Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Laugardag: 11.00-16.00 Sunnudag:13.00-17.00
MIKIL óánægja er meðal íbúa á
jarðskjálftasvæðinu í Austur-Tyrk-
landi með skipulag neyðaraðstoðar
við fólk sem býr í húsum er hafa
skemmst eða eyðilagst. Enn er leitað
að tugum barna í rústum svefnskála
heimavistarskóla í bænum Celtiks-
uyu sem hrundi í jarðskjálftanum en
ljóst er að yfir 100 manns létu lífið og
mörg hundruð slösuðust. Sum börn-
in í svefnskálanum komust lífs af
vegna þess að þau sváfu í stálkojum
sem veittu þeim nokkra hlíf fyrir
brakinu.
Margir íbúar á hamfarasvæðinu,
sem aðallega er byggt Kúrdum,
sváfu undir beru lofti í fyrrinótt. Yf-
irvöld höfðu varað fólk við hættunni
sem fylgdi eftirskjálftum en þeir
hafa verið margir.
Átök brutust út milli Kúrda og
lögreglu í helstu borginni, Bingol, í
gær en heimamönnum finnst að
hjálpargögn, einkum tjöld, berist
seint og illa. Einnig fullyrtu sumir að
ættingjar þingmanna fengju meiri
hjálp en aðrir. Embættismenn sögðu
á hinn bóginn að þeir reyndu að
sinna fyrst og fremst þeim sem
byggju í skemmdum húsum en
margir kæmu og heimtuðu tjöld þótt
ekkert væri að húsum þeirra.
Lögreglumenn skutu úr sjálfvirk-
um rifflum upp í loftið eftir að hundr-
uð manna höfðu eyðilagt lögreglubíl.
Sumir mótmælendur rifu steina úr
hellulögðum götum og köstuðu í lög-
reglumenn og í skrifstofu héraðs-
stjórans í Bingol. „Morðingjar í lög-
reglunni! Burt með lögregluna!“ var
hrópað og margir kröfðust þess að
herinn tæki við af henni. Tveir ör-
yggisverðir og þrír blaðamenn særð-
ust þegar þeir fengu í sig grjót, að
sögn fréttastofunnar Anatolia.
Átökin brutust út eftir að lögreglu
tókst ekki að dreifa nokkur hundruð
manna hóp sem krafðist afsagnar
héraðsstjórans og reyndi að ryðjast
inn á skrifstofur embættisins.
Nokkrir í hópnum slösuðust þegar
lögreglumenn óku bílum gegnum
mannfjöldann. Lögreglustjóra Bing-
ol var í gær vikið úr starfi.
Erdogan biður
fólk að sýna þolinmæði
Recep Tayyip Erdogan forsætis-
ráðherra sagði að hjálparstarf væri
komið vel af stað en bað fólk um að
sýna þolinmæði. Hann gagnrýndi
hins vegar lögregluna á staðnum.
„Öryggissveitirnar hefðu átt að ná
stjórn á ástandinu með aðferðum þar
sem tekið er tillit til sálarástands
fólksins,“ sagði ráðherrann. Erdog-
an hefur einnig heitið því að vinnu-
brögð fyrirtækisins, sem reisti
svefnskála heimavistarskólans, verði
rannsökuð en bent hefur verið á að
ýmsar aðrar byggingar stóðust auð-
veldlega skjálftana.
Hamfarir af þessu tagi eru tíðar í
Tyrklandi en jafnframt er spilling
mikil og fullyrt að sumir embættis-
menn þiggi mútur fyrir að horfa
fram hjá brotum á byggingareglu-
gerðum. Þess vegna séu mörg mann-
virki og þá ekki síst á vegum opin-
berra aðila ótraust.
Mikil tortryggni ríkir meðal
Kúrda í garð tyrkneskra öryggis-
sveita. Fimmtán ára skæruliðabar-
átta vinstrisinnaðrar hreyfingar úr
röðum Kúrda og aðgerðir stjórn-
valda gegn þeim hafa leitt til þess að
a.m.k. 37.000 manns hafa látið lífið
og milljónir hrakist frá heimilum sín-
um. Ótryggt vopnahlé hefur ríkt í fá-
ein ár.
Huseyin Avni Cos, héraðsstjóri í
Bingol-héraði, sagði að uppreisnar-
menn Kúrda væru að nýta sér jarð-
skjálftana til að auka á spennuna en
viðurkenndi að öryggissveitir kynnu
að hafa farið offari.
Óánægja með
hjálparstarf
Átök milli lögreglu og Kúrda á
jarðskjálftasvæðinu í Tyrklandi
Bingol, Celtiksuyu. AFP, AP.
AP
Kúrdar hrópa vígorð á mótmælagöngu í borginni Bingol í Tyrklandi í gær. Mikil óánægja er með hjálparstarfið
meðal íbúa borgarinnar eftir jarðskjálfta á fimmtudag og þeim finnst að hjálpargögn berist seint og illa.
IAIN Duncan Smith, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, fagnaði í gær góð-
um árangri í sveitarstjórnakosning-
um sem fram fóru í Bretlandi í fyrra-
dag en þar bætti flokkurinn við sig
545 sveitarstjórnarfulltrúum yfir
heildina. Einn liðsmaður skugga-
ráðuneytis Duncans Smiths, Crispin
Blunt, sá þó ástæðu til að segja af sér
embætti og lýsa því yfir að útkoma
flokksins væri engan veginn viðun-
andi. Sagði Blunt að skipta þyrfti
þegar um flokksleiðtoga.
Fréttaskýrendur líta flestir svo á
að Verkamannaflokkurinn hafi unnið
eins konar varnarsigur í kosningun-
um, þrátt fyrir að hann tapaði í heild-
ina hátt í 800 sætum í sveitarstjórn-
um í Bretlandi.
Tapaði flokkurinn m.a. meirihluta
í borgarstjórn Birmingham, næst-
stærstu borg Bretlands, eftir nítján
ára valdatíð þar. Þá tapaði hann yfir-
ráðum í Bristol og Coventry, en vann
hins vegar meirihluta í Plymouth af
Íhaldsflokknum.
Ekki er óalgengt að flokkar sem
fara með stjórnartaumana í Bret-
landi tapi nokkru fylgi í sveitar-
stjórnakosningum, sem haldnar eru
á miðju kjörtímabili, og þá var sú
ákvörðun Tonys Blairs forsætisráð-
herra, að styðja herför Bandaríkja-
stjórnar í Írak, mjög umdeild.
Frjálslyndir með 30% fylgi
Verkamannaflokkurinn náði góð-
um árangri í kosningum til heima-
stjórnarþingsins í Wales, en þar
vantaði aðeins eitt þingsæti upp á að
hann næði hreinum meirihluta. Í
Skotlandi tapaði flokkurinn nokkr-
um þingsætum en samsteypustjórn
Verkamannaflokks og Frjálslyndra
demókrata verður þó væntanlega
áfram við völd.
Frjálslyndir demókratar bættu
við sig meira en 179 sætum í sveit-
arstjórnum Bretlands og fengu sem
samsvarar um 30% atkvæða í kosn-
ingunum yfir heildina. Er það hlut-
fall atkvæða besta útkoma sem
flokkurinn hefur fengið. Útkoma
Verkamannaflokksins var svipuð,
flokkurinn fékk yfir heildina um 30%
atkvæða, en Íhaldsflokkurinn fékk
35% atkvæða. Kjörsókn í kosningun-
um var um 37%.
Sérstaka athygli vakti að Þjóðar-
flokkurinn, sem er hægriöfgaflokk-
ur, hefur nú tvöfalt fleiri sæti í sveit-
arstjórnum landsins en áður, þ.e.
ellefu, og í Burnley er flokkurinn nú
næststærstur flokka – en þar hefur
sambúð hvítra manna og asískra inn-
flytjenda verið erfið undanfarin ár.
Iain Duncan Smith sagði niður-
stöðuna „glæsilegan sigur“ fyrir
Íhaldsflokkinn. Sagði hann að bresk-
ir kjósendur hefðu sent skýr skila-
boð um að þeir teldu ríkisstjórn
Blairs hafa svikið loforð sín. „Þeir
eru að segja að nú sé nóg komið og
þessi frábæru úrslit gefa okkur því
tækifæri til að taka skref fram á við
næstu tvö árin eða svo, þegar þing-
kosningar verða haldnar, og sýna að
við getum enn á ný – eins og sveit-
arstjórnir undir okkar stjórn munu
sýna – stjórnað þessu landi,“ sagði
Duncan Smith.
„Þurfum að skipta um leiðtoga“
Crispin Blunt, sem verið hefur
talsmaður Íhaldsflokksins í verslun-
ar- og viðskiptamálum, var á annarri
skoðun. Hann hefur nú sagt af sér
embætti og lét hann þess getið að
ekki væri nóg að fá aðeins 35% at-
kvæða á þessu stigi, þ.e. þegar kjör-
tímabilið er u.þ.b. hálfnað. Slík nið-
urstaða nú bendi ekki til að
flokkurinn eigi mikla möguleika á að
sigra í næstu þingkosningum.
„Við eigum við þann vanda að
stríða að íhaldsmenn bæði á þingi og
utan þess telja ekki að þeir hafi leið-
toga sem þeir geti sagt við kjósendur
að yrði góður forsætisráðherra,“
sagði Blunt.
Hann viðurkenndi að með afsögn
sinni hefði hann viljað stuðla að því
að vantrauststillaga yrði lögð fram
gegn Duncan Smith í þingflokknum.
„Ef við sem stjórnmálaflokkur vilj-
um raunverulega ná völdum á ný, þá
þurfum við nú að skipta um leið-
toga,“ sagði Blunt.
Breskir íhaldsmenn unnu á
í sveitarstjórnarkosningum
Hart sótt að Duncan Smith þrátt
fyrir ágætan árangur í kosningunum
London. AFP.
AP
Iain Duncan Smith, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, ávarpar starfsmenn
höfuðstöðva flokksins í London í gær eftir sveitarstjórnarkosningarnar.