur leiti sér lögfræðiráðgjafar. Sólveig segir afar brýnt að bæta þjónustu við hóp þolenda heimilisof- beldis. „Móttakan mun standa öllum þolendum heimilisofbeldis opin og þjónustan er óháð því hvort þeir sem til hennar leita hafi í huga að kæra brotið til lögreglu. Við þurfum að stuðla að viðhorfsbreytingu í þjóð- félaginu gagnvart málum sem þess- um og ég held að við séum að stíga spor í rétta átt með því að stofna til þessarar móttöku,“ segir Sólveig. Hún segir að þolendur heimilisof- beldis séu oftast konur en einnig komi fyrir að aðstoða þurfi börn og í slíkum tilfellum sé sérstaklega mik- ilvægt að móttakan eigi náið sam- starf við lögreglu og félagsmálayf- irvöld. Að sögn Sólveigar verður móttakan byggð upp með svipuðum hætti og neyðarmóttaka vegna nauðgana sem starfrækt hefur verið um árabil. „ Neyðarmóttakan hefur sýnt fram á gildi og þýðingu slíkrar aðstoðar en við höfum styrkt þá neyðarmóttöku í því að veita lög- fræðiaðstoð og hefur starfsfólk þar staðið sig afar vel,“ segir Sólveig. Þurfa styrk og stuðning Guðbjörg Pálsdóttir deildarstjóri Slysa- og bráðadeildar segir að þessi aðstoð muni breyta miklu þar sem þolendur heimilisofbeldis þurfi gjarnan á miklum stuðningi að halda til þess að geta tekið á sínum málum. „Við erum óskaplega ánægð með þetta samkomulag og alsæl fyrir hönd okkar skjólstæðinga. Þessir einstaklingar hafa oft búið við andlegt og líkamlegt ofbeldi í mjög langan tíma, jafnvel til margra ára, og þá getur verið erfitt að virkja þá til þess að taka af skarið og gera eitthvað í sínum málum í staðinn fyr- ir að fara heim aftur og búa við svip- aðan hlut áfram. Allur stuðningur og styrkur sem við getum veitt þessum konum er mjög mikilvægur. Allt sem hjálpar þeim að taka fyrstu skrefin er lykilatriði í því að það gerist eitt- hvað í þeirra málum,“ segir Guð- björg. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Margrét Tómasdóttir, sviðsstjóri á slysa- og bráðasviði, og Sólveig Péturs- dóttir dómsmálaráðherra undirrituðu í gær samkomulag um bætta þjón- ustu við þolendur heimilisofbeldis að viðstöddu starfsfólki á deildinni. Dómsmálaráðherra gerir samkomulag við LSH Þolendur heimilisofbeldis fái fría lögfræðiaðstoð SAMKVÆMT skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem birt var í gær, nýtur Sjálfstæðisflokkurinn mests fylgis. Fylgi flokksins er skv. könn- uninni 34,7%, fylgi Samfylkingarinn- ar er 28,9%, fylgi Framsóknarflokks- ins 15,6%, fylgi Frjálslynda flokksins 10,6%, fylgi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 8,7% og fylgi Nýs afls 1,4%. Væru niðurstöðurnar úrslit alþing- iskosninganna fengi Sjálfstæðisflokk- urinn 22 þingmenn, Framsóknar- flokkurinn tíu, Samfylkingin nítján, Frjálslyndi flokkurinn sjö og Vinstri grænir fimm. Skv. upplýsingum Fréttablaðsins var könnunin gerð í fyrradag. Úrtakið var 1.200 manns og tóku 84,1% af- stöðu í könnuninni. Ekki kemur fram í Fréttablaðinu hve margir sögðust óákveðnir eða ætluðu að skila auðu. Þá kemur aldursdreifingin heldur ekki fram. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur einnig mests fylgis skv. könnun sem Við- skiptaráðgjöf IBM gerði fyrir Stöð 2 dagana 29. til 30. apríl. Skv. henni er Sjálfstæðisflokkurinn með 38,5% fylgi, Samfylkingin með 26,5% fylgi, Framsóknarflokkurinn með 12,9% fylgi, Frjálslyndi flokkurinn með 11,5% fylgi, Vinstrihreyfingin – grænt framboð með 9,4% fylgi, Nýtt afl með 0,9% fylgi og aðrir með 0,3% fylgi. Spurt var: Hvaða flokk ætlar þú að kjósa í komandi kosningum? Ef ekki fékkst afstaða var spurt: Hvaða flokk telur þú líklegast að þú myndir kjósa? Væru þetta úrslit kosninganna fengi Sjálfstæðisflokkurinn 25 þing- menn, Samfylkingin sautján, Fram- sóknarflokkurinn átta, Frjálslyndi flokkurinn sjö og Vinstri grænir sex. Skv. upplýsingum frá Viðskipta- ráðgjöf IBM voru 1.000 einstaklingar á aldrinum 18 til 89 ára spurðir í könnuninni. Um 25% sögðust óákveð- in, neituðu að svara eða sögðust ætla að skila auðu. Mest fylgi meðal eldri borgara Viðskiptaráðgjöf IBM kannaði einnig afstöðu fólks á aldrinum 68 til 89 ára til stjórnmálaflokkanna. Í þeim aldurshópi nýtur Sjálfstæðisflokkur- inn mests fylgis eða 32,1% fylgis. Samfylkingin nýtur 31,9% fylgis, Framsóknarflokkurinn 15,3% fylgis, Vinstrihreyfingin – grænt framboð 11,4% fylgis, Frjálslyndi flokkurinn 8,6% fylgis og aðrir 0,7% fylgis. Um 10% voru óákveðin eða neituðu að svara. Skv. upplýsingum frá Viðskipta- ráðgjöf IBM voru 600 einstaklingar spurðir í þessum aldurshópi á tíma- bilinu frá 23. til 30. apríl. Könnun Fréttablaðsins Sjálfstæð- isflokkur- inn með mest fylgi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.